Þjóðviljinn - 09.10.1946, Síða 6
6
ÞJÖÐVTLJINN
Miðvikudagur 9. október 1946
Enn er Gillette bezta rakstursaðferðin. Engin önnur
aðferð getur veitt yður betri rakstur. Og vissulega
engin sem kostar minna.
Kr. 1.75 pakk-
inn með 5
blöðum.
BLADES
FRAMLEIDD I ENGLANDI
2 unglingstelpur
óskast til sendiíerða og annara léttra staría.
Gott kaup. Upplýsingar í síma 2184 og 6399.
Unglinga eða eldra fólk
Vantar strax, til að bera blaðið til kaupenda við
eftirtaldar götur:
Ránargata
Bzæðrabocgarstígux
Tjarnargata
Ljósvallagata
Miðbær
Laugavegur neðri
ÞJÓÐVILJINN
Sendisveinn
óskast frá klukkan 10 f. h. til klukkan
,7 e. h. Hátt kaup.
Þjóðviljinn.
Ragnar Ólafsson
Hæstaréttarlögmaðvr
og
löggiltur endurskoðandl
Vonarstræti 12, simi 5999
fCaupið Þjóðviljann
L.
Ég
midirritaður
byrja að stunda lækning-
ar í Reykjavík í desember
næstkomandi eða í síðasta
lagi frá árarhótum.
p. t. Kaupmannahöfn
1. okt. 1946
Sigurður Samúelsson
læknir
E.s „Aime“
fer héðan í dag kl. 6 e. h.
til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Skipið fermir í
Kaupmannah'Öfn og Gauta
borg um 20. október.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS
Torolf Elster:
SAGAN UM IÍOTTLOB
Þetta voru stríðstímar og ár- i
aði vel. Þegar við komum j
lengra að Alfsborg, heyrðum
við gegnum hávaðann i .skip-
inu hvinir.n frá hinni m'klu
stálsm’ðju, Svea Förente Eg
varð ii'er-tum því sjúkur af til-
finningas., þegar ég sá hina há-
vöxnu og spengilegu reykhaía
hverfa í sólmóðuna; þeir voru
á sínum tíma eitt af hinum
fjöldamörgu afrekum auð-
mannsins Straums. Nú unnu
verksmiðjurnar meira en
nokkru sinni áður en
sjálfur lá auðmaðurinn ein-
hversstaðar úti í heimi og rotn-
aði niðri í jörðinni og enginn
tók sér í munn nafn þessa
svindlara án þess að með fylgdi
runa af blótsyrðum og for-
mælingum. Heima í Oslo sat
einnig maður og bölvaði og
ragnaði út af annarri persónu,
en ég hafði hug á því að koma
aftur — og það lifandi — einn
góðan veðurdag mundi ég ef til
vill verða til sýnis í blöðunum,
en það skyldi ekki verða und-
ir fyrirsögn um fjársvik og
glæpamennsku, svikið traust
gjaldþrot þúsund heimila.
Skerjagarðurinn baðaði sig í
haustsólinni, fagur og glamp-
andi, hafið og skerin geisluðu
í ótal litum, og hin þrifalegu
nýmáluðu smáhýsi ljómuðu eins
og mótmæli gegn ófriði og neyð.
Kona stóð við hliðina á mér og
horfði í land. Hún hélt dauða-
haldi í borðstokkinn. Þegar
hún leit við, sá ég, að hún
hafði tár í augunum En það
voru ekki aðeins saknaðartár,
heldur tár vonleysis og angist-
ar. Hún sneri sér frá mér með
viðbragði og hvarf inn. Eg
horfði á eftir henni. Gerðarleg,
há, grönn og smekklega ldædd.
Þetta var hreint ekki sem verst.
Síðasta skerið hvarf við sjón
deildarhringinn að baki, og yzti
vitinn sökk í hafið. Grár tund-
urspillir klauf sjóinn í tvær
freyðandi rákir. Eg hristi af
mér dálitla óhugnanleikatil-
finningu og gekk inn í barinn.
Eg litaðist um. Það var líklega
hér, sem ég mundi eyða tím-
anum næsta hálfan mánuð. Hér
var fjöldi af fólki, ægði saman
alls konar tungumálum, alls-
konar klæðnaði, aldri og báðum
kynjum.
Stríðið hafi ekki sett merki
sín neitt teljandi á þennan söfn
uð. Við lítið borð sat konan,
sem ég hafði séð úti á þilfarinu
— ég áleit hana vera 35 ára -—
ásamt mannpersónu úr við-
skiptaheiminum. Eg hafði svo
sem ekkert út á þetta mann-
grey að setja, en hef aldrei get-
að þolað þessa tegund af fólki.
Stór holdugur, með fremur
reglulegt, ekkert sérstaklega
ógáfulegt andlit, dálítið hvasst
nef, heldur smáa höku, vel
klæddur en ekkert teljandi
glæsilegur — fjörlítill verzlun-^
armaður. Ekki er hægt að kom
ast hjá því að rekast alls stað-
ar á þessa manngerð, og hún
getur jafnvel í fyrstu vakið
virðingu og traust. En er mað-
ur gáir betur að, kemur gjarna
í ljós snertur af hrottaskap
samfara veiklyndi, sem eru
mjög óheppilegir eiginlcikar til
i þess að vekja samúð. Hann stóð
j vissulega að baki konunni.
Hún var mjög dökk yfirlitum,
með fíngert og fremur sérkenn-
ilegt andlit. I raun og veru var
hún ekkert sérstaklega svart-
hærð, en aðeins hinn ljósi hör-
undslitur hennar gerði hana
þannig útlits. Við nánari athygli I
kom í ljós, að augun nálguðust
það að vera Ijósgrá.
En það sem mesta athygli
vakti, var hinn ákveði svipur
hennar, þó að hún virtist fyrir
stundu vera næstum því ang-
istarfull.
Eg gat virt þau nákvæm-
lega fyrir mér í speglinum bak
við afgreiðsluborðið. Eg hef
gaman af slíku. Á því hvernig
hún sat með hönd undir kinn,
sást greinilega, að hún var
þreytt. Hún leit einstaka sinn-
um upp og horfði óróleg og
undrandi á þennan drekkandi
og masandi mannf jölda, og við
og við leit hún til mannsins
með sama svip. En það var eitt
hvað þjakandi við þau, og það
smitaði í kringum sig — ólýs-
anlegur dapurleiki, sem eins og
fyllti barinn. Hún snerti ekki
við kaffinu, er stóð á borðinu
fyrir framan hana.
Hann drakk koníakið sitt kæru-
leysislega og leit áhugalausu
og þóttafullu augnaráði á þá,
sem sátu við borðið í kring; en
samt sem áður var ekki um
að villast, að hann kunni ágæt-
lega við sig í þessu umhverfi.
Við því var heldur ekkert að
segja, því að það gerði ég sjálf
ur einnig. En þar sem ég sat
þarna yfir öðru eða þriðja
staupinu og rannsakaði hina
risavöxnu herdeild af alla vega
litum flöskum, tók ég allt í
einu eftir því, að hann var ekki
jafn-rólegur og hann vildi líta
út fyrir að vera. Ekki var frítt
við, að hendur hans titruðu,
og hann kipptist við um leið og
einhver kom inn í barinn að
baki honum — eins og hann
væri að berjast við löngun til
þess að líta við og sjá, hver það
væri.
Það er þægilegur kitlandi æv-
intýraljómi yfir því að ferðast
út í óvissuiia með allar brýr
brotnar að baki — en eiga fullt
veski. Eg kveikti mér í vindli
og laut áfram með hálflokuð
augu. Vélarnar börðu hin jöfnu
og stöðugu liögg sín, og skipið
var byrjað að velta dálítið. Véla
höggin og masið í kringum mig
rann saman í tilbreytingarlaust
og áhyggjulaust suð. Ólýsan-
legur ilmur af skipi, hafi og
góðu tóbaki. Stríð, stjórnmál og
óþægilegir forstjórar tilheyrði
öðrum hnetti og öðrum tímum;
heima í Noregi fór veturinn
bráðum að gera vart við sig, en
fram undan lágu sólgylltar
strendur, pálmalundir og allra
handa skemmtilegir hlutir, sem
mundu verða á vegi manns.
Við miðdegisborðið sat ég
beint á móti þessu pari. Þau
voru sænsk — úr hinum æðri
viðskiptaheimi, fislcaði ég eftir.
Síðar sá ég greinilega, að hann
skrifaði forstjóri eða eitthvað
því um líkt á servíettuumslagið.
Það var einkennandi fyrir hann
að muna eftir að titla sig jafn-
vel þarna. Þau töluðu ekkert
teljandi saman, hann minntist
á að súpan væri góð, hún kink-
aði kolli annars hugar, hann
sagði, að vínið væri svona og
svona, hún kinkaði aftur kolli.
i Özlög brautryðjandans
Framh. af 5. síðu.
mennsku á nýtt stig dreng-
skapar og manndóms og átti
það eitt markmið að berjast
fyrir hagsmunum íslenzku
þjóðarinnar.
Björn Jónsson var ofsóttur
manna mest meðan hann
lifði. Það er ofsókn við minn-
ingu hans, þegar íslenzkir
svikarar reyna að skipa hon-
um látnum í flokk með sér.
En þótt reynt sé að óvirða
minningu hans mun fordæmi
hans lifa og hvetja þjóðina til
nýrrar sjálfstæðisbaráttu. ! :
>■ s.
Per Mbm Hansson 1 '
Framh. af 3. síðu.
innar. Þessi stjórn Per Albing
framkvæmdi á árunum 1932
—1939 hina frægu kreppu-
pólitík og þær félagslegu um
bætur, sem mest hafa verið
rómaðar utan Svíþjóðar. --
Hugmyndirnar um þessar að;-
gerðir og stefnu komu ekkj
frá honum. Hann var hinn
lægni stjórnmáiamaður og
trausti foringi, ekki hinn
hugmyndaauðugi hugsjóná-
rnaður.
Á stríðsárunum verður Peh
Alhin ekki fyrst og fremsjt
flokksforingi, heldur forustu
maður allrar þjóðarinnar a
erfiðum tímum, sem öll þjóé
in bar traust til. Rólegur og
raunhæfur, til'búinn til nokki-
urs afsláttar og aðlögunar 1
utanríkisstefnunni, eins og
hann hafði áður verið í innj-
anlandsmálum. Þessi stefng
féll mörgum einlægum and-
nazistum mjög miður, og
fannst hún hugsjónarýr og
lítt hetjuleg. En fæstir munu
nú bera á móti að hún hafi
verið hin farsælasta, bæði
fyrir Svía og nágrannaþjóð-
irnar, enda þótt ýms atriði
sem Per Albin þá ekki fyrst
og fremst bar ábyrgð á, hefðú
mátt betur fara.
Við andlát Per Albins
stendur sósíaldemókrataflokk
urinn sænski enn á nýjuni
tímamótum. Hann hefur náð
hreinum melrihluta og fengL
ið aðstöðu til að frarm
kvæma miklu róttækari
stefnu en áður fyrr, og hei-
ur þegar á síðastliðnu ári
I náð nokkuð langt inn á þá
braut. Þetta tímabil mun
krefjast annara hæfileika en
þeirra, sem mótuðust á öðru
tímabilinu, og fyrst og fremst
einkenndu Per Albin Hans-
son.
Jónas H. Haralz.