Þjóðviljinn - 24.07.1962, Blaðsíða 8
Sovétríkin boða nýjar tilraunir
stórvelda magnast
0 Kjarnorkukapphlaupiö magnast með hverjum deg-
inum sem líður. Hvorugur aðilinn má vita hinn sér
„ffremri”. Á Genfarráðstefnu þrefa fulltrúar um bann
vi.ð kjarnorkutilraunum og saka hverjir aðra um ó-
heilindi. Á sama tíma sprengja stórveldin kjarnasprengj-
ur í gríð og ergi og boða nýjar. Tilraunir þessar munu
þö leiða bölvun yfh- mannkynið að beztu manna yfirsýn.
® Bandaríkjamenn hafa á undanförnum mánuðum
sprengt hátt á þriðja tug kjarnorkusprengja í andrúms-
loftinu og hálfan fimmta neöanjarðar. Á morgun ætla
þeir aö sprengja helsprengju í háloftunum í annað sinn.
• Nú hefur stjórn Sovétrikjanna boðaö nýjar kjarnorku-
tilraunir — sem svar við tilraunum Bandaríkjamanna
yfir Kyrrahafi
BUÓÐVIUINlj
Þriðjudagúr 24. jr'lí 1962 — 27. árgangur — 163. tölublað.
í veðurblíðunni um helgina
Ungir og gamlir kunnu vel að meta blíðviðrið fyrir og um helgina
síðustu; mikill fjöldi fólks naut sól- og sjóbaða í Nauthólsvíkinni
og þar var þcssi mynd tekin á Iaugardaginn, skömmu áður. en
bokan læddist inn yfir landið og dró fyrir sólu. Unga stúlkan á
myndinni hefur sett upp stráliattinn sinn og siglir á vindsæng á
vílfinni. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
MOSKVU 22/7. Ríkiisstjórn
Sovétríkjanna tilkynnti í nótt að
hún hefði fyrirskipað að iáta
'hefja aftur tilraunir með kjarna-
vopn. Kveðst hún grípa til þessa
ráðs vegna síðust.u tilrauna
Bandarikjaímanna í andrúms'.oft.
Jnu yfir Kynrhafi.
í tilkynningu Sovétstjórnarinn-
ar segir, að vegna bandarísiku til-
raunanna sé Sovétriikjunium
nauðugur einn kosturinn að gera
h!i.5istæðar tiíra.unir með nýjusbu
kiam^vopn sín. Ja.fnframt er því
lýst yfir að allt verði gert til
að. haida geis’.virkri úrikomu í
skefjum.
Sprengjur vesturveldanna
helmingi fleiri
Árið 1958 ihættu kjarnorku-
veklin tilraunum sínum og rík.ti
síðan þegjandi samkomulag um
að’ gera ekki slíkar tilraunir, þar
Tvö slys
27 fórust í
flugslysi
HONOLULU 23 7. — 1 gærkveldi
fórst kanadísk farþegaflugvél á
flugvcllinum hjá Honolulu. f
flugvélinni voru 40 farþegar og
27 þeirra biðu bana.
Sjónarvottar segja að vélin
hafi rekizt á jarðýtu er hún var
4 þann veginn að lenda. Við þetta
ssprakk hún og þeyttist logandi
til jarðar. Björgunarmenn færðu
lótna og særða á sjúkrahús i
Honolulu en brakið úr flugvél-
inni ló ó víð og dreif á stóru
svæði.
og 28 í jáni'
brautaslysi
DIJON 23 7. — Hroðalegt slys
varð i dag er hraðlest sem geng-
vu milli Parísar og Marseille fór
út af teinunum í nánd við Dijon
í Austur-Frakklandi. Lestin var
Æið koma út úr jarðgöngum og
að fara yfir brú er óhappið gerð-
íst og hröpuðu margir vagnarnir
úr mikilli hæð. Björgunarmenn
•ikomu fljótlega á vettvang. Síð-
ast er til fréttist var talið að 28
menn hefðu látið lífið en 52
fiæi/.t.
til Fra-kkar sprengdu kjarnorku-
sprengju í Sahara árið 1960. I.
september í fyrra hófu Sovét-
rí-kin kjarnorkutiiraunir o-g
Skömmu síðar tóku Bandaríkja-
menn að sprengia kjarnorku-
sprengjur neðanjarðar. 25. apríi
í ár ’hófu Bandaríkjamenn kjarn-
orkutiiraunir í andrúmsloftinu
vfir Kyrraihafi og standa þær
enn yfir. í vor hafa Bretar gert
margar neðanjarðartilraunir í
Nevdaauðninni.
Samikvæmt bandariifkum heim.
ildum hafa Veturveldin nú
sprengt 250 kjarnonku- og vetn-
issprengiur en Sovétríkin helm-
ingi færri.
Bandariska utanrí'kisráðuneyt-
ið segir i yifiriýsingu að ákvörð-
un Sovétríkjanna sé mjög leið
einkum þar sem Genfarráðstefn-
an iræði nú bann við kjarnQrkn-
tilraunuim.
Japanska utanriikiisráðuneytið
kveðst harma fyrirætlun Sovét-
fíkjanna og boðar formleg mót-
rnæli. Kjrnorkuandstæðingar
sem staðið hafa frammi fyrir
Framhald á 4. síöu.
Þrjú innbrot
Um helgina voru framin
þrjú innbrot. Á sunnudags-
nóttina var brotizt inn í fata-
pressuna Venuis á Hverfis-
götu 59 og einnig í -kjötbúð á
Sólivallagötu 9. Ennfremiur
var á sunn-udag brotizt inn í
mannlausa íbúð á Leifsgötu.
í kjötbúðinni var stolið
nokkru af matvæium en litlu
eða engu á hinum stöðunum
en hins vegar voru framdar
þar nokkrar skemmdir.
Kjötiðnaðar-
menn boða
verkfall
Slitnað hefur upp úr við-
ræðum Félags kjötiðnaðar-
manna og Félags kjötverzl-
ana. Hafa kjötiðnaðarmenn
boðað verkfalt, og var sú á-
kvörðun iekin á fundi fyrir
helgina. Verkfallið hefst frá
og með 1. ágúst, hafi samn-
ingar ekki tekizt fyrir þann
tíma.
Tíiindalaust um helgina
i þjónaverkfallinu
U-m ihelgina var tíðindalauisit í
verkfalli framreiðsluimanna.
Engar viðræður hafa átt sér
stað milli deiluaðila og hefiur
sáttasemjari dkiki boðað til fund-
ar. Er beðið eftir úrskurði Fé-
lagsdóms um lögmæiti venkfalls-
boðunarinnar. Skýrði forseti
dómsins Háikon Guðmundsson
h æ st a ré tt a r r i t a r i, Þ j óðv i 1 j a num
svo fr-á í gær. að miálið yrði
þingfest í dag kl. 10 en kvaðst
ekkert geta Um það sagt, h-vort
úrskurðurinn myndi falla í dag
eða ekki. Engar tilraunir voru
gerðar um helgina til verkfaliis-
brota og var allt með kyrrum.
kjörum.
Fjallsórbrú styttir kaupstaðar-
leið Örœfinqa úr 370 km i 120
Ný stórbrú var vígð
hér á landi sl. laugar-
dag, brúin á Fjallsá á
Breiðamerkursandi,
138 metra löng.
Á fjórða hundi’að manns
var við brúarvígsluna og voi’u
margar ræður fluttar. Ingóll'-
ur Jónsson samgöngumálai’áð-
herra flutti vígsluræðu, en
meðal ræðu.manna voru Sig-
urður Jóhannsson vegamóla-
stjóri, Páll Þorsteinsson al-
þingismaöui', Steinþór Þói'ðar-
son bóndi IJala, Sigurður
Arason hreppstjóri á Fagui'-
hólsmýri o.fl.
Þó að Fjallsá á Breiðamerk-
ursandi hafi nú veriö brúuð
eru enn eftir 9 óbrúaðar ór
á Suðurlandsvegi í Austur-
Skaftafellssýslu, en verða
væntanlega ekki nema 8 í
haust, þegar byggð hefur
vei'ið brú ó Reyðará í Lóni,
að sögn vegamálastjóra.
Sömuleiðis eru eftir óbrúaðar
9 smáár og má því segja að
nokkurt verkefni sé fram
undan, en þeirra viðamest
verður þó , áreiðanlega sniíði
brúar á Jökulsá ó Breiða-
merkui'sandi, sem án efa mun
koma með tíð og tíma.
Með brúnni á Fjallsá standa
vonir til þess að öi'æfingar
geti í íramtíðinni stytt leið
sína til kaupstaðar úr liðlega
370 km í 120 km þó að ör-
ugg flutningaleið fáist fyi'st
til Hafnar i Hornafirði þegar
brúin á Jökulsá á Breiða-
merkursandi verður smíðuð.
Frekari lýsing vegamála-
stjóra á Fjallsái'brú og fram-
kvæmdum við brúarsmíðina
er birt ó 2. síðu.