Þjóðviljinn - 08.12.1940, Page 4
þJÓÐVILJINN
Helgidagslœknir í dag: Krist-
ján Hannesson, Miðstræti 3, sími
5876.
Næturlœknir í nótt: Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46, sími
3272. Aðra nótt: Eyþór Gunnars
son, Laugavegi 98, sími 2111.
Nœturuörcur er þessa viku í:
Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni,
Útvurpiö í dag.
9,45 Morguntónleikar, plötur:
Óperan Tannhauser eftir Wagn
er. 1. þáttur.
11,00 Messa i Dómkirkjunni.
Prédikun: Ástráður Sigurstein-
dórsson cand. thaol. Fyrir alt-
ari: séra Bjarni Jónsson.
12.10 Hádegisútvarp.
15,00 Miðdegistónleikar, plötur:
Óperan Tannhauser eftir Wagn
er. 2. og 3. páttur.
17,00 Messa í Dómkirkjunni.
Séra Magnús Guðmundsson.
18.30 Barnatími. Saga: Stefán
Jónsson kennari. Gítarleikur.
Söngur barna: Jóhann Tryggva
son stjórnar.
19,15 Hljómplötur: Lög fyrir pí-
anó og orgel.
19,40 Ávarp um Slysavarnafélag
íslands: Sv. Björnsson sendih.
19.50 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20.20 Erindi: Reykjavík æskuára
minna, II: Kaupmenn og hahd-
iðnarmenn: dr. Jón Helgason
biskup.
20.50 Hljómplötur: islenzk lög.
21,00 Þulur: frú Soffía Guðlaugs
dóttir.
21.10 Upplestur: Landnám ísl. í
Vesturheimi, eftir Þ. Þ. Þ,:
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
21.30 Þjóðlög frá Wales.
21.50 Fréttir.
22,00 Danslög.
ÚtvarpiT) ú morgun.
12,00 Hádegisútvarp.
13,00 Dönskukennsla, 3. fl.
15.30 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 2. fl.
19,00 Þýzkukennsla, 1. fl.
19,25 HJjómpl.: Andstæður í tón
list.
19.50 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20.30 Um daginn og veginn: V.
Þ. G.
20.50 Hljómplötur: Létt lög.
20,55 Útvarpssagan: „Kristín La
fransdóttir“, eftir S. Undset.
21.20 Einsöngur: frú Guðrún
Ágústsdóttir: Grieg: Modersorg
Merikanto: En barnasaga.
Heise: Aften paa Loggien. Páll
ísólfsson: Maríuvers. Sveinbj.
Sveinbj.: Vetur.
21,35 Útvarpshljómsveitin: tsl.
alþýðulög.
21.50 Fréttir.
Elli-'og hjúkrunarheimilid Grund
á 10 ára starfsafmæli um þessar
mundir i tilefni af þvi hefur ver-
ið gefið út minningarrit, sem Sig-
urbjörn A. GísJason hefur samið.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman 1 hjónaband hjá lög-
manni, ungfrú Ingibjörg Þor-
leifsdóttir, skrifstofustúlka og
Björgúlfur Sigurðsson verzlun
armaður. Heimili þeirra verður
á Víðimel 37.
11. deild heldur fund annað
kvöld kl. 8V2 á venjulegum
stað.
> Ásfands-úfgáfa
leikin í Iðnó annað kvöld kl. 8'/?, .
Aðgöngumiðasala í dag kl. 4—7 og á morgun eftir kl. 1.
Santona fwir
VeMaiMillD
Loks er nú svo komið að Barna
vinafélagið Sumargjöfin hefur
vetrardagheimili fyrir ýms afbág
stöddustu börnum þessa bæjar.
Var þess sizt minni þörf en sum-
ardagheimiJanna. Starfið gengur
framúrskarandi vel. Heimilið er
í Landlæknishúsinu gamla við
Anrtmannsstíg, og geta börnin
leikið sér á túnblettinum þar hjá.
Til þess að geta staðið straum |
af þessu heimili þarf mikið fé, J
enda þótt fyllstu hagsýni sé gætt. |
HeimiJinu hafa þegar borizt nokk
urar gjafir, en betur má til þess
að standast kostnaðinn.
Prófessor Guðbrandur Jónsson
hefur nú sýnt Sumargjöfinni þá
vinsemd og þann skilning á þessu
nauðsynjamáli, að hann hefur
boðizt til að flytja erindi fyrir
almenning í Nýja Bíó í dag kl.
1,30 é. h. Væri þess óskandi að
sem flest fólk veitti sér í senn
þá ánægju, að hlýða á mjög
snjallan fyrirlesara og styrktieitt
hvert mesta nauðsynjamálið fyr-
ir fátækustu börn bæjarins. —
Hvert sæti í liúsinu ætti helzt
að vera skipað.
a.
Ægir, 11. bl. þrítugasta og ann-
ars árgangs er nýkomið út. Blað-
ið er helgað minningu dr. Bjarna
Sæmundssonar.
Hvöt' annað blað áttunda árg.
er nýkomið út. Blaðið er að þessu
sinni vélritað, og flytur skýrslu
um nýafstaðið þing Sambands
bindindisfélaga í skólum.
St. Framtíðin nr. 173. Fund-
ur í kvöld kl. 814. Efni:
Sindraút írmaMS
Sundmót Ármanns fór fram í
SundhöIIinni i fyrradag og urðu
úrslit sem hér segir:
50 m. frjáls adferd, karlar.
Gunnar Eggertsson, Á., 28,8 sek.
Guðbr. Þorkelsson, K.R. 29,4 sek.
Rafn Sigurvinsson, K.R. 29,6 sek.
100 m. bringusund, karlar.
Ingi Sveinsson, Æ., 1:20,4
Magnús Kristjánsson, Á., 1:24,2.
Sigurður Jónsson, K.R. 1:25,3
200 m. baksund, karlar:
Guðrn. Þórarinsson, Á., 3:19,0
Sigurður Guðjónsson, sem skráð-
ur var til þessarar keppni keppti
ekki.
4x100 m. boösund, karlar:
Sveit Ægis, 4:32,5.
A-sveit Ármanns 4:39,1.
B-sveit Ármanns 4:53,1
Sveit K. R. 4:57,9.
50 m. frjáls adferd, drengir inn-
an 16 ára:
Sigurgeir Guðjónsson, K.R. 31,5
Ari Guðmundsson, Ægir, 33,7.
Benný Magnússon, K.R. 34,0
100 m. bringusund, drengir innan
16 ára:
Einar Davíðsson, Á., 1:34,8.
Jóhann Gíslason, K.R. 1:35,4.
Eyjólfur Jónsson, K.R. 1:39,6.
m**H**y
T
l Flokkurínn
x
Á mánudagskvöld verða fund-
iir i öllum deildum. Mjög er áríð-
andi að félagar mæti hver í sínni
deild, því mörg áríðandi mál eru
á dagskrá.
Takið með ykkur nýja félaga
sem vilja ganga í flokkinn, nú
verður að herða sóknina á öllum
sviðum.
I
?
Æ' F* R*
1. Vígsla nýliða.
2. Félagar úr Bindindisfélagi
Iönskólans koma í heimsókn.
3. Jón Gunnlaugsson: Erindi
4. Pétur G. Guðmundsson:
Erindi.
SKEMMTIKLUBBUR Æ.F.R.
Skemmtun í kvöld kl. 9 á
skrifstoíu Æ.F.R. Margt til
skemmtunar. Hafið með ykkur
spil.
Daglega nýsoðin
S VIÐ
Kaffistofan.
Hafnarstræti 16.
77
uðurhafs-
Skáldsaga eítir MarkCaywood
Eg geri ráð fyrir, að þá sé úti um okkur. Við verð-
um annaðhvort að yfirgefa skipið, eða aö reyna að
þræða út sundiö í leitarljósi og kúlnahríð frá tundur-
spillinum. Sjálfsmorð, bætti ég við.
Það fór hrollur um hana.
Hvernig komumst við aftur til mennskra manna, ef
við yfirgefum snekkjuna? spurði hún. '
Það er engin vandi. Ef einhver kaupmaöur er hér,
þá verður hann að hafa skip á sínum vegum. Við gæt-
um einnig fengið þá innfæddu til þess aö róa með
okkur yfir til Omatu, á eintrjáningum. Það er þó sá
hængur á því, að ekkert er sennilegra en að handtöku-
beiðni bíði okkar í Omatu.
Hún var hugsi, góða stund.
Þú heldur, að það væri bezt að reyna að komast út,
ef þeir finna okkur?
Já, af tvennu illu, tel ég það skárra. Sérstaklega af
því að ég er svo bráðlátur að komast til mannabyggða
og gera þig að frú Nichol. Hver veit nema þér kunni
að snúast hugur annars.
Hún hló ánægjulega.
Eintrjáningarnir eru svo seinir í förum, bætti ég við.
Það varð þögn, Allt í einu fór ég að skellihlæja.
HvaÖ stendur til.... ? spurði Virginía og horfði for-
vitnislega á mig.
Eg var að hlæja aö þessum tundurspilli. Mér datt í
hug, hvort það gæti viljað svo til, að þetta væri skipiö
hans Jimmy Buchanan. Heima í Sudney er hann einn
af mínum beztu kunningjum og mér þykir það fynd-
ið, ef hann er skipstjóri á þessum tundurspilli. Það er
ekki nema mánuður síðan ég var að spila bridge hjá
honum og hans ágætu eiginkonu á sveitasetri þeirra í
Cremorne. í gær var hann aö reyna að sprengja mig
í loft upp með fimmtán punda fallbyssukúlu.
Helduröu að þetta sé hans skip?
Það er ekki ólíklegt. Þeir eru ekki vanir að senda
tundurspilla á eftir vopnasmyglurum. Það er oftast lát-
ið nægja að senda einhvern lítinn, gamlan ryðkláf. En
ég vissi, að skip Jimmings var á þessum slóðum, þegar
ég nefndi hann 1 skeytinu til Conrays gamla. Þess vegna
gerði ég það.
Hún leit á mig og brosti kankvíslega.
Eg er hrædd um, aö við Hogan höfum vanmetið
gáfnafar þitt, John, sagði hún.
Eg er helzt á því, samsinnti ég. Eg veit, að ég lít
sauðarlega út, en það er ekki alltaf emhlítt aö dæma
menn eftir útlitinu.
Hún laut fram og kyssti mig ástúölega.
Hvað mundir þú gera, ef þú værir viss um, að þetta
væri skip Buchanans? spuröi hún sakleysislega.
Ekkert, sem ég geri ekki hvort sem er, svaraði ég.
En þú segir, að hann sé vinur þinn, mælti hún undr-
andi.
Já, að vísu, en ef ég fengist viö vopnasmygl, þá væri
hann i sínum fulla rétti, þó að hann skyti mig fyrst
og bæði mig afsökunar á eítir. Og það meira er, þann-
ig mundi hann breyta. Slíkir náungar eru það, sem er
trúað fyrir þessum litlu marflóm flotans, væna mín.
Hún andvarpaði.
Er ekki viðbúið, ef handtökubeiöni bíöur okkar í
Omatu, að svo sé víðar? mælti hún.
Eg hef hugsað um þetta. Það getur vel verið. Við
verðum að láta líta svo út, sem við höfum verið ann-
arsstaöar og reyna að færa sönnur á það. Við verðum
að neita því, að við höfum nokkru sinni séö Narcissus,
eða vitum á honum nokkur deili. Eg ætla að reyna að
fá Conray gamla til þess að hjálpa okkur. Hann á mesta
sæg af vinum.
Þaö stoðar lítið. Skipiö þekkist, sagði hún.
Snekkjan? Herra minn trúr. Þú heldur þó ekki, að
við siglum inn að bryggju í Sydney á snekkjunni. Þú
álítur mig grunnhyggnari en ég er.
mijri
*