Þjóðviljinn - 08.07.1962, Page 7
ð (1944).
legur spurt um fagurt eða ó-
fagurt. Hér er verstu hliðum
okkar tíma lýst af listrænni
snilld. Eg hef oft séð leiðsögu-
menn sýna safnið og heyrt
heimskulegar spurningar ferða-
manna og leiðsögumennina lít
rlsvirða, gagnrýna, hæða og
sniðganga. En ég hef einnig
séð mexíkanska verkamenn i
vinnufötum og Indíána í sara-
pes standa þögula og djúpúðga
frammi fyrir þessum stórfeng-
legu myndum hans, og ég hef
séð þá ganga brott, samanbitna
með fjarræna tjáningu ii aug-
um.
Því að hér er talað án um-
svifa um hið falska lýðræði
og misnotkun á markmiðúm og
hugmyndum byltingarinnar. Á
veggjamálverkunum í Mexikó
getur hver og einn séð hvað
var þar málað, fyrir hverju var
barizt, þangað getur maður
sótt nýian kraft og innblástur.
í augum margra er Mexíkó
land frelsisins og þannig var
það eitt sinn. En sílðan Lazaro
Cárdenas hvarf úr forsetastóli
órið 1940 hefur landið sífellt
orðið háðara hinum mikla ná’
granna sínum, Bandaríkjunum.
Það er eitt af þeim vanþróuðu
löndum sem þegið hafa mikla
aðstoð. Á síðastliðnum sjö til
átta árum hafa þjóðartékjurnar
aukizt um næstum 50 prósent,
fátækasti hluti þjóðarinnar
hefur samt orðið enn fátækari,
kjör millistéttarinnar hafa ekki
batnað, heldur hafa verðhækk-
anir þvert á móti rýrt kaup-
máttinn. Hinir ríku hafa aftur
á móti orðið enn ríkari. Þetta
er hið logna lýðræði sem Siqu-
eiros beitir sér gegn. í nafni
lýðræðisins er gripið til ólýð-
ræðislegra aðgerða. í hinu
„lýðræðislega“ Mexíkó eru
3000 pólitískir fangar lokaðir
inni. Hin framfarasinnuðu öfl
hafa stofnsett nefnd sem vinn-
ur að frelsun þessara fanga og
er Siqueiros forseti hennar.
Blað kemur út á vegum nefnd-
arinnar og ritstjóri þess er hinn
74 ára Filomeno Mata. Hann
hefur verið dæmdur i átta ára
fangelsi fyrir „hæðní við stjórn-
arvöldin“. Þetta gerist 50
eftir að einræðisherrann Por-
firio Diáz handtók föður hans
fyrir sömu sakir.
Þjóðir rómönsku Ameriku
heyja frelsisbaráttu eins og
Afríkuménn. Frelsun Kúbu
hefur gefið almenníngi í fóm-
önsku Amertku tru á framtíð
án lýðræðislegs lýðskrums. En
gagnráðstáfanifnar hafa jafn-
framt ve'rið hertar. í tíu lönd-
um álfunnar er kommúnista-
flokkurinn bannáður. Þegar
aðstæður erú hafðaf í huga
verður dómurinn skiljanlegri.
Siqueiros er einn einörðustu og
öbuganlegustu baráttumanna
fyrir 'frelsun Mexíkós undan
nýlendukúgun ií sérhverri
mynd, erlendum ítökum og
rányrkju kapítalismans. Ýmis
merki eru sjáanleg um þrýst-
ing erlendis frá. Jafnframt því
Andlitsmynd vorra tíma (1947).
sem fólkí‘er bannað að láta í
l'Jós velvild sSna til Kúbui á
fjöldafundum áraéðá' stjórnar-
völdin ekki að beitá: sér opin-
iberlega gegn ■ Cáströ.
..'qinr.
Yfirvöidin í. Mexíkó hafa lokað
þennpn stríðandi risa inni, en
á sama tlíma er hann heiðraður
opinberlega sem einn bezti son-
ur lands síns. Á mexíkanskri
sýningu í París, „Mexrköqsk
list í 3500 ár“ sem haldin ’er
í Petit Paláis, ér heill salur
með 20 málverkum og lito-
grafíum helgaður þesáum
mikla málara.
En fyrst og fremst er Siqu-
eiros óþreytandi baráttumaður
fc listinni. Fáir hafa numið
jafnvíðáttumikil lönd með sí-
felldum tilraunum með fjöl-
breytt efni og tæki okkár
tæknitíma. Árangur hans hef--
ur orðið listinni til góðs langt
út fyrir Mexikó.
„Hvernig ætti maður að geta
skapað listaverk án þess að
'þekkja til stjórnmála", sagði
Siqueiros. Stjórnmáiaiþekkirig
og aískipti af vandamólum
tímans er ekki nægileg til
•að gera' menn að lista-
mönnum og starf þeirra á list-
rænum vettvangi nægir heldur
ekki eitt saman. Það sem lyftir
verkum Siqueiros, það sem
gerir þau að miklum listaverk-
um, er innsæi hans, ákaflyndi
og samkennd svo og hæfileikar
snillingsins til að gefa öilu
þessu my.ndrænt form. Það er
tjáningarform sem er svo ál-
gjörlega hans eigin að maður
efast aldrei þégar maður stend-
ur frammi fyrir einhverju
verka hans.
Hin mexíkanska list og þar
með list Siqueiros hafa mann-
inn í brennipunkti. Mexíkönsku
listamennirnir 'hafa -samið
hetjuóð um þjóð slina og þá
jafnframt um allt mannkyn
okkar tíma.
Við erum þúsundir sem
krefjumst: Látið Siqueiros laus-
an, því að við krefjumst frelsis
handa listinni og við krefjumst
þess að lýðræðislegt frelsi sé
virt. Við sendum hjartanlega
kveðju i fangelsið til hins óbil-
gjarna baráttumanns fyrir
málstað frelsisins.
Per Ulrich.
Verkfræðingurinn varí
Bergmál af ópi (1437) Guernica-mynd Siqueiros.
HANNOVER — Svefntruflanir,
ógleði til vinnu. ofþreyta, krans-
æðastífla, lijartsiáttur og maga-
veiki hrjáir íbúa borgarhverfis
eins í Hannover. Ástæðan er
hávaði frá býggingaframkvæmd-
um í nágrenniim. íbúarnir lögðu
fram kæru gegn þeim sem á-
byrgð bæri á hávaðanum. Ur
þessu urðu hin athyglisverðustu
málaferli, sem lauk með því að
byggingarverkfræðingurinn var
dæntdur í 1000 marka sekt.
Verkfræðingurinn stjórnaði
framkvæmdum á stórum vinnu-
stað, þar sem ver.'ð var að reisa
stór íbúðarhús. 02 bo.rgaryfir-
völdin voru að láta leggia stóra
skólpleiðsiu neðanjarðar. Hávað-
ínn. sem fólk í nærliggjandi
húsum varð að þola, var allt að
80 fón að styrkleika á svölum
húsanna og 40 fón inni í lok-
uðurn húsum.
I úrskurði undirréttar í Hann-
over. segir, að byggingaverkfræð-
'ingurinn' .sé ábyrgur. ‘hann hafi
vanrækt að lelta aðstoðar sér-
fræðinga til bess að reyna að
rninnka hávaðann af fram-
kvæmdunum eins mikið og
hægt var.
Byggingaframkvæmdunum verð-
ur ekki lokið fyrr en eftir niu
mánuð:. Ef íbúar borgarhveríis-
ins verða fyrir verulegu ónæði
framvegis. geta þeir lagt fram
aðra kæru. Ekki er talið hugs-
anlegt að hætta þessum fram-
kvæmdum, þar sem þegar er
búið að kosfa til þeirra tugum
mllljóna.
fanaelsi
I
I
t --»•
r
■-m.
Sunnudagur 8. jú)í 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (7^