Þjóðviljinn - 27.08.1974, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. ágiist 1974. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3
*
Islensk myndlist
40 þúsund gest-
ir en samt tap
Erlendu gripirnir sendir utan en
hafa allir verið ljósmyndaðir
A sunnudaginn lauk sýning-
unni miklu á Kjarvalsstöðum,
Islensk myndlist i H00 ár.
Blaöið sneri sér til Jóns
Steinars Gunnlaugssonar
framkvæmdastjóra Listahá-
tiðar og spurði hann um
hvernig sýningin hefði gengið
og hvað gert yrði af gripunum
sem á henni voru.
Jón sagði að á þeim tveimur
og hálfa mánuði sem sýningin
stóð hefðu 25-6 þúsund manns
greitt aðgangseyri. Það segir
þó ekki alla söguna þvi börn
innan tólf ára aldurs þurftu
ekki að borga sig inn. Að þeim
meðtöldum færi tala sýn-
ingargesta upp i 35-40 þúsund.
Jón sagði að tap hefði verið
á sýningunni þótt ekki væru öll
kurl komin til grafar enn hvað
það snerti. Það voru útlát
vegna hennar og nefndi hann
þar til húsaleigu, tryggingar,
fíutningskostnað og svo ýmsa
vinnu, svo sem ljósmyndun,
uppsetningu og smiði skápa
o.s.frv.
Ekki kvað Jón standa til að
senda sýninguna út eða setja
hana aftur upp. A þvi væru
ýmsir vankantar, eins og það
að margir gripanna eru i
einkaeign og svo hefðu þeir
ekki Ieyfi til að lána þá gripi
sem komnir eru erlendis frá á-
fram.
1 gær er blaöamann bar að
garði var unnið að þvi að
pakka sýningargripunum nið-
ur. Verða þeir sendir til eig-
enda sinna á næstunni. 12
númer komu erlendis frá og
voru þau öll i eldri deild sýn-
ingarinnar. Sagði Jón að um
væri að ræða gripi sem visast
kæmu ekki hingað til lands
aftur I bráð.
Menntamálaráöherra tók
um það ákvöröun að láta ljós-
mynda alla erlendu gripina og
63 innlenda að auki. Þar við
bættistað Listasafn Islands og
Þjóðminjasafnið eiga marga
af mununum og hafa þeir
sumir verið settir upp á glær-
ur. Þessar myndir mætti vel
hugsa sér að notá til kennslu
og sýninga, t.d. á vegum
Fræðslumyndasafns rikisins.
Aðspurður kvað Jón Steinar
engar hugmyndir hafa komið
upp um að gefa myndirnar út i
bók en slikt væri þó vel hugs-
anlegt.
Sýningarskráin var prentuð
i 8 þúsund eintökum og stóð
svo glöggt meö að það nægði
að hún seldist upp klukkan 19 á
sunnudaginn. Urðu þeir gestir
sem komu eftir þann tima að
láta sér nægja að fá gölluð ein-
tök að láni.
ÞH
ÍTilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pic-Up bifreiðar
og Pic-Up með 4ra hjóla drifi, er verða
sýndar að Grensiásvegi 9,þriðjudaginn 27.
ágúst kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5 i dag.
Sala Varnarliðseigna.
ísland situr mann-
fjölgunarráðstefnu
— Of litið af hagnýtu starfi, of mikið af hugmynda-
fræðilegu karpi, segir Bjarni Bragi Jónsson
Eins og kunnugt er stendur nú,;
yfir i Búkarest mannfjölgunar-/
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna,'
Hana sækja fulltrúar flestra ef
ekki allra þjóða heims og þar á
meðal tslendinga. Við öfluðum
frétta af störfum islenska
fulitrúans og umboði hjá utan-
rikisráðuneytinu og
Framkvæmdastofnuninni.
Sá sem ráðstefnuna sækir fyrir
Islands hönd er Sigurður
Gústavsson fulltrúi i áætlanadeild
* Framkvæmdastofnunar ríkisins.
Jón ögmundur Þormóðsson full-
trúi i utanrikisráðuneytinu sagði
að af hálfu ráðuneytisins hefði
honum ekki verið gefin nein
Gamall
maður
týndur á
Snæ-
fellsnesi
A sunnudaginn var margt
manna að lesa ber á Snæfeilsnesi.
Þar á meðal var áttræður maður
frá ólafsvik. Kom hann ekki fram
á sunnudagskvöld og var þegar
hafin leit að honum sem ekki
hafði borið neinn árangur sið-
degis i gær.
t alian gærdag var leitað með
sporhundi en sú leit hafði borið
árangur seint i gærdag. Maðurinn
var að lesa ber upp af Hólahólum.
—S.dór
ákveðin lina i mannf jölgunarmál-
um en hins vegar hefði honum
verið sagt að hafa náið samráð
við hin Norðurlöndin.eins og van-
inn er á ráðstefnum af þessu tagi.
Framhald á 11. siðu.
Nú eru það norræn
hafnarsambönd
Dagana 29. — 30. septemberl
n.k. verður haldinn, að Hótel Esju
i Reykjavik, 7. fundur norrænna
hafnasambanda. Slikir fundir
hafa verið haldnir reglulega
annað hvort ár á Norðurlöndun-
um siðan 1962, en Hafnasamband
sveitarfélaga tók fyrst þátt i
þessu samstarfi 1970.
A fundinum verður gerð grein
fyrir stöðu Islenskra hafna, rætt
um þátt hafna I vörnum gegn
megnun sjávarins, fjármál hafna
og grundvöll að ákvörðun gjalda.
Farið verður I skoöunarferöir,
m.a. til Vestmannaeyja.
A fundum þessum er hámarks-
fjöldi þátttakenda frá hverju
landi 10, nema frá þvi landi, sem
heldur fundinn hverju sinni geta
veriö fleiri.
Þatttakendur á þessum fundi
veröa um 5 manns auk gesta.
Fréttatilkynning
Hafnasamband Sveitarfélaga.
Kvæði eftir Þórarin Eldjárn:
Um Gretti, Tarsan,
Sveinbjörn og fleira
(Jt er komið 50 siðna kver,
eftir Þórarin Eldjárn. I kver-
inu eru 28 kvæði eftir Þórarin.
Myndirnar eru eftir Sigrúnu
Eldjárn.
Ljóðin heita: Við llru-
kassann. Skaðvirkinn. Kata-
nesdýrið. Góður gestur á
Bakka. Möwekvæði. Eitt getur
eytt. Drottinh drottinn.
Hemlaðu fast. 1 miöju kafi
brems. Enn á kuldaskóm.
Fyndni karlinn. Neyttu
meöan á nefinu stendur. t
Gleraugnaverslun tsafjarðar.
Finngálknið. John P. Buckle.
Draumur frú Rósu á sér enga
stoð. Tiskunnar járnagi. Gau i
Þresti — In memoriam. Palli
var einn i heiminum. Jónatan
Livingston mávur. Hinrik
Hinriksson. Hans og Gréta.
Gréttir og Glámur I, Lítt
vanur reiðhjóli. Kvæði um
Tarsan. Roy og Trigger.
Sveinbjörn Egilsson. Gréttir
og Glámur II.
DIGRANESSKOLI -
SN ÆL ANDSSKÓLI
Börn á aldrinum 7-12 ára, sem heima eiga
austan Bröttubrekku i Kópavogi og voru
ekki i Digranesskóla sl. vetur, verða inn-
rituð i Digranesskóla eða Snælandsskóla
miðvikudaginn 28. ágúst kl. 15 til 18.
Innritunin fer fram i Digranesskóla.
Til þessarar innritunar komi einnig börn,
sem heima eiga i Snælandshverfi norðan
Nýbýlavegar.
FRÆÐSLUSTJÓRINN í KÓPAVOGI.
m
Indversk undraveröld
Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjöl-
breytt úrval af austurlenskum skraut- og list-
munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör-
ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og
margt fleira.
Einnig úrvai af indverskri bómull, batik-efn-
um, rúmteppum og mörgum geröum af
mussum.
Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum.
Gjöfina, sem ætið gleður, fáið þér I
JASMIN, LAUGAVEGI 133.
íli
IflJl
OTÍn
SR
Atvinna
Laus staða
Skrifstofumann vantar á skrifstofu stúd-
entaráðs og SINE. Þetta er tilbreytinga-
rikt og hressilegt starf. Aðeins mjög rösk-
ur maður kemur til greina. Góð vélritun-
arkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir sendist skrifstofu SHl og SÍNE,
Stúdentaheimilinu við Hringbraut.
FOSTRUR
Fóstru vantar að nýju dagheimili
ó Seyðisfirði Upplýsingar um
starfið gefur bæjarstjóri
LAUS STAÐA
Staða ritara I Menntamálaráðuneytinu er laus til umsókn-
ar. Laun samkvæmt Iaunakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavfk fyrir 20. september 1974.
Menntamálaráðuneytið,
23. ágúst 1974.