Þjóðviljinn - 03.01.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR
Gamlárskvöld
Aramótin fuku út í veðrið
Engar áramótabrennur og íbúar á suðvesturhorninu urðu að halda sig innandyra. Bílar
fuku víða útaf vegum en engin teljandi slys áfólki. Blíðviðrifyrir norðan og austan
Hávaðarok og rigning settu
stærstan svip á hátíðarhöld
íbúa á Sður-og Vesturlandi á
gamlárskvöld. Nær ógjörningur
var að vera utandyra, brennur
urðu fæstar eldi að bráð og í þeim
sem var kveikt var hið snarasta
slökkt aftur þar sem logandi
brennuefni dreifðist yfir nær-
liggjandi íbúðarhverfi. Óneitan-
lega nokkuð döpur áramót fyrir
þau yngstu sem höfðu beðið í heilt
ár eftir brennustússi og flugelda-
sýningum. Fyrir norðan og
austan var veður hið fegursta á
sama tíma og ánægjuleg áramót í
hvívetna.
Þrátt fyrir veðurofsann á
suðvesturhorninu urðu engin
teljandi slys á fólki. Þó nokkuð
var um að bflar fykju út af vegum,
bæði á Suðurnesjum, á Kjalar-
nesi og undir Hafnarfjalli. Fyrir
framan Engihjallaháhýsin í
Kópavogi tókust bflar enn einu
sinni á loft og skullu saman.
Að sögn lögreglunnar urðu
hvergi teljandi skemmdir á
mannvirkjum í óveðrinu. Fólk
hafði hægt um sig, hélt sig að
mestu heima og umferð var því
með minnsta móti á nýársnótt.
Mikill skafrenningur var framan
af kvöldinu í Breiðholti og varð
lögreglan að aðstoða fólk við að
komast leiðar sinnar. Þá skóf
einnig mikið á Suðurlandsvegin-
um og Hellisheiði lokaðist.
Mönnum gekk misjafnlega vel
að koma flugeldum á loft í
óveðrinu og urðu sumir að leita
sárir ásjár slysavarðstofunnar
eftir misheppnaðar tilraunir.
Slökkviliðið í Reykjavík hafði í
nógu að snúast einkum við að
slökkva í brennum. Vonandi gefa
veðurguðirnir öllum landsmönn-
um tækifæri til að fagna nýju ári
með brennum og blysförum á
þrettánda dag jóla. - Ig.
Banaslys
16 ára piltur
ók útaf
Banaslys varð á Grindavíkur-
vegi aðfararnótt sl. laugardags er
bifreið fór útaf veginum og valt.
Ungur piltur var einn í bflnum og
lést hann samstundis.
Pilturinn sem hét Óðinn Krist-
jánsson, 16 ára gamall, var á leið
frá Grindavík til síns heima í
Vogum.
Islenskir
búnaðar-
hættir
Skráning þeirra
í undirbúningi?
Á Búnaðarþingi í fyrra var
samþykkt áskorun til ríkisstjórn-
ar og Alþingis um að veita fé til
þess að semja vísindarit um ís-
lenska búnaðarhætti. Var málið
runnið undan rifjum Árna
Björnssonar, þjóðháttafræðings.
Sjálfsagt hafa menn haft í huga
hið gagnmerka rit Lúðvíks Krist-
jánssonar rithöfundar um Is-
lenska sjávarhætti.
Vísir menn herma að nú sé á
fjárlögum fjárveiting til þessa
verks, þótt ekki sé hún sérstak-
lega skilgreind þar heldur undir
samheitinu Ýmis verkefni. Þess
er því að vænta að skriður komist
brátt á þetta mál og því fyrr, þeim
mun betra.
Ekki mun búið að ráða mann
til verksins, en nafn Þórðar Tóm-
assonar safnvarðar, í Skógum,
hefur mjög borið á góma. Senni-
lega er líka vandfundinn sá mað-
ur, sem betur er hæfur til þessa
starfs en hann.
- mhg.
«rr
Li 1 % (
Bannað aöreykja? Jú, reyndar erbannað að reykja íafgreiðslusal Póstsog síma viðÁrmúla einsog
á öðrum opinberum stöðum, en ný lög þar að lútandi tóku gildi um áramótin. Þessi pípureikingamaður
sem varð á vegi okkar var þó hvergi banginn og brosti aðeins út í hitt munnvikið er honum var bent á að
hann væri að brjóta lög. Ljósm.: E.ÓI.
Eþíópía
Styrktar-
skemmtun
„Við viljum lifa“, er yfirskrift-
in á skemmtun til styrktar svelt-
andi fólki í Eþíópíu og er mark-
miðið að safna andvirði eins flug-
vélarfarms af matvælum.
Skemmtunin verður haldin í
Laugardalshöll sunnudaginn 6.
janúar 1985 kl. 16-18 og að henni
standa helstu listamenn þjóðar-
innar ásamt íþrótta- og Æsku-
lýðsráði Reykjavíkur.
Eftirtaldir listamenn koma
fram: Stuðmenn, Mezzoforte,
HLH-flokkurinn, Ríó tríóið.
Kynnir verður Þorgeir Ást-
valdsson. íþróttaráð leggur til
húsnæði og Æskulýðsráð alla
vinnu fyrir og á skemmtuninni.
Miðaverð er 350 kr. fyrir full-
orðna, 150 kr. fyrir börn 7-12
ára, en börn 6 ára og yngri fá frítt.
Banaslys
Valt niður áttatíu metra
Ung kona varð að brjótastgegn veðri í2 tíma eftir hjálp. Bjó um
tvö ung börn sín í bílflakinu. Ökumaðurinn lést
Hörmulegt banaslys varð sl.
föstudag í Gilsfirði er fólks-
bifreið fauk út af veginum
skammt frá Ólafsdal og valt niður
um 80 metra. Ung hjón voru í
bflnum ásamt tveimur börnum
sínum. Börnin og móðirin köst-
uðust út úr bflnum á leið niður
hlíðina en ökumaðurinn valt með
bflnum og lést. Hann hét Sigurvin
Baldvinsson, 31 árs gamall, bóndi
á Gilsfjarðarbrekku.
Kona hans vann mikið þrek-
virki er hún braut sér leið í mikl-
um veðraham að næsta bæ til að
leita hjálpar. Áður hafði hún
komið börnunum tveimur fyrir í
skjóli í bílflakinu þar sem hún
taldi ekki ráðlegt að brjótast með
þau áfram í veðrahamnum. Tæp-
ir 6 km voru að næsta bæ,
Kleifum, frá slysstaðnum en það
Skv. nýútkominni ársskýrslu
Félagsmálastofnunar Reykja-
víkurborgar hefur á árinu 1983
verið dregið úr fjárhagsaðstoð
við skjólstæðinga hennar og hlut-
fall þess sem varið er til félags-
mála á vegum borgarinnar hefur
tók konuna um tvo tíma að kom-
ast á bæinn. Þaðan var kallað á
aðstoð og tók sjúkralið um hálf-
tíma að koma frá Búðardal. Var
minnkað úr 29% árið 1982 i
26.6% árið 1983.
Hlutfall félagsmála í heildar-
rekstrargjöldum borgarinnar var
á dögum vinstri meirihlutans sem
hér segir: Árið 1979 28.7%, árið
1980 30.5%, árið 1981 31.4% og
Sigurvin látinn er að var komið.
Konan og börnin sem eru 3 og 5
ára meiddust aðeins lítilsháttar.
1982 29% eins og fyrr segir en
hefur nú hrapað niður í 26.6%.
Þó að framlag til fjárhagsað-
stoðar hafi minnkað hefur fram-
lag til heimilishjálpar og dagvist-
arstofnana aukist.
- GFr.
-lg-
Reykjavík
Minnkandi fjárhagsaðstoð
Lánasjóður íslenskra námsmanna
100% lánsfjárþarfar greidd 1985
Sjóðurinnfœr 1008 miljónir til ráðstöfunar á árinu. Par aferu 340 miljónir lán.
Útlán eru áœtluð 895 miljónir
Lán til námsmanna munu
hækka upp í 100% af lánsfjár-
þörf nú um áramótin. I fréttatil-
kynningu menntamálaráðuneyt-
isins segir að Lánasjóði íslenskra
námsmanna hafi verið gert kleift
að standa við skuldbindingar
sínar lögum samkvæmt við af-
greiðslu fjárlaga fyrir jólin, en þá
var 250 miljónum bætt við tillögu
ijármálaráðuneytisins um fram-
lag til sjóðsins. Mun sjóðurinn fá
samtals 1008 mi|jónir á árinu, en
þar af verða 340 miljónir lán.
Sigurjón Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri sjóðsins sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
samkvæmt þessum áætlunum
væri reiknað með 895 miljónum í
útlán á árinu, og sagðist hann
telja líkur á að það myndi duga.
Þetta væri þó ekki fullkannað,
þar sem margar forsendur hefðu
breyst og ekki væri heldur hægt
að vita nákvæmlega um fjölda
námsmanna á haustönn. Sú
breyting hefur verið gerð á út-
hlutun lánanna að lánsfjárhæðin
til námsmanna innanlands mun í
framtíðinni fylgja þróun meðalt-
als ráðstöfunartekna en ekki
framfærsluvísitölu. Sagði Sigur-
jón að þessi breyting gæti haft
einhver áhrif á lánsupphæð.
Sigurjón sagði að tekist hefði
að afgreiða mestöll desemberlán-
in fyrir áramót þótt þar hefði ver-
ið teflt á tæpasta vaðið, en
skuldabréfin voru ekki send út
fyrr en 10.-15. desember.
Með greiðslu 100% lánsfjár-
þarfar hafa námsmenn náð fram
gömlu baráttumáli um jafnrétti
til náms.
ólg.