Þjóðviljinn - 15.03.1983, Page 1
Þriðjudagur 15. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SH>A •
Þórdís Gísladóttir setti á laugar-
dag nýtt íslandsmet í hástökki
kvenna innanhúss, stökk 1,88
metra. Það gerði hún á meistara-
móti háskólanna í Michigan í
Bandaríkjunum þar sem hún dvel-
ur við nám og dugði það til sigurs á
mótinu.
- FE/VS
Met hjá
Þórdísi
Þrenna
Stefáns
Víkingar sigruðu KR-inga 4:3 í ,
æfingaleik í knattspyrnu um helg-
ina. Stefán Halldórsson,
miðvörður Víkingas, brá sér í sína
gömlu stöðu sem framherji og
skoraði þrjú markanna, það fjórða
sá Jóhann Þorvarðarson um.
Þrjú jöfn
i Keflavík
Laugdælir, Isfirðingar og
Breiðablik þurfa að heyja nýja úr-
slitakeppni um 1. deildarsætið í
körfuknattleik en þessi þrjú lið
urðu efst og jöfn í úrslitum 2.
deildar í Keflavík um helgina.
Fjórða liðið, ÍME, Egilstöðum,
tapaði öllum sínum en skartaði þó
þeim leikmanni sem mest kom á
óvart, hástökkvaranum kunna,
Stefáni Friðleifssyni.
Fyrst unnu Laugdælir ÍME 98-
72. Þá mættust Breiðablik og ísa-
fjörður. Blikar voru yfir allan
tímann og sigruðu 79-76. Atli Ara-
son 27 og Björn Christensen 22
voru stigahæstir þeirra en Guðjón
Þorsteinsson með 29 og Jón Odds-
son 21 hjá ísfirðingum.
Á laugardag unnu ísfirðingar
Laugdæli 79-76 eftir æsispennandi
leik. Laugdælir voru yfir mínútu
fyrir leikslok en ísfirðingar
skoruðu fjögur síðustu stigin.
Kristinn Kristjánsson skoraði 23
stig fyrir ísafjörð, Jón 17 og
Guðjón 16. Sigurður hástökkvari
Matthíasson skoraði 22 stig fyrir
Laugdæli, svo og Ellert Magnús-
son, og Þorkell Þorkelsson 20.
Breiðablik vann ÍME 88-75 eftir að
Austfirðingar höfðu haft yfirhönd-
ina framan af. Þá sigruðu ísfirðing-
ar ÍME 91-70 og loks settu
Laugdælir allt í hnút með því að
vinna Breiðablik 91-81. -gsm
Þorbergur
til Eyja
Þorbergur Aðalsteinsson, fyrir-
liði landsliðsins í handknattleik,
verður næsta árið í Vestmanna-
eyjum og leikur með Tý eða Þór.
Hann ætlar að gefa áfram kost á sér
í landsliðið þrátt fyrir flutninginn.
Guðmundur „Dadú“Magnússonskorar hjáEUert Vigfússyni Víkingsmark verði í bikarleiknum í gærkvöldi. Mynd: -eik.
FH réð ekki við Viggó
i síðari hálfleiknum!
Bikarleikur var það í orðsins
fyllstu merkingu þegar tveir ris-
anna í íslenskum handknattleik,
Víkingur og FH, mættust í 16-liða
úrslitum bikarkeppninnar í Laug-
ardalshöllinni í gærkvöldi. Eftir að
allt hafði stefnt í sigur FH lengi vel
tóku Víkingar heldur betur við sér.
Mínútu fyrir leikslok í stöðunni 26-
26 fengu þeir knöttinn eftir klaufa-
leg mistök FH-inga. Þeir héldu hon-
um og tíu sekúndum fyrir leikslok
átti Sigurður Gunnarsson laglega
línusendingu á Hilmar Sigurgísla-
son sem skoraði, 27-26, og tíminn
sem eftir var reyndist FH-ingum of
naumur til að ógna Víkingsmark-
inu verulega.
Leikurinn var jafn í byrjun en
síðari hluta síðari hálfleiks skoruðu
FH-ingar fimm mörk í röð og
breyttu stöðunni úr 7-9 í 12-9. Þeir
leiddu síðan 15-11 í leikhléi. Vík-
ingar voru afar slakir í fyrri hálf-
leik, sóknarleikurinn var einhæfur
og FH-vörnin átti ekki í erfiðleik-
um með að stöðva ráðlausa sóknar-
menn íslandsmeistaranna.
Það sama var uppi á teningunum
fyrstu tíu mínútur síðari hálfleiks.
Staðan var orðin 20-15, FH í hag,
en þá fór dæmið að snúast við.
Hringt frá Islandi og
Viðar út í kuldann!
Eins og menn muna, lék Viðar
Vignisson landsliðsmaður í körfu-
knattleik, sem í vetur stundar
nám í Bandaríkjunum, nokkra
leiki með Keflvíkingum í úrvals-
deildinni meðan hann var staddur
hér heima í fríí eftir áramótin.
Andstæðingar Keflvíkinga kærðu
þar sem hann léki með úrvalsliði
síns skóla þar ytra. Úrskurðurinn
varð hins vegar sá að væri Viðar
einhvers staðar ólöglcgur, væri það
með skólaliðinu.
Viðar hefur ekki fengið mörg
tækifæri með skólaliðinu en fyrir
skömmu leit út fyrir að stundin
væri runnin upp. Vegna brottfarar
tveggja sterkra leikmanna virtist
röðin komin að Keflvíkingnum
unga. Af því varð ekki, þjálfari
liðsins fékk upphringingu frá ís-
landi þar sem honum var tilkynnt,
að Viðar væri ólöglegur með skóla-|
liðinu vegna leikja sinna með IBK.
Þjálfarinn vildi enga áhættu taka -
Viðar var kominn útí kuldann á ný!
Vonbrigðin að sjálfsögðu mikil og í
Keflavík sýður á mörgum vegna
þessa tiltækis.
- VS
Hafnfirðingar gerðust bráðir í
sókninni og töpuðu knettinum
hvað eftir annað. Undir forystu
Viggós Sigurðssonar sem var
hreint óstöðvandi söxuðu Víkingar
ört á forskotið og jöfnuðu tólf mín-
útum fyrir leikslok með marki nýja
fyrirliðans, Guðmundar
Guðmundssonar. Síðan var jafnt á
flestum tölum til leiksloka og end-
inum er áður lýst.
Leikur Víkinga var eins og svart
og hvítt. Síðustu 20 mínúturnar
léku þeir mjög vel, einkum Viggó.
Sigurður Gunnarsson var nánast
einn um að halda uppi merki liðsins
í fyrri hálfleik en í þeim síðari voru
Viggó og Ellert Vigfússon mark-
vörður í aðalhlutverkum. Vörnin
tók sig verulega á eftir því sem á
leið og þar voru bestir þeir Hilmar
og Páll Björgvinsson, sem setti nýtt
leikjamet hjá Víkingi í gærkvöldi,
lék sinn 404. leik með meistara-
flokki. Þorbergur Aðalsteinsson
og Kristján Sigmundsson léku ekki
með, voru á.fundi, en fjarvera
þeirra kom ekki að sök að þessu
sinni. Viggó skoraði 10 mörk, 8
þeirra í síðari hálfleik. Sigurður
gerði 9, Hilmar 2, Ólafur Jónsson
2, Steinar Birgisson 2, Guðmundur
og Páll eitt hvor.
Með hraða sínum og krafti virt-
ust FH-ingar hafa öll ráð Víkinga í
hendi sér lengi vel. Þeim tókst ekki
að halda haus þegar á móti blés,
enginn gat tekið frumkvæðið þegar
Kristján Arason var tekinn föstum
jtökum. Kristján var yfirburða-
maður í liðinu og Pálmi Jónsson átti
virkilega góðan síðari hálfleik.
Þorgils Óttar lék ekki með vegna
meiðsla. Sverrir Kristinsson átti
mjög góða kafla í markinu og þegar
hann varði frá Guðmundi í
hraðaupphlaupi tæpum tveimur
mínútum fyrir leikslok þegar FH
' var yfir 26-25 hefði mátt halda að
I hann hefði þar með unnið leikinn
endanlega fýrir FH. Víkingar voru
á öðru máh. Kristján skoraði 13
mörk, 6 víti, Pálmi 4, Guðmundur
M. 3, Guðjón Á og Hans 2 hvor,
Sveinn og Valgarður eitt hvor.
Dómgæsla Grétars Vilmundar-
sonar og Ævars Sigurðssonar var
langt frá því að vera gallalaus en
þeir voru ákveðnir og höfðu mjög
góð tök á erfiðum leik.
-VS
Oruggt hjá KR
Á eftir Víkingum og FH áttust
við KR og Ármann í bikarkeppn-
inni. Þar voru bikarmeistararnir að
leika við botnlið 2. deildar og sigur
KR varafaröruggur, 31-21. Staðan
í hálfleik var 20-11, KR í vil.
KR þurfti ekki að leika á fullu og
t.d. var Alfreð Gíslason hvfldur al-
gerlega. Ekki búinn að ná sér eftir
kalda hóteldvöl í Hollandi. Stefán
Halldórsson skoraði 10 marka KR,
Gunnar Gíslason 7 og Ragnar Her-
mannsson 4. Bragi Sigurðsson og
Haukur Haraldsson skoruðu 5
mörk hvor fyrir Ármann, Jón Við-
ar „poppskríbent“ Sigurðsson
þrjú.
- B/VS
Missti niður forystuna
ensigraði í bráðabana
Mike Nicolett vann sinn fyrsta
sigur í „Bandaríkjaferðinni", golf-
keppni atvinnumanna, á Bay Hill
Classic mótinu í Florida um helg-
ina. Sigur hans var þó mjög
naumur, eftir að hafa haft góða for-
ystu lengst af missti hann hana nið-
ur og þurfti að leika „bráðabana"
við sjálfan meistarann í slíkum
viðureignum, Greg Norman, en
báðir léku á 283 höggum. Nicolett
sló þar frábært upphafshögg og
lagði Norman á fyrstu holu.
D.Á.Weibring og Bill Rogers
höfnuðu í 3.-4. sæti, léku á 286
höggum hvor. Fjórir kunnir kapp-
ar komu næstir með 287 högg, Se-
verino Ballesteros, Jack Nicklaus,
Hale Irwin og Gil Morgan.
-VS,
Manch. Utd- Arsenal
í undanúrslitunum!
Úrslitaleikur ensku bikarkeppn-
innar í knattspyrnu á
Wembley-leikvanginum í London I
maí næstkomandi verður ekki á
milli Manchester United og Arsenal
eins og margir knattspyrnuunn-
endur voru að vonast eftir. Þessi lið
drógust saman í undanúrslitin í gær
og leika þau á Villa Park í Birming-
ham þann 16. aprfl.
Brighton, Sheffield Wednesday
eða Burnley kemst í úrslit. Þau tvö
síðamefndu, sem bæði leika í 2.
deild, mætast öðru sinni í kvöld í
8-liða úrslitunum og sigurvegarinn
mætir Brighton, einu botnliða 1.-
deildar, á Highbury í London 16.
apríl.
Aberdeen-Celtic
í Skotlandi var einnig dregið til
undanúrslita og þar lentu saman
efstu lið úrvalsdeildarinnar, Aber-
deen og Celtic. Hinn leikurinn
verður á milli Rangers og St.Mirr-
en en báðir fara fram 16. aprfl, sá
fyrmefndi á Hampden Park en sá
síðarnefndi á Parkhead, heimavelli
Celtic.
-VS