Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 4

Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN — Þriðjiiclagur 15. maí 1945 Dtgefandi: SameiningarflokkuT alþýSu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson. Stjómmálaritstjórar: Kinar Olgcirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstofa: Áusturstrœti 12, sími 2270. Afgreiðsla og auglýíingar: Skólavörðustíg 19, sími 218ý. Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Dti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœti 17. Sýnum vilja í verki Vér höfum dáð hetjubaráttu Norðmanna og Dana í ræðu og riti. Vér höfum látið orð, full ástríðu, falla úm bróðurhug vom í garð þessara frændþjóða vorra. Vér höfum gengið þúsundum saman á fund sendiherra þeirra sigurdaginn og hyllt þá og þjóðir þeirra af meiri fögnuði og fjálgleik en oss er tamast að sýna. Vér höfum og safnað fé til að létta hma sárustu neyð þessara þjóða. Allt er þetta gott og sjálfsagt, en sjálfsagðast er að sýna nú enn betur en orðið er viljann í verki og gera þá skyndisöfnun, sem ríkisstjórnin beitir sér nú fyrir til hjálpar Norðmönnum og Dönum, svo veglega sem auðið er. Vér íslendingar þekkjum eina hlið stríðshörmunganna: Vér þekkjum þann harm, sem er að þúsundum kveðinn, þegar synir og dætur þjóðarinnar falla fyrir'vígvélum óvinanna. Mannfall vort í þessu stríði jafnast á við mannfall margra þeirra þjóða, sem tekið hafa þátt í stríðinu á vígvöllimum sjálfum, og er að tiltölu meira en mannfall þeirra sumra. Samfara þessu þekkjum vér þau óþægindi, sem leiða af missi framleiðslutækja og skorti.á efnivið til að endumýja þau, svo og skort á efni til húsagerðar. Aðrar erfiðar hliðar stríðsins þekkjum vér lítt eða ekki. Vér höfum haft gnótt fæðis og klæða. Atvinna og af- koma hefur verið mjög góð, svo góð, að vér erum aflögufærir. • En vinir vorir og frændur í Noregi og Danmörku hafa aðra sögu að segja. Þeir þekkja allt það erfiða, sem vér þekkjum í sambandi við stríð, en auk þess kúgun svo svívirðilega og villi- mannlega, að langt tekur fram því sem ímyndunarafl hinna skáldlegustu bölsýnismanná*’ hefði getað framleitt fyrir nokkrum árum, og til viðbótar öllu þessu kemur svo skortur fæðis og klæða, skortur, sem sigurinn einn saman vinnur ekki bug á. skortur, sem ef til vill sverfur átakanlegast að nú þegar hin langþráða og bjarta stund frelsisins er upp runnin. Hér getum vér lagt fram okkar skerf til úrbóta. Esja siglir bráðlega til Noregs og Danmerkur til að sækja íslendinga, sem bíða heimfarar. Hún mun ekki héðan fara öðru vísi en fullhlaðin matvörum og fatnaði og þessi farmur verður að vera gjöf íslendinga til bræðraþjóðanna. En slíkur farmur kostar að sjálfsögðu mikið fé, það fé ber oss nú að leggja fram, allir eigum vér að leggja eitthvað af mörkum smátt eða stórt eftir hvers eins getu. Vér skulum ekki líta smáum augum litlu upphæðirnar. Ef allur hinn vinnandi fjöldi gerði sér að skyldu að gefa sem svarar eins dags vinnulaunum, þá er að vísu fram- lag hvers eins ekki stórt, en framlag allra yrði vegleg upphæð. Ef. t. d. 20 þúsund íslendingar gæfu hver 50 krónur, þá er framlag þeirra alls 1 milljón. * Það eru áreiðanlega til 20 þúsund íslendingar, sem vilja og geta gefið 50 krónur hver. Spumingin er aðeins hvort þeir láta það undir höfuð leggjast af því að þeim finnist upphæðin of lítil, eða af einhverjum trassaskap. En hvorug þessi ástæða má aftra, hvorug á rétt .á sér. Þeir, sem mikil peningaráð hafa, munu gefa stórar upphæðir, en aðeins með þátttöku þeirra mörgu og smau náum vér því marki, sem eitt er sæmilegt, að gjöfin verði í senn stórmannleg og rétt mynd af þeirri almennu aðdáun og yinsemd, sem vér berum í brjósti í garð Norðmanna og Dana. Þessvegna. Tökum öll þátt í skyndisöfnuninni, — enginn má sitja hjá! Aldrei Verkalýður Akureyrar! Þessi hátíðalhöld okkar í dag — á’ hinum alþjóðlega hátíðis- og baráttudegi verkalýðsins — falla saman við ein hin merkilegustu tímamót í sögu mannkynsins. Ilinni ægilegu heimsstyrjöld, sem staðið hefur hálft sjötta ár, er að verða lokið. — Veldi fasismans, hámark villimennsku, grimmdar og mannfyrirlitningar, er að velli lagt a. m. k. um sinn'— og von- andi fyrir fullt og allt. — Þjóðir, sem um löng og ér'fið ár hafa var- íð frelsi sitt og föðurland með vopn í hönd og fórnað blóði vöskustu sona og dætra, snúa nú til frið- samlegra framleiðslustarfa — til endurgræðslu sinna sundurflak- andi landa — til uppbyggingar sinna hrunclu borga. — Þjóðir, sem hernumdar hafa lotið áþján fasismans — verið kúgaðar til að þjóna böðlum sínum og smíða vopn á vini sína, fá nú frelsi og taka örlög sin í eigin hendur. Sú .bitra reynsla sem þjóðirnar haJfa hlotið í þessari grimmustu og fórnfrekusíu styrjöid mann- kynssögunnar, virðist hafa kennt leiðtogum þjóðanna þann mikils- verða sannleik, að þær þjóðir, sem elska friðinn, verði að hafa stöð- ugt og náið samstarf til verndar honum — og í krafti þeirrar reynslu og þess sannleika, er verið að gera alvarlega og merkilega til- raun til að skipuleggja fjánhags- !eg og stjórnmálaleg samskipti þjóðanna þannig, að friður megi haldast í heiminum — þannig, að hver þjóði fái sanngjarnan aðgang að hráefnalindum heimsins — skil- yrði til hagnýtingar þeirra að sín- um hluta og nauðsynlega markaði fyrir framleiðslu sína — en bar- áttan um auðsuppsprettur heims- ins og skilyrðin til gróðavænlegr- ar hagnýtingar þein’a er megin- orsök hinna vopnuðú styrjalda. Um slíka skipulagningu á frið- samlegri sambúð þjóðanna er nú þessa dagana fjallað á ráðstefn- unni í San Franeisco, þar sem við íslendingar höfum þó, iilu heilli, engan fulltrúa. ★ Sú hrikalega saga, sem orðið hdfur hin síðustu ár, hefur ekki gerzt án bátttöku verkalýðsins. Og þær glæstu vonir, sem menn nú gera sér um betri og bjartari heim, munu ekki rætast nema á- hrifa verkalýðsins gæti miklu meira, en verið hefur. Undir ofurþunga styrjaldarinn- ar hafa jafnvel leiðtogar hinna stríðandi auðvaldsþjóða orðið að viðurkenna gildi vinnuaflsins. Stöðugt háværara hafa þeir orðið að skírskota til verkalýðsins og samtaka hans um að sigurvon ])jóðarinnar væri svo mjög háð af- kastagetu verkaíýðsins við fram- leiðslu hernaðarþarfanna. Það cru hinir vopnuðu verhamemi á víg- völlunum. og verkafólláð í verk- smiðjunum og á ökrunum eða öðr- um jramleiðslu- og jlutningastöðv- um, sem hafa lagt fasismann að velli í þessari styrjold. — Og þó hefur ráðið úrslitum um þennan sigur, að ekki aðe ns verkalýður ,.vesturveldanna“ lagði fram alla framar aivinnuleysi Ræða Steíngríms Aðalsteínssonar á útísamhomu verkalýðssamtahanna á Akureyrí 1. maí 1945 krafta sína, undir þjóðfélagslegri forystu stéttarandstæðinga sinna — heldur einnig átti verkalýður- inn í austri sitt eigið viðlenda og vel uppbyggða ríki — sinn eiginn þrekmikla og þjálfaða rauða her, sem með takmarkalausri fórnfýsi, þrautseigju og þjóðarstolti varði sitt verklýðsríki gegn þraut undir- búinni leifturárás fasismans — og síðan með stjórnlist og sterkum hernaðaraðgerðum sneri hinum brynvörðu fasistahjörðum á flótta — og stendur nú yíir höfuðsvörð- u m þeirra — í þeirra eigin höfuð- borg. í krafti þeirra fórna, sem verka- lýðurinn hefur fært í þessari styrj- öld •— jafnt á vígvöllunum, sem á hcimavígstöðvunum — jafnt í austri' sem vestri — héfur hailn, ek’ki aðeins rétt, heldur einnig skyldu til að hafa =em mest áhrif, að hann getur, á þá nýsköpun, sem stendur fyrir dyrum með hverri ])jóð — og þá um leið sem mest áhrif á þá alþjóðlegu skipu- lagningu á samskiptum þjóðanna, sem umræður eru hafnar um, og ætlað cr að tryggia viðvarandi 'frið í heiminum. — Verkalýður- inn á hvað mest undir því, að komist verði hjá hinum ægilegu eyðileggingum styrjaldanna. Þess vegna munu Kka þau ríki, þar sem verkalýðurinn fer með völd — og upp úr þessari styrjöld mun þeim áreiðanlega fjölga — verða í broddi fylkingar þeirra ríkja, sem af mestri alvöru vilja vernda frið- inn með þjóðunum og vinna sam- eiginlega að bættum lífskjörum fólksins með hverri einstakri þjóð. Við íslendingar eigum því láni að íagna, að við eigum land okkar óskemmt að lokinni þessari styrj- öld.fVið höfum að vísu orðið fyrir .tilfinnanlegu manntjóni, af völd- um styrjialdarinnar. Og stórt skarð hdfur verið höggvið í skipastól okkar — bæði fiskiskipa og flutn- inga. En við höfum líka grætt fé á styrjaklarárunum. Á mælikvarða smáþjóðar, sem okkar, eigum við stórfé inni í erlendum bönkum. Þetta fé verður fyrst og fremst að nota til þess — ekki aðeins að fylla skörðin í skipastól okkar — heldur til að framkvæma víðtœka nýsköpun í öUu okkar atvinnulifi, lil lands og sjávar. Við f'slendingar búum við ein auðugustu fiskimið í heimi. En þó sjávaraifurðir hafi að vísu ver- ið megin hluti útfíutningsverð- mæta okkar, höfum við ekki hag- nýtt þessi auðugu fiskimið nema að tiltölulega litlu leyti. Erlend- ar þjóðir hafa sótt hingað á djúpmiðin og ausið hér upp ó- grynni verðmæta — með' miklu fullkomnari tækjum en íslenzku sjómennirnir ha'fa átt kost á að fá. — Og sá fengur, sem íslenzk- ir sjómenn hafa dregið úr djúp- um hafsins, hefur að mestu ver- ið fluttur út, lítið eða ekkert unn inn, og þannig orðið þjófjinni miklu verðminni en efni standa til — og með þvi hefur farið forgörð um geysileg atvinna, sem lands- fólkið gœti hiaft af því að vinna þessar vörur útbúnar til neyzlu kaupendanna, eða til annarra þeirra þarfa, sem þær ganga til. Ef við íslendingar eigum að verða hlutgengir sem sjálfstæð þjóð — og það viljum við verða — þá verðum við að láta fiski- menn okRar fá þau fullkomnustu veiðitæki, sem völ er á. Við verð- um að fá, í stórum stíl, verksmiðj ur og önnur vinnutæki — svo við getum látið vinnuafl okkar eigin þjóðar hafa ærið viðfangsefni til verðmætisaukningar útflutnings- vörum þjóðarinnar — og til hag- sældar hinu vinraandi fólki með þjóð vorri. — Við verðum að til- einka okkur tækni tímans í öllu okkar atvinnulífi. — Og umfram allt:Fícf verðum að hagnýta vinnu- orku þjóðarmnar með skvnsam- legum hætti. Atvinnuleysi má ekki framar eiga sér stað, hjá þjóð, þar sem slík stórvirki bíða óunnin, sem hjá okkur eru. Þó land okkar sé ekki herjað, né bæir okkar og byggðir í rúst- um — eins og hjá styrjaldauþjóð- unum — þurfum við samt, eins og þær, að hefja hér stórfelda ný- sköpun, vegna þess, að framleiðslu tæki þjóðarinnar nú í dag svara alls ekki kröfum tímans. — Og verkalýðssamtökin verða að vera driffjöðrin við framkvæmd þeirr- ar nýsköpunar — það árvakra aúga, sem ávallt gætir þess, að framkvæmdir fylgi fyrirætlunum, en ekki sé látið sitja við orðin tóm. Seint á s.l. ári var mynduð hér ný ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn setti sér það mark, að framkvæma þá nýsköpun atvinnuveganna, sem þjóðinni nú ríður svo mikið á sem fjárhagslegum grundvelli fyr- ir hið nýfengna stjórnarfarslega sjálfstæði. — Verkalýðshreyfing- in styður þessa stjórn — og full- trúar verkalýðshreyfingarinnar eiga sæti í henmi. Stjómin hefur þegar umnið ýms nyfcsöm verk, eins og t.d. í fisksölumálunum. Og hún 'hefur fengið lögfest, að mjög verulegan hluta hins erlenda gjaldeyris þjóð arinnar megi ekki nota til anmars en að kaupa fyrir framleiðslu- tæki ýmiskonar, og- aðrar þarfir vaxandi atvinnuKfs Og „Nýbygg ingarráð“. sem fengið hefur verið það verkefni að gera áætlanir og lillögur um framkvæmd nýsköpun arinnar, hefur með höndum ýmis- konar undirbúnimg og hefur m.a. ákveðið um byggingu allmargra fiskiskipa innanlands. — En við skulum fyrir alla muni ekki halda að með þessu sé allt fengið, og við þurfum ekki að gera annað en bíða öftir framkvæmd nýsköp- unarinnar. — Nýsköpunim verður ekki, og getur ekki orðið, verk ríkisstjórnarinnar einnar — held- ur þjóðarinnar allrar, eða ami.k. þesú hluta hennar, sem horfir frarn á leið. Við vitum, að þó núverandi ríkisstjórnin hafi meira fjölda fylgi en nokkur önnur ísl. ríkisstjórn héfur haft, þá á hún þó nokkuð öflugri mótspyrinu að mæta — öflum, sem af pólitískum ástæð- um vilja umfram allt hindra ný- sköpu naráform ríkisst jór n arin n- ar. Og þessi andstöðuöfl standa að því leyti vel að vígi, að þau eiga marga valdamikla fulltrúa í fjármála- og viðskiptakerfi þjóð- arinnar — m.a. í lánsstofnunum ríkisins, bönkunum — en án eðli legrar þjónustu þeirra verður ný- sköpunin ekki framkvæmd. Við vitum líka, að ríkisstjórn- in er mynduð og studd af flokk- um, sem í grundvallaratriðum halfa mjög mismunandi sjónarmið, og meðal flokkslegra fylgjenda stjórnarinnar finnast án efa ein- staklingar, sem hafa takmarkað- an áhuga fyrir nýsköpunaráform- unum. Verkalýðssamtökin verða ' þess- vegna að vera á verði. — Þau eiga að láta ríkisstjórnina hafa stöðuga vitneskju 'um það, að þau taki nýsköpunaráform hennar al- varlega, og að stuðningur þeirra við ríkisstjónnina sé alveg ákveð- ið bundinn því, að stefnuskrá henn ar sé fylgt. — Þau eiga að lýsa sig fús til fulltingis rfkisstjórn- inni við hverskonar ráðstafanir, sem reyinast kunna nauðsynlegar til að ryðja hindrunum úr vegi nýsböpunarinnar. — En þau eiga jafnframt að gefa til kynna, að hverskonar linkind og hálf- velgja stjórnarvaldanina unr fram kvæmd nýsköpunarinnar muni hiklaust leiða til vantrausts verk- lýðs'hreyfingarinnar. ★ Og hvað svo úm okkar fagra og ágæta bæ, Akureyri? Verður okkur send nýsköpunin í pósti? — Nei, áreiðanléga ekki. — Og ekki lieldur verður hún .sótt á vörubíl, eða öðru flutningatæki — heldur verður hún að fara jram hér á staðnum. Við vitum Öll, hversu atvinnu- lífið hér á Akureyri hefur verið ófullnægjandi þörfum hins vinn- andi fólks. — Úr því verður að bæta. Við verðum að fá hingað stórvirk framleiðslutæki — tog- ara og önnur fiskiskip og verk- smiðjur til að vinna hráefnin. Við eigum að hafa hér skipabyggingar, tumiusmíði og ýmiskonar iðnað, í miklu stærri sfcíl, en er. Og þetta getum við fengið, ef þeir, sem eiga peninga, vilja leggja !þá í lífrænan atvinnurekstur, og lánsstoífnanir þjóðarinnar veita eðlilega þjónustu. Það er hlufcverk bæjarvaldanna pg „einkaframtaksins“ í bænum að sjá um það, að höfuðstaður Norðurlands verði ekki eftirbát- ur annara bæja og landshluta við nýsköpun afcvinnuveganna. •— En við höfum nokkra reynslu af á- huga þessara aðila um atvkmu- framkvæmdir, og sú reynsla gef- ur okkur til kynna, að verklýðs- samtökin verða að halda þessum aðilum við efuið, éf eitfchvað á að -gerast. Verklýðssamtökin verða lát- laust að brýna bæjarstjórnina — og þá aðra aðila bæjarins, sem fjárráð hafa — um það að útvega atvinnutæki til bæjarins, svo að íullnægi atvinnuþörf allra bæjar- búa. Aldrei framar atvinnuleysi er kjörorð okkar, ekki síður en K.R. vann Tjarnar- boðhlaupið Þriðja Tjamarboðhlaupið fór fram á sunmtdaginn var. Voru 5 sveitir sem Icepptu og bar A sveit K.R. sigur úr bítum í þriðja sinni í röð. Leiddu þeir hlaupið alla leið- ina. Í.R.-ingar voru þó skammt undan en tókst aldrei að ógna verulega sigri K.R., og má vera að mikið lakarí skiftingar eigi þar nokkra sök. Þessi tími K.R. er bezti tími sem enn hefur náðst í þessu hlaupi. Tími sveitanna var þessi: A sveit K.R. 2,36,4 A sveit Í.R. 2,37,8 . A sveit Á. 2,41,0 B sveit K.R. 2,46,8 B sveit Í.R. 2,50,0 í sveit K.R. voru: Skúli Guðmundsson, Jón M. Jónsson, Sveinn Ingvarsson, Brynj ólfur Jónsson, Páli Halldórsson, Hjálmar Kjartansson, Björn Vil- mundarson, Jóhann Bernharð, Þór Þormar, Brynjólfur Ingólfs- son. Hljómkikar Mandó- línhljómsveitar Reykjavíkur Mandólínhljómsveit Reykja- víkur hélt fyrstu hljómleika sína s. I. sunnudag í Tjamar- bíó. Leikin voru verk eftir Off- enbach, Verdi, Schubert o. fl. Hljómleikunum var forkunn- ar vel tekið af áheyrendum og varð hljómsveitin að endurtaka sum atriðin og leika aukalög. Hljómsveitarstjóranum, Haraldi K. Guðmundssyni, var afhentur blómvondur. Hljómleikarnir verða endur- teknir 1 Tjamarbíó í kvöld kl. 11,30 og á fimmtudaginn 17. maí, á sama stað og tíma. Eftir þeim ágætu viðtök- um sem þessir fyrstu hljómleik- ar Mandólínhljómsveitarinnar fengu, má gera ráð fyrir að hljómleikar hennar verði mjög vinsælir. verkafólks annara staða. — Og við skulum mininast þess, éf bæj- arstjórnin vaknar ekki við sjálf- sagðar krö'fur okkar um lífræna atvinnu í bænum, að þá getum við — éftir nokkra mánuði — skipt um bœjarstjórn. Ef til vill verður það vopnið, sem bezt bitur! Eg nefndi það í upphafi, að þessi hátíðaihöld verkalýðsins í ár féllu sama,n við merkileg táma- mót mannkynssögunnar. — Þjóð- irnar standa á vegamótum. — Verkalýðurinn víða um lönd mun á næstu vikum og mánuðum taka ríkisvaldið í sínar hendur og skapa stjórnarstefnur og form, sem miða að almennri hagsæld hins vinnandi fólks Það er einnig verkefni íslenzka verkalýðsins að styrkja svo sam- tök sín og samstarf við aðrar vinnandi stéttir þessa lands, að álhrif þeirra á rekstur þjóðarbú- skaparins og stjóm þjóðmálanna fari hraðvaxandi — unz verkalýð- urinn sjálfur tekur ríkisvaldið að fullu í sínar hendur, og skipar málum samkvæmt kjörorðum -al- þýðunnar; * Jafnrétti — frelsi% og brœðrala-g. No&ksratr semdír Framhald af 2. síðu. Þá er í niðurlagi greinarinnar eitt atriði, sem skylt er að drepa á, þar eð það skiptir nokkru máli í þessari sennu. Eg hafði treyst svo á hæfni þessa ritdómara um staf- setningarreglur, að ég hélt, að hann gæti sett greinarmerki svo lýta- laust, að ekki yrði um villzt, hvað væru tilvitnanir í aðra höfunda l g hvað væru hans eigin ummæli. Hann bendir mér á, að þar hafi ég gert sér of hátt undir höfði, og bið ég hann fúslega afsökunar á of- traustinu. En það, sem máli skipt- ir, er það, að hvorki er um yfir- sjón í prófarkalestri að ræða eins og ég hafði haldið, né rangt mál H. H., eins og G. F. hélt fram, heldur eingöngu um heilaspuna rit- stjórans. Hann telur rangt af H. H. að segja: „Það er mikill munur á búðar- og húsmóðurstörfum“, og telur að búðarstörf tákni störf búðar innar. Enn get ég ekki stillt. mig um að gerast svo „hamstola“ og „skyni skroppinn" að spyrja ritstjórann: Eru landbúnaðarstörf störf land- búnaðarins, ritstörf störf ritsins, verzlunarstörf störf verzlunarinnar, skrifstofustörf störf skrifstofunnar o. s. frv.? Eða eru öll þessi orð og önnur, sem eins eru mynduð, al- röng? Eg held varla. Þá sé ég mig að endingu til neyddan að benda G. F. á það, að grein mín var ritdómur um pistil- inn „Bókarkornsfrétt“ eftir Gunnar Finnbogason, en ekki um Stafsetn- ingarreglur eftir Halldór Halldórs- son, og tel ég mér því hvorki skylt né þarft að lesa þær staf fyrir staf og mun aldrei gera að nauð- synjalausu. Aðeins einu sinni fra upphafi vega hafa komið út fleiri bækur á íslandi á einu ári heldnr en árið 1944. Og mig varðar ekkert um, þó að það samrýmist ekki bók- menntaþörf — og smekk ritstjór- ans, að ég skyldi finna í þessu úr- vali aðrar bækur girnilegri til lest- urs heldúr en þennan litla stafsetn- ingarpésa, sem hann hafði einan bóka lesið svo rækilega, að hann treysti sér til að setjast niður og ritdæma hann. Aðrar fjarstæður í grein G. E virðast mér of augljósar öllum lýð til að rétt sé að eyða dýrmætu rúmi „Þjóðviljans“ í að leiðrétta þær. Er svo þetta útrætt mál frá minni hálfu. Fagurhólsmýri, 2. maí 1945. Einar Bragi. íslendingar í Dan- mörku þakka kveðjur ríkis- stjórnarinnar Eitt af fyrstu skeytunum, ei ríkisstjórnin sendi sendiráði ís- lands í Kaupmannahöfn, eftir að beint símasamband náðist þangað, var kveðja og árnað- aróskir til allra Islendinga í Danmörku. Ríkisstjórninni hefur nú bor- izt svar sendiráðsins, og er það á þessa leið: „íslendingar þakka kveðjur ríkisstjórnarinnar, senda hug- heilar kveðjur og árna ríkis- stjóm og þjóð allra heilla“. (Fréttatilk. frá ríkisstjórn- inni). LEIKEÉLAG REYKJAVÍKUR Gifí eða ógifí? Leikfélag Reykjavíkur hefur frumsýningu annað kvöld á gam- anleiknum Gift eða ógift? eftir J. B. Pricstley. Þetta er gamanleik- ur i þrcm þáttum og er fyrsti skopleikurinn eftir Priestley sem hér er sýndur. Leikstjóri er Lárus Pálsson. Kvenihlufcverkin bafa þessar leik- konur á hendi: So'-'fía Gnðlaugs- dóttir, Anna Guðmundsdóttir, Reg.ína Þórðardóttir, Signin Magn úsdóttir, Jóhanna Lárusdóttir, Þóra Borg Einarsson og inga Lax ness. Þessir fara með karlhlutverkin: /Evar R. Kvaran, Gestur Pálsson, Haraldur Björnsson, Lárus Páls- son. Brynjólfur Jóhannesson, Ilaukur Óskarsson og Lárus Iing- ól'fsson. Á undan leiknum leikur hljóm sveit undir stjórn Þórarins Guð- mundssonar. Frumsýningin átti upphaflega að vera þriðjudagskvöld, en Vegna veikinda Þóru Borg Einarson varð að fresta henni og leikur Inga Lax ness hlutverk Þóru Borg Einars- son í veikindaforföllum hennar. Þriðjudagur 15. maí 1945 — ÞJÓÐVILJINN S0LUBÚÐIR Höfum til sölu sölubúð ásamt bakherbergjum og góðu geymsluplássi í kjallara á framtíðarstað í bænum. Búðin er þannig innréttuð, að hægt er að skipta henni í tvennt. — Búðin er leigð fyrir mjög góða leigu til 1. marz 1947. Fasieigna- & Verðbréfasalan (Lárus Jóhannesson hrm.) Suðurgötu 4. , Símar 4314, 3294 Alþýðublaðið endur- tekur óhróður kaup- mannablaðsins á Siglufirði Alþýðublaðið brjálaðist af komm únistahatri s. I. sunnudag — og bregður engum við. Blað kaupmanna á Siglufirði, Siglfirðingur, og blað Alþýðuflokks ins, Neisti, hafa birt upplognar töl- ur varðandi vörurýrnun í Kaup- félagi Siglufjarðar og notar Alþýðu blaðið tækifærið til níðskrifa um siglfirzka kommúnista. — Það gleymir því í ákafanum, að fram- kvæmdastjóri kaupfélagsins er hinn sami og var og að hann liefur verið Framsóknarmaður. Rannsókn stendur nú yfir í vörurýrnunarmáli þessu. Hefur orð ið vörurýrnun í tveim búðum, mat- vörubúð og vefnaðarvörubúð. Virð- ist rýrnunin í matvörubúðinni nema 5%, en óupplýst enn um hina búð- ina. Tölur þær, sem Alþýðublaðið birti eru giipnar úr lausu lofti og hefði blaðinu verið fyrir beztu að vera ekki alveg svona veiðibrátt. Ákveðið hefur verið að höfða mál gegn Siglfirðingi og Neista á Siglu- firði, og sennilegt að mál verði eínn ig höfðað gegn Alþýðublaðinu vegna ummæla þessara blaða. Dönsk yfirvöld hafa enn ekki svarað fyrirspurn ís- lenzka sendiráðsins í Kaup mannahöfn um tildrögin að aftöku Guðmundar Kamban. Nú þegar hefur utanríkisráðu neytinu borizt bráðabirgðasvar frá sendiráði íslands í Kaup- mannahöfn, þar sem skýrt er frá því, 'að sendiráðið hafi taf- arlaust, þegar því barst hin hörmulega fregn um Guðmund Kamban, borið fram tilmæli til hlutaðeigandi yfirvalda um að fá tilgreindar ástæður fyrir til- efninu til handtöku Guðmund- ar Kamban, borið fram tilmæli til hlutaðeigandi yfirvalda um að fá tilgreindar ástæður fyrir tilefninu til handtöku Guð- mundar Kambans og því, að "***• - ** -—*-—****!-•* ~ii r-—i—iii—11—n-irr»»—> rrnnnrtv r ri iyu» "**‘ ‘ **.^ “*■*-**———*■-- **■ —-||*M- r*M»—irnhx’in rVw~» nfn.ii JW ' Húseignin nr. 27 við Þingholtsstræti með 635 fermetra eignarlóð (hornlóð) er til sölu, ef við- unanlegt boð fæst. Húseignin getur verið laus til afnota með stuttum < fyrirvara. — Tilboð sendist til undirritaðra, sem gefa frek- ari upplýsingar ef óskað er, fyrir 20. þ. m. Fasteigna- & Verðbréfasalan (Lárus Jóhannesson hrm.) Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294. Friðarins minnzt Hafnarfirði Verkamannafélagtð lllíf, Hafn- arfirði, minntist stríðslokanna í Evrápu með lcvöldskemmtun, sem félagið hélt s.l. miðvilcudag. Efni kvöldskemmtunarinnar var á þann veg, að Hermann Guð- mundsson, form. félagsins, flutti ræðu, Stefán Júlíusson, yfirkenn- ari, las kvæði, sextett söng undir stjórn Þórðar B. Þórðarsonar, og að lokum var stiginn dans fram sftir nóttu. i Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur Aðalfundur Taflfélags Reykja víkur var haldinn 13. þ. m. í stjóm vom kosnir: ívar Þórarinsson, formaður; Þórður Jónsson, gjaldkeri; Böð- var Pétursson, ritari; meðstjórn endur: Róbert Sigmundsson, Hafsteinn Ólafsson og Kristján Sylveríusson til vara. hann var skotinn. Sendiráðið hefur ennfremur skýrt frá því, að svar sé að sönnu ókomið, en samkvæmt þeim upplýsing- um, sem fram að þessu liggi fyrir, sé engin fullnægjandi á- stæða fyrir fyrirhugaðri Kand- töku hans, og því síður fyrir verknaðinum. Loks segir, a3 Kamban hafi mótmælt handtök unni og neitað að fylgja mönn- unum þrátt fyrir hótun um að hann yrði annars skotinn, og að ekkert sé enn sannað um handa lögmál frá hans hendi. (Fréttatilk. frá ríkisstjórn- inni). Sendiherra Dana r þakkar Islending- um samúð með dönsku þjóðinni Eftirfarandi bréf barst Þjóð- viljanum í gær frá sendi'herra Dana, hr. Fr. le Sage de Fontenay: Hr. ritstjóri! Dagana frá frelsisdegi Dan- merkur hefur sendiráðinu á áhrifa mikinn og margvíslegan hátt ver- ið vottuð samúð og einlœg gleði íslenzku þjóðarinnar vegna þess að Danir megi aftur hugsa og starfa frjálsir.' Þessar mörgu innilegu kveðjur, sem hafa borizt mér í bréfum, með blómum, skeytum og á ann- an hátt, hafa glatt mig meira en frá verði sagt. Mig langar því til að tjá hjart- anlegt þakklœti öUum þeim, sem sýnt hafa dönsku þjóðinni sam- úð, og þá sérstaklega þeim mörgu, sem voru með Norrcenafélaginu að athöfninni við sendiherrabú- staðinn á þriðjudaginn var, og einnig blöðum og útvarpi fyrir þau vinsamlegu ummœli sem þau jluttu í garð Danmerkur þessa daga Ég get ekki annað en litið á þennan samúðarvott sem merki um vaxandi vináttu þjóðanna, og merki þess, að vinátta, gagn- lcvœm samúð og bróðurleg sam- vinna íslendinga oq Dana muni stöðugt eflast. Með þessum■ línum votta ég yður, hr. ritstjóri, einlœgt þaklc- lœtt mitt og bið yður að flytja það einnig lesendum blaðs yðar. Yðar einlœgur Fr. de Fontenay.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.