Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 8

Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 8
Norðmenn og íslendingar eiga að vinna saman segir Friid blaðaíulitrúi Norðmanna — Það er og ósk íslendinga S. A. Friid, blaðafulltrúi Norðmarma, ogr frú hans hofðu boð inni s. 1. sunnudag: fyrir íslenzka bíaðamenn, útvarpsstjóra og fréttamenn útvarpsins og auk þess frú Gerd Grieg og 17.. maí- nefnd „NordmannsIaget“. Friid og frú hans inuim á næstmmi hverfa heim til föður- lands síns sem nú er aftur orðið frjáM. ÍSLENÐINGAR OG NORÐ- MENN HAFA Á STRÍÐSÁR- UNU.M BUNDIZT NÁNARI BRÓÐURBÖNDUM EN ÁÐUR jÞað var innilegur fögnuður 'sem ;ríkti í hugum þéirra Friid og konu hans þennan dag; fögn : uður yfir því, að föðuxland þeirra hefur nú aftur öðlazt frelsi eftir hin löngu kúgunar- ár, gleði yfir væntanlegri heim- ferð eftir útlegðarárin, en þau voru ein þeirra sem flýðu land þegar Þjóðverjar hertóku Nor- eg, til þess að geta erlendis frá haldið baráttunni áfram fyrir frelsi lands síns. S. A. Friid ávarpaði blaða- mennina og þakkaði fyrir sam- starfið á liðnum árum og þá vinsemd, sem íslenzka þjóðin hefði sýnt Norðmönnum á þess um erfiðu baráttu- og útlegð- arárum þeirra. Hann kvað íslendinga og Norðmenn hafa tengzt nánari bróðurböndum á þessum árum en áður hefði verið. Þjóðimar hefðu lært að þekkja hvor aðra betur, og þann misskilning, sem áður hefði verið til staðar ætti að mega jafna nú eftir nánan kynningu. , Það er engin ástæða fyrir íslendinga og Norðmenn til að deila“, sagði Friid, „hér eftir eiga þeir að vinna saman í menningarlegum efnum og A sviði viðskipta og f jármála. Við eigum að vmna saman og verð- um að vinna saman“, sagði hann. 17. MAÍ FAGNAÐAR- HÁTÍÐ Þá skýrði hann frá hátíða- höldum Norðmanna hér 17. maí en frá þeim er sagt á öðrum stað hér í blaðinu. Þennan 17. maí halda Norð- menn hvarvetna um heim há- tíðlegan sem fagnaðarhátíð end- urheimts frelsis Noregs. FÖGNUÐUR OSLOBÚA Svo einkennilega vildi til, að um það leyti sem blaðamenn- irnir komu til Friid blaðafull- trúa, fögnuðu Oslóbúar eudur- komu Ólafs krónprins til Nor- egs og hlýddu menn gegnum útvarpið á hin sterku gleðióp þjóðar sem fagnar endurheimtu frelsi. Þá hlýddu menn einnig á út- varpsræðu Trygve Lie ráð- herra, sem var fulltrúi Norð- manna á San Franciscoráðstefn. unni. „ÍSLAND ER EINS OG KONA SEM MAÐUR ELSKAR“ Því næst flutti Friid ræðu þar sem hann þakkaði sérstak- lega þá vináttu sem íslending- ar hefðu sýnt sér, konu sinni og frú Gerd Grieg á liðnum árum. Ræddj hann þar um flóttann frá Noregi og erfiðleika þeirra hér fyrst í stað, en þau buðu öll fram þjónustu sína í barátt unni fyrir frelsun Noregs — og starfssvið þeirra varð hér. Fyrst í stað urðu þau að þola hin hörðu kjör flóttamannsins, fengu ekki húsnæði, urðu að búa í bröggum, langt fyrir ut- an bæinn o. s. frv. Hann kvað þau hafa farið að kynna sér íslenzk mál og ís- lenzkar bókmenntir og fest tryggð við land og þjóð. ís- lenzkar fornbókmenntir kvaðst hann hafa lesið fyrst í þýðing- um en síðan á íslenzku, sú bók sem hann dáði mest væri Lax- dæla. „ísland, íslenzku fjöllin eru nokkuð harðneskjuleg fyrst 1 stað, en hvílíka fegurð hafa þau ekki að geyma. ísland er eins og kona, sem maður elskar og sér alltaf nýja og nýja fegurð í fari hennar með hverjum degin um sem líður“,- NORÐMENN FENGU RÚM í HJÖRTUM ÍSLENDINGA Valtýr Stefánsson þakkaði Friid fyrir ummæli hans um blaðamennina og í garð lands og þjóðar og tók undir ósk Utanríkismála-' W ráðherra Noregs sendir utanríkis- ráðherra Islands þakkarskeyti Utanríkisráðherra íslands hefur borizt þetta þakkar- skeyti frá utanríkisráðherra Noregs: „Eg færi yður dýpstu þakk ir fyrir vinarkveðjur yðar til Noregs í tilefni af endur- heimt frelsisins. Hin mörgu dæmi um samúð íslendinga og skilning á frelsisbaráttu okkar hafa snortið' djúpt hjörtu norsku þjóðarinnar og enn styrkt þau bönd, sem tengt hafa bræðraþjóð- irnar allt frá söguöld11. (Fréttatilk. frá ríkisstjórn- inni). <__________________________/ hans um nánara samstarf Norð manna og íslendinga. Fórust honum m. a. orð á þessa leið: „Þú minntist á það, að þú hefð ir ekki fengið húsnæði hér +il að byrja með, en þó svo væri, að við gætum ekki veitt þeirn Norðmönnum húsaskjól, sem hingað leituðu, þá er það víst, að Norðmenn fengu rúm í ■ hjarta íslenzku þjóðarinnar. Þú hefur einnig minnzt á, að hér sé þröngt til veizluhalda, en það get ég sagt, að ef þú ætl- aðir að bjóða öllum vinum ykk- ar, öllum vinum Noregs á Is- landi, þá fengir þú hvergi nógu stórt húsnæði“. „VÆRI EG EKKI NORÐ MAÐUR......“ Að ræðu Friids lokinni mælti frú Gerd Grieg fram ísland ögr um skorið. Þá þakkaði hún einn ig vináttu þá, er hún hefði not- ið og skýrði frá, sem dæmi um hina auknu vináttu Norðmanna og íslendinga, orðum manns síns, skáldsins Nordahl Grieg: „Væri ég ekkj Norðmaður vildi ég vera íslendingur11. Þá fór hún mjög lofsamleg- um orðum um íslenzka leikara og kvað þjóðina þurfa að sýna listamönnum sínum meiri skiln ing og styðja þá betur. En frú Gerd hefur, auk þess að kynna íslendingum norska leiklist unnið hið bezta starf fyrir ís- lenzka leiklist á undanförnum árum. ★ Nokkrar fleiri ræður voru fluttar og meðal þeirra sem tóku til máls voru: Jón Magn- ússon, formaður Blaðamanna- félags íslands, Haarde, formað- ur Nordmannslaget, Valdimar Bjömsgon, sjóliðsforingi og Thorolf Smith, blaðamaður. Íslendingar munu ætíð minn- ast Friid blaðafulltrúa, konu I Ory$$ísreglur urn fréfía- flutníng felldar úr gíldl Stjórn bandaríska hersins ’hér á landi skýrði frá því í gær að allar reglur um fréttaflutning vegna öryggis hersins, sem gilt hafi undan- farið séu úr gildi fallnar. Áður hefur verið frá því skýrt að skeytaskoðun myndi hætt 16 dögum eftir að friður væri kominn á. Úhindruð notkun talstöðva á skipum mun einnig tekin upp um sama leyti. Veðurfréttir eru ekki lengur „bannvara11. » Er það öllum íslendingum gleðiéfni að hömluim þeim, sem settar voru á stríðárunum, er nú aftur aflétt. mr flOÐVILIINH FRÁ LANDSSÖFNUNINNI: Söímmin nemur nú um 450 þúsnndum Ha, Yfir 60 þúsundir króna söfnuðust í gær. í gær söfnuðust yfir 60 þúsund krónur, en mörg fyrirtæki til- kynntu að þau myndu leggja fjáruppliæðir í söfnunina á næst- unni. Gdfendur voru þessir: Geir Thorsteinsson ........................... Kr. 15.000.00 Slippfélagið í Reykjavík ...................... “ 15.000.00 Vélsmiðjan Héðinn h.f........................... “. 10.000.00 Vélsmiðjan Harnar hJ........................... “ 10.000.00 Stiálsmiðjan s.f............................... “ 10.000.00 Jón J. Fannberg ............................... “ 1.000.00 Hjalti Jónsson ................................ “ 1.000.00 Guðm. Guðmundsson, Móum ....................... “ 1.000.00 Þórarinn Stefánsson ..........•>.............. “ 500.00 Svafa Þórliallsdóttir, Laufási ................ “ 200.00 Jónas Kristjánsson læknir .................... “ 200.00 Árni S. Bjarnason ............................. “ 100.00 N. N.......................................... “ 100.00 Ó. B.......................................... “ 50.00 K. M...................’...................... “ 50.00 Ó. Kr......................................... “ 50.00 St. J.......................................... “ 50.00 Auk þess bárust tilkynningar uim fatnaðargjafir. Söngstjóri Barnakórsins Sólskinsdeildarinnar, Guðjón Bjarnason, 5 ibauð að kórinn skyldi halda hljómleika til ágóða fyrir söfnunina. Bendir allt á þá leið, að þátttaka verði mjög almenn um land allt og að mikið fé muni sa'fnast, auk annara gjafa. Skrifsbofa söfnununnar er í Vonarstræti 4, og símanúmer hennar eru 1130, 1155, 4203 og 4204. Noffdmcnn fagna fcngnu freisi Fjðlbreytt hátlahöld 17. maí Félag Norðmanna í Reykjavík, Nordmannslaget, gengst fyrir hátíðahöldum á þjóðhátíðardegi Noregs, 17. maí, eins og síðastliðin ár. Hefur nefnd unnið að undirbúningnum, og eru í henni Ingolf Ingebriktsen (formaður), S. A. Friid blaða- fulltrúi, Farestveit kaupmaður og Hárde verkfræðingur. Skýrði nefndin frá hátíðahöldunum í boði FriidJhjónanna á suni>u- daginn. Kl. 8,20 árdegis verður safn- azt saman við Fossvogskirkju- garð, og verða lagðir kransar á leiði Norðmanna, er fallið hafa af völdum styrjaldar. Stundvís- lega kl. 8,30 verður gengin skrúðganga inn í kirkjugarðinn með fána og lúðrasveit í farar- broddi, að gröfunum og lagðir á þær kransar. Nefndin er hverjuiji þeim þakklát, sem vill leggja blóm á leiðin. Kl. 10. Þakkarguðsþjónusta í dómkirkjunni. Bjarni Jónssoa Vígslubiskup flytur bæn. Norsk- ir fánar verða bomir í kirkju og standa fánaberar heiðurs- vörð. Boðsgestir ganga inn um kórdyr, en aðrir um aðaldyrn- ar. Forseti Íslands og frú hans verða viðstödd athöfnina. Kl. 12,30 koma norsk og norsk-íslenzk börn á heimili hans og Gerd Grieg sem hinna ágætustu fulltrúa norsku þjóð- arinnar á undanförnum baráttu árum. norska sendiherrans, Fjólugiitu 15, og njóta þar góðgerða. Böm- in hafi með sér norska fána. Kl. 13,30 leggur skrúðgaaga af stað frá sendiherrabústr-5n- um áleiðis til Tjamarbíó og ganga börnin fremst. Fullorðnir Norðmenn eru beðnir að mæta við sendiherrabústað og vera með í göngunni og íslenzkir Noregsvinir eru velkomnir. Kl. 14. Hátíðasamkoma í Tjarnarbíó. Þar verða hljóm- leikar, ræður fluttar af noi’ska sendiherranum hr. Anderssen- Rysst og blaðafulltrúanum S. A. Friid. Frú Gerd Grieg les upp ljóð eftir Norda'hl Grieg. Kl.v 16—18. Norski sendiherr- ann tekur á móti gestum. Kl. 20,30 Kvöldveizla að Hót- el Borg... Aðgöngumiðar seldir Norðmönnum hjá L. H. Miill- er til hádegis í dag, en verða eftir það seldir öðrum. Nefndin biður menn sérstak- lega að athuga að dagskrárlið- imir byrji stundvíslega, því út- varpað verður úr dómkirkjunni. og Tjarnarbíó. )

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.