Þjóðviljinn - 24.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.03.1977, Blaðsíða 1
MOWIUINN Fimmtudagur 24. mars 1977 —42. árg. 69. tbl. Kjarakröfur BSRB endanlega ákveðnar 18 — 55% launahækkun — Eindregin launajöfnunarstefna A fundi stjdrnar og samninga- nefndar Bandalags starfsmanna rikis og bæja, sem lauk klukkan tæpiega fjögur I fyrrinótt var gengið endanlega frá kröfugerð BSRB I komandi kjarasamning- um. Þjóðviljinn náði i gær tali af Haraldi Steinþórssyni, fram- kvæmdastj. BSRB og spurðum við hann um kröfugerðina og undirbúning að kjarasamningum BSRB. Haraldur sagði, aö stjórn BSRB og samninganefnd bandalagsins sem I eiga sæti 57 menn heföu nú ákveöiö aö samningum yröi formlega sagt upp fyrir næstu mánaðamót og miöast þá upp- sögnin viö 1. júll n.k. Samkvæmt landslögum ber BSRB aö senda frá sér kröfu- geröina jafnhliöa tilkynningu um uppsögn samninga og var endan- lega frá kröfugeröinni gengiö á fundinum i fyrrinótt. Saminga- nefndin hefur haldiö mjög marga fundi aö undanförnu og mikiö veriö starfaö i undirnefndum. Kröfugeröin sem nú hefur veriö samþykkt, mun í heild veröa send hverjum einasta félagsmanni I BSRB á næstunni, en hún verður prentuö I Asgaröi, timariti bandalagsins. Haraldur sagöi aö nær 80% félagsmanna BSRB væru nú i launaflokkunum B6-B15 og væri mánaöarkaupiö hjá þessu fólki á bilinu frá 80 þús.—125 þús. kr. á mánuði. Samkvæmt körfunum, sem BSRB gerir nú, eiga laun opin- berra starfsmanna aö hækka um 18-55%, ogum sömu krónutölu hjá þeim lægstlaunuðu og þeim sem skipa efstu flokkana. 1 þessu felst krafa um stóraukinn launa- jöfnuö.Nú eru hæstu laun i efsta flokki 2,8 sinnum hærri en hæstu laun I neðsta flokki, en veröi fall- ist á kröfur BSRB lækkar sú tala úr 2,8 i 2,15. Kröfurnar gera hins vegar ráð fyrir þvi aö þeir sem nú eru miöjumenn i launaskalanum hjá þvi opinbera fái svolitiö meiri hækkun i krónutölu en þær lægstu og þeir hæstu, en ástæöa þess er sú, aö þessihóparl miöjunnihafa boriö skaröan hlut frá samning- um aö undanförnu. Samkvæmt kröfugerö BSRB veröa mánaöarlaun opinberra starfsmanna eftir 1. júli n.k. á bil- inu frá kr. 115 þús. og upp I kr. 280 þús. Launaflokkar eru um 30 og alltaf sama bil þaö er kr. 5000,- á milli flokka. Haraldur Steinþórsson tók fram aö I átta efstu launaflokkun um væru hins vegar samtals ekki nema fimmtán einstaklingar, og aðeins einn i efsta flokknum. Éins og áöur sagöi er gert ráö fyrir aö launahækkunin veröi sú sama 1 krónutölu hjá hæstu og lægstu flokkunum, en hins vegar miöar kröfugeröin viö þaö aö verölags- bætur á laun veröi greiddar sem prósenttala af laununum, en ekki meö sömu krónutölu til allra. Allt fast í deilu hjúkrunarfræðinga Uþb. helmingur starfandi hjúkrunarfræöinga i Reykjavik hefur sagt upp störfum vegna óánægju meö launakjör ofl. Yfirvöld heilbrigöismála segja samninga ekki kóma til greina og stendur þvi allt fast I deil- unni. Hjúkrunarfélag íslands er ekki beinn aðili aö deilunni en stjórn þess fjallaöi um máliö i gær og gaf siöan út svofellda yfirlýsingu: „Stjórn Hjúkrunarfélags Is- lands stóö á sinum tima ekki aö uppsögnum hjúkrunarfræöinga á Borgarspitala, Landakoti og Vifilsstööum. Hjúkrunarfélag Isiands er aöili aö heildarsam- tökum BSRB og fer þar af leiðandi aö gildandi lögum um kjarasamninga. Stjórn félags- ins hefur hinsvegar fyllstu sam- úö meö uppsagnaraöilum og viöurkennir þörfina fyrir bætt- um kjörum hjúkrunar- fræöinga.” Nánarer fjallaö um mál þetta og viöbúnaö sjúkrahúsanna á baksföu blaösins i dag. | Samtök herstöövaandstæðinga halda Baráttufund 30. mars í Háskólabíói kl. 21 um kvöldið Á miðvikudaginn kemur, 30. mars, eru liðin 28 ár siöan her- námsflokkarnir samþykktu á þingi aö Island gengi f Atlants- hafsbandalagiö. Þann dag munu Samtök herstöðvaandstæöinga efna til baráttufundar i Háskóla- blói og veröur þar boöiö upp á vandaöa dagskrá. Ræöumenn á fundinum veröa þeir Guömundur J. Guömundsson formaöur Verkamannasambands íslands, ölafur Jensson læknir, Ingibjörg Sólrún Gisladóttir námsmaöur og Þórunn Eiriks- dóttir húsfreyja á Kaöalstööum i Borgarfiröi. Þeir Guömundur og Ólafur voru báöir þátttakendur i slagnum á Austurvelli 30. mars 1949 og hlutu báöir dóma fyrir. Auk ávarpanna kemur fram fjöldi listafólks sem flest flytur áöur óbirt efni. Olga Guörún Arnadóttir syngur, Kjartan Ragnarsson sömuleiöis, Spilverk þjóöanna flytur eigin tónlist og texta sem aö mestu er samiö fyrir þennan fund. Guörún Stephensen og öskar Halldórsson lesa ný frumsamin ljóö eftir þá Hannes Sigfússon og Ólaf Jóhann Sigurösson, Jónas Árnason les smásöguna Hatturinn, fluttur veröur leikþáttur sem þeir Pétur Gunnarsson og Sigurður Pálsson hafa samiö i tilefni af fundinum og loks veröur sýnd kvikmynd frá 30. mars 1949. Framhald á 14. siðu Guðmundur Ingibjörg Sólrún Ólafur Þórunn Brenglað réttarketfi: Fingraför tekin af börnum án heimildar Það gerðist norður I Skagafirði fyrr i þessum mánuði að öllum piltum á aldrinum 13-17 ára, sem stunda nám við skólann i Varma- hlið, var skipað að láta taka af sér fingraför. Tilcfni þess að fingraför voru tekin af börnunum var ekki ýkja merkilegt. Horfið hafði brenni- vfnskassi úr húsiþar I grennd við skólann, en fannst reyndar litlu siðar og ailar flöskur fullar!! Þótt kassinn væri fundinn voru börnin samt send i fingrafara- rannsókn. Samkvæmt upplýsingum dóms- málaráðuneytisins, þá er ekki heimilt að taka fingraför af börn- um, nema samþykki barnavernd- arnefndar komi til, en i þessu til- viki mun hvorki hafa verið leitað samþykkis foreldra barnanna né barnaverndarnefndar. Nokkrir úr hópi piltanna munu hafa neitaö aö láta taka af sér fingraför, og stóö sú neitun, þegar viö höföum siöast fréttir af mál- Merkilegt er þaö, aö fingra- faratakan var þó aöeins látin ná til pilta i skólanum, en stúlkunum var hins vegar sleppt! Þaö mun hafa veriö embætti sýslumanns á Sauðárkróki, sem kvaö uppúrskurö um aö fingraför ' skyldu tekin af börnunum, en skylt er að geta þess, aö sýslu- maöur var sjálfur ekki heima, þegar úrskuröurinn var felldur. Þjóöviljanum er kunnugt, um aö úr hópi foreldra hafa komiö fram kröfur um aö þessum fingraförum barna þeirra veröi eytt, þar sem þau hafi veriö tekin meö algjörlega löglausum hætti. Þjdöviljinn leitaöi upplýsinga um máliö hjá skólastjóranum i Varmahliö og sýslumanni Skag- firöinga, en þeir vildu ekki tjá sig um máliö, nema sýslumaöur taldi aö sættir heföu nú tekist og máliö félli niöur. ISLAND UR NATO - HERINN BURT! Tillaga þingmanna Alþýðubandalagsins Þingmenn Alþýöubandalags- ins lögöu i gær fram á alþingi tillögu til þingsályktunar um úr- sögn íslands úr Atiantshafs- bandalaginu og um uppsögn hernámssamningsins frá 1951. Tillagan er svohljóöandi: „Alþingi ályktar aö fela rikis- stjórninni aö segja upp aöild Is- lands aö Noröur-Atlantshafs- samningnum, er gekk i gildi 24. ágúst 1949. Ennfremur ályktar alþingi aö fela rikisstjórninni að æskja nú þegar endurskoðunar á varnar- samningi milli Islands og Bandarikjanna frá 5. mal 1951 i samræmi viö ákvæöi samnings- ^ins.svoogaö leggja fyrir alþingi frumvarp til uppsagnar samn- ings þessa, þegar er endurskoö- unarfrestur sá, sem i samningn- um er ákveðinn heimilar upp- sögn hans.” Tillöguna flytja allir, 11, þing- menn Alþýðubandalagsins. Fyrsti flutningsmaður er Gils Guömundsson. Helgi unum 1 // í efstu sæt- Kaliforniíu! sjá skákfréttlr á bls. 10 og 11 *** rr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.