Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1995, Síða 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 1995
Leikur Vals og KA fer fram í
„sardínudósinni" í kvöld.
Sjónvarpinu
að kenna
„Sjónvarpiö er aö gera það aö
verkum að viö verðum að spila í
Valsheimilinu."
Brynjar Harðarson Valsari i DV.
Úrslitaleikur í sardínudós
„Það er alveg sama þótt úrslita-
leikurinn verði að Hlíðarenda, í
þeirri „sardínudós“.“
Patrekur Jóhannesson i DV.
Segi ekki neitt
„Það getur verið misskilið ef ég
segi eitthvað."
Þorbjörn Jensson þjálfari í DV.
Ummæli
Hefur oft guggnað
„Ég held að hann sé töluvert á
eftir mér. Hann hefur svo oft
guggnað og er alltaf að flytja ræð-
ur á kútmagakvöldum og öðru
slíku og ræður ekki við sig.“
Davíð Oddson i Mánudagspóstinum
um Össur og megrun þeirra.
Taka málin úr
höndum krata
„í fimmta lagi verður að taka
heilbrigðis- og utanrikisráðu-
neytin úr höndum krata."
Stefán Valgeirsson í DV.
Þörf er á hugar-
farsbreytingu
„Það þarf fyrst og fremst hugarf-
arsbreytingu hjá hinum liðunum.
Það er komin í þau hálfgerö
minnimáttarkennd gegn Suður-
nesjaliðunum."
Tómas Holton körfubottamaður í DV.
Mesti fjallgarður á iandi er Hima
laja-Karakoram.
Mestu fjallgarðamir
Mesti fjallgaröur á landi er
Himalaj a-Karakoram fjallgarð-
urinn en í honum eru 96 af þeim
109 tindum sem gnæfa hærra en
24.000 fet (7315 m). Nafnið Hima-
lája er komið úr sanskrít. Him
táknar snjó og alaja heimkynni.
Mestur allra fjallgarða hnattar-
ins er samt neðansjávarhryggur-
inn Cordillera í Indlandshafi og
Austur-Kyrrahafi sem teygist
30.900 km leið frá Adenflóa til
Kalifomíuflóa eftir hafsbotnin-
um milli Ástralíu og suður-
Blessuð veröldin
skautsins. Meðalhæðin er 2430
metra yfir botnsléttunrii í kring.
Brattasti klettaveggurinn
Fjallið Rakaposhi (7772 m) gnæfir
þverbratt, 5990 m hátt, yfir
Hunzadal í Pakistan. 10 km eru í
lárétta stefnu frá fjallsrótunum
inn undir hátind fjallsins og með-
alhalli er 31°. Norðvesturveggur
HalfDome í Yosemite í Kalifomíu
er 975 m breiður og 670 m að hæð
en víkur hvergi meira en 7° frá
lóðréttri stefriu. Klettaveggur
þessi var fyrst klifinn í júlí 1957
af þremur Bandaríkjamönnum.
El og slydda
I dag verður suðaustangola eða kaldi
suðvestanlands en suðvestangola eða
kaldi annars staðar. Um landið sunn-
an- og vestanvert verða víða dálítil
él fram eftir degi en síðan slydduél.
Norðanlands og austan verður létt-
Veðrið í dag
skýjað. I nótt verður sunnankaldi
eða stinningskaldi og skúrir sunnan-
lands og vestan en skýjað með köfl-
um norðaustan til. Veður fer hlýn-
andi. Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustan gola eða kaldi í dag en
kaldi eða stinningskaldi í nótt. Veður
fer hlýnandi og síðdegis verður orðið
frostlaust.
Sólarlag í Reykjavík: 20.06
Sólarupprás á morgun: 6.58
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.07
Árdegisflóð á morgun: 5.28
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjað -14
Akurnes léttskýjað -8
Bergsstaðir léttskýjað -10
Keílavíkurflugvöllur rign. á síð. klst. -4
Kirkjubæjarkla ustur skýjað -5
Raufarhöfn léttskýjað -13
Reykjavík skýjað -4
Stórhöfði skýjað -1
Helsinki . snjóélásíð. klst. -1
Kaupmannahöfn léttskýjað -1
Stokkhólmur skýjað -5
Þórshöfh skýjaö -5
Amsterdam snjóélásíð. klst. 2
Berlín skýjað -1
Feneyjar alskýjað 5
Frankfurt léttskýjað 0
Glasgow snjókoma 1
Hamborg snjóél -1
London alskýjað 2
LosAngeles heiðskírt 15
Lúxemborg hálfskýjað -3
Mallorca alskýjaö 11
Montreal heiðskírt -1
Nice léttskýjað 8
París skýjað 0
Róm rign.ásíð. klst. 8
iksdómari:
1 r r
pvieg
„Þaö hefur ekkert veriö öðruvísi
að dæma í þessari úrslitakeppni en
í sams konar keppni áður. Það fylg-
ir ávallt mikill hiti og æsingur þeg-
ar möguleiki er á þvi að annað liö-
ið detti út úr keppninni," segir
Rögnvald Erlingsson handknatt-
leiksdómari en hann mun ásamt
félaga sínum, Stefáni Amaldssyni,
dæma viðureign Vals og KA sem
fram fer að Hlíðarenda í kvöld.
Maður dagsins
Rögnvaid hefur verið handknatt-
leiksdómari í nítján ár og hefur
einnig, ásamt Stefáni Arnaldssyni
félaga sínum, dæmt á alþjóðlegum
vettvangi, meðal annars í heims-
meistarakeppnum: „Þaö hefur orð-
ið mikil breyting frá því ég hóf fyrst
að dæma, Nú eltir Sjónvarpið öll
vafaatriði uppi og sýnir þau marg-
oft. Áður vom þetta bara tvö til
þrjú dagblöö sem fjölluöu um leik-
inn og þá á mun léttari nótum en
gert er í dag. Nú em leikimir miklu
meira í umræðunni og þaö sem vió
Rögnvald Erlingsson
þurfum að ákveða á sekúndubroti
er hægt að sýna hægt í sjónvarpi.
Það er aldrei gaman að gera mistök
en verði okkur á mistök veröur
bara að hafa það. Við reynum að
gera okkar besta og þaö er leiðin-
legt ef það kemur í Ijós eftir á að
rangt var dæmt.“
Rögnvald var spurður hvort
dómarastarfið væri ekki vanþakk-
látt starf: „Jú, og sérstaklega á ís-
landi. Þetta hefur reynslan af því
að dæma erlendis sýnt mér. En
19 árum
auðvitað kemur fyrir, eins og á
Akureyri um síðustu helgi, að leik-
urinn gengur vel fyrir sig og þeir
sem töpuðuþar tóku tapinu af karl-
mennsku, þannig að víð þurftum
ekki að hafa upp á neinn að klaga.“
Rögnvald hefur dæmt á alþjóð-
legum vettvangi í niu ár og þá með
Stefáni félaga sínum: „Við emm
búnir að dæma saman í fimm ár
en vomm fyrst saman fyrir níu
árum en geröum tveggja ára hlé á
samstarfi okkar.“
Rögnvald sagði aðspurður að
hann væri farinn að telja það í
mánuðum hvenær hann hætti:
„Þetta er að verða gott. Ég mun
dæma í heimsmeistarakeppninni í
vor en eftir það mun ég fastákveða
það hvort ég hætti þá eða eftir ein-
hvern mánaðafjölda. Ég er búinn
að upplifa allt sem hægt er að upp-
lifa í þessu og kominn timi til að
snúa sér að ööru.“
Rögnvald er framkvæmdastjóri
hjá innflutningsfyrirtækinu Vöru-
kaup. Eiginkona hans er Helena
Kristjánsdóttir og eiga þau þrjú
böm.
-5*
Valur-KA-úr-
slitaleikurinn
Það hefur míkið gengið á í við-
ureign Vals og KA í úrslitahrin-
unni um íslandsmeistaratitilinn
í handknattleik. Pjórum leikjum
er lokið og hefur hvort félag um
sig ínnbyrt tvo sigra og hafa þrír
leikamir endað með eins marks
mun. Fimmti leOmrinn og hreinn
úrslitaleikur verður á heimavelli
Vals aö Hlíðarenda í kvöld og
veröur ömgglega heitt í kolunum
því spennan er komin i hámark
og nú er að duga eða drepast.
Valsmenn sem eru núverandi ís-
landsmeistara njóta þess að vera
á heimavelli og þaö hefur ekki
haft lítið að segja í leikjum hingað
til en KA hefur engu að tapa og
gefa örugglega ekkert eftir.
Skák
íslensku keppendumir hafa átt mi-
sjöfnu láni aö fagna á Norðurlanda- og
svæðamótinu sem fram fer á Hótel Loft-
leiðum. í meðfylgjandi stöðu hafði Helgi
Ólafsson svart gegn Sune Berg Hansen.
Síðasti leikur hvíts var að setja hrók á
fl og Helgi gætti sín ekki á hótuninni:
Skákin tefldist 18. - a4?? 19. Bxh7 + ! '
Rxh7 20. Dh5 og svartur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Danski spilarinn Peter Lund fékk sérstök
verðlaun fyrir úrspil í þessu spili á Dan-
merkurmeistaramótinu í sveitakeppni. í
þessu spili náði hann fram tvöfaldri kast-
þröng og sýndi jafnframt góð sálfræðileg
tilþrif sem afvegaleiddu vömina í þessu
spili. Samningurinn var 4 spaðar og út-
spil suðurs var hjartaþristur:
♦ KD75
V K1096
♦ G82
+ 54
♦ 92
V 5
♦ Á1054
+ G109862
V DG732
♦ K96
vi
♦ Á1086
V Á84
♦ D73
+ ÁD3
Vörnin var nokkuð hjálpleg í útspilinu
en þó hvergi nærri 10 slagir mættir. Lund
fékk slaginn á áttuna heima, tók þrisvar
tromp og spilaði síðan tigulgosanum úr
blindum. Sú spilamennska var ekki
sjálfsmorðshugleiðing, heldur ákveðin
blekkispilamennska og austur, sem fór
upp með ásinn, dreymdi ekki um að spila
tígh áfram. Austur spilaöi laufgosa,
drottning heima, vestur drap á kónginn
og spilaði laufi áfram. Lund trompaði
lauf í blindum, tók hjartaás og staðan var
þessi:
V K10
♦ 82
+ --
* --
V DG
♦ K9
+ --
* --
V --
♦ 105
+ 109
* 10
V 4
♦ D7
+ --
Síðasta trompið setti vestur í óverjandi
þvingun. Honum leist ekki á að henda
hjarta og þegar hann henti tígli var
hjartatíunni hent í blindum og tígU spU-
að. ísak örn Sigurðsson.