Þjóðviljinn - 15.06.1948, Page 5

Þjóðviljinn - 15.06.1948, Page 5
Iniðjudagur 15. júní 1&48. ÞJÖÐVILJINN 5 Fyrsta skýrsla stjórnarlnnar nm eignfrnar vestanliafs: BANKAINNEIGNIRNAR Eftír eni skýrslur um fyrirlæki, hiulabréf fasteignir o. s. írv. þar sei margfalll hærri upphæiir eru gepdar - ásamt skrá um ameríkuferðir siustu 4 láiuiia! Eftir fjög-urra mánaða undanbrögð, útúrsnún- inga og þögn, þögn, þögn, hefur ríkisstjórnin loks séð sig knúða til að lyfta ögn slæðu leyndarinnar frá hinum stórkostlegu fjársjóðum auðstéttarinnar vestur í Bandaríkjunum. Hún hefur ekki gert það af frjálsum vilja, eins og reynsla hinna fjögurra mánaða sýnir bezt, heldur knúin af þunga almenn- ingsálitsins — og hún hefur reynt að sýna sem minnst, hopað eitt skref í einu í von um að reiði almennings myndi lægja. Og þó er þessi skýrsla, svo ófullkomin sem hún er, mjög athyglisverð og gefur tilefni til nánari ^thugunar. Og það er einnig athyglisvert að ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér til að bera fram þá fáránlegu hlekkingu að með þessari skýrslu væri allt talið, þar sem hún kveðst hafa falið sendiherra íslands í Bandaríkjunum að safna upplýsingum um eignirnar í heild „og vísað MEÐAL ANNARS til upplýsinga alþjóðagjaldeyr- issjóðsins“. Enda veit stjórnin betur. Hún hefur sjálf í fórum sínum — að minnsta kosti hluti hennar — önnur og stórum alvarlegri gögn sem staðfesta frásögn Þjóðviljans um heildartöl- una — 320 milljónir króna um síðustu áramót — og upplýsingar Hermanns Jónassonar í Hornafirði 30. maí. Og þau gögn mun stjórnin einnig verða neydd til að birta, þó seinna verði. En í dag er rétt að athuga nánar skýrslu nr. 1. — fyrstu frásögn ríkisstjórnarinnar um hina földu fjársjóði vestan hafs, en hún er birt í heild á öðrum stað í blaðinu sem cögu- legt plagg. Hún skýrir frá því livar 46 milljónir króna eru niðurkomnar — 7. hluti heild- arupphæðarinnar. Af þeirri upp hæð'voru 20 milljónir opinber eign, og er það óneitanlega hjá lcátlegt að ríkisstjprnin akuli þurfa að leita upplýsinga al-- þjóðagjaldeyrissjóðsins um op- inbsra eign vestra. Fjármála- ráðherrann ætti að gefa sér þann tíma frá prívatbraski sínu að hann viti slíka hluti sjálfur. En það er hinn hluti upphæð arinnar sem mesta athygli vek- ur. 26 milljónir króna í t-ign ísl. einstaklinga, öpinberlega geymt í bönkum. Sem sagt: ís- lenzkir auðkýfingar hafa geymt í sparisjóðsbókum eða á annan hátt -— á sínum eigin nöfnum — slíka upphæð sem 26 millj- ónir króna! Og það er vissu- lega ekki nein smávægileg upp- hæð — að minnsta kosti ekki frá sjónarmiði ísleiizkrar al- þýðu. Svo nefnt sé eitt dæmi er sú upphæð ekki fjarri þvi að samsvara andvirði þeirra 10 nýju nýsköpunartogara scm ríkisstjómin hefur nú neyðzt til að lofa þjóðinr.i. Aðeins með því að hirða bankaeign nokk- urra íslenzkra milljónara í Bandaríkjunum eru þessir tog- arar greiddir!! Það sem undrun vekur er hversu há þessi upphæð er. Það sýnir hvílíkt traust milljónar- arnir hafa borið til ríkisstjórn- arinnar íslenzku og það sýnir ekki síður hitt, hvílíkar fjár- fúlgur þeir hafa haft lianda á milli þar vestra. Fjárplógsmenn leggja það yfirleitt ekki i vana sinn að geyma fé sitt í bönkum og hirða venjuiegar rentur, allra sízt á glámbekk á sínum eigin nöfnum. Bankaeignin er ævinlega örlítið brot af heildar- eigninni, varasjóður til notkun- ar í viðlögum, t. d. ef menn þurfa að leggja upp í ferða- lag ,,sér til heilsubótar"! Hvað skyldu t. d. milljónararnir hér í Reykjavík eiga mikið fé i sparisjóðsbókum í Jjandsbank- anum? Þeir telja sig blátt á- fram ekki liafa efni á því að láta fjármuni sína renta sig á jafn lítilmótlegan hátt, engu frekar en þeir höfðu efni á: því að kaupa stofnlánadeildarbréf á sínum tíma. Þessi uppliæð — 26 milljónir krona, andvirði 10 nysköpunar- togara — er þó ekki heildar- bankaeign íslenzku milljónar- anna í Bandaríkjunum. Iiinir forsjálli, sem ekki hafa haft nægilega tröllatrú á rikisstjórn inni, hafa bankaeignir sínar geymdar á nöfnum bandarískra leppa, vina sinna og samstarfs- manna, eða þeir leigja banka- hólf og geyma fjársjóðina í þeim, en þar eru þeir ekki skrá- settir. En bankaeignin er þó eins og áðui- er sagt aðeins brot af heildarupphæðinni, varasjóð- ur sem við bætist ágóði af arð- bærari f járfestingu. Miklum meirihluta eignánna vestanhafs hefur verið komið fyrir í arðbærum fyrirtækjum og hlutabréfum sem gefa af sér góðar tekjur, eins og vera ber í landi gróðahyggjunnar. Þetta fjármagn sem tekið hefur verið á ,,löglegan“ og ,,ólöglegan“ hátt af hinni stríðandi alþýðu íslands er nú notað til að pína meiri arð út úr stritandi alþýðu Bandaríkjanna. Fjármagnio á sér ekkert f-öðurland, það er þess vegna sem milljónörum verður manna tíðræddast um föðurlandsást. Arður fyrii'tækj- anna er síðan Jagður í banka og er nokkur hluti milljónanna 26 þannig til kominn. O'g þegar nægilega mikið hefur safnazt er meira fé lagt í fyrirtæki og fleiri hlutabréf keypt. Það er kallað „framtak einstaklings- ins“ þegar íslenzkir milljónar- ar safna þannig fé í framandi þjóðlandi. Og enn er nokkur hluti eign- anna fólginn á annau hátt. Þeg- ar liinir íslenzku milljónarar fljúga vestur sér ,,til heilsubót- ar“, láta þeir sér ekki nægja að búa á lúxushótelum. Margir þeirra eiga glæsileg liús búin dýrindis húsmunum. Einnig í slíkum eignum eru miklir pen- ingar niður komnir. Og það eru vissulega lánsamir menn sem eiga höll í Reykjavík, sumar- bústað við Þingvallavatn og villu í Bandaríkjunum! Það kall ar blað forsætisráðherrans „jafnrétti og bræðralag". ic Það ér vissulega ástæða fyr- ir þjóðina að festa sér vel í minni að ríkisstjórnin lofar því í skýrslu nr. 1. að „gera allt sem í hennar valdi stendur til að upplýsa mál þetta að fullu“. Hún hefur einnig slíkar aðstæð- ur að full ástæða væri til að vænta skjóts árangurs eftir jafn ákveðið loforð, ef heiðarleg ir menn ættu í hlut. Bandaríkja stjórn hefur heitið fullri aðstoð sinni, og hún hefur enga ástæðu til að hylma yfir með íslenzkum milljónörum í þessu máli, þó „Út af umræðum, að undan- förnu, bæði í blöðum og á mann- fundum, um gjaldeyriseign Is- lendinga í Bandaríkjum Norð- ur-Ameríku, vill ríkisstjórnin taka fram eftirfarandi: Samkvæmt upplýsingum al- þjóða gjaldeyrissjóðsins (inter national Monetary Fund) hefur gjaldeyriseign Islendinga í bönk um í Bandaríkjunum verið sem hér segir: 30/6. 1947. Opin.ber eign (official holdings)... .3.0 Eignir einstaklinga (private holdings).... 4.0 Samtals 7.0 Allar upphæðir eru taldar í milljónum dollara, Samkvæmt þessu liafa eignir íslerízkra einstaklinga og félaga numio 26 milljónum ísl. króna 30. júní 1947. Ríkisstjórnin hefur gert itrek aðar tilraunir til að afla sér upplýsinga um eigendur þessara inneigna, en jafnan féngið þáð svar, að það gæfu innstæouvið- takendur ekki upp, heldur að- eins upphæðina í heild frá við- komandi landi. Með samþj'kki Bandaríkjaþings á lögum frá 1948 um aðstoð til erlendra þjóða (hinni svokölluðu Mars- hall-hjálp) hefur hinsvegar nýtt viðhorf myndazt í 14. málsgr. 115. gr. þessara laga, er gert ráð fyrir því, að þátttökuríkin skuldbindi sig til „eftir því sem hægt er, að gerðar séu ráð- stafanir til þess að hafa upp á, aðgreina og nota á viðeigandi hátt í sambandi við framkvæmd þeirrar áætlunar, eignir og tekj- ur af þeim, sem tilheyra þegn- um þess ríkis, og eru innan Bandarikjanna eða lendna þeirra“. Samkvæmt þessu virð- ast möguleikar tií að leita samn inga við Barídaríkjastjórn um að fá uppgefnar innstæður Is- lendinga í Bandaríkjunum. Hef ur ríkisstjórnin því falið sendi- hún eigi þeim annars gott upp að unna. Hér er nefnilega einn- ig um að ræða fjárhagslegt hagsmunamál fyrir bandaríska aðila. Ef þeir finna erlendaí eignir í Bandarikjunum drag- ast þær frá hinni svoríefndu Framhald á 7. síðu. ráði íslands í Washington, í s.l, mai mánuði, að fara þess 4 leit við stjórn Bandaríkjanna, að hún léti safna upplýsingum um íslenzkar innstæður þar í landi og hverjir séu eigendur læirra og vísað m. a. til upp- lýsinga alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins. Enn er óséð hver árangur verður af þessum tilmælum rík- isstjórnarinnar, en hún mun gera allt sem í liennar valdi stendur til að upplýsa mál þetta að fullu. Að lokum skal á það bent, að íslenzk fyrirtæki og einstak- lingar hafa átt og eiga enn löglega reikninga hjá bönkum i Bandaríkjunum, t. d. mun Eimskipafélag Islands hafa átt þar á nýbyggingarreikningi 30, júní 1947 611.857 dollara. Reykjavík, 12. júní 1948“. j Nýja Bíó: L0UISE Myndin mun vera gerð eftir samnefndri óperu Charpen tiers, og er öll í hinum furðu- legasta óperu-dellu stíl. Smá- vægilegustu atvik valda slik- um geðshræringum að heldur við brjálæði. Gleði og sorg skiptast á með þvílíkum feikna krafti, að ýmist er fullkomin örvænting, öngvit óg liggur við morðum og sjálfsmörðum, eða æðsta sæla og fögnuður, rak-> ettur og háa-c. Venjulegt fóllc hlær að þessum kúnstum. —• Enginn dómur skal lagður á tónlistina, en aðalhlutv., leika Grace Moore, Georges Thill og André Prenet, og syngja þail öll prýðilega. ; Framhald á 7. síðu, J Skýrsla nr. 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.