Þjóðviljinn - 20.04.1958, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 20.04.1958, Qupperneq 7
-j. • „ .Sminudaguc.,.gQ. 7- Berlín dagsins i dag á sér énga hliðstæðu í sex áraþús- unda sögu bæja og borga. Milljónaborg, sem þróazt hafði iim aldaraðir, dregið til sín mikinn hluta af fullvinnslu- iðnaði mesta iðnaðarveldis á meginlandi Evrópu og verið aðsetur rikisstjóma, sem tvisvar á einum aldarf jórðungi gerðu æðisgengnar tilraunir til að leggja undir sig álfuna, hefur verið klofin í tvennt með einu pennastriki. M“rkin milli Austur- og Vestur-Ber- línar búta sundur sumar göt- ur og skipta öðrum að endi- löngu. Stjórnir borgarhlut- anna liggja í sífelldum illdeil- um. Flestum götum, isem milli borgarhlutanna liggja, hefur verið lokað, en þar sem enn er opið vegfarendum stendur dag og nótt lögregluvörður í Beriín. Stjómendur Vestur- Berlínar hafa skírt borgar- .hluta sinn „Vígstöðvaborg- ina“ og haga sér samkvæmt því. Austur-Þýzkaland er frá náttúrunnar hendi fátækari hluti Þýzkalands, vi'ða harð- býlt og iðnaðarhráefni nær engin nema brúnkol. Við það bætist að á fyrstu árunum eft- ir stríðið tóku Sovétríkin tölu- vert af vélum og öðrum at- vinnutækjum og hluta af framleiðslunni upp í stríðs- skaðabætur. Á sama tíma losnaði Vestur-Þýzkaland ekki aðeins að mestu við greiðsbi stríðsskaðabóta, bangað strevmdi bandarískt f jánnagn, bæði marshalldollarar og einkaf jármagn. Eins og í pott- inn var búið hlaut bví end- urreisnin eftir stríðið að ganga mun hraðar í Vestur- KLOFIN Brandenborgarhliðið á Unter den Linden stendur við mörkin milli borgarhlntanua í Berlin. Beggja. vegna liliðsins standa lögreglusveitir, sem líta inn i bíla vegfarenda, Hliðið sjálft cr i Austur-Berlín og borgarstjómin þar er að láta gera við stríðsskemmdirnar. Skammt frá Brandenborgarhliðinu en í Vestur-Berlín stattda útveggir þinghailarinnar, þar sem uazistar tendruðu brunann fræga. Þeir eru nú að mestu mnluktir vinnupöUmn viðgerðarmanua. báðu megin við markalínuna. I»að eina sem er borgarhlut- unum sameiginlegt er neðan- jarðarbrautin og borgarjám- brautin ofanjarðar. ,1 stríðslok var Þýzkalandi skipt í fjögur hemámssvæði milli Bandaríkjanna, Bret- lands, Frakklands og Sovét- ríkjanna. Berlín var einnig skipt í fjóra hemámshluta. Þegar hernámsstjóm þe=sara BORG fjögurra ríkja yfir Þýzka- landi öllu leystist upp og ríki var stofnað af hernámssvæð- um Vesturveldanna með stjómarsetri í Bonn, hélt her- námsstjómin í Berlín áfram störfum og er enn við lýði, þótt hún sé núorðið lítið annað en nafnið tómt. Borgarhlutar Beriínar eru því ekki að form- inu til hlutar þýzku ríkjanna tveggja. Vestur-Berlín sendir áheymarfu'ltrúa á þing Þvzka 'sambandslýðveldisins í Bonn, en er undir stjóm borgarráðs, sem nefnist senat. f Austur- Berlin nefnist borgarráðið magistra-t og borgarhlutinn er eldki stjómskipuleeur hluti Þvzka albýðuveldisins — (DDR), þótt stjóm þess hafi þar aðsetur. Klofningur Þýzkalands og Beriínar varð endanlegur fvr- ir áratug, þegar peningaskipti vora framkvæmd í Vestur- jÞýzkalandi og Vestur-Berlín án samráðs við yfirvöldin í austurhluta lands og borgar. Eðlileg viðskÍDta- og atvinnu- tengsl rofnUðu i einu vetfangi, þegar ekki var lengur um sameiginlegán gjaldmiðil að ræða. Afleiðiugamar voru , langtum alvarlegri fyrir aust- urhlutann, mestabur iðnaður þar var vinnsluiðnaður. sem frá fomu fa.ri hafi urmið úr hráefnum frá Vestur-Þýzka- landi. Af hálfu Vesturveld- anna var líka leikurinn til hess gerður að skaDa. algert öng- þveiti í atvinnulífi Austur- Þýzkalands. Svarið var hið langvinna bann við samgöng- um á landi við Vestur-Beriín, sem liegur miðsvæðis í Aust- ur-Þvzkalandi. Síðan peningaskÍDtin fóru fram hafa vesturfc,ýzk stiórn- arvöld haldið uppi grimmilegu viðskiptastríði gegn Austur- Þýzkalandi. Stiómarvöldin í Bonn gera austurbýzku at- vinnulífi eins erfitt. fvrir og þau geta,. með bví að neita um 'stéinkol, stál oor önnur hrá- efni, sem V-Þvzkaland hefur jafnan ha.ft gnægð af en Aust- ur-Þýzkaland skortir. Hvergi er viðskiptastríðið harðara en Þýzkalandi en Austur-Þýzka- landi. Þennan aðstöðumun hafa vestnrþýzk stjóraarvöld hag- nýtt sér af fremsta megni til að lokka fólk vestumm, en sá fólksstraumur hefur svo orðið ein helzta máttarstoðin undir gróðasöfnun vesturþýzkra at- rinnurekenda. Straumurinn að austan hefur tryggt þeim ó- dýrt vinnuafl, landlægt at- vinnuleysi í Vestur-Þýzka- landi, sem sjaldan hefur kom- izt langt niður fyrir eina milljón, hefur torveldað verka- lýðshreyfingimni þar alla kjarabaráttu. Vestur-Berlín hefur verið og er enn sýningargluggi Vest- ur-Þýzkalands gagnvart Aust- ur-Þýzkalandi. Svo vill til að helzta verzlunargata borgar- innar frá fomu fari, Kurfiirst- endamm, er í Vestur-Berlin. Þar verzlaði fólk, þegar það vildi fá það bezta, sem á boð- stólum var í höfuðborginni. Allt hefur verið gert sem unnt er til að rækta fcessa grmlu hefð. Sprengjuskörðin hafa verið fyllt með verzlunarhús- um, beggja vegna Kurfiirsten- damm er óslitin röð verzlana. Kaupanda frá Au'stur-Ber- Mn eða Austur-Þýzkalandi stendur þama ýmislegt til boða, sem ekki er að jafnaði á boðstólum í verzlunum heima hjá honum, svo sem virginíatóbak, ítalskir skór, frönsk vin, ósvikið súkkulaði og suðrænir ávextir. Megin- hluti erlends gjaldeyris, sem Austur-Þýzkaland aflar, fer til að greiða innflutt hráefni til iðnaðarins, erlendar munaðar- vömr em látnar sitja á hak- anum. En sá hængur er á, að í Vestui^Berlín verður kaupand- inn að austan að greiða f jög- ur af sínum mörkum fýrir hvert vesturmark. Fyrst eftir peningaskiptin var gengið níu á móti einum, en hefur stigið smátt og smátt. Nuverandi gengi er algerlega óraunhæft frá efnahagslegu sjónarmiði það er pólitískt gehgi, sem haldið er við lýði með ótak- mörkuðum fjárstyrk frá Bonn og Washiagton við Vestur- Berlín. Rétt gengi væri að dómi kunnugustu manna eitt og hálft austurmark móti einu vesturmarki. Ekkert er sparað til að halda við póli- tíska genginu, sem er ekkert annað en vopn i kaída stríð- inu, til þess sniðið að koma þeirri hugmynd inn hjá íbúum Austur-Þýzkalands, að ríki þeirra sé aumkunarverður eft- irbátur Vestur-Þýzkalands. Þegar gengið er um götur í báðum hlutum Berlínar, bor- ið saman verð í búðarglugg- um og spurzt fyrir um verð- lag á þvi sem þar er ekki sýnt að jafnaði, kemur í ljós að flestar brýnustu lifsnauð- synjar em ódýrari í Austur- Þýzkalandi. Einna mestur er munurinn á Iiúsaleigu, sem mjög sjaldan er hærri í Austur-Þýzkalandi en tíundi hluti launa og oft lægri, og á kolum til hitunar, 100 kíló af þeim kosta í Austur-Þýzka- landi 1.92 mörk en í Vestur- Berlín 4.33 mörk. Fargjald með almenningsfarartækjum í Austur-Berlín er 2Ó pfeimigar en 30 pfennigar í Vestur- Berlín. Algengustu matvæli, svo sem kart“flur brauð, eru ódýrari eystra en vestra. Á ýmsum iðnaðarvörum, svo sem vefnaðarvöru úr baðmull, búsáhöld og leikföngum, virð-. ist lítill verðmunur. Bækur og hljómplötur em mun ódýrari eystra en vestra. Þegar kem- ur að innfluttnm vömm breyt- ist samanburðurinn vestrinu í hag. Iæðurskófatnaður, ull- arfatnaður, tóbak, kaffi og súkkulaði eru til dæmis mun ódýrari í Vestur- en Austur- Berlín, úrvalið meira og varan betri. Þegar á he'ildina er lit’ð lifa þeir sem úr lit'u hafa að s.pila við betri kjör í Aurtur-Þýzka- landi en Vestur-Þýzkalandi, en þeir sem hafa efni á að veita sér munað ou þægindi hafa mun betri skilyrði til þéss í yéstúrhluta landsins en íiusturb'utsmim. Vesturþýzkir hagfræðingar viðurkenna, að þeir sem hafa. 300 marka tekj- ur og þar fyrir neðan á mán- uði komist betur af í Austur- en Vestur-Þýzkalandi. Austur- þýzldr forustumenn halda því fram að markalínan sé nálægt 500 marka mánaðartekjum. Fólki sem hafi lægri tekjur en það verði meira úr þeim í A-Þýzkalandi, en þeir sem komist hærra i tekjustiganum geti aflað sér meira fyrir peningana. í Vestur-Þýzka- landi. Hagskýrslur sýna að í Vestur-Berlín hafa 55% vinn- andi fólks 300 mörk eða minna í tekjur á mánuði en aðeins 12% yfir 500 mörk á mánuði. Árið 1956 voru mán- aðartekjur iðnverkamanna í Austur-Þýzkalandi 396 mÖrk að meðaltali. 1 Berlín lýstur tveim ólík- um hagkerfum saman. Hömlur em engar á samgöngum milli borgarhlutanna, menn geta labbað að vild fram og aftur yfir markalínuna, ekið yfir hana i bílum eða almeunings- farartækjum. Talið er að 300.000 til 400.000 manns leggi leið sína yfir markalín- una á degi hverjum. Lögreglu- eftirlitið beinist nær eingöngu að éinkabílum og hlutverk þess er að hindm smygl á vömm og prentuðu máli, en blöð frá austurhluta borgar- innar era bannvara í vestur- hlutanum og gagnkvæmt. Gervigengið á austurmarkinu, sem haldíð er upDi i Vestur- Berlín, gefur auðvitað tæki- færi til víðtæks gjaldeyris- brasks. Fyrir þá sem kaupa austurmörk í Vestur-Berlin er flest hlægilega ódýrt í austurhluta borgarinnar. Þess er því krafizt í austurhlutan- um við flest viðskipti, að menn færi sönnur á að þeir séu he'mamenn og sýni ef svo er ekki að þeir hafi aflað sér austurmarka á genginu sem þar er viðurkennt, eitt vestur- mark á móti einu austur- marki. Undan þessu eftirliti er þó skilin sala aðgöngum'ða að leikhúsum og kvikmynda- húsum og ýmiskonar þjón- usta, svo sem snyrting, skó- viðgerðir, fatasaumur og fléira. Töluvert er um það að fólk býr í öðrum borgarhlut- anum en vinnur í hinum, um 23.000 íbúa Austur-Berlínar vinná í vesturhlutanum og 17.000 manns frá Ve«t.ur-Ber- lín vinna ! austurlilutánum. 1 báðum borgarhlutum fær þetta fólk ákveðinn liluta af vinnulaunum greiddan í gjald- miðli borgarhlutans sem ]>að býr í á genginu einn á móti einum. Eins og áður er getið eru járnbi’autarsamgöngur ofan jarðar og neðan eina stofnun- in, sem er báðum hlutum Ber- línar sameiginleg. Öll önnur opinber þjónusta, sem óhjá- kvæmileg er í stórborg, er tvískipt. Sín rafveita er fyrir hvorn borgarhluta, sporvagn- ar og strætisvagnar ganga ekki yfir markalínuna og ekk- ert beint símasamband er milli borgarhlutanna, Þar sam markalínan liggur eftir endi- löngum götum, verða menn sem búa sinn hvoru meyin götunnar að fá samband um Leipzig eða Hamborg til að geta talazt i/ið í síma. Stjómmálalíf í Berlin er með nokkuð öðrum hætti en í öðmm hlutum Þýzkalands. 1 Austur-Berlín starfar Sós'al- demókrataflokkurinn, sem hvarf úr söyunni í Austur- Þvskalandi, fcearar hann og Kommúnistnf'okkurinn mynd- uðu Sósialistiska einingar- flokkinn. Sá flokkur er eins og Kommúnistaf'okkurinn bannaður í Vestur-Þýzkalardi, en er leyfður í Vestur-Berlín. Ekki verður séð að Sósíal- demókrataflokkurinn fcurfi að fara í neinar felur í Austur- Ber'ín, undirritaður rakst af tilvi'iun á áberandi merktar skrifstofur hans á þrem stöð- um í horgarh'utanum í síðasta mánuði. 1 Vestur-Berlín er kost.i Sósíalistíska einingar- fiokks'ns fcrengt með vmsum í'áðum, svo 'sem atvinnnof- sóknum. Einnig liggia vfir- vö'din þar á fcví lúalagi að svinta stuðningsmenn hans rét.ti til bóta fvrir ofsóknir, sem fceir eða beirra náhnstu urðu að þola á stjórnarárum naz'sta. L"ngu er alkunnuv'’. pð Vestur-Berlín e” miðstöð níósna og undirrrð”r« af •há'fu Vesturveldanna í Aust- úr-Evrópu. Skemmst er að minnart jarðkanganna mik'ú, sem Banda.ríkiamenn grófu undir (svæðamörk'n. tU að geta hlerað símtöl á. aðal- streng símans í Ans'nr-Ber- lín. Austurbvzk yfirvöld segi- ast v'ta deili á 104 njós”a- og vndirróðursstofnunum, som starfa í Vestur-Ber'in. M. T. Ó.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.