Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Sýningar
Café Mílanó
Faxafeni 11
Föstudaginn 6. janúar opnar
Guðrún H. Jónsdóttir (Gígja)
málverkasýningu. Sýningin er
opin kl. 9-19 mánudaga, kl.
9- 23.30 þriðjud., miðvikud. og
fimmtud., kl. 9-1 föstud. og
laugard. og kl. 9-23 sunnud.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Þar stendur yfir sýning á verk-
um Erlu Axelsdóttur, Helgu
Ármannsdóttur, Elínborgar
Guðmundsdóttur, Sigrúnar
Gunnarsdóttur og Margrétar
Salome. Galleríið er opið alla
virka daga kl. 12-18.
Gallerí Birgis Andréssonar
Þar stendur yfir sýning Hall-
dórs Ásgeirssonar myndlistar-
manns. Sýninguna kallar Hall-
dór „Hraun - Um - Rennur".
Um er að ræða samspil hrauns
sem brætt er á staðnum og
glerflaskna er innihalda litróf
vatnslita. Opið alla fimmtu-
daga kl. 14-18 út janúar 1995.
GalleriGuðmundar
Ánanaustum 15, sími 21425
Galleríið er opið virka dagá frá
kl. 10-18 og laugardaga frá
kl. 10-14.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl.
11-18 nema laugardaga frá kl.
11-14. Sýningar í gluggum á
hverju kvöldi.
Gallerí Sólon Íslandus
Laugardaginn 7. janúar opnar
Davíð Þorsteinsson Ijós-
myndasýningu. Sýningin er
opin frá kl. 11-18 og stendur
til 24. janúar.
Gallerí Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Laugardaginn 7. janúar opnar
Þórdís Elín Jóelsdóttir grafík-
sýningu. Myndirnar á sýning-
unni eru handlitaðar ætingar,
unnar í kopar. Sýningin er
opin daglega frá kl. 14-18 en
henni lýkur 22. janúar.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9,2. hæð
Fyrsta sýningin í galleríinu á
árinu 1995 er sýning Daníels
Þorkels Magnússonar. Sýn-
ingin verður opnuð föstudag-
inn 6. janúar kl. 16-18 og er
opin frá kl. 10-18 virka daga.
Götugrillið
Ameríkumaðurí París
Borgarkringlunni
Kristbergur Pétursson mynd-
listarmaður sýnir verk sín. Sýn-
ingin stendur til 10. janúar og
er opin frá kl. 10-20.30 mánu-
dag til föstudags.
Kaffistofan Lóuhreiðrið
Laugavegi 59,2. hæð
Jóhann Jónsson (Jói Listó)
frá Vestmannaeyjum sýnir
vatnslitamyndir. Sýningin er
opin alla virka daga frá kl. 9-18
og á laugardögum frá kl.
10- 16. Sýningin stendur til 20.
janúar og eru allar myndirnar
til sölu.
Leirlistarsýningin á Kjarvalsstöðum er bæði i vestursal og miðsal og þar eru verk eftir meira en tuttugu listamenn.
Tvær sýningar á Kjarvalsstöðum:
Leirlist á íslandi
- og sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals
„Það eru Kjarvalsstaðir sem standa
fyrir sýningunni og þetta er þeirra
framlag til aö kynna leirlist á ís-
landi. Eg hef sýnt áður meö mörgum
af þessum listamönnum og það er
alltaf gaman aö taka þátt í svona
samsýningum. Munurinn á samsýn-
ingu og einkasýningu er eins og svart
og hvítt. í samsýningu er maður einn
þátttakandi af mörgum og sýningin
er fyrst og fremst hugsuð sem heild,“
segir Kolbrún Björgólfsdóttir en hún
er einn listamannanna sem taka þátt
í sýningunni Leirlist á íslandi.
Sýning hefst á Kjarvalsstöðum á
morgun og verður í vestursal og mið-
sal en jafnframt hefst sýning á verk-
um Jóhannes S. Kjarvals úr eigu
Kjarvalssafns og verður hún í aust-
ursal.
Eitt af þeim verkum sem hægt verð-
ur sjá á Kjarvalsstööum en það er
úr eigu Kjarvalssafns.
DV-myndir BG
„Þessi sýning er sú stærsta sem
haldin hefur verið á íslandi um leir-
list og sú viðamesta. Þarna er byrjað
alveg frá grunni. Það er byrjað á leir-
listinni þegar hún er að hefjast. Þaö
voru menn á borð við Guðmund frá
Miðdal, Ragnar Kjartansson og
fleiri," segir Kolbrún og bætir viö að
töluverður áhugi ríki á leirlist hér á
landi.
Á leirlistarsýningunni eiga eftir-
taldir hstamenn verk: Borghildur
Óskarsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, El-
ísabet Haraldsdóttir, Gestur Þor-
grímsson, Guðmundur Einarsson,
Guðný Magnúsdóttir, Haukur Dór
Sturluson, Helga Jóhannesdóttir,
Jóna Guðvarðardóttir, Jónina
Guðnadóttir, Kolbrún Björgólfsdótt-
ir, Kolbrún Kjarval, Kristín ísleifs-
dóttir, Kristjana Samper, Ólöf Erla
Bjarnadóttir, Ragna Ingimundar-
dóttir, Ragnar Kjartansson, Rann-
veig Tryggvadóttir, Sigrún Guðjóns-
dóttir, Sóley Eiríksdóttir og Steinunn
Marteinsdóttir.
Listasafn Kópavogs:
Flekar Einars
Garibaldi
Einar Garibaldi Eiríksson opnar
málverkasýninguna Fleka í Gerðar-
safni Listasafns Kópavogs á morgun.
Þetta er fjórða einkasýning Einars
en áður hefur hann tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og á Ítalíu þar
sem hann stundaði framhaldsnám í
myndlist.
Sýningin stendur til 22. janúar og
er opin daglega nema mánudaga.
Tröllastrákur-
inn Trítiltoppur
Möguleikhúsið við Hlemm sýnir
barnaleikritið Trítiltopp um helgina.
Þetta er íslenskt ævintýraleikrit sem
segir frá tröllastráknum Tritiltoppi
sem leggur af stað í leiðangur til
að leita að jólunum og reynist hann
honum erfiðari en hann gerir ráð
fyrir.
Þetta er önnur einkasýning Þórdísar
Elínar.
Stöðlakot:
Grafíkverk
Þórdísar Elínar
Þórdís Elín Jóelsdóttir opnar graf-
íksýningu í Stöðlakoti við Bókhlöðu-
stíg á morgun.
Þórdís stundaði myndhstarnám á
listasviði Fjölbrautaskólans í Breið-
holti og útskrifaðist síðan úr grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1988. Hún er meðhmur mynd-
listarhópsins Áfram veginn sem rek-
ur grafíkverkstæði í Þingholtsstræti
en hópurinn hefur haldið nokkrar
samsýningar.
Þetta er önnur einkasýning Þórdís-
ar Elínar og lýkur henni 22. janúar.
Myndirnar á sýningunni eru handht-
aðar ætingar unnar í kopar.
Listamaðurinn sýnir handlitaðar æt-
ingar unnar i kopar.
Gallerí Sævars Karls:
Einlcasýn-
ing Daníels
Þorkels
Fyrsta sýningin í galleríinu á þessu
ári er sýning Daníels Þorkels Magn-
ússonar.
Daníel er fæddur í Reykjavík 1958
og stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga og
haldið einkasýningar í Kaupmanna-
höfn, London, Stokkhólmi, Hollandi
og hér á landi.
Þetta er önnur sýning Daníels Þor-
kels í Galleríi Sævars Karls. Sýning-
in verður opnuð í dag.
„17 ár" íNý-
listasafninu
Á morgun kl. 20 verður opnuð sýn-
ing á verkum félagsmanna í Nýlista-
safninu.
Tilefnið er 17 ára afmæh safnsins
en Félag Nýlistasafnsins var stofnað
1978 og hefur nú 115 félagsmenn, ís-
lenska sem erlenda hstamenn. Sýn-
ingin mun væntanlega gefa hug-
mynd um vinnubrögö þeirra.
Safninu er að þessu sinni deilt upp
í jafnmörg sýningarsvæði og félags-
menn eru margir og raðast verk
þeirra niður eftir stafrófsröð. Ekkert
ráðandi fagurfræðilegt mat hnýtir
sýninguna saman og ræöst útkoman
af framlagi þeirra sem mótað hafa
starfsemi safnsins í gegnum árin.
Sýningar
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 7. janúar kl. 16
verða formlega opnaðar tvær
sýningar. Leirlist á íslandi og
sýning á verkum Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals. Leirlist á
íslandi verður opin daglega frá
7. jan. til 5. febr. Sýningin á
verkum Kjarvals verður opin frá
7. jan. til 21. febr. Kjarvalsstað-
ir eru opnir frá kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Lokað í des. og jan. Högg-
myndagarðurinn er opinn alla
daga. Inngangur frá Freyju-
götu.
Listasafn Háskóla íslands
ÍOdda
Þar er nú á öllum hæðum sýn-
ing á verkum í eigu safnsins.
Opið er daglega frá kl. 8-22.
Listasafn Íslands
Listasafn íslands er 110 ára
um þessar mundir og af því
tilefni stendur yfir sýning á
stofngjöfinni. Á sýningunni er
úrval verka eftir norræna mál-
ara; aðallega danska, frá síðari
hluta 19. aldar. Sýningin er
opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 12-18 fram til 5.
febrúar 1995.
Listasafn Kópavogs-
Gerðarsafn
Hamraborg 4, sími 44501
Einar Garibaldi Eiríksson opnar
málverkasýninguna Fleka
laugardaginn 7. janúar kl. 16.
Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 12-18
og lýkur sunnudaginn 22. jan-
úar.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
íslandsmerki og súlur Sigur-
jóns Ólafssonar heitir sýningin
sem nú stendur yfir. Hér er um
að ræða hátíðarsýningu í tilefni
af 50 ára afmæli lýðveldisins.
Sýningin mun standa til 15.
janúar og er opin á laugard.
og sunnud. frá kl. 14-17.
Listmunahús Ófeigs
Skólavörðustig 5
Þar stendur yfir Ijósmyndasýn-
ing Friðriks Arnar Hjaltested. Á
sýningunni eru 17 verk.
Myndirnar eru í svarthvítu og
fjalla um fólk. Sýningin er opin
daglega frá kl. 10-18 og
stendur til 15 janúar.
Mokka
Laugardaginn 7. janúar opnar
Jónas Hallgrímsson Ijós-
myndasýningu. Sýninguna
kallar Jónas „Persónulegt
portrett". Sýningin stendur til
25. janúar.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt sam-
komulagi. Upplýsingar í síma
611016.
Nýlistasafnið
Vatnsstig 3b
Laugardaginn 7. janúar kl. 20
verður opnuð sýning á verkum
félagsmanna. Tilefni sýningar-
innar er 17 ára afmæli Nýlista-
safnsins. Sýningin er opin
daglega frá kl. 14-18 og henni
lýkur 22. janúar.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarfirði,
sími 54321
Opið á sunnud. og þriðjud. kl.
15-18.