Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1995, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 1995
Neytendur
DV skoðar fjölbreytta flóru fermingartískunnar:
Kjólar, pils, jakkaföt,
og groddaralegir skór
- nú er það notagildið sem ræður ferðinni
Tími ferminganna er nú runninn
upp eins og flestir vita en þessum
merka viðburöi fylgir töluvert til-
stand. Að mörgum er að hyggja hjá
fermingarbarninu og fjölskyldu þess
svo að dagurinn megi vera sem eftir-
minnilegastur. Eitt af þeim atriðum
sem þarf að vera í lagi er fatnaður
fermingarbarnsins.
Tískan í fermingarfötum breytist
eins og annað en það er ljóst að
tíminn þegar fermingarfötin voru
notuð einu sinni er löngu liðinn. Nú
hefur fólk hagkvæmnina í fyrirrúmi
um leið og það getur valið úr fjöl-
breyttari flóru fatatískunnar.
DV fór á stúfana og kannaði laus-
lega hver væru vinsælustu ferming-
arfötin í ár og fékk einnig upplýs-
Talaðu við okkur um
BILARETTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Vartni
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
Verö 39,90 mln
Taktu þátt! Þú gætir
unniö nýútgefna bók um
Ne11 frá Úrvalsbókum og
bíómiða fyrir tvo á
kvikmyndina Ne11 sem
verið er að sýna í
Háskólabíói. Munið að
svörin við spurningunum
er að finna í
blaðaukanum DV-
dagskrá, bíómyndir og
myndbönd sem fylgdi DV
sl. fimmtudag.
HASKOLABIO
Tískan í fermingarfatnaðinum breytist á milli ára og núna virðist fjölbreytileikinn allnokkur ef borin eru saman
URVALSIiMlia
svör viðmælendanna í DV í dag.
ingar um verðlagið á þessum sömu
fötum. Þá var líka spurt um skófatn-
aö í leiðinni en í þessari úttekt var
hvorki lagt mat á gæði eða þjónustu.
Skærir litir
„Teinóttir jakkar eru mest teknir
núna og við þá eru hafðar hvítar
Kína-skyrtur og há vesti, svört eða
teinótt, og svartar buxur. Jakki og
buxur í þessum fatnaði er frá 14.800
kr. Við seljum líka skó en þaö er
mest tekið af grófum skóm með stáltá
en þeir kosta frá 3.900 kr. Þessi tíska
er sú sama og er í gangi hjá eldri
herrum," segir Geir Borgar í Sautján
um fermingarfötin á strákana í ár.
„Það sem er vinsælast eru aðallega
stuttir skokkar og stuttir kjólar og
síðar kjólar. Þetta eru í teygjuefnum
í skærum litum en í fyrra var þetta
allt ööruvísi. Skokkarnir eru frá
4.900 og stuttir kjólar á 5.500 og síðir
á frá 5.900 kr. Svo erum við lakkskó
á kr. 3.900 en rauðir og svartir slíkir
eru mjög vinsælir," segir Ingibjörg
Þorvaldsdóttur um fötin fyrir stelp-
urnar í Sautján.
Ekki hefðbundir kjólar
„Mér sýndist þetta aðallega vera
kjólar og pils og þröngir toppar. Tísk-
an í fyrra var svolítið öðruvísi. Núna
er þetta meira þannig að þær blanda
þessu saman og kaupa meira prakt-
ískt. Þetta eru ekki lengur hefð-
bundnir fermingarkjólar. Þær kaupa
jafnvel síð svört pils ef út í það er
farið,“ segir Marta Bjarnadóttir,
kaupmaður í Evu, Galleríi og Centr-
um.
Marta sagðist t.d. eiga kjóla á ferm-
ingarstúlkur á 6.900 kr. Hún selur
líka skó fyrir þær og kosta þeir 6.900
og 7.500 kr.
Praktískur fatnaður
„Það er alltaf þessir stöku jakkar
og vesti og síðan buxur. Það er eitt-
hvað um að menn séu með jakkaföt
en ég held að strákarnir noti frekar
þessi stöku föt eftir ferminguna og
það er því praktískara. Við vorum
með jakkaföt í fyrra en það var bara
ekki mikið keypt,“ segir Valtýr Helgi
Diego, verslunarstjóri í Blazer.
Jakkarnir hjá honum kosta 7.900
kr. og skyrtur á 2.500 kr. Þá eru bux-
umar á 4.500 kr.
Grófar peysur
„Jakkaföt með síða skyrtu innan
undir eru vinsælust hjá strákunum
og grófir, groddaralegir skór. Núna
er rosalega mikið um ljósa liti hjá
strákunum. Fötin eru á 8.990 kr. og
DV-mynd ÞÖK
skyrtan á 2.490 kr.,“ segir Sara Odds-
dóttir í Kókó.
„Hjá stelpunum er mikið um glans-
efni. Stuttir skokkar og kjólar eru
vinsælar. Grófar peysur og síð pils í
sterkum litum. Pilsin eru á kr. 4.790,
peysur á kr. 3.990 og stuttir skokkar
frá 4.490. kr.“
VerðkönnunDV:
ÓdýraraíMið-
bæjarmyndum
í verðkönnun DV á framköllun
á 24 mynda litfilmu sl. föstudag
kom fram að boðið er upp á slíkt
í Miðbæjarmyndum í Lækjargötu
2. Sagt var að slikt kostaði 1.162
kr. og væru myndirnar tilbúnar
á einni klukkustund og með
fyigdi 24 mynda fiima.
Þetta er allt saman satt og rétt
en nú er komið á daginn að sama
dag og niðurstöður könnunaj-
blaösins voru birtar tók gildi nýtt
tilboð hjá Miðbæjarmyndum.
Fyrrnefnt verð gildir en einnig
er lrægt að láta framkalla þar ht-
filmu, 24 eða 36 mynda, gegn 610
kr. þóknun. í því tilboöi tekur
framköllunin 2-3 daga og filma
fylgir ekki með.
Morgunógleði
Morgunógleði er eitthvað sem
margar barnshafandi konur
þekkja vel. Við ógleði eru til ýmis
ráð og eitt þeirra er að forðast
steiktan og feitan mat. Sagt er að
líkaminn sé lengur að melta slika
fæðu og því verði hún lengur í
maganum. Reyndar er það svo
að ógleðin getur gert vart við sig
á fleiri tímum dagsins. Konur
geta t.d. verið slappar á kvöldin
að afloknum löngum vinnudegi
og eins getur tiltekinn ilmur vald-
ið þessari ógleði.
Annað ráð sem er aö finna í
Læknabókinni er að bæta sykri í
blóðið með þvi að borða einfaldar
sykurtegundir. Mælt er með
sykri sem er hálfkloíinn en hann
mun t.d. fást úr vínberjum og
appelsinusafa.
Tannagnístur
H1 eru ráð við tannagnístri, eitt
þeirra er að halda munninum í
heilbrigðri hvíldarstellingu að
degi til. Þeim sem gnísta tönnum
um nætur er bent á að maula
epli rétt fyrir sveftiinn. Einnig
má notast við hrátt blómkál eða
hráar gulrætur
hlutverk vítamína
Efnaskipti
B-1
Þíamín
Helsta hlutverk:
Tekur þátt í efna-
skiptum kolvetna
og próteina.
Uppspretta:
Heilhveitibrauö
og aðrar kornvörur,
kjöt.
DV
JÍJlilr"
Saltkjöt og baunir meö grænmeti. Handa fjórum til sex
1 kg saltkjöt, ekki allt of magurt
500 g gular baunir
1 lárviðarlauf
1 lítill laukur, saxaður
2 gulrætur, skornar I sneiðar
má sleppa
1 rófa, skorin í bita
5 kartöflur, skornar í bita
1 tsk þurrkuð steinselja
1/2 tsk þurrkað timjan
1/2 tsk þurrkuð kryddmæra
(meiran)
Baunirnar eru látnar liggja í bleyti í nægu köldu vatni í 8-12 klst. Kjötið er
soðið í vatni svo að fljóti yfir. Fitan á kjötinu er ekki skorin burt fyrr en síðast.
Froðan veidd vandlega ofan af þegar sýður. Kjötið er soðið í 30-45 mínútur
eða þar til það er meyrt og losnar rétt aðeins frá beinunum. Vatninu er hellt af
baununum. Þær eru settar í stóran pott og hellt á þær 1-1 1/2 I af vökva;
soði af kjötinu blönduðu með vatni eða grænmetissoði. Fleytið vel ofan af.
Laukur og lárviðarlauf er sett út í og látið sjóða við vægan hita í um 30-40
mínútur eða þar til baunirnar verða að mauki. Fylgjast þarf með baununum
svo að þær brenni ekki við, en best er samt að hræra ekki of mikið í þeim.
Undir lokin er bætt við kryddjurtum. Grænmetið er annaðhvort soðið hæfilega
lengi með baununum eða sér í potti, en soðið er þá notað í súpuna.
Grænmetið má ekki verða mauksoðið. Kjötið er skorið frá beinunum, snyrt og
skorið í litla bita og sett út í baunirnar og grænmetinu bætt við et það er soðið
sér, Bætt er við meira soði eða vatni þar til baunirnar þykja hæfilega þykkar
og hæfilega saltar. Borið fram rjúkandi heitt, öll máltíðin í einum potti.