Þjóðviljinn - 24.07.1962, Qupperneq 1
■’t'W In-VW'MT - -”~- HM" ■- - .
VILIINN
Þriöj«da°ur 24. júlí 19G2 — 27. árgangur — 1G3. tölublað.
f Á miðnætti sl. laugardag voru
$ ihæstu sikip á síldiveiðunum
þessi:
i Víðir II. Garði 12.840
I Eldborg, Hafnarfirði 11.541
1 Höfrungur II., Akranesi 11.304
, Guðm. Þórðarson, Rvk. 10.308
I ÖI. Magnússon, Akureyri 10.290
1 Helgi Helgason, Ve. 10.244
| Heíga, Reykjavík 10.135
i Guörún Þorkelsd., Eskif. 9.953
1 Seiey, Eskifirði 9.764
| Bergvík, Keflavík 8.937
Skírnir, Akranesi 8758
Jón Garðar, Garði 8472
Árni Geir, Keflavík 8149
Leifur Eiríksson, Rvík 8141
Anna, Siglufirði 8048
Akraborg, Akureyri 8029
SILDVEIÐIN ALDREI
SÍÐUSTU
DAGA
Síðustu sólarhringana hefur verið gífurleg síld-
veiði fyrir Norður- og Austurlandi, ekki hvað sízt
á vestursvæðinu, út af Skagagrunni og Sléttu-
grunni og við Kolbeinsey. Telja reyndir sjómenn
sig aldrei hafa orðið vara við jafnmikið síldarmagn
á miðunum og nú.
• I inngangi vikuskýrslu Fiski-
félags íslands, sem blaðinu barst
í gær segir svo um gang síld-
veiðanna:
• Mjög góð síldveiði var síðustu
viku og er þetta bezta aflavika
um 15 ára skeið. Veiðiveður var
ágætt rfla vikuna. Síldin veidd-
ist aðallega úti fyrir Austfjörð-
um. en scinni hluta vikunnar var
töluverð veiði útaf Sléttu og við
Kolbeinsey og var það góð sölt-
unarsíid.
• Vikuaflinn var 361.501 mál og
tunnur. (í fyrra 220.057) Ileildar-
aflinn í vikulokin var 851.563 mál
og tunnur (í fyrra 796.487).
• Aflinn hefur vcrið hagnýttur
svo sem hér segir: I salt 144.538
uppsaltaðar tunnur. (í fyrra 318.
367. I bræðslu 687.122 mál (í
fyrra 464.641. I frystingu 19.903
uppmældar tunnur. (1 fyrra 13.
479).
• Vitaö er um 221 skip, sem
hafa fengið einhvern al|á (í fyrra
218) og af þeim höfðu 216 aflað
1000 mál og tunnur eða meira (í
fyrra 202).
Siglufirði, 23/7. — Gríðarxnikil
síld veiddist um helgina. Síð-
ustu þrjá sólarhringana hefur
síldarleitin fengið tilkynningar
um um það bil 250 þúsund mál
og tunnur, sem flotinn hefur afl-
að fyrir norðan og austan. Lang-
mest af þessari síld kemur hing-
að til Sigtufj. og ’hér er saltað af
henni það sem hægt er en hitt
fer í bræðslu. Má heita, að ó-
slitinn straumur síldveiðiskipa
hafi staðið inn fjörðinn þessa
daga, og þau eru nær öll með
fuilfermi.
Mikið annríki er á Siglufirði,
bæði h.iá síldarverksmiðjunum og
eins hjá söltunarstöðvunum.
Verksmiðjurnar hér á Siglufirði
geta samtals brætt nær 30 þús-
und mál á sólarhring. Söltunar-
stöðvarnar eru 21 og þær hafa
a’.lar saltað eftir mætti.
Geymslupláss hjá verksmiðj-
unum, sem mun vera nálægt því
120 þúsund mál, er nú í þann
veginn að fyllast, og ef svo fer,
verður aðeins unnt að landa því
magni, sem verksmiðjurnar vinna
jafnóðum.
Síldin veiðist aðallega á tveim
slóðum, vestur af Skaga-
grunni og í námunda við Kol-
beinsey. Síldin, sem veiðist við
Kolbeinsey, er mjög feit, en síld-
in að vestan aftur biandaðri, en
er þó góð isöltunarsíld.
Stjórnin í Alsír sundrast
Ben Bellö og félagar
stofna stjórnarnefnd
ALGERSBORG 23/7. Svo virðist sem allar til-
raunir til að koma á sáttum milli forystumanna
Serkja í Alsír hafi farið út um þúfur. Ben Bella
varaforsætisráðherra hefur nú myndað Sérstaka
stjórnarnefnd og lýst því yfir að ríkisstjórn Ben
Khedda forsætisráðherra sé ólögleg þar sem hún
sitji að völdum í trássi við ákvarðanir Þjóðfrelsis-
ráðsins. Stuðningsmenn Ben Khedda saka hinsveg-
ar Ben Bella um að ætla sér að koma á einræði í
landinu.
Ben Bella stofnsetti stjórnar-
nefnd þessa í samvinnu viö Fer-
hat Abbas. fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Þeir eiga báðir sæti í
Kjarnorkukapphlaup stór-
veldanna magnast - Sjó 8. s.
netndinni. en hinir nefndarmenn-
írnir eru Mqhamimed Khider. Ra-
bah Bitat, Mohammed Boudiaf,
Ait Amed, Mohamimed Said, —
þeir eru allir meðlimir í Þjóð-
frelisstjórninni — og Ben Aila
ofursti.
Tveir néfndarménn. þeir Bou-
diaf og Ahmed, munu fylgja Ben
Khedda að málum. en hinir eru
aílir fylgjendur Ben Beila.
Stjórnurnefndin mun haia að-
setur í Tlemcen í vesturhluta
Alsírs. Þangað hefur Ben Bella
kvatt þrjá ráðherra sem nú eru
í Algeirsborg, þá Boudiaf, Bitat
og Said, en þeir hafa enn ekki
lagt af stað.
Ben Khedda forsætisráðherra
hefur enn ekki látið í ljós álit
sitt á þessum aðgerðum Ben
Bella og fylgismanna hans. Hins-
vegar hefur Belkacem Krim
varaforsætisráðherra skorað á öll
byltingaröfl landsins að beita sér
gegn þeim. Segir hann að mark-
mið þeirra sé einræði.
Herinn í Alsír er klofinn milli
deiluaðilanna tveggja. Strandhér-
uðin frá Túnis til Oran fylgja
! Ben Khedda. en Ben Bella nýtur
|stuðni-ngs héraðanna inn í landi
jog- auk þess fylgja honum Bou-
medienne 02 40.000 manna iið
1 hans. Hínsvegar nýtur Ben
1 Khedda stuðnings Kabylhéraðs-
ins, en þar á Belkacem Krim
1 mestu tý-jgi að fagna.
I Ffarhrhaíd á 4. síðu.
'k Síldin, sem veiðzt hefur
★ síðustu dægrin, hefur ver-
★ ið fcit og góð til siiltunar.
★ Saltað hefnr því verið á
★ hverju söltunarplani. —■
★ Myndin er tekin á söltun-
★ arstiið í Neskaupstað »
-k dögunum. (Ljósm. Jóa
~k Ingólfsson).
Góðar 1
• OÞ •
veioi-
horfur
Raufarhöfn í gærkvöld. — Hér
er búið að landa samanlagt rúm-
lega 72 þú;s. rnálum og tunnum*
Söltun er sem hér segir:
Borgir h.f.: 7.900 t.
Norðursíld; 8.911 t. !
Óskrsstöð: 11.424 t.
Óðinn: 1.100 t.
Ilafsilfur: rúml. 11.000 t.
Gunnar Halidórsson: 6.200 t.
1 bræðslu eru komin um 26.000
mál.
Veiðihorfur eru mjög góðar á
miðunum og veður gqtt. Fanney
er komin á Kolbeinseyjarsvæðið,
þar sem Ægir var. en hann er
íarinn austur á Riifisbanka. Þar
er mikil síld og góð veiði. enda
þótt siíldin vaði ekki. Frétzt hafði
af Ó’.afi Magnússyni á leið tii
lands með 1000 t, Hötfrungi meðr
1000 og Saraára- með 900.