Þjóðviljinn - 28.07.1974, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 28. júlí 1974.
Hvltserkur er furöulegt steinskrfmsll viö austurströnd Vatnsness og
vinsæl fyrirmynd Ijósmyndara.
Vatnsnes skagar norð-
ur i Húnaflóa milli
Húnafjarðar og Mið-
fjarðar. Allgóður hring-
vegur er um nesið og
Vesturhóp. Fylgir hann
byggðinni og ströndinni
um nesið vestan- og
norðanvert og liggur
meðfram Sigriðarstaða-
vatni og Vesturhóps-
vatni að austan. Endar
þessa vegar tengjast
Norðurlandsvegi með
aðeins um 5 km bili.
Enginn ætti þess vegna
að villast af leið sinni
um hringveginn mikla
þó að hann legði þessa
lykkju á leið sina.
Fjallaklasi þekur gjörvallt nes-
iö og heitir einu nafni Vatnsnes-
fjall.Hæsti tindurinn er Þrælsfell
(906m.)
Ef fariö er réttsælis umhverfis
nesiö, eru vegamót á Noröur-
landsvegi skammt frá bænum
Ósi, en þaöan eru um 5 km að
Hvammstanga. Ibúar þar voru
390 við siðasta manntal. Þetta er
sveitaþorp með túnum og búfén-
aöi, en jafnframt er Hvamms-
tangi verslunarstaður i héraðinu.
Þar er allgóð höfn. Þorpið er
byggt i landi Hvamms-bæjanna:
Syðstahvamms, Helguhvamms
og Kirkjuhvamms sem áður var
kirkjustaður. Sérstakt hreppsfé-
lag varð Hvammstangi 1938, en
höfr. var þar löggilt 1895.
Litlu norðan eru Kárastaðir. 1
fjallsbrúninni fyrir ofan bæinn er
reisuleg klettaborg, og heitir hún
Káraborg(476m.). Sunnan undan
henni er fjallvegur um svonefnd-
an Langahrygg austur yfir fjallið
niður i Heydal og að Breiöaból-
stað i Vesturhópi. Af Langahrygg
Þannig er umhorfs inni i Borgarvirki. Saga Borgarvirkis er enn óráöin gáta. Feröamenn, sem leggja
leiö sfna um Vesturhóp, ættu ekki aö láta sér nægja aö horfa til virkisins af þjóöveginum. Feröin upp I
sjálft virkiö er rikulega launuö meö óvenjulegu umhverfi og ágætu útsýni. (Ljósm. Mjöll Snæsdóttir)
Hringferð um
Vatnsnes
og Vesturhóp
eru aðeins um 4 km. norður á
Þrælsfell. Það er allgreitt upp-
göngu og viðsýni þaðan gott.
Þegar haldið er áfram norður-
eftir ströndinni, er ekið í bröttum
hlíðum Þorvaldsfjalls (436 m.)
sem teygir kryppuna allt I sjó
fram. A mjóum brimstalli I fjalls
hlíðinni stendur bærinn Anastaöir
sem varð frægur fyrir rikulegan
hvalreka harðindavorið 1882. Þar
rak 32 hvali 29. mai. Þetta var
kærkomið búsilag og bjargaði
mörgum frá hungri, þvi að hafis-
inn lá fyrir Norðurlandi allt til
hausts, og kom þvi ekkert sumar
það árið. Litlu norðar er bærinn
Skarð, en þar er heit uppspretta i
flæðarmálinu. Um 3 km. norðar
er komið að sérkennilegri hamra-
brik, og I kvi undir hamrinum er
snotur fjárrétt úr grjóti og timbri.
Þarna rennur Hamarsá til
sjávar, en hún kemur niður
Hliöardalsem skerst suöur i fjall-
lendiö austan Þorvaldsfjalls.
Ströndin noröurundan er frem-
ur strjálbýl, en hér er komiö á
sögufrægar slóöir frá öldinni sem
leiö. Um 10 km. fyrir noröan
Hamarsá er bærinn lllugastaölr.
Þar bjó Natan Ketilsson siöustu
fjögur æviárin, og þar var hann
myrtur 13. mars 1828 aðeins 33
ára gamall. Guðmundur bróöir
Natans flutti að Illugastöðum
eftir moröið, og afkomendur hans
búa þar enn. A ströndinni fyrir
norðan Illugastaði eru margir
sérkennilegir klettar og stapar.
Prestssetrið Tjörner um 6 km.
noröar. Þar hefur séra Róbert
Jack setið siðan 1955. Hann er
skoskrar ættar og kom hingað
sem knattspyrnuþjálfari fyrir
mörgum árum, en gerðist siðar
kennimaður. Á siðustu öld var um
skeið (1837-1845) klerkur að Tjörn
séra ögmundur Sigurðsson, höf-
undur ljóðakversins Ogmundar-
getu. Bærinn stendur á sléttlendi,
en þaðan gengur klofinn dalur
suður i hálendið. Heitir vestri
hlutinn Þorgrimsstaðadaluren sá
eystri Katadalur.og er þar sam-
nefndur bær. Frá Katadal var
Friðrik Sigurðsson sem myrti
Natan Ketilsson i félagi við
Agnesi Magnúsdóttur. Úr botni
Katadals má ganga upp svokall-
aða Kattarrófu og er þá stuttur
fjallvegur yfir i Vesturhóp að
bænum Þverá.
Skammt fyrir norðan Tjörn er
ekið fram hjá eyðibýlinu Flat-
nefsstöðum.Þaðan var skáldkon-
an Ólöf frá Hlöðum ættuð, og um
uppvöxt hennar þarna er einn
eftirminnilegasti hluti endur-
minninga hennar.
Þá er farið að nálgast nyrsta
tanga Vatnsness sem heitir Nes-
tá.En skömmu áður er komið að
skeifulaga vik þar sem bær klúkir
i grösugu túni undir klettavegg.
Þetta er Hindisvik, fallegur og
friösæll staöur meö fjölskrúöugu
dýralifi. Hér bjó lengi kynlegur
kvistur úr klerkastétt og merkur
hagyrðingur, séra Sigurður Nor-
land. Hann þjónaði Tjarnar-
prestakalli I 40 ár, allt til ársins
1955.1 Hindisvik býr nú Ingibjörg
Blöndal, sem var ráðskona séra
Sigurðar, en ættmenn hins látna
klerks eiga jörðina.
Skammt norðan Hindisvikur
sveigir vegurinn aftur til suðurs
og útsýni opnast austur yfir
Húnafjörð. A þessum slóðum stóð
bærinn Krossanes, hlunnindajörð
á gamla visu en er nú i eyði. Á
hluta jarðarinnar byggði einstæð
kona, Guðbjörg Jónasdóttir, ný-
býli árið 1940 og nefndi það Sel-
land. Þar býr þessi heiðurskona
enn, en hún er nú á niræðisaldri.
Skammt fyrir sunnan Krossa-
nes fellur Þórsá til sjávar.
Byggðin frá ánni og inn með
firöinum kallast Síða. Þarna
eru viða háir sjávarbakkar og
mikið um sker og dranga. Fræg-
ast slikra fyrirbæra er Hvftserk-
ur, tilkomumikið steinskrimsli
um 15 metra hátt. Kletturinn sést
ekki af veginum, en best er að
ganga niður á móts við hann milli
Súluvalla og Ósa. Bærinn Ósar
stendur þar sem ós Sigriðar-
staöavatns rennur til sjávar. Af
Illugastaðir á Vatnsnesi. Þar var Natan Ketilsson myrtur árið 1828.
Ættmenn Natans búa enn á Illugastöðum.