Þjóðviljinn - 02.11.1961, Síða 3
Þorleiíur Einarsson segir frá rannséknar-
ieijangiinum íii eldstöðvanna
Þátttakendur í fyrsta rann-
sóknarleiðangrinum til ö-skju-
gossins komu lil Reykjavíkur
í fyrrakvöld. Jarðfræðingarnir
Siguröur Þórarinsson og Þor-
leií'ur Einarsson og Guðmund-
ur Sigvaldason jarðvegsfræð-
ingur dvöldu tvo daga við
eldstöðvarnar. Með þeim var
Árni Stefánsson sem kvik-
myndaði gosið.
Þjóðviljinn hafði-í gær tal
af Þorleifi Einarssyni, sem
sagði að leiðangurinn hefði
náð tilgangi sínum. Þeim fé-
lögum tókst að gera þær at-
huganir á gosinu og hraun-
inu frá því sem þeir ætluðu
sér.
Við lögðum af stað um há-
degi á föstudag í flugvél með
Birni Pálssyni, sagði Þorleif-
ur. Frá Fjórðungsöldu var
flogið undir skýjum norðan
Dyngjufjalla til austurs yfir
Vikrafell og hraunstraumana.
Svo var flogið til Akureyrar
og haldið þaðan til öskju í
jeppabílum.
Komið var að hraunrönd-
inni við Vikrafell um mið-
nætti og að gígunum milli
klukkan þrjú og fjögur um
nóttina. Þar var dvalið til
hádegis við athuganir.
Gosspiungan liggur
frá austri til vesturs
Gosið hefur upphaflega
lcomið úr 500 til 600 metra
langri sprungu sem myndazt
hefur rétt innan við öskju-
op og liggur frá austri til
vesturs. Hún hefur því þver-
öfuga stefnu við það sem tíð-
ast er um gossprungur hér á
landi. Þegar okkur bar að
gaus aðeins á 100 til 150 m
kafla í austurenda sprungunn-
ar.
Á laugardag þeyttu gígarnir
glóandi hraunleðjunni hæst á
að gizka 250 metra í loft upp.
Á sunnudag hafði dregið svo
úr goskraitinum að gusurnar
gengu ekki hærra en 50 til 100
metra upp í loftið.
Gusurnar úr gígunum komu
þetta 30 til 35 á mínútu og
náðu misjafnlega mikilli hæð.
Eidsúlan var ýmist lóðrétt
eða á ská. Þær beinu iéllu að
mestu niður í gígana aftur
en hinar gengu að meira eða
minna leyti út á og út yfir
gígbarmana.
Mest af hraunieðjunni flóði
þá beint út úr gígunum.
Af gosinu var samfelidur
gnýr, ekki ósvipaður hávað-
anum frá gufuborholum.
Rann mefra á mínútu
Rétt eftir að við komum
seint á laugardagsnóttina
mældum við mestan hraða á
hrauninu, segir Þorleifur. Þá
rann það fram um einn metra
á hverri mínútu. Hrauntungan
flóði yfir landið með þessum
hraða en hraunið veltist ekki
fram.
Gígarnir þar sem hraunið
kemur upp eru alveg við suð-
urendann á öskjuopi í 1100
metra hæð. Á sunnudag var
hraunbrúnin komin niður fyr-
ir 700 metra hæð.
Hraunið var á sunnudag
orðið um 10 kílómetra langt
og flatarmál þess er áætlað
10 til 15 ferkílómetrar, eða
þrisvar til fjórum sinnum
minna um sig en Hekluhraun-
ið frá 1947, en það er 40 fer-
kílómetrar og rann í 13 mán-
uði en þetta í fjóra daga þeg-
ar við vorum þar. öskjuhraun-
ið nýja er ekki nema fimm-
tugasti 'hluti af flatarmáli
Skaftáreldahraunsins sem nær
yfir 565 ferkílómera.
Rúmtak nýja hraunsins hef-
u.r ekki verið áætlað enn, en
fuilyrða má að það er hundr-
að sinnum minna en Skaftár-
eldahraunsins. Eftir að gosinu
„Logandi standa í langri röð ljósin á gígastjaka". Gossprungan séð að sunnan. Að minnsta
kosti fjórir gígar gjósa allt að 150 metra. — Þorlcifur Einarsson tók myndirnar.
Hraunröndin í Oskju sunnan gígaraðarinnar. Upp af hrauninu leggur gufu frá bráðnandi snjó.
Lengst til vinstri sést mökkurinn frá öðrum stóra leirhvernum.
ly-^ur er það eitt verkefni ví-s-
indamanna að mæla hraunið
af þeirri nákvæmni sem við
verður komið.
1100 til 1200 stiga
heitt hraun
Trausti Einarsson prófessor
fór til öskju til að mæla hit-
ann í hrauninu. Ekki hefur
enn verið losið úr þeim mæl-
ingum, en við gizkuðum á að
hitinn inni í hrauninu væri
1100 til 1200 stig og um 1000
stig í jöðrunum, segir Þorleif-
ur. Það .er því líklega heitara
en Hekluhraunið var 1947.
Vegna hins háa hitastigs er
hraunleðjan tiltölulega þunn-
fljótandi og breiðist því
hraunið meira út en ella
myndi.
Þetta er mesta hraungos sem
orðið hefur í öskju síðan sög-
ur hófust.
Gömlu hraunin þar eru
misgengin og því er talið víst
að þau séu eldri en íslands-
byggð, en um nánari aldurs-
ákvörðun er ekki að ræða, því
þarna er enginn jarðvegur
sem varðveitt gæti öskulög.
Ekki hafa menn enn gefið
þessu yngsta öskjuhrauni
neitt nafn, en það kemur vafa-
laust þegar frá líður.
Voru nærri lentir
í Víti
Við gengum að Víti, sagði
Þorleifur, og sáum að það
var þakið vikri. Vikurinn hef-
ur borizt suður frá gosstaðn-
um, því norðanátt var þegar
gosið hófst. Þarna eru stórir
vikurskaflar og mikill vilcur
flýtur á öskjuvatni og safnast
saman meðfram löndunum.
Vikurbreiðan er allt að meters
þykk.
Ferðafólk sem fyrst kom að
Víti hélt að það væri þurrt
þegar það sá vikurinn sem
huldi yfirborð þess. Munaði
minnstu að menn færu út á
vikurbreiðuna, en sem betur
fer varð ekki af því. Enginn
væri Sfuhdsvérðui* af að lenda
í leðjunni í Víti. ■
Leiðangursmenn tóku .sýnis-
horn af hrauni og vikri og
verða þau nú rannsökuð.
ísland er enn að
myndast
Við fórum í annað skipti til
eldstöðvanna á sunnudags-
morgun og vorum þar fram í
myrkur, segir Þorléifur. Þann
dag var skafbylur og færi
þungt, skygni lélegt en lys-
ingin tilkomumikil, þegar
bjarminn frá gjósandi eldgíg-
unum og hrauninu lagði á
skýin.
Á mánudaginn fóru þeir
leiðangursmenn svo til Akur-
eyrar og komu suður í fyrra-
dag.
Það var afar fróðlegt og
gagnlegt að fá tækifæri til að
fylgjast með svona gosi, segir
Þorleifur. ísland er nær ein-
göngu byggt upp af blágrýtis-
hraunum, og öskjugosið er
síðasta dæmið um að jarðeld-
urinn heldur áfram að hlaða
hrauni á hraun ofan. Sérstak-
lega er gagnlegt að koma
þarna fyrir okkur yngri menn-
ina sem vinnum jai-ðfræði-
störf en áttum þess ekki kost
að kynna okkur síðasta Heklu-
gos að neinu gagni.
í dag leggur nýr leiðangur
af stað til öskju. í honum
eru jarðfræðingarnir Sigurð-
ur Þórarins-son, Guðmundur
Kjartansson og Tómas
Tryggvason og Guðmundur
Pálmason eðlisfræðingur. Gert
er ráð fyrir að þeir verði í
leiðangrinum framyfir helgi.
Þorleifur leggur að lokum
áherzlu á að óráðlegt sé fyr-
ir fólk að reyna.. að ,kQma§t
til öskju til að skoða elds-
umbrotin. Nú er allra veðra
von og ár Herðabreiðarlindum
er leiðin þegar orðin ófær
bifreiðum.
Vísa dagsins
Ef þú skoðar öskjupytt
með öðrum hraunabrokkum,
gleymdu ekki gullið mitt
að ganga á nælonsokkum.
S.D
Fimmtudagur 2. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN —