Þjóðviljinn - 17.05.1952, Side 6

Þjóðviljinn - 17.05.1952, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. maí 1952 120 manns í vinnu Vikuna 5.—11. maí lönduðu togarar Bæjarútgerðar Reykja- víkur afla sínum sem hér seg- ir: 5. maí. Bv. Hallveig Fróða- dóttir 277 tonnum af ísfiski í íshús og herziu. Fór aftur á veiðar 6. maí. — 5. maí. Bv. Þorsteinn Ingólfsson 24 tonn- um í herzlu og 179 tonnum af saltfiski. Fór aftur á veiðar 8. maí. — 6. maí. Bv. Pétur Hall- dórsson 142 tonum af saltfiski og 13 tonum af mjöli. Fór aft- ur á veiðar 9. maí. — 7. mai. Ingólfur Arnarison 125 tonnum af saltfiski. Fór aftur á veið- ar 10. mai. — 9. maí. Bv. Jón Þoriáksson 227 tonnum af ís- fiski í íshús og herzlu. Fór aftur á veiðar 10. maí. — 9. maí. Bv. Þorkell Máni 129 tonn um af saltfiski, 26 tonnum af nýjum fiski, 250 kössum af hraðfrystum fiski og-20 tomi- um af mjöli. Fór aftur á veiðar 10. maí. I vikunni unnu 120 manns við saltfiskverkun og herzlu. Friðun Reykjnesskaga Þjóðviljinn sagði nýlega frá hinum almenna áhuga sem vaknaður er fyrir því að friða Reykjarnesskagann fyrir á- gangi sauðfjár og rækta á hon- um skóg. Egill Hallgrímsson var upphafsmaður skógræktar- samtaba suður þar og hug- myndarinnar að friðun skag- ans, en skógræktarfélög hafa nú tekið málið upp og gert um það ályktanir. Á aðalfundi Skógræktarfé- lags Suðurnesja fyrir nokkru rakti formaður félagsins, Ófeig ur Ófeigsson læknir, málið all- ýtarlega og upplýsti m. a. að tæplega einn sjöhundraðasti af öllum íbúum Reykjanessins, miðað við línu er lægi innan við Reykjavík en vestan Sel- vogs, lifði á sauðfjárrækt og öðrum búskap. 'Stjóm Skóræktarfélngs Suð- umesja er nú þanníg skipuð: Ófeigur J. Ófeigsson formað- ur, Ingimundur Jónsson vara- formaður, Hallgrímur Th. Björnsson ritari, Oddbergur Eiríksson gjaldkeri, Huxley Ól- afsson, Ragnar Guðleifsson og Hermann Eiríksson. Framh. af 3. síðu. Framtíð þjóðlífsins að okkur Islendingum takist að varðveita góðar og dýrmæt- ar minningar hvað sem á móti blæs, að við drögum lærdóma af þeim, ávöxtum þær og skil- um þeim fram, vegna þess að í þeim er framtíð þjóðlífsins fólgin. I apríl 1952. Gunnar Stefánsson. Bæjarfréttir Framhald af 4. síðu. NesprestakaJI. MessaS í Kapellu Háskólans kl. 11 árdegis. (Fólk er beðið að athuga breyttan messu- tíma). Séra Jón Thorarensen. — Laugarneskirkja. Messa kl. 2 e.h. (bænadagur). Séra Garðar Svav- arsson. — Fossvogskirkja. Messa kl. 11 f.h. (bænadagur). Séra Garðar Svavarsson. — Fríkirkjan. Messa kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson. — Óháði fríkirkjusöfn- uðurlnn. Guðsþjónusta í Aðvent- kirkjunni kl. 2 e. h. (Bænadagur- inn), Séra Emil Björnsson. MUNIÐ mæðradaginn á morgr- un. Kvennaskólinn í Beykjavík. Hannyrðir og teikningar náms- meyja verða til sýnis í skólanum laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. mai, kl. 2—10 báða dagana. Uæknavarðstofan Austurbæjarskól- anum. Sími 5030. Kvöldvörður og næturvörður. Næturvarzla er í Laugavegsapð- teki. Sími 1618. THEODORE 165. DAGUR vinna, og þá notaði hann tækifærið til að spyrja hvað hann áliti að svona stúlka gæti gert, ef hún gæti ekki og vildi ekki eignast barnið. En verkstjórinn var eins fáfróður og hann sjálfur og sagði að hún myndi sjálfsagt tala við lækni, ef hún þekkti ein- hvern eða „láta þetta eiga sig“ — og Clyde var alveg jafnnær. I annað sinn var hann að tala við rakara um frétt sem birzt hafði í Star þar sem stúlka hafði höfðað mál á hendur auðnu- leysingja á staðnum fyrir hjúskaparbrot og rakarinn sagði „að hún hefði aldrei farið að eltast við þennan náunga, ef hún hefði ekki verið tilneydd." Og þá notaði Clyde tækifærið og sagði: „En hefði hún ekki getað fundið eitthvert betra ráð til að losna úr þessu en að giftast manni sem henni geðjaðist illa að?“ „Ja, það er nú ekki beinlínis auðvelt á þessum slóðum,“ sagði vitringurinn sem var að snyrta á honum hárið. ,,í fyrsta lagi brýtur það í bág við lögin. Og svo kostar það einhver ósköp af peningum. Og ef peningar eru ekki til, þá, — en peningar opna allar dyr.“ Hann brá á leik með skærunum meðan Clyde hugsaði um sitt eigið vandamál og var honum innilega sam- mála. Ef hann ætti mikla peninga — þótt ekki væri nema nokk- ur hundruð dollarar — þá myndi hann taka þá núna og telja hana á að fara eitthvað upp á eigin spýtur og láta framkvæma þessa aðgerð. Og hvem einasta dag sagði hann við sjálfan sig, að hann yrði að finna einhvem lækni. Og Róberta sagði við sjálfa sig, að hún yrði að finna einhver ráð — hætta að setja allt traust sitt á Clyde, ef hann héldi áfram að haga sér svona. Þetta var hræðileg framkoma gagnvart henni. Það gat ekki verið að Clyde gerði sér ljóst hversu hræðilegar afleiðingar þetta gæti haft fyrir þau bæði. Og ef hann ætlaði ekki að hjálpa henni út úr þessum vanda, eins og liann var margbúinn að lofa, þá gat hann ekki ætlazt til að hún stæði ein uppi í óveðrinu sem hlaut að vera yfirvofandi. Nei, það kom ekki til mála. Clyde var þó karlmaður, hugsaði Róberta — hann var í góðri stöðu — það var ekki hann heldur hún sem var í þessum miklu vand- ræðum og gat ekki losnað úr þeim upp á eigin spýtur. Og eftir annað tímabilið, þegar hún hafði fengið fullkomna staðfesi ingu á hinum illa gmn sínum, lýsti hún því yfir að hún væri í sárustu örvæntingu og þriðja daginn tilkynnti hún honum bréflega, að hún ætlaði aftur á fund læknisins í Gloversville um kvöldið, þrátt fyrir synjun hans í fyrra skiptið — svo örvilnuð var húr. — og hún fór þess á leit við Clyde að hann fylgdi henni — og hann játaði strax þeirrj beiðni hennar, þótt hann hefði áður mælt sér mót við Sondru, því að lausn þessa vanda- máls var fyrir öllu. Hann yrði að segja Sondru að hann þyrfti að vinna. Og í annað skiptj fóm þau í þetta ferðalag og á leiðinni áttu þau tal saman, sem aðallega snerist um skýringar hans á því að hann hefði ekki komið neinu í verk og lofræður um hug- rekki hennar, að ætla að reyna þetta aftur. En læknirinn var líka ósveigjanlegur í þetta skipti. Þegar húi. var búin að bíða heimkomu hans í næstum klukkustund, fékk hún aðeins leyfi til að segja honum frá hinum óbreyttu kringumstæðum, ótta sínum um framtíðina, en hann sýndi þess engm merki að hann væri fáanlegur til að hjálpa henni. Það braut í bág við samvizku hans og siðgæði. Og Róberta hélt aftur heimleiðis, en í þetta skipti grét hún ekki, því að sorg hennar var þyngri en tárum tæki og ólýsan- leg skelfing heltók hana. Og þegar Clyde frétti um þetta misheppnuðu tilraun fylltist hann þunglyndi og kom engu orði upp. Hann vissi ekki hvað hann átti að segja, og óttaðist að Róberta gerði einhverja kröfu til hans, sem hann gæti ekki fullnægt. En hún mælti fátt á heimleiðinni Hún sat kyrr og starði út um gluggann — og hugsaði um hinar hræðilegu ógnir sem færðust nær með hverju andartaki sem leið. Hún afsakaði sig með því að hún hefði höfuðverk. Hana lartgaði til að vera ein — til þess að geta hugsað — reyna að finna einhverja lausn. Hún varð að finna eitthvert úrræði Það vissi hún. En hvaða úrræði? Hvemig? Hvað gat hún gert? Hvemig gat hún komizt hjá afleiðingun- um? Henni fannst hún vera eins og hundelt dýr, sem barðist fyrir lífi sínu, leitaði að þúsundum fjarstæðukenndra útgöngu- leiða en komst þó ævinlega að sömu niðurstöðunni — hjónaband var eina lausnin. Og því ekki það? Hafði hún ekki gefið honum allt, gegn sinni betri vitund? Hafði hann ekki beitt fortölum við hana? Því skyldi hann geta fleygt henni til hliðar? Það leyndi sér ekki eftir þessa síðustu erfiðleika, að ást hans var dauð og hann hugsaði ekki nærri eins mikið um afleiðingar þessa óláns fyrir hana og sjálfan hann og það tjón sem það gæti bakað honúm. Og þegar þetta fyllti hana ekki skelfingu, sem það gerði oftast varð það til að vekja hjá henni gremju og styrkja hana í þeirri ákvörðun, að hún hefði rétt til að gera meiri kröfur þegar svona stóð á, en hún hefði gert að öðrum kosti, kröfur til hjónabands, sem virtist eina lausn vandamáls- ins. Og því ekki það? Var líf hennar ekki jafn mikils virði og líf hans? Og hafði hann ekki tengt lif þeirra saman af fúsum og frjálsum vilja? Og því skyldi hann ekki hjálpa henni núna •— færa þá fórn sem hinar ömurlegu kringumstæður gerðu nauð- synlega. Hvaða máli skipti þetta yfirstéttarfólk sem hann hafðl svo mikið saman við að sælda? Og því skyldi hún þurfa að leggja framtíð sína, nafn og mannorð í sölurnar vegna áhuga hans á þessu fólki? Það hafði aldrei gert neitt sérstakt fyrir hann, að minnsta kosti ekki eins mikið og hún hafði gert. Og1 þótt hann væri nú orðinn leiður á henni, þegar hann var búinn að neyða hana til að láta að vilja sínum — þá var engin ástæða; til að hann fengi að yfirgefa hana þegar svona stóð á? Skyldi þetta yfirstéttarfólk, sem hann hafði svo mikinn áhuga á, ekki vera sammála henni í því að hún hefði fullan rétt til að taka þessa stefnu? Hún velti þessu fyrir sér fram og aftur, einkum eftir aðra tilraun sína til að leita aðstoðar Glenn læknis. I raun og veru brá stundum fyrir þrjózku og hörkusvip á andliti hennar, sem ekki hafði borið á fyrr, en hafði þróazt af þessu sérstaka til- efni. Haka hennar varð festuleg. Hún var búin að taka ákvörð-; un. Hann yrði að kvænast henni. Hún yrði að fá hann til þess, ef engin önnur leið fyndist út úr þessum vanda. Hún mátti til. Þegar hún hugsaði um heimili sitt, móður sína, Grace Marr, oOo " —oOo— ■" oOo ——oOo— —oOo— —oOo oOo ^ BARNASAGAN TÚ KK T Ú K K 6. DAGUR Takk — takk — takk — takk. 0g írá öðrum stað á þakinu kom: Búmm —1 búmm — búmm — bass. Þeir eru ekki aðeins einn, þeir eru tveir, sagði ég. Þeir ætla að rífa ofan af okkur þakið. Við stukkum á fætur og lokuðum dyrunum að næsta herbergi, því að það var hægt að komast í það ofan af þakinu. Við ýttum stórum skáp að hurðinni, drógum borð að skápnum og bárum síð- an einn beddann að borðinu. Á þakinu var líf og fjör. Höggin gengu látlaust, annaðhvort börðu þeir á víxl eða báðir í einu. Og því er ekki að leyna að brátt bættist sé þriðji i hópinn. Og enn einn barði á dyrnar. Kannski eru bara einhverjir að reyna að hræða okkur? sagði ég. Við ættum að fara út og taka duglega í lurginn á þeim, ef þeir geta ekki látið mann í friði um há- nóttina, sagði Gústi. Það er ekki vogandi, sagði ég. Það eru kannskii tuttugu menn. En ef það eru nú alls engir menn? Hvað ætti það þá að vera? Það gætu verið púkar. Nei, vertu ekki að segja draugasögur. Það er nógu óhuggulegt samt. Mikki svaf allan tímann og hafði ekki hugmynd um öll þessi ósköp sem yfir dundu. Heldurðu við ættum ekki að vekja hann? sagði ég. Það er ekki nauðsynlegt. Hann hefur gott a£ að sofa, svaraði Gúsíi. Þú veizt líka hvílík bleyða hann er. Við vorum nú báðir orðnir svo þreyttir, að vicí gátum varla staðið uppréttir. Við tylltum okkur ál beddabríkurnar og veittum því þá athygli að það var kominn dagur. Skærar ljósrákir stóðu inn um rifurnar á gluggahlerunum. Heyrðu Gústi, kallaði ég, það er kominn dagur„ Við opnuðum hlerana í hálfa gátt. Sólin reis yfií skóginnr ; ^

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.