Þjóðviljinn - 24.07.1962, Qupperneq 4
þlÓÐVILJINN
Útgefandi Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.—
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb.) — Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson, Jón
Bjamason. — Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. — Rit-
stjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 55.00 á mánuði.
íslenzk stóriðja
' f
^lþýðublaðið gerir að umtalsefni í leiðara sínum s.1-.
laugardag tvo fundi sem nýlega voru haldnir
noi ðanlands. Báðir. þessir fundir sendu frá sér merk-
ar sam.þykktir og virðast þær hafa orðið leiðarahöf-
undi Alþýðublaðsins nokkurt áhyggjuefni. í ann-
arri er s'korað á stjórnarvöld landsins að hefjast handa
um undirbúning virkjunar Jökulsár og Stóriðju í sam-
bandi við hana. Hinn fundurinn sem haldinn var á
vegum Búnaðarsambands S-Þingeyinga varaði við að-
ild okkar að Efnahagsbandalaginu, vegna þeirrar
hættu sem í henni fælist fyrir sjálfstæði landsins og
tilveru þjóðarinnar.
jyjaður skyldi ætla, að flestir íslendingar gætu tekið
J heils hugar undir báðar þessar samþykktir. í þeim
fellst einfaldlega krafa um það, að náttúruauðævi lands-
ins verði nýtt af íslendingum og fyrir íslendinga. Und-
ir það ættu allir að geta tekið. En Alþýðublaðið er á
annarri skoðun. Það segir, að hafi sömu menn staðið
að báðum þessum ályktunum, hafi þeir „gert sig seka
um ljótan tvískinnung“. Og hver er þá tvískinnungur
þessara marana, að dómi Alþýðublaðsins. Einfaldlega
sá að mótmæla aðild að Efnahagsbandalaginu og setja
jafnframt fram kröfur um, að íslendingar nýti orlcu-
lindir sínar í eigin þágu. Að lokum segir leiðarahöf-
undur beinlínis, að Þingeyingar verði að „átta sig betur
og.ákveða hvort þeir vilja.“
T eiðari Alþýðublaðsins túlkar að sjálfsögðu sjónarmið
Alþýðuflokksins og núverandi ríkisstjórnar. Á
fundi Búnaðarsambands S.-Þingeyinga hélt norski próf-
essorinn Ragnar Frisch erindi um Efnahagsbandalagið,
og er afstaða stjórnarflokkanna til hans og þeirrar
stefnu, sem hann túlkar, vel kunn. Ríkisstjórnin held-
ur því einnig mjög á loft, að verið sé að undirbúa stór-
vii'kjanir hér á landi með stóriðju fyrir augum. Nú
lýsir Alþýðublaðið því yfir, að tómt mál sé að tala um
slíkt, nema með aðild íslands að Efnahagsbandalaginu.
Þetta sýnir, að ríkisstjórnin hefur þegar mótað sér
stefnu óg tekið sínar ákvarðanir varðandi aðild að
Efnahagsbandalaginu, enda þótt ráðherrarnir keppist
nú við að afneita-öllu slíku. Það kemur því úr hörð-
ustu átt, þegar málgögn stjórnarinnar saka aðra um
„Ijótan tvískinnung". En loddarinn sakar oft aðra um
eigin brögð. Öllum er Ijóst, að íslendingar þurfa á er-
.lendu fjórmagni að halda til þess að koma upp stór-
iðju hér á landi. En það er grundvallarregla, sem ékki
má frá víkja, að Islendingar hafi sjálfir óskertan eigna-
og umráðarétt bæði orkulinda og iðjuvera. Alþ.ýðubanda-
lagið hefur barizt fyrir þessari stefnu og bent á, að hún
er eina leiðin til þess að tryggja sjálfstœði og tilveru is-
lenzku þjóðarinnar í framtíðinni.
Tslendingar geta komið hér upp stóriðju með hágkvæm-
um erlendum' lánum til langs tíma. Við eigum vissu-
legá um fleiri leiðir að velja en þá „úrs'Iitakosti'V sem
ríkisStjómin. setur fram: ANNAÐHVORT aðild að
Efnahagsbandalaginu, EDA enga stóðiðju. Það eru ekki
aðeins Þingeyingar, heldur öll íslenzba þjóðin, sem þarf
að átta sig á þeirri hættu, sem fólgin er í stefriú ríkis-
stjórnarinnar. Þegar þjóðin hefur gert sér það Ijöst.
mun hún taka þá stefnu, sem mörkuð var á BÁÐUM
fundunum norðanlands fram yfir stefnu ríkisstjórn-
i acrrnsvlk
annnar. — b.
vigrrtq t;
! SOL 0G SNJO
Sl. laugardag kom til bæj-
arins sólbakaður hópur eftir
vikudvö] í Kerlinffarfjöllum.
Þetta voru þátttakendur í
skíðanámskeiði, sem þeir
Valdimar Örnólfsson og Ei-
ríkur Haraldsson efndu nú til
í þriðja sinn. Rúmlega þrjá-
tíu manns voru í ferðinni,
fólk á öllum aldri og jafnt
algerif byrjendur sem æfðir
skíðamenn. Þess vegna vár
kennt í flokkum og hver og
einn fékk brekkur og kennslu
við sitt hæfi. Auk Valdimars
og Eiríks annaðist Sigurður
Guðmundsson íþróttakennari
einnig kennslu. — A mynd-
inni sjást þátttákendur fyrir
framan skála Ferðafélagsins
i Árskarði, en þar var gist á
meðan námskeiðið stóð yfir.
Kjarnorkukapphl aup sfórveldanna
Alsír
Framha’.d af 1. síðu.
Ekkert bendir þó til þess að
til vopnaviðskipta komi að svo
stöddu.
Enginn fundur befur verið
haldinn í stjórnarnefndinni enn
sem komið er og mun það vera
vegna tilmæla írá Fares, for-
manni framkvæmdanáðsins í Al-
sír.
í dag gengu Sead Dahlab utan-
ríkisráðherra og Yazid upplýs-
ingamálaráðherra af stjórnar-
íundi hjá Ben Khedda cg sögðu
sig jafnframt úr ríkisstjórninni.
Belkacem Krim hefur tii'kynnt
að ríkisstjórnin hefði ákveðið að
kalla saman Þjóðfrelsisráðið til
fundar annan ágúst. Ber þeim
er fylgjast með gangi mála í Al-
sír saman um það að slíkurfund-
ur geti breytt miklu um þróun
mála þar í landi.
Fraimihald af 8. síðu.
bandaríska sendiráðinu í London
með mótmælaspjöld sín hé:du í
dag til sovézka sendiráðsins og
afihentu þar mótmælaibréf.
Bandarikin sögð bera ábyrgðina
í ti’.ikynningu Sovétstjórnarinn.
ar segir meðal annars að stjórn-
anvöldin í Bandaríkjunum hafi
ekki leynt bví að tilgangur til-
rauna þeirra, og þá einkum hiá-
loftesprenginganna, hafi verið sá
að 'komast fram úr Sovétríkjun-
um á sviði kjarnorkuvigbúnaðar.
Það hafi því eingöngu öltið á
Bandarikjastjórn hvort sovézku
| trraunirnar 1961 yrðu þær síð-
: ustu eða ný alda kjarnorku-
sprenginga flæði yfir jairðar-
hnöttinn.
Erléndir frétfamenn í Moskvu
gera ráð fyrir að með ti'raunun-
um ætli Sovétríikin einkum að
énduirbáeta og fulllkomna gagn-
flaugar þær er ætlaðar eru til
varnar k j amorkuihlöðnum lárásar-
eldflaugum. í þessu sambandi
geta þeir um það að sovézkum
heppnaðist nýiega að skjóta eld-
flauig frá kafbáti undir yfirborði
sjávar.
Háloftasprenging
á morgun
HONOLULU. Bandaríkjamenn
höfðu ætlað sér að sprengja
kjarnorkusprengju i háloftunum
yfir Jdhnstoneyju á Kyrrahafi í
dag. Nú .hafa þeir tilkynnt að
tilrauninni verði frestað til imorg.
ums. Sprengja þessi er tæplega
eitt megatonn að styrk og mun
eiga að springa i 50-—60 kíló-
metra hæð Bandarikjamenn hafa
áður isprengt eina siíka sprengju
í háloftunum, en tvær tilraunir
þeirra ti! iþess hafa misheppnast.
■ NANCY. Innanrikisráðherra
Frakklands. tilkynnti i dag að
sjö eða átta franskar herdeildir
yrðu búnar kjamavopnum og
yrðu þærstaðsettar i austurhluta
landsins.
Eins og sjá má á myndinni
þurfti skíðafólkið ekki að
dúða sig í margar peysur,
enda var sólskin oftast og
blíða. Skíðafæri er alltaf
mjög gott á sumrin þarna í
fjöllunum og nægur snjór.
Þeir sem á annað borð kunna
að meta snjó, sól og fjöll ættu
að bregða sér þaugað inn eft-
ir við fyrsta tækifæri. Þeir
sjá ekki eftir þvi. Lagt verð-
ur af stað í næstu ferð á
morgun og þriðja ferðin verð-
ur farin í ágúst.
iA\ — þriðjudagur 24. júlí 1962 — ÞJÓÐVILJINN