Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1994, Page 4
26
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
„Þetta oröin eins konar hefð hjá
okkur. Á fostudögum hittumst viö
alltaf hér og borðum vöfflur. Ætli
þetta sé ekki sprottið upp úr
aðgerðaieysinu síðustu mánuði.
A næstunni verður hins vegar
farið að skipta þessu niður á
hljómsveitarmeðlimi þannig að ég
lendi ekki alltaf í því að baka. Annars
bý ég til bestu vöfQumar, gulbrúnar
og fallegar," segir Hrafli.
Erlendis
Draumur inn um útlönd er langt frá
því að vera dauður. í samstarfi við
útgáfufyrirtækin CNR, ZYX og Bene-
lux er nú í gangi mikiö kynningar-
starf erlendis og 2. nóvember síðast-
liðinn héldu sveitarmeölimir út í
tónleikaferð. Fyrsta stopp verður í
Baden-Baden á stórhljómleikum
útvarpsstöðvar á lestarstöð. Á þess-
um hljómleikum kemur hljómsveitin
fram auk Stiiskin o.fL en hljómleik-
unum verður útvarpað um Þýska-
land þvert og endilangt. Síðan tekur
við tveggja vikna tónleikahald sem
endar í Hollandi.
Jet Black Joe eru því langt frá því
að vera týndir og tröllum gefnir,-
eitthvað sem nýja platan á eftir að
sýna og sanna enn betur en þessi
grein hér. GBG
Flestir íslendingar kannast nú
orðið við hljómsveitina Jet Black Joe.
Hljómsveitin hefur þegar gefið út
tvær plötur hér á landi og erlendis er
markaðssetning á plötunni You ain’t
here í fullum gangi. Síðastliðið ár eða
svo hefur þó lítiö heyrst til þeirra.
Allt tónleikahald hefur legið niðri
og af þeim ástæðum hafa sprottið upp
alls kyns sögusagnir sem ekki er vert
að hafa eftir hér. Biðstaða
orðið sem lýsir athöfnum þeirra
síðastliðið ár hvað best. Bið eftir því
að eitthvað gerðist erlendis.
Sköpun hljómsveitarinnar verður
þó ekki haldið niðri og mitt í aliri
biðinni hefur orðið til glænýtt tólf
laga stykki sem er væntanlegt í plötu-
búðir 14. nóvember. Jet Black Joe
kynnir Fuzz.
Enginn
meðalvegur
„Þessi plata inniheldur öfgar í allar
áttir,“ segir Gunnar Bjarni gítar-
frömuður. í byrjun ætlaði hljómsveit-
in sér einungis að taka upp tvö til þrjú
lög. En veran í hljóðverinu lengdist
og að mati strákanna er útkoman það
besta sem þeir hafa gert til þessa.
Upptökur hófust i lok ágúst og lauk i
lok september.
Strákarnir segja plötuna ekki
innihalda þungarokk. „Þetta er
meira pönk, hrárra en áður, auk þess
sem við snertum viö öðrum tón-
listarstefnum." Það var víst lengi
legið yfir alis konar sándum í hljóð-
verinu og til sögunnar voru kallaðir
nokkrir vel kunnir upptökumenn.
„Ólafur Halldórs var mest með
okkur en aðrir sem komu við sögu
voru t.d. Jón Skuggi, Páil Borg og ívar
Bongó.“ Platan Fuzz er eins og áður
segir væntanleg í verslanir 14.
nóvember.
Vöffludagar
Það vildi þannig til að þetta viðtal
var tekið á föstudegi heima hjá Hrafni
hljómborðsleikara sem var í óða önn
að búa til vöfifludeig þegar mig bar að
garði. Ég spurði hverju þetta sætti.
Fuzz, ný plata Jet Black Joe, inniheldur 12 ný lög og er værrtanleg í verslanir 14. nóvember.
DV-mynd ÞÖK
Ný plata hljómsveitarinnar Unun er
væntanleg í verslanir á næstu dögum.
DV-mynd GVA
Suede - Dog Man Star:
★ ★ ★
Tónlist Suede er öll eins og hún leggur
sig undir áhrifum frá Ziggy Stardust
tímabili Bowies, ákaflega vandað og
mikið í lagt. -SÞS
Neil Young - Sleeps with Angels:
★ ★ ★ ★
Sleeps with Angels verður ein af
skærustu perlum ársins 1994 og gott ef
ekki áratugarins. -SÞS
Björn Jörundur- BJF:
★ ★ ★
Bjöm Jömndur hefur sýnt sig og
sannað sem tónlistarmaður og
textahöfundur í sérflokki. -GB
Bubbi Morthens- Þrír heimar:
★ ★ ★ ★
Að mínu mati er Þrír heimar
tvímælalaust hans besta plata til þessa,
plata sem sýnir að hann er óhræddur
við nýjungar. -GB
Oasis- Definitely Maybe:
★ ★ ★ Á
Þessi blanda er ansi skemmtileg og
heldur manni við efnið i hlustun og
þyngstu lög plötunnar em best. -PJ
Seal- Seai:
★ ★ ★
Seal er vel þess virði að leggjast út af
í stofunni heima hjá sér og láta hugann
reika á meðan platan rúllar. -GB
Hljómsveitin Unun segir „æ"
- platan væntanleg í verslanir á næstu dögum
Það verður að teljast til tíðinda
þegar Gunnar Hjálmarsson (dr.
Gimni) og Þór Eldon hefja samstarf
á sviði tónlistarinnar. Hugmyndin að
Unun varð til fyrir ári en það var ekki
fyrr en í vor að upptökur hófust á
plötunni „æ“.
Textamir voru allir samdir með
kvenrödd í huga og til verksins var
fengin Heiða Eiríksdóttir sem nú ber
titilinn söngkona hljómsveitarinnar.
Um trommuleikinn sér síðan Ólafur
Bjöm Ólafsson.
plt'tugagnrýni
„æ“ er þrettán laga plata á
íslensku, fyrir utan eitt lag sem er á
íslensku og frönsku.
„Illa/vel dul-
búið pönk...“
...segir Þór Eldon, ekki alveg
ákveðinn hvort það skal vera. „Þetta
er eins létt og skemmtilegt og við
The Cranberries
- No Need to Argue
^★★★á
Irskt
afbragð
írar hafa ungað út mörgum
frábærum hljómsveitum og tón-
listarmönnum um dagana og má þar
nefna U2, The Pogues, Sinead
O’Connor og Van Morrison sem örfá
dæmi. Nú sýnist mér sem enn eitt
irska nafnið sé að festa sig í sessi í
poppsögunni en það er hljómsveitin
The Cranberries. Hún gaf út fyrstu
plötu sína í fyrra og fékk mikil lof
fyrir og tókst meira að segja það sem
flestum nýrri breskum sveitum tekst
ekki; að vekja athygli í Banda-
rikjunum. Nú er önnur plata
Cranberries komin út og ber það með
sér að það lof sem hljómsveitin fékk
fyrir fyrstu plötuna var engin
tilviljun. No Need to Argue er mun
þroskaðra verk, jaftiari plata og
heilsteyptari í alla staði og lofar
einstaklega góðu um framtíð
sveitarinnar. Tónlistin er melódískt
popprokk með sterkum írskum
áhrifum; sérstaklega eru áberandi
áhrif frá Sinead O’Connor og Enyu og
á það bæði við um lagasmiðar og
söng. Reyndar má líka heyra aö
söngstíll og raddbeiting Bjaikar
Guðmundsdóttur er farin að smita út
frá sér. Þessi söngkvennaáhrif hjá
Cranberries eru skiljanlegri í ljósi
þess að hljómsveitin skartar
söngkonu í fremstu röð, Dolores
O’Riordan heitir hún og er aldeilis
frábær. Hún semur öll lög og texta
hljómsveitarinnar, ýmist ein eða í
samvinnu við annan Hogan-
bræðranna sem skipa hljómsveitina
ásamt Dolores og Feargal Lawler.
Þetta eru engin slorlög; margir ættu
að kannast við lagið Zombie sem
nýtur mikilla vinsælda hérlendis um
þessar mundir; lag sem verður
tvímælalaust í hópi þeirra bestu á
árinu. Það sama gildir um plötuna
sem heild; hún verður í hópi þeirra
bestu þegar árið 1994 verður gert upp.
Sigurður Þór Salvarsson
getum gert.“ Platan var tekin upp á
tímabilinu 1. april l.október en er
langt frá því að vera nokkurt gabb.
Upptöku annaðist Eyþór Amalds en
Jóhann Jóhannsson sá um upptöku-
stjóm, auk þess sem hann spilaði inn
öll hljómborð og aðstoðaði við frum-
gerðir laga heima í stofu hjá Gunna.
Þar sem Ólafúr gekk ekki til liðs
við sveitina fyrr en upptökum var að
ljúka vom það þeir Sigtryggur Bald-
ursson og Áddi Ómarsson sem sáu
um mestallan trommuleik á nýju
Ýmsir
- If I Were a Carpenter
★★★
Misjafnar
minningar
Sú var tíðin að systkinadúettinn
The Carpenters þótti eitthvað það
allra vemmilegasta sem hægt var að
bjóða upp á og allir framsæknir
tónlistarmenn, sem vildu halda
virðingu sinni, fussuðu og sveiuðu
yfir slepjunni. Nú er öldin önnur og
svipað og gerðist með Abba í Evrópu,
era menn vestanhafs nú hver á eftir
öðrum að koma úr skápnum og
viðurkenna aðdáun sína á þeim
Carpenter-systkinum. Niðurstaðan er
plötunni. Á næstunni eru væntanleg
tvö myndbönd frá sveitinni, annað í
teiknimyndaformi.
Gerð teiknimyndarinnar verður í
höndum Torfa Frans. Útgáfutón-
leikar verða síðan haldnir 21. nóv-
ember. Platan er hins vegar væntan-
leg í verslanir á næstu dögum og mun
að sögn meðlima hljómsveitarinnar
bera með sér ferskan andblæ.
GBG
þessi plata þar sem bæði amerískir
og breskir hstamenn fara höndum
um mörg af þekktustu lögum
Carpenters; útsetja þau og flyfja eftir
eigin höfði. Meðal flytjenda kennir
margra grasa, bæði þekktra og
óþekktra, og má meðal þeirra þekktu
neftia: American Music Club, Sonic
Yoth, Cranberries, Sheryl Crow, 4
Non Blondes og Grant Lee Buffalo.
Og eins og gengur og gerist í verkefhi
af þessu tagi, tekst mönnum
misjafhlega upp og reyndar finnst
mér að mun betur hefði mátt gera í
sumum tilvikum. Sérstaklega era
óþekktari hstamönnunum mislagðar
hendur, eins og til dæmis Shonen
Knife sem fer afskaplega iha með
lagið Top of the World. Þar hefði
rómuð útgáfa Sykurmolanna á því
lagi heldur betur átt betur við. Fleiri
dæmi af þessu tagi er að frnna á
plötunni og draga þau niður þessa
annars ágætu hugmynd.
En ekki má gleyma því sem vel er
gert og hér era margar stórgóðar
útgáfur af lögum Carpenters. Má þar
nefna Goodbye to Love með
American Music Club, Superstar með
Sonic Youth, (They Long to Be) Close
to You með Cranberries, For Ah We
Know með Bettie Serveert og We’ve
only just Begun með Grant Lee
Buffalo.
Sigurðiu1 Þór Salvarsson