Þjóðviljinn - 13.10.1954, Blaðsíða 6
6) _ ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 13. október 1954
] þlÓOVIUINN
j Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
|| Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
[I Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgréiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
1 Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
&------------------------------------------------------<S
„Spurninginernú..."
■ Þegar sósíalistar fluttu á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykja-
Vikur tillögu sina um að skora á Alþingi að gera gagngerðar
ráðstafanir til þess að bæta úr lánsfjárskortinum til íbúða-
Jbyggingá reis upp Jóhann Hafstein og taldi tillöguna óþarfa þar
sem ríkisstjórnin hefði þessi mál í undirbúningi og nefnd á
hennar vegum starfaði að lausn á vandamálinu. Komst þessi
foæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins m.a. þannig að orði að ætti
foæjarstjómin að gera ályktun í málinu nú þyrfti hún að vera
langtum róttækari og ákveðnari en tillaga sósíalista. Bauð
þá Guðmundur Vigfússon Jóhanni að draga tillöguna til baka
gegn því að samkomulag næðist um sameiginlega afstöðu á
grundvelli þeirrar róttæku afstöðu sem Jóhann hafði boðað En
þegar á átti að herða taldi Jóhann öll tormerki á slíku og íhald-
ið felldi áskorunartillöguna með hjálp Framsóknarfulltrúans.
Á sunnudaginn á svo Morgunblaðið samtal við Ólaf Thors, for-
sætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins. Fjallar sam-
talið í meginatriðum um að engin hætta sé á gengislækkun en
að öðru leyti margtuggið skrum um fyrirætlanir ríkisstjórnar-
ínnar. Er þar m.a. vikið að lánsfjárskortinum til íbúðahúsa-
foygginga. Skýrir Ólafur frá því að vænta megi tillagna frá
Kefnd stjórnarinnar, sem síðan verði teknar til „nánari athug-
tinar“. Og síðan kemst Ólafur svo að orði að „framtíðarlöggjöf
tam það er ýmsum vandkvæðum bundið, m.a. þeim að bankalög-
gjöf landsins hefur ekki enn verið færð í það form, sem margir
telja grundvöll þess að auðið sé að setja skynsamlega og varan-
lega löggjöf um þessi mál“. Þá skýrir Ólafur frá því, að ríkis-
Stjórnin hafi ekki enn útvegað nema 10 millj. kr. af þeim 20
jmillj sem ganga áttu til lánadeildar smáíbúða á þessu ári.
Og loks kemst Ólafur að orði á þessa leið:
„Spurningin er nú, hvort hægt verður og nægja þykir að ráð-
síafa þessum málum ineð eínhverjum svipuðum bráðabirgðaað-
gerðum á næsta ári. Þyki það kleift tel ég mögulegt að Ijúka
þessu þingi fyrir áramót ef ekkert óvænt kemur fyrir“.
Þessi orð formanns Sjálfstæðisflokksins sýna að ótilneydd
setlar ríkisstjórnin ekkert raunhæft að gera í lánsfjármálunum
Fyrirætlun hennar er að láta allt hjakka í sama farinu meðan
foúsnæðisneyðin heldur áfram að vaxa og einstaklingum og
foyggingasamtökum eru allar leiðir lokaðar til nauðsynlegrar
lánsfjáröflunar.
Tólf sfunda hvíldina á að lögfssta
Þingmenn Sósíalistaflokksins flytja nú í níunda sinn
á Alþingi frumvarp um tólf stunda lágmarkshvíld togara-
háseta, og eru flutningsmennirnir Sigurður Guðnason,
Einar Olgeirsson og Gunnar Jóhannsson.
Það eru nú tólf ár síðan ísleifur Högnason flutti fyrst-
úr manna þetta réttlætismál togarasjómanna inn á Al-
þingi, en það hefur átt þar lærdómsríka sögu. Enginn
annar flokkur en Sósíalistaflokkurinn lagði málinu lið á
þingi þar til sósíalistum innan þings og utan hafði tek-
izt að gera málið að því stórmáli í vitund þjóðarinnar, að
crfitt var að standa gegn því. Þetta fann líka Alþýöu-
Hokkurinn, sem fyrst lét málið afskiptalaust en þvældist
GÍðar fyrir því ásamt Sjálfstæöisflokknum og Framsókn-
arflokknum. Þar kom að hann taldi ekki lengur stætt á
því, en í stað þess að koma til sósíalista og bjóðast til að
gerast meðflutningsmenn frumvarpsins um tólf tíma
hvíldina og veita því allan stuðning, kusu þingmenn Al-
þýðuflokksins að reyna að eigna sér málið með því að
flytja sérstakt frumvarp, og hafa haldið áfram þeim
‘eik í nokkur þing. Það tiltæki mun þó ekki hafa oröið
til þess aö blekkja sjómenn.
Svo fór, þrátt fyrir aðvaranir sósíalista, að afturhald-
jnu tókst að vísa málinu frá aögerðum Alþingis og neydd-
ust sjómenn til að vinna sér tólf stunda hvíldirra í harð-
vítugum og fórnfrekum verkföllum. En þeir telja rétti-
lega að Alþingi sé skylt að skrifa þann vinning á lögbæk-
ur landsins, og því er frumvarpið flutt enn.
Þess mega þingmenn og aðrir minnast, að þetta er
iágmarkshvíld, og engin líkindi til að sjómenn láti staðar
joumið við hana. Þeir munu á þessu sviði sem öðrirm
halda áfram baráttu sinni fyrir bættum vinnukjörum,
þar til þau mega teljast viðunandi. Þrjóska afturhalds-
sns á Alþingi gæti orðið til þess eins að flýta fyrir ]?eim
kröfum.
Fylgjum eitir unnum sigrum
Burf með áhrif atvinnurekendavaldsins
úr forystu Alþýðusambands íslands
Það sem af er fulltrúakjör-
inu á 24. þing AlþýðusambandS
íslands sýnir greinilega að inn-
an íslenzkra verkalýðssamtaka
eru öfl einingar og samstarfs
í sókn. — Hvaðanæva hafa
borizt fregnir af samstarfi sósí-
alista og Alþýðuflokksmanna í
þessum kosningum, samstarf,
sem nýtur samúðar og stuðn-
ings verkafólks úr öllum stjóm-
málaflokkum. Þetta sanna
dæmin frá Akureyri, Siglufirði,
Húsavík, Hafnarfirði, Skaga-
strönd, Vestmannaeyjum og
viðar, svo eitthvað sé nefnt.
Hvaðanæva hafa borizt og
berast enn einróma samþykktir
verkalýðsfélaga og sambanda,
þar sem íslenzkur verkalýður
er hvattur til að sameinast án
tillits til ólíkra stjórnmálaskoð-
Vilja ekki láta
málefnin ráða
Hanníbal Valdimarsson birti
sl. sunnudag grein í Alþýðu-
blaðinu um kosningarnar til
Alþýðusambandsþings undir
fyrirsögninni „Látum málefn-
in ráða“. Niðurstaða greinar-
innar er þessi: „Ég tel rétt
að reyna að sameina öflin í
verklýðshreyfingunni um þýð-
ingarmestu stéttarmálin sem
við ætlum að berjast fyrir og
knýja fram á næstunni" og
nefnir Hanníbal til dæmis:
„Aukinn kaupmáttur launa
með lækkaðri dýrtíð. Sömu
laun kvenna og karla fyrir
sömu vinnu. Sama kaup fyrir
sömu tegund vinnu um land
allt. Jöfn aðstaða atvinnulífs-
ins hvar sem er á landinu og
miskunnarlaus barátta gegn
atvinnuleysi. Ríkisútgerð tog-
ara til atvinnujöfnunar.
Þriggja vikna orlof verka-
fólks. Atvinnuleysistrygging-
ar o.m.fl.“.
Grein Hannibals fylgir svo-
hljóðandi athugasemd: „Rit-
nefnd Alþýðublaðsins vill taka
það fram, að hún er ekki sam-
mála ofanbirtri grein í sum-
um atriðum“. Væri fróðlegt
að vita hverjum af þessum
stefnumálum ritnefnd Alþýðu-
blaðsins er andsnúin — en
eflaust á hún fyrst og fremst
við að það sé skaðleg villu-
kenning og kommúnismi að
láta málefnin ráða.
ana í órofa fylkingu um hags-
munamálin og heitið á hann að
taka saman höndum nú við
fulltrúakjörið um það að
hreinsa forystu heildarsamtak-
anna, Alþýðusambands íslands,
af fulltrúum atvinnurekenda og
auðvalds, en fela forystutrúnað
þeim einum, er þekktir séu að
trúmennsku við málstað verka-
lýðssamtakanna.
í þessum anda hafa kveðið
sér hljóðs Verkamannafélagið
Dagsbrún, Iðja, félag verk-
smiðjufólks og mörg fleiri fé-
lög í Reykjavik, þing Alþýðu-
sambands Vestfjarða, Verka-
lýðsfélagið Baldur á ísafirði,
Verkalýðs- og sjómannafélagið
Bjarmi á Stokkseyri, Verka-
lýðsfélögin á Akureyri, Siglu-
firði, Hafnarfirði, — og er þó
ekki hér talið nema af handa-
hófi. — Og enn streyma til
blaðanna samþykktir félaga,
sem fylkja sér undir merki
samstarfsins gegn atvinnurek-
endavaldinu innan ASÍ. Sem sé,
það er andi einingar og fram-
sækni sem nú fer eldi um land-
ið, hvar sem verkalýðssamtök
hafa slegið tjöldum.
Það fer heldur ekki framhjá
neinurn, sem fylgist með, að
öfl einingarinnar vinna drjúg-
um fulltrúa af hægriblokkinni
og að á hana hallar það sem
af er.
En þótt á vinnist og því beri'f
að fagna, mega stéttvísir verka-
menn og einingarsinnar, hvar í
flokki sem þeir standa, ekki
láta velgengni líðandi stundar
stíga sér til höfuðs né slæva
andvara sinn á neinn hátt. —
Það mega menn vita að and-
stæðingurinn gerir sér vel ljóst
hvað í húfi er og mun láta sér
til áminningar verða það sem
miður hefur farið hingað til.
Hann mun því margfalda krafta
sína hér eftir og freista þess í
síðari hálfleik að rétta við fylk-
inguna. Til þess mun ekkert
sparað, hvorki fé né afl. Allt
mun sett í gang.
Þess vegna verða einingar-
í annarri hvorri metaskálinni
og skipt sköpum. Enginn ein-
staklingur í verkalýðssamtök-
unum svo þýðingarlaus, að
hann geti ekki í baráttunni um
heildarsamtök stéttar sinnar
ráðið miklum örlögum.
Enginn einingarsinni má því
liggja á liði sínu. Enginn sitja
heima, þegar kjörfundur er í
þeirri falstrú að hans eina at-
kvæði geri „hvorki til né frá“,
jafnvel þótt • honum finnist
hann hafa „rök“ fyrir máli
sínu.
Enginn má heldur láta undir
höfuð leggjast að taka á sig
krók, ef möguleiki sýnist á að
afla fylkingu einingarsinna at-
kvæðis í baráttunni um stéttar-
samtök vor við atvinnurekenda-
valdið.
Hver einasti verkamaður,
kona sem karl, hver, sem skilur
hvað nú er barizt um, verður
að leggja sig fram af fullkom-
inni alúð og ekki láta neitt
tækifæri ónotað til að efla hlut
einingarsinna á 24. ASÍ-þing-
inu og ekki slaka á klónni fyrr
en marki er náð og kjöri lokið.
Einingarsinnar, fylgið eftir
unnum sigri. Haldið út. Þá er
sigurinn vís.
Kjörorðið err Burt með áhrif
atvinnurekendavaldsins úr for-
ystu Alþýðusambands íslands.
Hálshruut sig
í svefui
Kurt Jensen, garðyrkjulær-
lingur frá Brörup í Danmörku,
liggur nú hálsbrotinn á tauga-
skurðlækningadeild sjúkra-
hússins í Árósum. Pilt dreymdi
eina nótt, að hann væri kom-
inn í sundlaugina í Brörup og
ætlaði að fara að stinga sér.
Það gerði hann líka — sofandi
— af rúmstokknum, og rak
skallann svo óþyrmilega í gólf-
ið að banakringlan stórskadd-
aðist.
öflin, hvar á landinu sem er,
að einbeita huga sínum og vilja-
krafti að því að hnekkja gengi
andstæðingsins, halda velli
félögum þar sem áður hafði
unnizt sæti í fulltrúakjöri og
vinna af honum nýja fulltrúa.
— Ekkert hagsmunafélag
verkamanna er svo lítið né lág-
reist að það ekki geti orðið lóð
Enn er mikið rœtt og ritaJð um ferð brezku Verkamannaflokksfulltrúanna til Kína.
Hér sést Attlee halda ræðu í kínverska pinginu, sem hafði sérstaka samkomu til heið~
urs brezku gestunum. Aftan til sjást m.a. Aneurin Bevan ásamt forseta þingsins,
Kvo Mo-jo