Þjóðviljinn - 06.12.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.12.1983, Blaðsíða 3
FH slapp fyrir horn FH slapp fyrir horn meö aö ná jafn- tefli, 15-15, gegn ÍR í 1. deild kvenna í handknattleik í Hafnarfiröi á laugardag- inn. (R haföi tveggja marka forystu, 15- 13, þegar tvær mínútur voru eftir en FH náði aö jafna á síðustu stundu og var a.m.k, annað markiö dulítiö vafasamt. Leikurinn var alltaf í járnum og aldrei meira en tveggja marka munur. Staðan í hálfleik var líka jöfn, 9-9. Ing- unn Bernótusdóttir og Erla Rafnsdóttir voru að vanda atkvæðamestar hjá ÍR en Margrét Theodórsdóttir og Kristjana Aradóttir voru í aðalhlutverkum hjá FH. ÍR varð fyrir því áfalli að varnar- og línuspilarinn sterki, Þorgerður Gunnarsdóttir, sleit hásin í leiknum og verður frá keppni næstu vikurnar. Valur vann þýðingarmikinn sigur á Víkingi í fallbaráttunni, 20-16, á laugar- daginn. Leikurinn var jafn lengst af, staðan 11-10 fyrir Val í hálfleik og um miðbik síðari hálfleiks var enn eins marks munur, 14-13. í>á kom góður kafli hjá Val sem gerði útslagið. Erna Lúðvíksdóttir og Elín voru markahæst- ar í jöfnu Valsliöi, gerðu 4 mörk hvor. Svava Baldvinsdóttir og Eiríka Ás- grímsdóttir skoruðu 4 hvor fyrir Vík- ing Á sunnudagskvöldið vann Fram fyrirhafnarlítinn sigur á ÍA, 23-11, í Laugardalshöllinni. Það var aðeins í byrjun að Skagastúlkurnar héldu í við Fram en síðan breikkaði bilið jafnt og þétt. Staðan í hálfleik var 11-6. Sigrún Blomsterberg átti bestan leik hjá Fram, var í aðalhlutverki í síðari hálfleik, en í þeim fyrri bar mest á Guðríði Guðjóns- dóttur. Kristín Brandsdóttir markvörð- ur var langbest í liði ÍA. Guðríður skoraði 9 mörk fyrir Fram, Sigrún 8 og Hanna Leifsdóttir 3. Karítas Jónsdóttir gerði 4 fyrir í A og Ágústa Friðriksdótt- ir 2. Loks léku KR og Fylkir og sigraði KR nokkuð óvænt, 17-14. Fylkir hafði undirtökin lengst af, var 9-8 yfir í hálf- leik, en á lokakaflanum gáfust nýlið- arnir úr Árbænum hreinlega upp. Leikurinn var frekar slakur en baráttan mikil enda stigin þýðingarmikil. Eva Baldursdóttir skoraði 9 marka Fylkis, 6 úr vítum og Rut systir hennar 2 en Vald- ís Hailgrímsdóttir, Kristbjörg’Magnús- dóttir, Karolína Jónsdóttir og Hansína Melsteð skoruðu 3 mörk hver fyrir KR,- VS. Auðveldur sigur Vals Kærulausir Valsmenn áttu ekki í ertiðleikum með að sigra slaka ÍR- inga í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik á laugardaginn. Leikið var í Seljaskóla, úrslitin urðu 91-85, Val í hag, og segja þau minnst um gang leiksins. Valsmenn höfðu for- ystu frá fyrstu mínútu og höfðu yfir- burði í flestum sviðum en ÍR-ingar náðu að klóra í bakkann undir lok- in. Strax var Ijóst hvert stefndi. Val- ur komst í 23-10 eftir 9 mínútur og sá munur hélst að mestu út fyrri hálfleikinn. Staðaníhléi var 50-36, Val í hag. Þróttarar eru komnir í slaginn um sæti í úrslitakeppninni um Islands- meistaratitilinn í handknattleik karla eftir 22-18 sigur á Stjörnunni í Kópavogi á föstudagskvöldið. Sigur þeirra var sanngjarn og nú stefnir allt í keppni Þróttar, Stjörn- unnar og KR um fjórða(?) sætið í úrslitunum. Stjarnan náði góðri forystu í byrjun, 7-3 og síðan 8-5, en Þrótt- arar skoruðu fimm síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddu 10-8 í hléi. Þar með var frumkvæðið þeirra og það var ekki, látið af hendi. Jafnt 1 síðari hálfleik hélst 12-20 stiga munur lengst af en á lokamínútun- um, þegar Valsmenn stefndu að því einu að láta alla sína menn skora (það tókst) minnkaði munur- inn ört. Þegar 22 sekúndur voru eftir náði Gylfi Þorkelsson að skora fallega körfu fyrir ÍR, staðan þá 89-85, aðeins 4 stiga munur, en Tómas Holton svaraði fyrir Val úr tveimur vítaskotum undir lokin, 91-85. Það er erfitt að dæma frammi- stöðu Valsmanna. Eins og svo oft áður létu þeir varamennina óspart var fram eftir síðari hálfleik en undir lokin náðu Þróttarar óverj- andi forskoti, 22-15, en Stjarnan skoraði þrjú síðustu mörk leiksins. Páll Ólafsson var besti maður Þróttar en Ásgeir markvörður, Páll Björgvinsson og Birgír Sigurðsson áttu allir ágætan leik. Hjá Stjörn- unni var Eyjólfur Bragason skást- ur. Mörk Þróttar: Páll Ó. 7, Birgir 5, Páli B. 4, Konráð 4, Gísli 1 og Sigurjón 1. Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur 7, Gunn- laugur 3, Magnús 3, Bjarni 2, Hannes 1, Björgvin 1 og Guðmundur 1. _yc spreyta sig þegar forystunni var náð og þeir héldu ávallt í horfinu. Þar hjálpaði líka til skrýtin bekk- stjórn ÍR-inga. Valsmenn sýndu oft stórgóða takta, falleg upphlaup og körfur, og lífguðu þannig upp á annars leiðinlegan leik. Þar voru Tómas Holton og Jón Steingríms- son Iangfremstir í flokki. Tómas hreinn snillingur með boltann en er stundum jafnvel ívið of óeigin- gjarn. Hvar væri ÍR ef bræðranna Gylfa og Hreins Þorkelssona nyti ekki við. Þeir héldu liðinu alger- lega á floti og skoruðu ríflega helm- ing stiganna. Stefán Kristjánsson kom skemmtilega á óvart með glæsikörfum og gullfallegum send- ingum. (Leynir á sér, SK!). Á aðra er vart orðum eyðandi. Stig Vals: Kristján Ágústsson 17, Torfi Magnússon 14, Jón 14, Björn Zoega 10, Tómas 10, Leifur Gústafsson 9, Valdimar Guðlaugsson 8, Hannes Hjálmarsson 4, Jóhannes Magnusson 4 og Helgi Gúst- afsson 1. Stig ÍR: Hreinn 27, Gylfi 18, Stefán 13, Ragnar Torfason 8, Kristján Oddsson 7, Bragi Reynisson 5, Hjörtur Oddsson 5 og Jón Jörundsson 2. Björn Ólafsson og Gunnar Val- geirsson dæmdu. Gunnar er ákveð- inn og hefur sýnt miklar framfarir, Björn þarf að bæta sig en er á réttri leið. -VS Þróttur sækir á 10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. desember 1983 Umsjón: Víair Sigurðsson 1. deild kvenna I handknattleik: Valur náði að stöðva Sigurð Soffia Hreinsdóttir svífur inní vítateig Víkings og skorar fyrir Val í leik liðanna á laugardaginn. Mynd: Magnús. Valsmenn báru sigurorð af Víkingum í 1. deild handboltans sl. laugardag. Lokatölur urðu 21-20 fyrir Val eftir að Víkingar höfðu leitt í hálfleik, 13—12. Leikurinn var í fullkomnu jafnvægi mest allan tímann. Vals- menn höfðu frumkvæðið framan af, en Víkingarnir náðu alltaf að svara fyrir sig. í hálfleik höfðu Vík- ingar hinsvegar náð forystunni 13- 12, eins og áður sagði. Seinni hálfleikur var hinsvegar köflóttari, Steindór jafnaði 13-13. Víkingar skoruðu næstu 4 mörk og staðan þá orðin 17-14 og seinni hálfleikur hálfnaður. Valsmenn tóku þá það til bragðs að setja mann til höfuðs Sigurði Gunn- arssyni sem hafði, er hér er komið til sögu, verið Valsmönnum mjög erfiður. Hann hafði skorað 8 mörk auk þess sem hann var potturinn og pannan í flestum sóknaraðgerðum Víkinga. Við þetta riðlaðist allur sóknarleikur Víkinga. Valsmenn gengu á lagið, þeir náðu að jafna 18-18. Víkingar komast í 20-19 en Valsmenn ná að jafna metin með marki Guðna Bergssonar. Brynjar Harðarson skoraði síðan 21 mark Vals er ein og hálf mínúta var til leiksloka. Einar Þorvarðarson tryggði Val síðan bæði stigin með því að verja tvisvar sinnum mjög vel af línunni á síðustu mínútu leiksins. í mjög jöfnu Valsliði var Jón Pétur bestur. Sigurður Gunnars- son var yfirburðamaður í liði Vík- ings, þá stóð Kristján Sigmundsson sig vel í markinu. Mörk Vals: Brynjar 6(4), Jön Pétur Jónsson 5, Guöni 2, Geir Sveinsson 2, Björn Björnsson 2, Steindór 2 og Valdem- ar Grimsson 2. Mörk Víkings: Sigurður 8(1), Guð- mundur Guðmundsson 3, Hilmar Sigur- gislason 3, Karl Þráinsson 2, Steinar Birg- isson 2, Hörður Harðarson 1 og Viggó Sigurðsson 1. Dómarar voru Grétar Vilmund- arson og Ævar Sigurðsson og misstu þeir ekki leikinn úr höndum sér þrátt fyrir fjölmargar vitleysur. -Frosti Sigurganga Völsunga Sigurganga Völsungs í 1 .deild kvenna í blaki var loks rofin á föstudagskvöldið. ÍS náði að vinna góðan sigur í íþróttahúsi Háskólans, 3:0, í þó jöfnum og mjög vel leiknum leik liðanna. Hrin- urnar endurðu 15:13, 16:14 og 15:11 og leikurinn stóð yfir í 68 mínútur. Völsungur gaf hins vegar Breiðabliki engin grið daginn eftir og vann léttan sigur, 3:0, f Kópavogi. Breiðabiik komst í 7:1 í fyrstu hrinu en síðan ekki söguna meir. Völsungur vann 15:8 og hinar tvær 15:7 og 15:5. HK vann öruggan sigur á ÍS í 1. deild karla í Kópavogi á laugardaginn, 3:1, og allt stefnir í einvígi Kópavogsliðsins og Þróttar um meistarat- itilinn. HK vann fyrst 15:9, komst síðan í 12:7 í annarri hrinu en tapaði þó 13:15. Engin spurning var um úrslit í hinum tveimur, HK vann 15:8 og 15:6. Staðan í 1. deild kvenna: Völsungur................................7 6 1 18:3 12 is.......................................7 6 1 18:6 12 Breiðablik...............................6 4 2 12:6 8 Þróttur..................................S 1 4 4:14 2 Vtkingur.................................4 0 4 2:12 0 KA................................;.....5 0 5 2:15 0 HK-2 vann góðan sigur, 3:1, á Þrótti frá Nes- kaupstað í 2. deildinni í Kópavogi á laugardaginn. - VS Aftur vann UMFL Laugdælir unnu Grindvíkinga öðru sinni með stuttu millibili í 1. deild karla í körfuknattleik, þegar félögin mættust á Selfossi á sunnudaginn. Úrslit leiksins urðu 54-49, fyrir Laugdæli, eftir að Grindvíkingar höfðu haft forystu í hálfleik, 29-24. Leikurinn var jafn allan tímann en Laugdælin náðu undirtökunum um miðjan síðari háífleik. Þeir héldu forystunni það sem eftir var og þriðji sigur nýliðanna var í höfn. Unnar Vilhjálmsson og Ellert Magnússon skoruðu 14 stig hvor fyrir Laugdæli en Eyjólfur Guðlaugsson þjálfari var stigahæstur Grindvíkinga með 18 stig. Næstur honum kom Ólafur Jóhannsson með 13. - VS. Góður Porssigur Þór vann góðan sigur á ÍS, 82-73, í 1. dcild karla í körfuknattleik á Akureyri á laugardaginn. ÍS var yfir í hái leik 34-32 og leikurinn var jafn lengi vel, en Þórsa: ar náðu forskoti seint í leiknum sem þeir létu ekki af hendi. Lið Þórs var jafnt og sterkt og á framtíðina fyrir sér. Kristinn Jörundsson þjálfari var bestur í liði ÍS. Guðmundur Björnsson skoraði 20 stig fyrir Þór en Kristinn 22 fyrir ÍS. -K&H/Akureyri. róttir Þriðjudagur 6. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Umsjón: Viðir Sigurðsson IBK í öldudal FHingar þurfa harða mótspyrnu fyrir Evrópuleikina Eftir góðan leik gegn Njarðvík á dög- unum héldu flestir í Keflavík að lið ÍBK væri loks að komast á skrið. Þeir hinir sömu urðu fyrir miklum vonbrigðum á Tveir efnilegir berjast - ísak Tómasson Njarðvíkingur og Páll Kolbeinsson KR-ingur. Mynd - eik. KR-ingar á toppinn! Hinirdyggu stuðningsmenn KR- inga risu úr sætum og gáfu mikla ánægju sína til kynna með dynj- andi lófataki þegar þeirra menn gengu af leikvelli í Hagaskólanum á sunnudaginn, eftir að hafa sigrað Njarðvíkinga 76-73 í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Undirtekt- irnar áttu Vesturbæingar skildar, þeir höfðu lagt sig alla fram og unn- ið góðan sigur í tvísýnum leik. Það sem meira er, frammistaða KR í vetur hefur komið flestum á óvart og liðið er nú eitt á toppi úrvals- deildarinnar. í stuttu máli sagt, KR hafði for- ystu nánast allan tímann. Aðeins í upphafi voru Njarðvíkingar yfir og á fyrstu mínútum síðari hluta fyrri hálfleiks en staðan í hléi var 33-31, KR í hag. Njarðvík náði að jafna nokkrum sinnum framan af fyrri hálfleik en þegar skammt var eftir náði KR níu stiga forskoti, 72-63. Spennan var ekki úr sögunni, Njarðvíkingar söxuðu á, Valur Ingimundarson raðaði í körfu KR og þegar níu sekúndur voru eftir minnkaði hann muninn í eitt stig, 74-73. KR-ingar héldu haus og á 1. deild kvenna í körfuknattleik: Fjórtán stigin dugðu ekki KR-stúlkunum! ÍS lenti óvænt í gífurlegum erfiðleikum með botnlið KR í 1. deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. KR tók forystuna strax í upphafi og komst 14 stigum yfir en ÍS minnkaði muninn í 26-18 fyrir hlé. í síðari hálfleiknum öllum skoruðu svo KR-stúlkurnar aðeins 6 stig, ÍS seig framúr og sigraði að lokum með fjögurra stiga mun, 36-32. Kolbrún Leifsdóttir var stigahæst hjá ÍS með 15 stig en Erna Jónsdóttir skoraði 18 stig fyrir KR. ÍR og Snæfell léku einnig á laugardaginn og var leikurinn jafn lengi vel. Staðan í hálfleik var 22-19, ÍR í vil, og fimm mínútum fyrir leikslok munaði fimm stigum, 40-35. Þá var úthald Stykkishólms- stúlknanna hins vegar á þrotum, lR skoraði síðustu 12 stigin og vann 52-35. Emilía Sigurðardóttir skoraði 19 stig fyrir ÍR og Guðrún Gunnarsdóttir 14. Kristjana Hrafnkelsdóttir 14 og Eydís Eyþórs- dóttir 8 voru stigahæstar hjá Snæfelli. Snæfell tapaði síðan fyrir Haukum í Hafnarfirði á sunnudaginn, 36-37. Staðan í hálfleik var 22-10 fyrir Hauka og Hafnarfjarðar- stúlkurnar voru ávallt með örugga forystu. Stig þeirra dreifðust mjög, fremstar jafninga voru Ásta Óskarsdóttir sem skoraði 9 stig og Sóley indriðadóttir með 8. Kristjana var hins vegar í sérflokki hjá Snæfelli, skoraði 19 af stigum liðsins. - VS. loka sekúndunni sendi Páll Kol- beinsson knöttinn í Njarðvíkur- körfuna við gífurleg fagnaðarlæti. Efsta sætið að launum. Jón Sigurðsson er maðurinn á bak við velgengni KR. Hann hefur skapað geysisamheldna liðsheild, nær því besta útúr hverjum leik- manni og hefur litlu gleymt sjálfur. Besti maður liðsins að þessu sinni og í stjórninni er hann ekki smeykur við að taka þýðingarmikl- ar ákvarðanir, eins og á lokamínút- unni í þessum leik þegar KR hélt boltanum skynsamlega. Páll átti mjög góðan leik, svo og Guðni Guðnason sem er hittinn með ein- dæmum. Garðar Jóhannsson var drjúgur í fyrri hálfleik og Birgir Guðbjörnsson skoraði nokkrar stórglæsilegar körfur. Gunnar Þorvarðarson, þjálfari UMFN, var bestur í sínu liði. Þetta var dagur gömlu „rebbanna". Val- ur var nokkuð frá sínu besta lengi vel en sýndi hvers hann er megnug- ur síðasta hluta leiksins. Ef einn maður getur snúið við gangi körfu- boltaleiks er það Valur, en þarna var til of mikils ætlast. Ingimar Jónsson lék vel en Njarðvíkingar söknuðu Sturlu Örlygssonar illi- lega. Hann tók nú út leikbann sitt og Njarðvíkingar hirtu því helm- ingi færri fráköst en vanalega. Þá vantar Árna Lárusson einnig, en hann er í leigubílaakstri fram að áramótum. Bakverðirnir efnilegu, Ástþór og fsak, fundu sig illa og það vantar reyndari kappa á borð við Árna til að skipta við þá. Stig KR: Jón 20, Páll 16, Guðni 12, Birgir 12, Garöar 8, Geir Þorsteinsson 4 og Þorsteinn Gunnarsson 4. Stig UMFN: Valur 28, Gunnar 22, Ing- imar 15, ísak 5 og Kristinn Einarsson 3. Gunnar Valgeirsson og Sigurður Valur dæmdu þokkalega. _VS (östudagskvöldið þegar ÍBK beið ósigur á heimavelli fyrir Haukum í úr- valsdeildinni, 64-74. Haukar náðu fljótlega forystu, 13-6, og héldu henni allan tímann. Staðan * varð fljótlega 24-11 en var 37-27 í hálf- leik. Þeir gerðu síðan út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks, komust í 53-33 og síðan í 61-35. Þá misstu Haukarnir Pálmar Sigurðsson útaf um stund, fékk sinadrátt eina ferðina enn, og ÍBK lagaði stöðuna nokkuð, eða í 43-61. Þá kom Pálmar aftur og Haukarnir héldu í horfinu. Skömmu síðar komu tíu Kefla- víkurstig í röð, staðan 60-70, en nær komust heimamenn ekki síðustu þrjár mínúturnar. Pálmar var í banastuði og var lang- besti maður vallarins. Þýðing hans fyrir Haukaliðið sást best þegar hann fór útaf. Reynir Kristjánsson og Ólafur Rafnsson hittu geysilega vel fyrir utan, enda gerði Keflavíkurvörnin ekkert til að hindra þá. Kristinn Kristinsson lék vel í vörninni. ÍBK er í gífurlegri lægð og vandamál- ið er að liðið hirðir ekki fráköst svo neinu nemi. Óskar Nikulásson var best- ur framan af en Þorsteinn Bjarnason og Jón Kr. Gíslason voru skástir í síðari hálfleik þegar þeir voru hættir að þrasa í dómurunum. Ungu mennirnir Sigurður og Guðjón komust vel frá sínum hlut- verkum. Stig Hauka: Þálmar 32, Reynir 17, Ólafur 11, Kristinn 6, Sveinn 4, Eyþór 2 og Henning 2. Stig ÍBK: Þorstelnn 18, Jón 16, Óskar 9, Sig- urður 9, Bjorn 7 og Guðjón S. Davíð Sveinsson og Ingi Gunnarsson dæmdu illa en það bitnaði jafnt á báð- um liðum. -SV/VS Skoska knattspyrnan: Enn vinnur Arberdeen Staða Motherwell, liðs Jóhann- esar Eðvaldssonar, er orðin mjög slæm í skorsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið tapaði enn á laugardag, nú 3-1 í Aberdeen. Mark McGhee skoraði fyrir Aber- deen í fyrri hálfleik en Motherwell réð lögum og iofum á vellinum fyrsta korterið í síðari hálfleik og þá jafnaði John Gahagan. Liðið var óheppið að ná ekki forystu, en síð- an tók Aberdeen völdin á ný og tvö mörk Gordon Strachan tryggðu Evrópubikarmeisturunum sigur. Celtic er áfram í öðru sætj, vann St. Johnstone 3-0 úti. Jim Dornan, Jim Melrose og skoruðu mörkin. Dundee United komst á slgur- braut á ný, vann Hibernian 2-0 í Edinborg. Mörkin gerðu Ralph Milne og Derek Stark. Besti leikurinn var í Dundee þar sem Dundee og St. Mirren gerðu 2-2 jafntefli. Walker McCall og Ray Stevens skoruðu fyrir Dundee en Ian Scanlon og Frank McA- vennie fyrir gestina. Rangers er að rétta úr kútnum og vann sannfærandi sigur, 3-0, á Hearts með mörkum Sandy Clark, sem gerði tvö, og John McDonald. Roy Aitken Staðan í úrvalsdeildinni: Aberdeen ....15 12 1 2 42-8 25 Celtic ....15 10 2 3 39-18 22 Ðundee United.... ....15 9 2 4 31-15 20 Hearts ....15 6 4 5 17-19 16 St. Mirren .... 15 4 7 4 23-22 15 Hibernian ....15 7 1 7 22-27 15 Dundee ....15 6 2 7 22-27 14 Rangers ....15 5 2 8 20-24 12 Motherwell .... 15 1 5 9 10-29 7 St. Johnstone ....15 2 0 13 11-48 4 Partick Thistle er áfram efst í 1. deild, hefur 25 stig. Morton, Dumbarton og Falkirk koma næst með 22 stig. -VS Ojöfn barátta hjá Göflurum Það hlýtur að vera orðið áhyggjuefni fyrir FHinga hversu litla mótspyrnu þeir fá í leikjum sínum í íslandsmótinu. Ekki aðeins að áhangendum liðsins fer að leiðast þessi eilífi sjónleikur þegar andstæðing- arnir eru skotnir í kaf (jafnvel helstu erkióvinirnir og sam- byggðarmenn) heldur ekki síst að meðalmennska andstæð- inganna hefur slæm áhrif á leik liðsins og veitir því ekki þann styrk sem því er nauðsynlegt einmitt nú til undirbúnings fyrir erfiða Evrópuleiki eftir réttan mánuð. Á laugardaginn voru það Haukamenn sem urðu að þola yfir- burðasigur FHinga. Lokatölurnar 38-20 tala sínu máli. Það verður þó að segja að Haukaliðið barðist vel í upphafi leiks og kom FH í opna skjöldu. Það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleik að leiðir skildu með liðunum og jafnt og þétt juku FHingar forskotið þar til leiktíminn var úti. Haukar spila mjög hægan hand- knattleik og tókst um tíma að toga hið annars hraðspilandi FHlið nið- ur í sama gír. Þetta var þunglama- legur og fálmkenndur handknatt- leikur og lítið fyrir augað. En Eyj- ólfur hresstist brátt og jafnvel Haukarnir tóku smásprett þegar ungu piltarnir Pétur, Sigurjón og Snorri fengu að leika með. Sannar- lega kominn tími til fyrir Hauka að láta yngri mönnum liðið eftir. Haraldur Sigurðsson varði eins og berserkur í marki FHinga í síðari hálfleik þar á meðal 4 víta- köst. Af öðrum leikmönnum FH áttu Kristján, Hans og Pálmi góðan leik. Hjá Haukúm bar mest á Jóni Haukssyni, mikill baráttumaðurog góð skytta auk þess sem Ingimar og Sigurjón sluppu vel frá leiknum. Mörkin: FH: Kristján 13/5, Hans 9/2, Atli 4, Valgarð 3, Dadu og Pálmi 2, Guðjón, Guðmundur Ósk., Sveinn og Þorgils 1 hver. Haukar: Jón Hauksson 6/1, Pétur og Ingimar 3, Hörður, Sigurjón, Snorri og Þórir 2 hver. _lp Staðan Úrslit í íslandsmótinu í hand- knattleik um helgina og staðan í deildunum: 1. deild karla: Stjarnan-Þróttur...............18-22 Haukar-FH......................20-38 Valur-Víkingur..................21 -20 FH...............8 8 0 0 256-158 16 Velur............8 5 1 2 172-166 11 Víkingur.........8 5 0 3 1 83-168 10 KR...............8 4 1 3 142-133 9 Þróttur..........8 3 1 4 172-188 7 Stjarnan.........8 3 1 4 150-179 7 Haukar...........8 1 1 6 156-194 3 KA...............8 0 1 7 139-184 1 Markahæstir: Kristián Arason, FH...............80 Páll Ólafsson, Þróttl.............56 Sigurður Gunnarsson, Víkingi......52 Eyjóltur Bragason, Stjörnunni.....50 Hans Guðmundsson, FH..............43 Viggó Sigurðsson, Vikingi.........39 Þorgils Ottar Mathiesen, FH.......39 1. deild kvenna: FH-ÍR..........................15-15 Valur-Vikingur.................20-16 Fram-Akranes..................23-11 KR-Fylkir......................17-14 Fram.............6 5 0 1 117-88 10 ÍR................5 3 2 0 94-68 8 FH................5 3 1 1 101-88 7 Fylkir............5 2 0 3 85-91 4 Valur.............5 2 0 3 83-98 4 KR................6 1 2 3 89-105 4 Vikingur..........5 1 1 3 82-81 3 Akranes...........5 1 0 4 61-93 2 2. deild karla: Grótta-Fram....................14-18 Rey nir S.-Þór Ve..............15-23 HK-ÞórVe.......................22-27 Breiðablik-Fylkir..............23-18 ÞórVe...........8 8 0 0 179-131 16 Fram..............7 6 0 1 152-126 12 Breiðablik'.......7 5 0 2 146-123 10 Grótta............7 4 0 3 148-134 8 HK................8 3 0 5 143-160 6 ÍR................7 2 0 5 104-131 4 Fylkir............7 1 0 6 121-149 2 ReynirS...........7 0 0 7 136-175 0 3. deild karla: Afturelding-Týr...............20-21 Þór Ak.-Ármann.................19-20 Skallagrimur-Ögri..............24-18 Seltoss-Akranes................20-26 Keflavfk-Týr...................21-27 Týr...............8 7 1 0 198-141 15 Ármann............7 6 0 1 146-146 12 ÞÓrAk.............7 5 0 2 183-123 10 Afturelding.......6 4 0 2 143-105 8 Akranes...........7 3 1 3 157-131 7 Keflavik..........7 3 0 4 161-153 6 Selfoss...........7 2 0 5 129-134 4 Skallagrímur....7 1 0 6 117-192 2 Ögri..............8 0 0 8 112-262 0 Staðan Úrslit leikja á íslandsmótinu I körfuknattleik um hclgina og staðan að þcim loknum: Úrvalsdeild: Keflavik-Haukar............ 64-74 Valur-ÍR.....................91-86 KR-Njarðvík..................76-73 KR...................8 6 2 596-562 12 Valur................8 5 3 699-633 10 Njarðvik.............8 5 3 631-600 10 Haukar...............8 4 4 576-586 8 Keflavik.............8 3 5 552-627 6 ÍR...................8 1 7 587-633 2 Stigahæstir: Vaiur Ingimundarson, Njarðvik..226 PálmarSigurðsson, Haukum.......182 Kristján Ágústsson, Val........173 Þorsteinn Bjarnason, Keflvík...152 Jón Kr. Gíslason, Keflavík.....142 Hreinn Þorkelsson, ÍR..........140 Jón Sigurðsson, KR.............131 Torfi MagnUsson, Val...........125 1. deild kvenna KR-ÍS........................32-36 ÍR-Snæfell................. 52-35 Haukar-Snæfell...............36-27 ÍR...................8 6 2 374-307 12 ÍS...................8 6 2 347-317 12 Haukar...............7 4 3 325-293 8 Njarðvík.............8 4 4 326-320 8 Snæfell..............8 2 6 254-302 4 KR...................7 1 6 224-313 2 1. deild karla: Fram-Skallagrimur...........105-77 Þór Ak.-ÍS...................82-73 Laugdælir-Grindavik..........54-49 Fram...............8 7 ÍS.................8 5 ÞórAk..............7 4 Grindavík..........7 4 Laugdælir..........6 3 Skallagrimur.......9 0 1 670-527 14 3 637-552 10 3 542-529 8 4 548-540 8 3 416-388 6 9 536-813 0

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.