Þjóðviljinn - 11.05.1939, Blaðsíða 1
Stlfipn Bandalags siétfar
Sktrífsloía opnudfí ffafnatrsfiræfá
Stjórn sú, sem Bandalag stétt-
arfélaganna kaus nýlega hefur nú
skipt með sér verkum.
Formaður er Ingólfur Einarsson
ritari í Járniðnaðarmannafélaginu,
ritari Hermann Guðmundsson úr
Hafnarfirði, gjaldkeri Guðjón
Benediktsson og varaformaður
Guðmundur Ó. Guðmundsson. Auk
þessara manna eiga sséti í stjórn-
inni Héðinn Valdimarsson, Helgi
Sigurðsson og Ölafur H. Guð-
mundsson. Síðar verður bætt við
4 mönnum í stjórn.
Bandalagið opnar í dag skrif-
stofu í Hafnarstræti 19 í húsi
Helga Magnússonar.
Stjórnin hefur ráðið Benjamín
Eiríksson sem starfsmann banda-
lagsins.
ViUINN
FIMMTUDAGUK 11. MAI 1939.
107. TÖLUBLAÐ
IV. AKGANGUR
Verð á bræðslusíld
hækkar stórlega
En samkomulag l náðíst ekkí í
verksmíðjustjórnínní um hve hátt
það skyldí verða
Benjámín Eirtksson.
Sigfús Eiiarsson
Sigíús Einarsson tónskáid and-
aðist gær. Var hann staddur inni
í verzlun einni í Austurstræti, er
hann hneig skyndilega niður. Var
þegar brugðið við og hringt á
sjúkrabifreið og flutti hún Sigfús
á Landspítalann, en er þangað
kom var hann látinn.
Sigfús Einarsson var fæddur að
Eyrarbakka 30. janúar 1877. —
Dvaldi hann í foreldrahúsum til
1892 að hann réðist til náms í
Latínuskólanum og útskrifaðist
hann þaðan vorið 1898. Að loknu
stúdentsprófi fór Sigfús til há-
skólans í Kaupmannahöfn og
hugðist að leggja stund á lög-
fræði. Hugur hans hafði ungur
hneigzt að tónlist og er hann kom
til Hafnar mun laganámið hafa
orðið að þoka um set fyrir tón-
listaráhuga hans. Fékk Sigfús
nokkru síðar nokkurn styrk frá
Alþingi til hljómlistarnáms og
lagði hann þá lögfræðina alveg á
hilluna.
Sigfús lærði söng hjá Valdemar
Linche og tónskáldskap hjá
danska tónsákldinu August Enna,
og undir hans leiðsögn hóf liann
fyrstu tónverkasmíðar sínar, 'og
að undirlagi Enna raddsetti hann
ýms íslenzk þjóðlög. Á þcssum
árum hélt hann einnig hljómleika
bæði í Danmörku og Noregi.',
Árið 1906 flutti Sigfús alfarinn
heim til Islands og um Hkt leyti
kvæntist hann danskri konu, Val-
borg* Hellemann. Hefur hann síð-
an gegnt hér margskonar störfum
í þágu tónmennta, svo sem kenn-
ari, söngstjóri, tónskáld og orgel-
leikari.
Sigfús var söngkennari Kenn-
araskólans frá byrjun og hann tók
við söngkennslu í Menntaskólan-
um nokkru síðar, er Brynjólfur
Þorláksson fór vestur um haf. Ár-
ið 1913 varð hann organleikari við
Dómkirkjuna. Þá stofnaði hann
karlakórinn „17. júní”, sem starf-
aði hér um nokkur ár og Hljóm-
sveit Reykjavíkur stofnaði hann
árið 1926 og veitti henni forstöðu
um hríð.
Áskrifendur, munið að tilkynna
bústaðaskipti á afgreiðslu blaðs-
ins Austurstræti 12, sími 2184.
Sigfús Einarsson hefur samið
mikinn fjölda tónverka og yrði
það langt mál að telja þau upp.
Sigfús Einarsson var maður
gáfaður og fjölfróður í list sinni.
Vinsæll maður var hann af öllum,
er höfðu nokkur kynni af honum.
Og þó að hann sé nú látinn mun
íslenzkt tónlistarlíf lengi búa að
störfum hans, bæði sem tónskálds
og söngkennara.
Sijórn síldarverksmiðjanna hef-
I ur að undanförnu setið a rökstól-
| urn líér í bænum til þess meðal
! annars að taka áltvarðanir eða
gera tillögur um verð á bræðslu-
; síld í sumar.
| Samkomulag hefur ekki náðst
um þessi mál innan verksmiðju-
stjórnarinnar og hafa báðir aðilar
sent ríkisstjórninni tillögur sínar.
Meiri hluti verksmiðjustjórnarinn-
ar: Þormóður Eyjólfsson, Þor-
steinn M. Jónsson, Sveinn Bene-
diktsson og Jón Þórðarson leggja
til, að bræðshisíiclarverð verði í
surnar kr. 6,70 á síldarmál.
Minni hluti stjórnarinnar: Finn-
ur Jónsson framkvæmdastjóri
leggur hinsvegar til að greiddar
verði kr. 7,00 fyrir hvert síldar-
mál.
Mun þao nú liggja fyrir ríkis-
stjórninni að skera úr ágreiningi
þessum og ákveða hvort verðlagið
skuli gilda.
Bræðslusíldarverðið var í fyrra
kr. 4,50 á mál, svo að hér er um
verulega hækkun að' ræða, hvor
tillagan, sem kemur til fram-
kvæmda.
Hinsvegar hefur það nokkur á-
hrif á „premíu” til sjómanna,
hvort verðið verður kr. 6,70 eða
kr. 7,00.
Lætur Attlee
að fortölum
Leon Blums ?
LONDON 1 GÆRKVÖLDI (FÚ).
Leon Blum, aðalleiðtogi franskra
jafnaðarmanna, er nú í Englandi
til þess að ræða við Mr. Attlee og
aðra leiðtoga brezka Verkalýðs-
flokksins. Atti hann viðtal við Att-
lee þegar í gær, og hafa menn fyr-
ir satt, að hann muni hafa leitt
honum fyrir sjónir, að franskir
jafnaðarmenn ættu ákaflega bágt
með að skilja og sætta sig við þá
mótstöðu, sem brezki Verkalýðs-
flokkurinn sýnir herskyldufrum-
varpinu.
Leon Blum fór í dag í bifreið í
-eimsókn til Winston Churchills á
sveitaheimili hans í Kent og ræddi
við liann.
Á fundi í neðri málstofu brezka
þingsins í dag kvaddi Mr. Dalton,
einn af leiðtogum Verklýðsflokks-
ins sér hljóðs og stakk upp á því,
ao Halifax lávarður færi til
Moskva og ræddi þar per-
sónulega við Molotoff, en Chamb-
erlain svaraði því, að hann teldi
réttara að bíða eftir svari rúss-
nezku stjórnarinnar, áður en frek-
ara væri aðhafst í málinu.
LONDON I GÆKKV. FÚ.
Frá Varsjá er símað, að pólska
stjórnin hafi tilkynnt stjórnum
Bretlands, Frakklands og Svíþjóð-
ar, en þær eiga fulltrúa í þeirri
þriggja manna nefnd, sem Þjóða-
taandalagið skipaði til. eftirlits
með Danzig — að hún teldi það
ekki æskilegt að breyta núverandi
skipun á málum Danzigborgar né
heldur að skipta um fulltrúa
Þjóðabandalagsins þar.
Pólvcfjaif krefjast þjóð-
arafkvæðís i Tékkíu!
Eitt af helztu blöðum í Varsjá
skýrir frá því í dag, að ef Þýzka-
land stingi upp á þjóðaratkvæða-
greiðslu í Danzig um sameiningu
borgarinnar við Þýzkaland, þá
mundi pólska stjórnin stinga upp
á, að þjóðaratkvæðagreiðsla verði
látin fara fram í Bæheimi og Mæri
um sameiningu þessara héraða við
Pólland.
Pólsk yfirvöld hafa rekið úr
landi 15 Þjóðverja, þar á meðal
tvær konur. Er þeim' gefið að sök
að hafa tekið upp fjandsamlega
afstöðu gegn pólska ríkinu.
Fki ’ Kanton.
LONDON i gÆæKVÖLDI (FÚ) ;
Japönsku yfirvöldin í Kanton
hafa lýst yfir mjög ströngurn
hernaðarlögum í borginni. Útlend-
ingar í Kanton skýra svo frá, að
skothvellir heyrist nú úr þeirri
átt, sem járnbrautin liggur frá
Kanton til Hankau.
I gær var haldinn annar fund-
ur í hinu „innra ráðuneyti” Jap-
ans, sem í eru fimm ráðherrar, og
var þar enn rætt um Evrópumálin.
Meðal þeirrai sem viðstaddir voru,
má telja forsætisráðherrann, ut-
anríkismálaráðherrann og hermála
ráðherrann.
Japanskar hernaðarflugvélar
réðust í gær á hafnarborgina
Amoy ' í Suður-Kína og vörpuðu
yfir hana sprengjum og skutu á
hana af vélbyssum.
Áfásum Japana á sendí~
hertrabúsfaðí Brefa og
Frakka mófmaelh
Sendiherra Frakka í Tokíó hef-
ur mótmæit við japönsku stjórn-
ina skemmdum, sem gerðar hafa
verið á ræðismannstaústað Frakka
í Chungking, meðan stóð á loft-
árásum á borgina undanfarna
daga. Sendiherra Breta hefur ver-
ið falið að bera fram svipuð mót-
mæli fyrir hönd brezku stjórnar-
innar.
Norskii verkalfðsfélðgii
hvetja til alþjóðaráOstefnQ
gegn strlði og fasisma
Enga samnínga váð Hítler!
Einkaskeyti til Þjóðviljans
Khöfn í gærkvöldi.
Stjórn verkalýðsfélaganna í Os-
ló ræddi í gær alþjóðaástandið og
samþykkti einróma kröfur til
Landssambands verkalýðsfélag-
anna um stuðning við hngmynd-
ina um alþjóðlega verltalýðsráð-
stefnu gegn stríði og fasisma. Var
farið fram á í ályktuninni að
Landssambandið beitti sér iyrir
því að stjórn Alþjóðasambands
verkalýðsfélaganna kæmi saman
til að vinna að þessu máli.
I ályktuninni er lokið lofsorði á
framkomu Roosevelts forseta í al-
þjóðamálunum og talið sjálfsagt
að tilboði Hitlers um ekki-árásar-
samning við Norðurlönd verði
hafnað.
Með þeirri samþykkt hafa verk-
lýðsfélögin í Osló tekið sömu af-
stöðu og verkalýðsfélögin í Trond-
heim, Bergen og Stavanger.
Hinsvegar hefur Verkamanna-
flokkurinn ekkert aðhafzt í þess-
um málum.
Fréttaritari.
FarfngJabanda-
lagið seínr npp
skrifstofn.
Ferðamannanámskeið Banda
Lags ísleinzkra farfugla lauk
lum síðustu helgi með því a«5
þátttakendur fóru í ferðaleg tif
Krísuvíkur.
Námskeiðið stóð yfir í þrjár
vikur og hefur verið kennt í
fyrirlestrum. Jón Oddgeir Júns
son flutti fyrirlestur um hjálp
í viðlögum, Steinþór Sigurðs-
son talaði um notkun áttavita
og korta, Guðmundur Einarsson
frá Miðdal talaði um ferðaút-
búnað og Pálmi Hannessonum
ferðalög og ferðamenningu
Auk ]mss kenndu skátar verk-
lega hjálp í viðlögum. Var nám
skeiðið vef*sótt.
Bandalagið opmjajr í dag skrif-
! stofu í Menntaskólanum, og
| verður hún framvegis opin á
; fjmmtudögum milli 6 >og 7 og
j á laugardögum frá kl. 1—2,og
; 5. Á skrifstofunni verða
gefnar upplýsingar um starf-
semi bandalagsins og allt er
við kemur ferðalögum. Er ætl-
azt til að þeir, sem hugsa til
ferðalaga en vantar ferðáfé
laþia geti snúiðisér til skrifstof-
unnar og fengið þar bent á
menn, sem hafa lrug á svipuð
um ferðalögum.
Peir sein óska að ganga í
einhverja farfugladeildina^ geta
snúið sér til skrifstofunnar og
fengið þar farfuglaskírteini
Pofemkín í Varsjá
Potemkin, aðstoðarutanríkis-
málaráðherra Sovétríkjanna, átti
viðtal við Beck, utanríkismálaráð-
herra Póllands, í Varsjá í dag, og
leggur hann síðan af stað til
Moskva í kvöld. Eru viðræður
þeirra álitnar mjög þýðingarniiklar
með tilliti til þess, hverjar horfur
eru í álfunni. En opinberlega er
sagt, að þetta hafi verið einkavið-
ræður og óviðkomandi stjórnmál-
um. (FÚ)
i