Þjóðviljinn - 08.10.1977, Page 11
Laugardagur 8. október 1977 t>JÓÐVILJINN — StDA II
Ché Guevara
I Rómönsku Ameriku lifa frá-
sagnir og minningar um hetjur
og pislarvotta, um byltingar-
leiötoga, sem risu gegn ofurefl-
inu og féllu i baráttu sinni fyrir
fegurra og réttlátara mannlifi. I
þennan fjölmenna hóp hefur nú
bæst nýtt nafn, ef til vill stærst
þeirra allra, Enesto Ché Gue-
vara. Raunar verður minningin
um Guevara engin séreign róm
anskra Amerikuþjóða: saga
hans er nátengd þeirri baráttu
sem skipta mun sköpum á næstu
áratugum, baráttu snauðra og
fátækra þjóða i Ameriku, Afriku
og Asiu fyrir jafnrétti og frelsi.
Ernesto Ché Guevara var
ekki fulltrúi þeirrar vonlausu
baráttu sem löngum hefur verið
háð i Rómönsku Ameriku. Hann
náði þvi marki að breyta vonun-
um úr fjarlægum draumum i
nærtæk viðfangsefni. Hann var
einn af tólfmenningunum sem
iágu i felum á Pico Turquino,
hæsta tindi Kúbu, i ársbyrjun
1957, i riki Batista einræðis-
herra sem hafði yfir að ráða
50.000 manna her, búnum full-
komnustu morðtækjum banda-
riskra hergagnaverksmiðja.
Tveimur árum siðar voru þeir
samherjarnir, Ernesto Ché
Guevara, Fidel Castro og félag-
ar þeirra, orðnir ráöamenn
Kúbu: þeir höfðu hrundið vold-
ugum einræðisherra úr sessi og
boðiö mesta herveldi heims
byrginn með fullum árangri.
Ernesto Ché Guevara biðu þar
mikil verkefni, hann varð þjóð-
bankastjóri og siðar iðnaöar-
málaráðherra: raunar. var hann
árum saman hinn eiginlegi for-
sætisráðherra Kúbu, sá sem
öðrum fremur skipulagði end-
urreisnarstarfið. En Ernesto
Ché Guevara taldi öll rómönsk
Amerikuriki föðurland sitt:
hann var Argentinumaður að
uppruna: hann hafði tekið þátt i
baráttu Guatemala gegn banda-
risku valdaráni: hann hafði
ferðast um flest lönd Rómönsku
Ameriku og þekkti öörum betur
kjör þeirra 200 miljóna manna
sem þar búa. Hann taldi bylt-
inguna á Kúbu aðeins áfanga
annarrar og stærri byltingar.
Hann vann I sifellu að þeirri
frelsisbaráttu, samdi bók um
skæruhernaðinn á Kúbu og lagði
á ráðin um það hvernig unnt
væri að beita hliðstæðum að-
ferðum i öðrum rikjum
Ameriku. En hann lét sér ekki
nægja að leggja á ráðin.
Snemma árs 1965 hvarf hann frá
völdum sinum og metorðum og
tók upp baráttu með skærulið-
um i Andesfjöllum, við hlið
„hinna arðrændu og fyrirlitnu
þegna Rómönsku Ameriku”.
Eflaust hrósa bandariskir
valdamenn og erindrekar
þeirra sigri þegar Ché’ er fall-
inn. En slikur maður verður
ekki felldur: minning hans og
fordæmi blikna ekki. Hann
sannaði með lifi sinu að hinir
vopnlausu og snauöu geta sigr-
að ofurefnið: hann dó til þess að
leggja áherslu á þau brýnu
sannindi að þeir sem sigra
mega ekki gleyma félögum sin-
um. Magnús Kjartansson.
Með skæruliðum i Bóliviu
Che á fundi með verkamönnum úr sykuruppskerunni
CHE
Sorti hylur nú Ancohuma
hulduljósið yfir Cordilleras slokknað.
En Che! í frjórri öskunni er falinn eldur
þar sem hún dreifist land úr landi
með andardrætti hinna forsmáðu
og fingurnir af höggnir til minja
benda upp á við fram á við:
eyðið hrægömmunum! laugið tré og tinda
blóði sólarinnar í hjörtum yðar!
Og Ché! frá Aruba til Tierra del Fuego
er himinninn alþakinn fingraförum
sem sanna hver þú varst.
Jóhannes úr Kötlum.
(Or Ijóðabók Ný og Nið: Mál og Menning 1971)
Régis Debray fyrir utan fangelsið i Camiri, Bóliviu
CHE
Ég kom þar í gær sem nafn þitt
ómaði/ Che, um sali
og fólk þitt fagnaði sigri
í regni af ilmandi rósum
ég kom þar sem gular stjörnur
spretta í þínum sporum
og nálægð þín fer sem gustur
um unga furuskóga.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Nú er ára-
tugur liðinn..
Nú er áratugur liðinn frá þeim
vonda haustdegi er byssukúla
batt endi á eitt mesta lif sem lifað
hefur verið: lif argentinska
byltingarmannsiris, hugmynda-
fræöingsins og læknisins Ernesto
Che Guevara. Kúlan kom úr
byssu auvirðilegs tindáta úr bóli-
viska hernum og morðið var
framið i skólastofu i þorpinu La
Higuera i suðausturhluta Bóliviu.
Daginn áður, 8. október 1967,
hafði bóliviski herinn látið til
skarar skríða gegn Che og
mönnum hans og varð úr þvi
mikill bardagi þar sem heitir
Quebrada del Yuro. Che særðist i
bardaganum og byssa hans var
eyðilögð, sem þýddi að hann átti
ekki annars úrkosta en láta hand-
taka sig. Síðan var hann hafður i
haldi i u.þ.b. sólarhring i skól-
anum i La Higuera, þartil skipun
barst frá æðri stöðum um að
myröa fangann. Þar með var
lokið þeim kafia i byltingarsögu
Rómönsku Ameriku sem vakið
haföi heitastar vonir. Margir litlir
karlar hafa oröið til þess siðan aö
gefa út spekingslegar yfirlýs-
ingarum að „þetta hlaut að enda
svona”, „þetta var vonlaust frá
upphafi”, osfrv. Franski heim-
spekingurinn Regis Debray, sem
hafði náin samskipti við Che i
Bóliviu og var siðar dæmdur i 30
ára fangelsi þar, en náðaður eftir
2 ár, hefur ritað manna mest og
best um skæruhernað Che. í einni
af bókum sinum (Che’s Guerille
War) afgreiðir hann þessa sjálf-
skipuðu „gagnrýnendur með til
vitnun i Lenin, þar sem segir svo:
„Marx skilur vel að sérhver til-
raun til að segja nákvæmlega
fyrir um árangur baráttunnar,
væri skrum eða ófyrirgefanlegt
sjálfsálit. Hann, fremur en
nokkur annar, viðurkennir þá
staðreynd aö verkalýðsstéttin
með sinn hetjuskap, sjálfsaf-
neitun og frumkvæði, er gerandi
mannkynssögunnar. Marx leit á
söguna frá sjónarhorni þeirra
sem framkvæma hana, án þess
aö geta með nokkru móti vitað
upp á hár hverjir möguleikar
þeirra til að ná árangri eru. Hann
hegðar sér ekki einsog siða-
predikari og menntamaður af
smáborgarastétt sem getur sagt:
„þetta var auðvelt að sjá fyrir”,
„þetta eða hitt hefði betur verið
látið ógert”.
Che Guevara var einn af ger-
endum mannkynssögunnar. Fáir
menn hafa hrist jafnrækilega upp
I samtið sinni og hann. Fáir hafa
verið hataðir og elskaðir á jafnaf-
dráttarlausan máta. Sjálfur likti
hann sér við Don Quijote, riddar-
ann grátbroslega.
Alfan, sem hann hugðist frelsa,
Rómanska Amerika, er nú hulin
svartara myrkri en nokkru sinni
fyrr i sinni blóðugu sögu. I þessu
myrkri er Che stjarna sem skin
og visar veginn hinum fordæmdu
og smáðu inni bjartan morgun-
daginn sem fyrr eða siðar hlýtur
að renna yfir Andesfjöll.
Ingibjörg Haraldsdóttir