Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1994, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
Fréttir
Úttekt DV á dökkum hliðum samfélagsins:
v
Ofbeldið hrottalegra og
tilgangsleysið einkennandi
- segjalögreglaoglæknar
Undanfarnar vikur og mánuði hef-
ur mikið veriö fjallað um tilefnis-
laust ofbeldi í íjölmiðlum, rán í sölu-
tumum og rán um hábjartan dag á
götum úti. Ef flett er lauslega í gegn-
um DV hefur í hátt í 20 skipti verið
fjallað um grófar líkamsárásir eða
rán á síðum blaðsins.
Ajlar árásir tilefnislausar
í apríl vora 13 tennur brotnar úr
munni manns sem var barinn með
meitli. Árásin var tiiefnislaus. í
næsta mánuði var sjoppa rænd í tví-
gang við Skólavörðustíg og hendur
lagðar á afgreiðslukonu. í sama mán-
uði sparkaði unglingsstúlka í höfuð
og maga jafnöldru sinnar þar sem
hún lá í götunni. Afleiðingarnar urðu
þær að stúlkan missti meðvitund og
var flutt á slysadeild. Þriðja fréttin í
maí fjallaði um vmgan Keflvíking
sem var stunginn í síðuna með þeim
afleiðingum að sauma þurfti í hann
13 spor. Þá var tvisvar framið rán í
maí.
Skorinn á háls
í júní var maður skorinn á háls í
Þingholtunum. Þá hlaut 35 ára Kefl-
víkingur mikla áverka á höföi 1 sept-
ember þegar tveir menn réðust að
honum og létu á þriðja tug högga
dypja á honum. Fjórir piltar frömdu
rán í tveimur söluturnum í Breiö-
holti í sama mánuði og ógnuðu af-
greiðslufólki með hnífi. í október var
maður fluttur á slysadeild þegar
hann rotaðist eftir að hann var kýld-
ur, skallaður og sparkað í hann í
miðbænum. í síðasta mánuði var tví-
tugur maður stunginn í síðuna og
fótlegginn í tilefnislausri árás.
Fyrir viku gat svo að lesa í DV um
mann sem var með glóðaraugu, nef-
brotinn og með brotnar tennur eftir
tilefnislausa árás í Keflavík. Um
svipað leyti réðust fjórir menn á
kennara og son hans með hafna-
boltakylfu að vopni og börðu þá fyrir
utan heimili sitt á Hvolsvelli. Árásin
er óupplýst og talin tilefnislaus. Þá
gerðist það um helgina að rán var
framið í söluturni og í fersku minni
fólks er kaldrifjað rán þegar þrjú
ungmenni réðust á konu í bíla-
geymslu við Skeljagranda og rændu
af henni 30 þúsundum.
Afleiðing aukinnar
fíkniefnaneyslu
„Það má segja að ránum hafi fjölg-
að lítls háttar á síðustu árum, meðal-
talið er 22 til 23 ránsmál á ári en nú
eru þau komin í eitthvað svipað. Hitt
er annað mál að það er mjög misjafnt
hversu miklu ofbeldi er beitt í þeim
en þetta er mjög alvarlegt mál sem
kom upp við Skeljagranda á þriðju-
dag,“ segir Hörður Jóhannesson, yf-
irlögregluþjónn hjá RLR.
Samkvæmt tölum frá embættinu
hefur ofbeldiskærum lítið fjölgað síö-
ustu misseri en Hörður segir að-
spurður að svo virðist sem tilefnis-
lausar árásir færist í vöxt. Hann seg-
ir ennfremur að ránið við Skelja-
granda, sem framiö var um hábjart-
an dag, sé kannski vísbending um
breytt afbrotaform.
Ólafur Guðmundsson, rannsókn-
arlögreglumaður í forvarnadeild lög-
reglunnar, segir að skortur á töluleg-
um gögnum hái því að menn geti al-
hæft um aukningu ofbeldis og rána.
Tölur frá síðustu árum sýni hins
vegar að ofbeldismál séu svipuö að
tiltölu en það sé orðið grófara.
„Þegar ég var ungur maður í vinnu
á Raufarhöfn kom það fyrir að við
þurftum að fara í hópum út í sjoppu
því annars hefðum við verið barðir
í klessu af heimamönnum. Samt
gerðist það ekki, sem er að gerast nú,
að haldið var áfram að berja á mönn-
um og sparka í þá eftir aö þeir voru
komnir í götuna. Tilefnislaust of-
beldi, eins og menn horfa upp á í
bíómyndum, hefur aukist. Þar sem
ég starfa aö forvömum fíkniefna-
mála, sé ég það í mínu starfi að menn
nota allar aðferðir til að ná sér í fíkni-
efni. Konur geta selt blíðu sína fyrir
flkniefni, og þess eru dæmi, en það
er erfiðara um vik fyrir karlmenn-
ina. Þeir fremja smárán eða stunda
fíkniefnasölu til að fjármagna eigin
neyslu eða þá fremja innbrot og
þjófnaði," segir Ólafur og bætir við
að með amfetamínneyslu, sem færst
hefur í aukana, fylgi ofsóknaræði.
Það verður þess valdandi að menn
fara að ímynda sér óvini og stuðli
ábyggilega mikið aö þessum tilefnis-
lausu árásum. „Því amfetamín er
alversta fíkniefni með ofbeldi," segir
Olafur.
Komum á slysadeild fjölgað
í nýjasta hefti Læknablaðsins er
að finna athugun sem þrír læknar
gerðu á þróun ofbeldis út frá komum
á slysadeild Borgarspítala árin 1974
til 1991. Þar kemur skýrt fram aö
meðhöndlun fórnarlamba með of-
beldisáverka hefur stórlega aukist á
fyrrgreindu tímabili.
Frá árunum 1980 til 1,982 til áranna
1989 til 1991 fjölgaði þejm sem leituðu
á slysadeild vegna ofbeldisáverka
um tæplega helming. Ef sömu tíma-
bil eru borin saman fjölgaði innlögn-
um á Borgarspítala vegna ofbeldis-
brota um 160 prósént. Um helmingur
ofbeldisverkanna átti sér stað um
helgar þegar víndrykkja er mest og
algengast er að fölk á aldrinum 15 til
30 ára eigi þarna í hlut.
Forvarnarsfarf hefjist
hjá börnum
„Þetta bendir til þess að fullyrðing-
ar lögreglu 'um aukningu alvarlegs
ofbeldis sép réttar," segir í greininni
í læknablaðinu. Ennfremur segir að
erfitt sé að benda á leiðir til úrbóta
vegna skorts á rannsóknum en vitað
sé að þau börn sem verða fyrir of-
beldi eigi frekar á hættu að verða
þolendur eða gerendur ofbeldis. For-
varnarstarf beri að hefja strax viö
10 ára aldur og leggja eigi áherslu á
að benda börnum á tilgangsleysi og
afleiðingar ofbeldis, „en ljóst er að
flest börn fá mikla fræöslu um hið
gagnstæða með kvikmyndum, sjón-
varpsþáttum og tölvuleikjum".
Auður Sveinsdóttir varaþingmaður um tillögu Guðrúnar Helgadóttur:
Svona vinnur maður ekki
gagnvart félögum sínum
- kjördæmisráðið hefur síðasta orðið, segir formaður ABR
„Eg var í þriðja sæti listans siðast
en gef kost á mér í annað sætið nú.
Menn mega ekki gleyma því að
ákvörðunin um prófkjör stendur
þangað til annaö er ákveðið. Ég vil
líka taka fram að ég er algerlega
andvíg þeirri hugmynd Guðrúnar
Helgadóttur að stilla upp á listann
eins og hún lagði til að gert yrði.
Þegar Guðrún ætlar loks að rýma
fyrir öðru fólki þá er það fólkið í
flokknum sem á að fá að segja sína
skoðun. Það hefur ekkert breyst ef
hún segist ætla að ráða því hver fær
sætið. Svona vinnur maður ekki
gagnvart félögum sínurn," segir Auð-
ur Sveinsdóttir, varaþingmaður Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík, um
þann óróa sem kominn er upp vegna
hugmyndar sem Guörún Helgadóttir
kynnti í fyrradag um uppstilhngu á
listann í Reykjavík.
Auður segir að það sé ljóst að Guð-
rún Helgadóttir hafi ekki verið ein í
ráðum með þá hugmynd að stilla
Bryndísi Hlöðversdóttur og Ög-
mundi Jónassyni í 2. og 3. sæti list-
ans. Þar standi sterk öfl aö baki.
„Þegar fólk gerir sér grein fyrir því
að þetta er ekki hugmynd Guðrúnar
þá bregst það auðvitað við og vill fá
að kjósa um það hvort það vill þessa
aðferð eða hvort haldið verður próf-
kjör. Hvort þetta verður að stórmáli
í félaginu skal ég ekkert um segja.
Enn er þetta aðeins eins og smá gufu-
ketill sem verið er að tappa lofti af.
Menn þurfa því aðeins að átta sig á
hlutunum. Auðvitað hljótum við að
ná sáttum í þessu máli,“ segir Auður.
„Það eru margar skoðanir uppi um
hvaða aöferð nota skal við að stilla
upp lista. Það er og vandasamt að
gera upp á milli sjónarmiða í þessum
efnum. Hitt liggur alveg í augum
uppi að síðasta orðið um uppstifling-
una hefur kjördæmisráðið. Þessi
óeðlilegu vinnubrögð, sem Guðrún
Helgadóttir leggur til og minna mann
á gráa fomeskju, að einhver þing-
maður rjúki til og leggi til uppstill-
ingu á lista, eru bara alls ekki líð-
andi,“ segir Garðar Mýrdal, formað-
ur Álþýöubandalagsfélags Reykja-
víkur.
Hann segir það nýtt í þessu öllu að
Ögmundur Jónasson skuli gefa kost
á sér á listann. Það sé spurning
hvemig tekið er á því. Hvort eðlilegt
sé að utanflokksmaður fari í prófkjör
í flokknum, eða hvort hægt er að
gera þetta eins og þegar farið var í
R-lista framboöið og samið var um
ákveðin sæti en kosið um önnur. Eða
ef farið er að handraða í eitt sæti
hvort handraða eigi í þau öfl.
„Þá vaknar spumingin um hvem-
ing svara eigi þeim einstaklingum
sem vilja fara í framboð," segir Garð-
ar Mýrdal.
Hann segir að á fundi kjördæmis-
ráösins á fimmtudag í næstu viku
verði ákveðið með hvaða hætti raðaö
verður á listann í Reykjavík.
- sjá einnig viötal við Svav-
ar Gestsson á bls. 17
Evrópusöngvakeppnin:
Lagið valið í janúar
„Það er ekki búiö að velja lag i
Evrópusöngvakeppnina (Eurovisi-
on) en þaö er í undirbúningi. Viö
erum byrjaðír á fullum ki-afti i
samvinnu, Sjónvarpið, Skífan og
ég, að gera upp við okkur hvernig
framkvæmdin á þessu verkefni
verður. Hjá Sjónvarpinu var tekin
sú ákvörðun aö velja fyrst söngv-
ara og síöan lagið í samráöi við
hann,“ sagði Björgvin Halldórsson
sem var valinn til þess að flytja ís-
lenska lagið á Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva þann 13.
maí á næsta ári í írlandi. Hingað
tii hefur íslenska lagið verið valið
aö undangenginni forkeppni, en
með þessu hefur orðiö breyting á.
- Ertu vongóður um að góður
árangur náist í keppnínni?
„Ég ætla aö hafa það alveg á
hreinu að þaö veröa engar yfirlýs-
ingar gefnar. Ég tek þetta verkefni
jafn alvarlega og önnur verkefni
sem ég hef tekið mér fyrir hendur.
Við veröum að vera tilbúnir með
lag í endaðan janúar eða í byrjun
febrúar. Ekki er enn fullljóst
hvernig staðiö verður að vali á lag-
inu. Sumir vilja að valið verði eitt
lag, en einnig kemur til greina að
nokkur lög verði valin til flutnings
á íslandi og eitt af þeim valið úr í
keppnina. Menn mega samt ekki
gleyma því að kynningin hér inn-
anlands skiptir nánast engu máli
erlendis. Dómnefndin hérlendis má
ekki gefa sínu landi stig, en aftur á
móti skapar kynningin ákveöna
stemningu í kringum keppnina. Ég
held að það sera mestu máli skiptir
sé frammistaðan á forsýningunni
úti, en dómnefndir allra landa
fylgjast með henni og flestir taka
ákvörðun um stigagjöfina þar,“
sagði Björgvin.
Málþing um of beldi
gegn konum
Ákæra á leiðbeinandann felld niður í Noregi
Ákæmvaldið í Kongsvinger í Nor-
egi féll frá ákæra 17. nóvember síð-
astliðinn á hendur fyrram grunn-
skólaleiðbeinanda á Sauðárkróki.
Manninum var vikið frá störfum á
Sauðárkróki, samkvæmt upplýsing-
um DV, meðal annars vegna frétta
af ákæranni. Hann sat í gæsluvarð-
haldi í Noregi vegna málsins en
hyggst nú höfða skaðabótamál vegna
þess.
Fyrir skömmu greindi DV frá því
að rannsókn væri hætt í málinu en
nú hefur ákæruvaldið fallið frá
ákæra vegna skorts á sönnunum.
A laugardag er lokadagur alþjóð-
legrar baráttu kvenna gegn ofbeldi
gagnvart konum. Dagskráin verður
með þeim hætti að efnt verður til
málþings um ofbeldi á konum sem
mannréttindabrot. Málþingið verður
haldið í Odda, stofu 101, og hefst kl.
14. Frummælendur verða Sigríður
Lillý Baldursdóttir, Stefanía
Traustadóttir og Helga Leifsdóttir.
Alþingiskonumar Guðrún Halldórs-
dóttir, Guðrún Helgadóttir, Jóhanna
Sigurðardóttir, Rannveig Guð-
mundsdóttir, Sólveig Pétursdóttir og
Ingibjörg Pálmadóttir munu sitja
fyrir svörum málþingsgesta um
stefnu flokka sinna varðandi ofbeldi
gegn konum.