Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995
19
DV
Veitingahús
Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464.
Opiö 11-21.30 alla daga.
Dropinn Hafnarstræti 98, sími 22525.
Fiölarinn Skipagötu 14, sími 27100. Opið
11.30- 14 og 18-21.30 v.d., 18-22 fd. og Id.
Greifinn Glerárgötu 20, sími 26690. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-2 fd. og Id.
Hótel KEA Hafnarstræti 87-89, sími 22200.
Opið 7.30-10.30 og 12-14 og 18-23.30 v.d.,
nema Id. til 3.
Sjaliinn Geislagötu 14, sími 22970. Opið 19-3
fd. og ld„ kjallari 18-1 v.d., 12-15 og 18-3 fd.
og ld.
Smiöjan Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Opið
12-13 og 18.30-21.30 alla daga.
Torgiö Ráðhústorgi 9, simi 11448. Opið 8-01
má-mi, 18-01 fim. og sd„ 18-03 18.00-1 v.d„
18.00-03 fd. og Id.
VESTMANNAEYJAR:
Bjössabar Bárustíg 11, sími 12950. Opið
11.30- 14 og 18-21 md.-fd„ 11.30-21 Id. og
sd.
Hertoginn Vestmannabraut 28, sími
98-13317. Opið 11-22 sd-fd og 11-22.30
fd„ og Id.
Höföinn/Við félagarnir Heiðarvegi 1, sími
12577. Opið 10-14 og 18-23.30 md.-miðvd„
10-14 og 18-1 fimmtud., 10-3 fd. og ld„ 10-1
sd.
Muninn Bárustíg 1, sími 98-11422. Opið
11 -01 v.d„ og 11 -03 fd. og Id.
Skútinn Kirkjuvegi 21. simi 11420. Opið 11 -22
md.-miövd„ 11-01 fimtud. og sd„ 11-03 fd.
og ld.
AKRANES:
Langisandur Garðabraut 2, simi 93-13191.
Opið alla daga 10-21 fö, lau 10-03.
SUÐURNES:
Strikið Hafnargötu 37, sími 92-12012. Opið
su-fi 11.30-01. fö og lau 12-03.
Flughoteliö Hafnargötu 57, sími 15222. Opið
11.30- 14 og 18-21.30 v.d„ 18-22 fd. og Id.
Glóöin Hafnargötu 62, sími 11777. Opið
11.30- 22 v.d„ 11.30-23. fd. og Id.
Þotan Vesturbraut 17, sfmi 12211. Opið 23-3
fd. og Id.
Langbest, pitsustaöur Hafnargötu 62, sími
14777. Opið 11-22 alla daga.
Ráin Hafnargötu 19, sími 14601. Opið 12-15
og 18-23.30 md.-miðvd„ 12-15 og 18-1
fimmtud. og sd„ 12-15 og 18-3 fd. og Id.
Veitingahúsiö við Biáa lóniö Svartsengi, simi
68283.
Veitingahúsið Vitinn, Hafnargötu 4, simi
37755. Opið 0.30-23.30 v.d„ 08.30-3 fd. og
Id.
SUÐURLAND:
Gjáin Austurvegi 2, Selfossi, sími 22555. Opið
18—1 miðvd., fimmtd. og sd„ 18-3 fd. og Id.
Lokað á md. og þd.
Hótel Selfoss Eyrarvegi 2, Selfossi, sími
22500. Opið 12-14.30 og 18-22 alla daga.
Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1, Hverag.,
s. 34700. Opið 11.30-14 og 18-22 alla daga.
Húsiö á Sléttunni Grænumörk 1c, Hverag.,
s. 98-34789. Opið 11.30-22 alla daga
Veitingahúsiö viö Brúarsporðinn Eyrarvegi
1. Self., simi 22899. Opið 11.30-13.30 og
18-22 v.d„ 11.30-13.30 og 18-23 fd. og Id.
ÁN VÍNS
Arnargrill Arnarbakka 2, sími 77540. Opið
12-23.30 alla daga.
Blásteinn Hraunbæ 102, sími 673311. Opið
10-22.
Brauöstofan Gleymmérei Nóatúni 17, sími
15355. Opið 09-18 v.d„ 09-16 Id. Lokað á sd.
Brekkukaffi Auðbrekku 18, Kóp, sími 642215.
Opið 07-18 v.d, 10-16 Id. Lokað á sd.
Café Skeifan Tryggvagötu 1, s. 629991. Opið
06-17 alla daga.
Kjúklingastaðurinn Suðun/eri, Stigahlíð
45-47, s. 38890. Opið 11-23.30 alla daga.
Eikaborgarar Höfðabakka 1, s. 674111. Opið
11.30- 21.30 alla daga.
Opið 11-20 alla daga. Lokað á sd.
Kaffihúsiö á Kjarvalsstööum við Flókagötu,
sími 26131 og 26188. Opið 10-13 alla daga.
Kaffistofan í Ásmundasafni Sigtúni, sími
32155. Opið.10-16 alla daga.
Hrói höttur Hjallahrauni 13, sími 652525.
Opið 11-23 alla daga.
Höföakaffi Vagnhöfða 11, sími 686075. Opið
07.30-17 alla daga. Lokað sd.
Höfðagrill Bíldshöfða 12, sími 672025. Opið
07-17 v.d„ 10-16 Id. Lokað á sd.
Jón bakan Nýbýlavegi 14, simi 642820. Opið
11.30- 23.30 v.d„ 11.30-02 fd. og Id.
Kaffistigur Rauðarárstíg 33, sími 627707.
Opið 11-21 og 11-20 sd.
Kaffiterian Domus Medica Egilsgötu 3, sími
631000. Opið 8-19 v.d.
Kaffivagninn Grandagarði, sími 15932. Opið
04-23.30 alla daga, ekki matur á kvöldin.
Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 15, sími
50828. Opið 11-22 alla daga.
Lóuhreiður Laugavegi 59 (f. ofan Kjörgarð),
simi 622165. Opið 09-18 v.d. Lokað Id. og sd.
Lúxus kaffi Skipholti 50b, sími 813410. Opið
08-18 v.d„ 11-18 Id. Lokað á sd.
Mac Donaids Suðurlandsbraut 56, simi
811414. Opið 10-23.30.
Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a.
sími 21174. Opið 09.30-23.30 md.-ld„
14-23.30 sd.
Múlakaffi v/Hallarmúla, sími 37737. Opið
07-23.30 v.d„ 08-23.30 sd.
Nespizza Austurströnd 8, sími 612030. Opið
11 30-14 og 17-22 v.d„ 11.30-23 fd. og Id.
Norræna húsiö Hringbraut, sfmi 21522. Opið
09-17 v.d„ 09-19 ld„ 12-19 sd.
Næturgrilliö heimsendingarþj., sími 77444.
Opið 22-03 v.d„ 22-07 fd. og Id.
Óli prik Hamraborg 14, simi 40344: Opið
11-21.
RáöhúskaffiTjarnargata 11, simi 632169. Opiö
11-18 alla daga.
Smlðjukaffi Smiðjuvegi 14d, sími 72177. Opið
08-16.30 alla daga.
Sundakaffi Sundahöfn, simi 811535. Opið
06-20 v.d„ 08-17 Id. Lokað á sd.
Tiu dropar Laugavegi 27, - simi 19380. Opiö
08-18 v.d„ 10-16 Id. Lokaö á sd.
Vogakaffi Smiðjuvegi 50, sími 38533. Opið
08-18 v.d. Lokað á Id. og sd.
Veitingahús Nings Suðurlandsbraut 6, simi
679899. Opið öll kvöld 17-21 og í hádeginu
11.30- 13.30 alla virka daga.
Winny’s Laugavegi 116, sími 25171. Opið
11-20.30 alla daga.
leiklist - tórtffifc
★
Norska óperan á íslandi:
Sorglegt lífs-
hlaup manns
„Við erum mjög ánægð með hvern-
ig æfmgar hafa gengið og ef það geng-
ur áfram svona höfum við engar
áhyggjur," segir Per Fosser, sýning-
arstjóri og leiklistarráðunautur sem
leikstýrir norsku óperunni Sirkus-
inn guðdómlegi sem sýndur verður
í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.
Þetta er önnur sýningin á verkinu
en það var frumsýnt í gær.
Sýning þessi er samvinnuverkefm
Norrænu menningarhátíðarinnar
Sólstafa, Borgarleikiiússins, Norsku
ópenmnar, Norsku ríkiskonsert-
anna og Reykjavíkurborgar. Gert er
ráð fyrir að þessi uppfærsla verði í
haust hluti af tónlistarhátíðinni Ul-
tima í Osló, auk þess sem hún verður
sýnd víðar í Noregi og á Norðurlönd-
um.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég set upp óperu á Islandi en ég var
í Islensku óperunni árið 1990. Sirkus-
inn guðdómlegi er aftur á móti í
fyrsta skipti í okkar flutningi. Um
er að ræða kynningu sem við höfum
gert sérstaklega fyrir Borgarleikhús-
ið til að vera flutt á menningarhátíð-
inni Sólstöfum," segir Per Fosser.
Óperan segir frá hinu undarlega
og sorglega lífshlaupi Adolfs Wölfi,
1864-1930. Eftir ömulega barnæsku
var hann dæmdur á táningsaldri til
refsingar fyrir tilraun til að nauðga
ungum stúlkum og síðar greindur
sem geðklofi og lagður inn á geð-
veikraspítala árið 1895 þar sem hann
mátti dúsa til dauðadags. Á þeim 35
árum sem Wölfi dvaldi á geðsjúkra-
húsinu teiknaði hann og samdi ljóð
og tónverk.
Digraneskirkja:
Skagfirðing-
arsyngja
Karlakórinn Heimir í Skagafirði
heldur tónleika í Digraneskirkju í
Kópavogi á fóstudag kl. 18.30. Söng-
stjóri er Stefán R. Gíslason og undir-
leik annast Thomas Higgerson og
Jón St. Gíslason.
Söngskráin er mjög fjölbreytt eftir
innlenda og erlenda höfunda. Kórinn
syngur meðal annars ný lög eftir
Björgvin Þ. Valdimarsson, Jón
Björnsson, fyrrverandi söngstjóra
Heimis, og Ómar Þ. Ragnarsson
ásamt lögum úr óperum og söngleikj-
um.
Dagur harm-
ónikunnar
Dagur harmónikunnar veröur
haldinn í Danshúsinu í Glæsibæ á
sunnudag kl. 15. Leikin verður létt
tónlist úr ýmsum áttum en flytjend-
ur eru á öllum aldri. Fram koma
Léttsveit Harmónikufélags Reykja-
víkur auk ýmissa minni hópa og ein-
leikara.
Sólstaflr:
Kammersveit
Reykjavíkur
Kammersveit Reykjavíkur heldur
tónleika í íslensku óperunni á
sunnudag kl. 17. Þetta eru þriðju tón-
leikar Kammersveitarinnar á þessu
starfsári og eru þeir hluti af norrænu
menningarhátíðinni Sólstafir. Ein-
söngvari á tónleikunum er norska
sópransöngkonan Ragnhild Heiland
Sörensen.
Frá uppsetningu norsku óperunnar á Sirkusinum guðdómiega.
DV-mynd GVA
Borgarlei khúsið:
Dökku
fiðrildin
Leikritið Dökku fiðrildin verður sýnt
á sunnudag. DV-mynd ÞÖK
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi
um siðustu helgi finnska leikritið
Dökku fiðrildin. Þetta er leikrit mn
leyndarmál liðins tíma. í sárri endur-
minningu blandast saman spenning-
ur og ógn, ást og hatur, miskunnar-
leysi þess sterka og hjálparleysi fóm-
arlambsins. Leikritið er gert -eftir
sögu Leenu Lander sem kom út árið
1992. Sagan hlaut mikið hrós og var
tilnefnd til Finlandia- og Norður-
landaráðs-verðlauna árið 1993. Þriðja
sýning verður á leikritinu á sunnu-
dag kl. 20.
Menningarvika
Bandalags íslenskra
sérskólanema
Menningarvika Bandalags ís-
lenskra sérskólanema, BÍSN, hefst á
laugardag kl. 14. Opnunarhátíð verð-
ur í Tækniskóla íslands. Verk nem-
enda í Myndlista- og handíðaskóla
íslands verða sýnd. Afrakstur ljós-
myndamaraþons sérskólanema
verður sýndur og verðlaun afhent.
Nemendur úr Söngskólanum í
Reykjavík og samkór Kennarahá-
skóla íslands og Fósturskóla íslands
sjá um tónlistarflutning. Nemendur
úr íþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni sýna leikfimiæfmgar.
Á sunnudag verður kynningardag-
ur sérskólanna og Háskóla Islands.
Skólarnir kynna starfsemi sína,
ýmist einir eða fleiri á sama stað.
Nemendur Vélskóla íslands kynna
tækni og búnað skólans.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
West Side Story
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Fávitinn
sunnudag kl. 20.00
Snædrottningin
sunnudag kl. 14.00
Smídaverkstæóiö
Taktu lagið, Lóa!
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Litla sviöið
Oleanna
sunnudag kl. 20.30
Lístakiúbbur Leikhúskjaliarans
Dóttirin, bóndinn og slaghörpuleikar-
inn
sunnudag kl. 16.30
Borgarleikhúsið
Kabarett
laugardag kl. 20.00
Dökku fiðrildin
sunnudag kl. 20.00
Sirkusinn guðdómlegi
föstudag kl. 20.00
Litla sviðið
Framtiðardraugar
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudagkl. 20.00
íslenska óperan
La Traviata
föstudagurkl. 20.00
laugardagurkl. 20.00
Nemendaleikhúsið
Tangó
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudagkl. 20.00
Kaffileikhúsið
Sápa tvö; Sex viö sama borö
föstudag kl. 21.00
Alheimsferöir Erna
laugardagkl.21.00
Leggur og skel
sunnudag kl. 15.
Frú Emilía
\
Kirsuberjagarðurinn
sunnudag kl. 20.00
Möguleikhúsið við Hlemm
Eins og tungl í fyllingu
föstudag kl. 16.00.
Á Herranótt
Baal
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Leikfélag Kópavogs
Á gægjum
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Leikfélag Mosfellssveitar
Mjallhvit og dvergarnir 7
laugardag kl. 15.00
sunnudag kl. 15.00
Sögusvuntan
I húfu Guðs
sunnudagkl. 15.00
Skagaleikflokkurinn:
Tvö verk
frumsýnd
Garöar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Skagaleikflokkurinn á Akranesi
frumsýnir tvö verk um þessar mund-
ir, baeði undir leikstjórn Ingu Bjarna-
son. í dag frumsýnir leikflokkurinn
Óvitana eftir Guðrúnu Helgadóttur í
Bíóhölllinni en 24. mars verður síðan
frumsýnt leikverkið Kvásarvalsinn
eftir Jónas Árnason. Höfundurinn
er sjálfur meðal leikenda í verkinu.
Hala-leikhópurinn:
Frumsýnir
Allra
meinabót
Hala-leikhópurinn frumsýnir á
fostudag í Halanum leikritið Allra
meina bót. Leikritið er eftir bræð-
uma Jónas og Jón Múla Ámason í
leikstjóm Eddu V. Guðmundsdóttur.
Allra meina bót er gamanleikur
sem gerist á sjúkrahúsi í Reykjavík.
Þar ræður ríkjum hinn ókrýndi kon-
ungur allra skurðlækna, Dr. Svend-
sen. Leiksýningin hefst kl. 20 að Há-
túni 12.