Þjóðviljinn - 06.09.1957, Qupperneq 12
Mii vantar enn á ú áætlun bæjar- lliflillli LigMii
ins um íbuiabyggingar fái staiizt
Vinna viS 226 íhúðir sem hyrja átti á
i sumar hefur enn ekki verið hatin
Samkvæmt áætlun bæjarstjórnar Reykjavíkur áttu
framkvæmdir viö' smíöi 600 nýrra íbúða af bæjarins hálfu
uð vera hafnar í síðasta mánuði. Byrjunarframkvæmdir
vi'ð 226 íbúðir samkvæmt þessari áætlun hafa þó enn ekki
liafizt.
Framangreindar upplýsingar
voru gefnar á fundi bæjar-
Btjórnar í gær.
Ibúðirnar séu leigðar
Umræður um húsnæðismálin
hófust, er Þórunn Magnúsdótt-
ir, varabæjarfulltrúi sósialista,
vakti sem oftar máls á húsnæð-
isvandræðum þeirra herskála-
húa, sem við skarðastan fjár-
hagslegan hlut búa. Benti hún
J því sambandi á að herskála-
Krabbameéns-
má! rœdd í
bœjarstiérn
Á fundi bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær flutti Þórður Björns-
son tillögu um að borgarlækni
-og fræðsiustjóra bæjarins verði
falið að gera tillögur um hvern-
ig helzt megi vekja athygli al-
mennings, einkum æskufólks, á
skaðsemi tóbaksreykinga og sam-
bandi þeirra og krabbameins, og
jafnframt hvað skólarnir gætu
gert til að draga úr tóbaksnotk-
un.
Vék Þórður í framsöguræðu
sinni fyrir tillögunni m.a. að
niðurstöðum sem læknaráð Bret-
lands hefur sent frá sér um
Iressi mál. — Alfreð Gíslason
mælti mjög með tillögu Þórðar.
Tillaga þessi var samþykkt
með samhljóða atkvæðum bæj-
.arstjórnarfu'ltrúa.
SólWettir trufla
mjög f jarskipti
Sólblettir hafa valdið miklum
truflunum á fjarskiptum víða á
norðurhvelinu undanfarinn sól-
arhring. Otvarpssendingar á
stuttbylgjum hafa iegið niðri
klukkustundum saman vegna á-
hrifa þeirra sem sólblettirnir
hafa á efri lög gufuhvolfsins.
Búast má við áframhaldandi
truflunum á fjarskiptum af
þessum orsökum í vetur.
i-----------------------
Yíirlvsssig
Af marggefnu tilefni vil ég
undirritaður lýsa því hér með
yfir að ég . er ekki höfundur
greinar þeirrar sem birtist í
Þjóðviljanum 4/9 um vörubíl-
stjóradeiluna. Ég vil einnig taka
það fram að ég er að rrörgu
Jeyti ósamþykkur greinarhöf-
undi, enda er augljós; að hann
er of ókunnugur öllum aðstæð-
um til að lakast ó hendur að
fjalla um þá erfiðu deilu sem
löks tókst að leysa. Það er mín
skoðun að nefnd grein sé síður
en svo jákvætt framlag lil að
græða þau félagslegu sár sem
hin viðkvæma deila hlýtur að
skilja eftir hjá báðum deilu-
aðiljum.
Einar * Ögnmndsson
búar hefðu margir hverjir litið
vonaraugum til íbúðahúsa bæj-
£:rins við Gnoðavog, en þau
hefðu nú verið alllengi í smíð-
um. Fjölmargir herskálabúar,
einkum öryrkjar og stórar
barnaf jölskyldur, væru hins-
vegar svo fjárhagslega illa
staddir áð þeir gætu ekki not-
fært sér kauprétt á þessum í-
búðum. Bar Þórunn því fram
eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Beykjavíkur
ákveður að láta fullgera í-
búahús bæjarins v<ð Gnoða-
vog með það fyrir augtun
að selja íbúðirnar á leigu“.
Til vara: „Bæjarstjórn
Feykjavíkur ákveður að láta
fullgera 3 af húsuni bæj-
arins við Gnoðavog og selja
íbúðirnar á leigu“.
Baðhús %ið Elliðaárvog
Þórunn vék einnig að rað-
húsunum við Elliðaárvog og
bar fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Beykjavíkur
leggur áherzlu á að hraðað
sé ölltim undirbúningi að
byggingu bæjarhúsanna við
Elliðaárvog. Bæjarstjórnin
felur borgarstjóra að láta
fara frant útboð á byggiryi
húsanna hið allra fyrsta“.
Seinagangur á bæjarbyggingum
Guðmundur Vigfússon tók
einnig til máls og gaf þá m.a.
þær upplýsingar sem getið er í
upphafi fréttarinnar. Sagði
hann að svo virtist sem íbúða-
byggingar bæjarins hafi geng-
ið ákaflega hægt í sumar. I
sumum liúsunum hefði ekkert
verið unnið í þrjá mánuði.
Byggingar bæjarins gengu yfir-
leitt mun hægar en byggingar
einstaklinga eða byggingarfé-
laga.
Við lok untræðna var tiliögu
Þórunnar Magnúsdóttur um í-
búðirnar við Gnoðavog (einnig
varatillögunni) vísað til 2. um-
ræðu og athugunar bæjarráðs
milli funda, en síðari tillögunni
v|'r visað í ruslakistu íhalds-
ins, til bæjarráðs, með 8 at-
kvæðum meirihlutans gegn 5.
Föstudagur 6. september 1957 — 22.. árgangur — 199. tölublað
Áhöfn sovézku farþegaþotunnar TU-J04 á leið til flugstöðvar-
byggingarinnar á Keflavíkurflugvelli eftir komu flugvélarinnar í
lyrrad. Fremstur fer flugstjórinn Bugaéff. — Ljósm. Sig. Guðm.
Fegurðarsamkeppni karla
í Tívolí á sunnuda»iim
Slysavarnadeildin Ingólfur fitjar upp á
þessu nýmæli hér á landi
Þjóöviljanum barst sú frétt í gœr, a‘ö slysavarnadeildin
Ingólfur í Reykjavík efni til fegurðarsamkeppni karla í
Tívclí-garöinum n.k. sunnudag til ágóða fyrir starfsemi
sína. Verður þar keppt um titilinn „íslendingurinn 1957“.
Er þetta í íyrsta skipti, sem
s ík samkeppnj íer íram hér á
landi, en víða erlendis er slík
Brezka aljtýðusanibandið ítrek-
ar þjóðnýtingarkröfur sínar
Mótmælir með því afsláttarstefnu forystu
Verkamannaflokksins í því máli
Þing brezka alþýðusambandsins samþykkti í gær ein-
íóma ályktun sem ítrekar fyrri kröfur sambandsþinga
um þjóönýtingu helztu iöngreina.
Forysta Verkamannaflokksins
birti fyrir skömmu stefnuyfir-
lýsingu um afstöðu flokksins
til frekar’i þjóðnýtingar. Er þar
gengið miklu skemur en í fyrri
steíþuyfirlýsiþguna fjokksins í
þessum málum. Hefur þetta frá-
hvarf frá fyrri stefnu flokksins
vakið mikla gagnrýni bæði inn-
an fokksins og í verkalýðshreyf-
■ ngunni og kom sú gagnrýni
njög fram í umræðunum á al-
býðusambandsþinginu í Black-
oool í gær.
Umræðunum lauk sem áður
regir með því að samþykkt var
ályktun sem ítrekar þjóðnýting-
arkröfur fyrri þmga. Ályktun-
in var samþykkt einróma, nema
að nokkrir fulltrúanna sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Kaupgjaldsbaráttu
haldið áfram
Áður hafði þingið samþykkt
á'yktun þar sem algerlega var
vísað á bug þeim tilmælum í-
haldsstjórnarinnar að verkalýðs-
hreyfingin dragi úr kaupkröfum
sínum. Segir í ályktuninni að
á meðan ekki sé hafður neinn
hemill á gróða fyrirtækja og
almennu verðlagi. hljóti verka-
lýðshreyfingin að grípa til sinna
ráða til að tryggja að kaup
hækki í samræmi við hækkandi
verðlag.
Þingið samþykkti einnig í gær
að lýsa yfir stuðningi við aðild
Bretlands að frjálsum markaði
Vestur-Evrópu.
keppni árlegur og vinsæll við-
burður, einkum í Bandaríkjun-
um.
Keppendur víða af
Landinu
Fyrirkomulag kepptiinnar verð-
ur með þeim hætti, að allir
keppcndur, sem eru úr Reykja-
vík og víðar af landinu, koma
fram á Tívo'ípallinum kl. 3.30
síðdegis á sunnudaginn og veija
þá Tívoiígestir úr hópi þeirra
þrjá menn, er konta munu aftur
fram á pallinum tii úrslita strax
eftir að fyrri atkvæðatainingu er
lokið, en sá háttur verðut á
hafður, að hverjum aðgöngu-
rniða fylgja tveir atkvæðaseðiar
til. þess að veija í fyrsta, annað
og þriðja sæti. Að lokinni síðari
talningu atkvæða verður ,ís-
lendingurinn 1957“ hylltur og
verðlaun afhent.
Fyrstu verðlaun eru flugferð
til Lundúna og heirn aftur og
Framha'd á 10. síðu.
Fjölmenni er
Tu-104 kom vestur
Mikill mannfjöldi tók á móti
sovézku þotunni, TU-104, sem.
lenti á Keflavíkurflugvelli í
fyrradag, þegar hún kom til
Ba.ndaríkjanna. Um 200 blaða-
menn, ljósmyndarar og frétta-
ritarar útvarps og sjónvarps
voru staddir á flugvellinum
þegar hún lenti þar.
Fylkisstjóri hýst
við handtöku
Fylkisstjórimt í Arkansas x
i Bandaríkjunum, Orval E. Faub-
I us, sendi Eisenhovver forseta í
: gær skeyti og bað hann að
hindra fyrirætlanir sambands-
l"greglunnar um að taka hann
höndum. Fylkisstjórinn segist
hafa góðar heimildir fyrir því
að þetta standi til, vegna þess
að hann lét 200 hermenn í
fyrradag koma í veg fyrir að 9
svertingjabörn kæmust inn í
gagnfræðaskóla í Little Rock,
höfuðborg fvlkisins.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í
gærkvöld að enginn fótur væri
fyrir því að ætlunin væri að
handtaka Faubus fylkisstjóra.
Skókilerð
Á laugardaginn verður farin
vinnuferð í skála ÆFR
í
Eins og mörgum ÆF-félög-
urn er kunnugt liggur skál-
inn undir skemmdum ef
ekki verður gert v:ð hann
fyrir veturinn.
Skálastjórn vill hér með
skora á alia velunnara skál-
ans, eldri sem yngri, að
taka þátt í þessari vinnu-
ferð.
Þar sem þarf að útvega
bíla til að ílytja fólkið
uppeftir, eru menn beðnir
að tilkynna þátttöku sína
sem fyrst i Tjarnargötu 20.
Sér.staklega skal þe:m, sem
hafa htig á að sækja akíða-
ferðir í skálann í vetur,
bent á, að taka þátt í þess-
ari vinnuferð, þá kemur
skálinn þeim betur að not-
um.
np •• ' r 1 *
ívo ny trimerki
komu át í gær
í gær gaf póst- og síma-
málastjórnin út tvö ný frímerki.
I Eru þau helguð skógræktinni
með myndmn af trjám og áletr-
uninni „Klæðum landið“. Verð-
| gildi merkjanna er 35 og 70
j aurar.
Frímerkin eru teiknuð at frii
| Barböru Árnason og prentuð
í hjá Thomas de la Rue & Cp„
\ Ltd. London.
IF angabuðavörður
dæmdur í Berlín
Dómstóll í Vestur-Berlín
dæmdi í gær mann að nafni
Otto Loch í ævilangt fangelsi.
Honum var gefið að sök að
hann hefði myrt sjö fanga af
gyðingaættum í Auschwitz-
fangabúðunum á stríðsártmum,
en þar var hann fangavörður.