Þjóðviljinn - 13.10.1954, Side 5
Miðvikudagur 13. OKtóber 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Dularfulli njósnar-
inn gefur sig fram
Bides lögieglufofingi fylgdi „Monsieur
Gharles" tii dómarans
Dularfulli maöurinn í franska njósnamálinu „Monsieur
Charles", réttu nafni Alfred Delarue hefur gefiS sig fram
við lögregluna.
Tveir Bandaríkj amenn fá
griðland í A-Þýzkalandi
Tveir bræður, Bandaríkjamennirnir James og William
Henry Starr, sem hurfu í Vestur-Berlín í síðasta mán-
uði, héldu fund með blaðamönnum í Austur-Berlín í síð-
ustu viku og tilkynntu þar, að þeir hefðu farið af frjáls-
um vilja til Austur-Þýzkalands og fengið þar griðland
sem pólitískir flóttamenn.
Hans hefur verið leitað um
allt Frakkland, síðan upp komst
um njósnastarfsemi Dides lög-
regluforingja, en hann var einn
af erindrekum hans. Talið hafði
verið, að hann myndi hafa
sloppið úr landi, en á mið-
vikudagskvöldið í síðustu viku
gaf hann sig fram við rann-
sóknardómarann.
Dides kom með hann
Delarue kom til herbúðanna
í Reuilly, þar sem rannsóknar-
dómarinn í málinu hefur aðset-
ur, og var Dides lögreglufor-
ingi í fylgd með honum. Dides
fylgdi honum til dómarans og
skildi hann þar eftir. Þegar
Dides kvaddi hann, komst
hann þannig að orði: „Nú
kemst þetta mál á nýtt stig“.
Mikilvægt Htni
Innanríkisráðuneytið telur,
að Delarue geti gefið mikil-
vægar upplýsingar um stjórn-
málahlið þessa máls. Hann er
talinn hafa verið erindreki sam-
taka yzt til hægri, sem hafa
sýnt stjórn Mendés-France full-
köminn fjandskap.
Strokufangi
Delarue var í þjónustu Þjóð-
verja á hernámsárunum og var
dæmdur í 20 ára nauðungar-
vinnu árið 1944. Þrem árum
seinna tókst honum að strjúka
úr fangelsinu og náðist ekki
aftur. Hann settist að í einu
úthverfi Parísar ásamt konu og
í lok síðasta árs barst út
skýrsla frá einni af skrifstof-
t---------------———-—•—
2,7 millj. ha í
nýrækt
Ráðherra ríkisbúanna í
Sovétlýðveldinu Kasakstan,
Vlasenko, hefur skýrt frá
því, að í ár hafi 2,7 millj.
hektarar lands verið teknir
til ræktunar í lýðvaldinu. Á
þessu landi hafa verið stofn-
uð 93 ný samyrkjubú og
ætlunin er að koma upp 300
ríkisbúum. 'Hann kvartaði
yfir því, að tafir hefðu orðið
á smíði nýbygginga og sagði
að fyrir veturinn yrði að
ljúka smíði 300 íbúðarhúsa,
77 mötuneyta, 11 sjúkrahúsa
og 47 verzlana.
-------------------------->
fjórum börnum og fór ekki
lengur huldu höfði. Honum
tókst að útvega sér falskt vega-
bréf og fór á því til Banda-
ríkjanna í fyrra ásamt Dides
lögregluforingja.
Viðskiptasamningur var und-
irritaður um fyrri helgi í Bel-
grad, höfuðborg Júgóslavíu. Er
það vöruskiptasamningur, sem
verður í gildi til loka þessa árs.
Sovétríkin selja
hernaðarnauðsj'njar.
Júgóslavía selur Sovétríkjun-
um kjöt, tóbak, vínanda, hamp
og sóda.
Sovétríkin selja olíu, baðm-
ull, manganmálm og pappír.
Olía og mangan eru í tölu
þeirra vörutegunda, sem Vest-
urveldin banna sölu á til Sovét-
ríkjanna á þeirri forsendu, að
þær séu hernaðarnauðsynjar.
Samstaða á alþjóða vettvangi
Nokkru áður en viðskipta-
samningurinn var gerður sagði
Tító, forseti Júgóslavíu, í ræðu
að stjórn hans vildi samvinnu
um vesturþýzku stjórnarinnar
um hernaðarframleiðslu í land-
inu. Var í henni sagt, að 400
fyrirtæki ynnu nú að fram-
leiðslu hergagna. Þessi fyrir-
tæki framleiða bæði „venjuleg“
hergögn og múgdrápstæki:
napalm, taugagas, riffla, vél-
byssur, jarðsprengjur, skrið-
dreka og flugvélahluta.
Fréttaritari hins óháða
franska blaðs La Tribune des
Nations í Vestur-Þýzkaland sím
aði blaði sínu nýlega frekari
upplýsingar um sum þessara
fyrirtækja. Hann segir að
Mannheim und Ludwigshafen
verksmiðjurnar, sem áður voru
í eigu I. G. Farbenhringsins,
hafi nú hafið framleiðslu á
taugagasi. Bayerverksmiðjan í
Höchst sé tekin að undirbúa
framleiðslu sýklavopna, en sú
verksmiðja var einnig eign I. C.
Farben. Napalm er framleitt í
stórum stíl í Rheinpreussen
verksmiðjunum.
Blaðamannafundurinn var
haldinn á vegum blaðafulltrúa
austurþýzku stjórnarinnar. —
William Henry Starr komst þar
m.a. svo að orði: Við höfum
séð nóg til að skilja, að ráð-
við Sovétríkin í efnahagsmál-
um „og einnig á stjórnmála-
sviðinu í þau skipti .... sem
við erum sammála“.
Talsmaður utanríkisráðuncyt-
isins í Belgrad sagði erlendum
fréttamönnum, að Tító hefði
átt við það að Júgóslavia myndi
standa með Sovétríkjunum í al-
þjóðamálum oftar en hún hefur
gert undanfarið.
3N ára fierskip
dregið úr sjó
í náinni framtíð verður gerð-
ur út leiðangur til að lyfta frá
hafsbotni hollenzku herskipi,
sem sökk í sjóorustu undan
vesturströnd Suður-Jótlands ár-
ið 1644. — 1
orustu þess-
ari var mörg-
um hollenzk-
um herskip-
um sökkt og
er vitað hvar
nokkur
þeirra liggja.
Það er þó að-
eins ætlunin
að bjarga
flaggskipinu.
Danska húðkafaranum, Jan
Uhre verkfræðingi, hefur verið
falið að stjórna leiðangrinum.
Það var flaggskip Kristjáns
konungs fjórða, Trefoldighed-
en, sem barðist á þessum slóð-
um við 24 hollenzk herskip í
tvær klukkustundir, áður en
fleiri dönsk herskip komu á
vettvang og ráku Hollendinga á
flótta.
Japanski vísindamaðurinn
prófessor Takajiro Mori, skýrði
frá þessu á fundi næringarfræð-
inga í Tokio í síðustu viku.
Hann sagði, að í marzmánuði
hefðu geislavirkir fiskar aðeins
veiðzt í námunda við Bikini
og á vissum svæðum í suðaust-
urhluta Kyrrahafs, en mánuði
síðar veiddust eeislavirkir fisk-
andi menn Bandaríkjanna hafa
sett sér það takmark að koma
á fasisma í Evrópu og undirbúa
nýja styrjöld.
Við getum ekki verið áfram í
þessari fylkingu. Okkur þykir
vænt um Bandaríkin og banda-
rísku þjóðina, en við viljum
ekki snúa heim, á meðan nú-
verandi valdaklíka fer með
stjórn.
Hann upplýsti, að hann hefði
séð fangabúðir í Pennsylvaníu-
fylki, sem byggðar voru fyrir
fólk, sem stjórnarvöldin hafa
ímugust á. Stefna Bandaríkja-
stjórnar miðaði að því að rýra
lífskjörin og svipta Bandaríkja-
menn almennum mannréttind-
um.
Myrti systur
práfdómarans
23 ára gamall ítalskur stúd-
ent, Stefano Bertaiola, hefur
játað, að hann hafi myrt
kennslukonu að nafni Rosa
Venni í hefndarskyni fyrir það
að hann var felldur á prófi.
Bertaiola skýrði lögreglunni
frá því, að bróðir hinnar myrtu,
prófessor Tito Venni, hefði ver-
ið formaður prófnefndarinnar,
sem felldi hann. Hann hafði
myrt Rosu Venni með skamm-
byssuskoti.
Neiiru aidvígur
USA-aðstoð
I höfuðborgum Indlands og
Pakistans, Delhi og Karachi,
hafa verið birt bréf, sem for-
sætisráðherrarnir Nehru og
Múhameð (Alí hafa iskrifað
hvor öðrum út af Kasjmírdeil-
unni.
Nehru kvartar þar yfir hern-
aðaraðstoð Bandaríkjanna við
Pakistan og segir að Indverjar
séu tilneyddir vegna hennar að
hafa öflugt herlið í Kasjmír til
að geta hrundið sérhverri árás.
Nehru segir, að hernaðarað-
stoð Bandaríkjanna hafi skap-
að „ný og hættuleg viðhorf“
og að hún sé „skaðleg fyrir
aukningu raunverulegs frelsis í
Asíulöndum".
ar við Taivan og í júní voru
þeir komnir á mið við Japans-
strendur. Fyrsta vetnissprengju
tilraun Bandaríkjamanna í ár
var gerð 1. marz.
I marzmánuði veiddust 8,5
lestir af fiski sem var svo
geislavirkur að honum varð að
fleygja, en í ágúst var magnið
rúmlega 9 lestir.
Það er ekki eingöngu mál-
gögn vinstrisinnaðra verka-
lýðsflokka og frjálslyndra
borgara í Evrópu, sem líta
með ugg á fyrirhugaða end-
urhervœðingu V-Þýzka-
lands, eins og pessi teikn-
ing úr berska íhaldsblaðinu
Daily Express ber með sér.
Textinn með myndinni
hljóðar pannig: „Gœtið
yðar, frú Frakkland, pað
eru nokkrir herrar á eftir
yður“. Teikningin birtist
skömmu áður en Lundún-
aráðstefnan hófst, er ráða-
menn Bretlands og Banda-
ríkjanna voru í stööugum
eltingaleik milli höfuðborga
V-Evrópu.
Austur-vesSisr viðsfeipti
rædd i flenf
Hafinn er í Genf fundur
fulltrúa ríkisstjórna 26 Evr-
ópulanda um aukin viðskipti
milli austur- og vesturhluta
álfunnar. Þetta er fyrsta ráð-
stefnan af þessu tagi sem hald-
in er síðan 1949. j
Múgdrápstækieru þegar
framieidd í Þýzkalandi
Napalm og taugagas þegar iramleitt,
framleiðsla sýklavopna undirbúin
Hergagnaverksmiðj ur í Vestur-Þýzkalandi hafa þegar
hafið framleiðslu múgdrápstækja.
Júgóslavía og Sovétríkin
semja um viðskipti
Tító boðar samvinnu á stjórnmálasvðiinu
Viðskipti eru hafin á ný milli Sovétríkjanna og Júgó-
slavíu eftir að hafa legið niðri síðan 1948.
Geislavirkum fiskum
fjölgar í Kyrrahafi
Fjöldi geislavirkra fiska, sem veiðast á Kyrrahafi, fer
vaxandi.