Þjóðviljinn - 30.03.1985, Qupperneq 18
Mánudagsfrétt
Grásleppugrúftur reynist
magnaður fjörgjafi
Vísindaleg uppgötvun á íslandi: sex-n hormón í grásleppugrút. Yngir upp gamalmenni.
Hleypirfjörií miðaldra. Flýtirfyrir kynþroska unglinga. Lœknaröll mein.
Sléttir úr hrukkum. Biðraðir við apótek. Öngþveitivið Ægissíðuna. Grásleppukarlarstofna
varnarsveitir við trönurnar. Ráða tilsín hunda. Verður kallað á herinn?
Vísindamenn við rannsóknar-
stöð Lýsis og mjöls hf. hafa fund-
ið hinn týnda sex-n hormón, sem
talið var að Krítverjar hefðu selt
hinum langlífu Kínverjum um
500 fyrir Krists bilrð. En vísinda-
mennirnir á Grandavegi fundu
hormóninn í grásleppugrút og
síðan hefur legið við uppþots-
ástandi í Vesturbænum og víðar í
Reykjavík. Hér er nefnilega um
magnaðan kynhormón, ynging-
armeðal og gleðigjafa að ræða.
„Ég er nú að fara að gera út á
grásleppu”, sagði 63 ára gamall
skrifstofumaður, sem Þjóðviljinn
hitti í gær, þarsem hann var að
dunda að netum. „Þið þurfið
varla að geta ykkur til um ástæð-
una”, bætti hann íbygginn við.
- Ég má ekki vera að því að tala
við ykkur, sagði ónefndur þing-
maður í íhaldssömum
stjórnmálaflokki þegar ljós-
myndari Þjóðviljans var á leið
niður á gráslepputrönurnar við
Ægissíðu.
Vopnaðar sveitir
- hundar
„Þeim hefði verið nær að halda
kjafti, vísindamönnum”, sagði
grásleppukarl, sem við hittum að
máli. Hann kvað grásleppukarl-
ana hafa þegar ráðið vopnaðar
sveitir og hunda til að gæta tran-
anna, en fólk hefur stundað það
að fara með krukkur, koppa og
önnur ílát til að láta grásleppu-
grútinn drjúpa niður í. „Við
köllum á varnarliðið ef ástandið
skánar ekki fljótlega”, sagði þessi
maður.
Heimta
Melavöllinn
í notkun
Inná elliheimilinu Grund var
hljóðið betra í fólki. Gamall
maður sem kvaðst vera á níræðis-
aldri leit nú út einsog fertugur
unglingur. „Hér er gaman að
vera”, sagði hann. „Við strákarn-
ir hérna erum allir aðrir menn.
Við höfum nú farið í undirskrifta-
söfnun til að fá Melavöllinn tek-
inn aftur í notkun, - enda veit
maður ekkert hvernig á að hafa
hemil á fjörinu, sagði hann, en
var óðara rokinn í búningsher-
bergi hjúkrunarkvenna.
„Eruði með í sund, strákar”,
kallaði létt og liðug kona, sem
síðar viðurkenndi að vera orðin
87 ára. Ljósmyndarinn tók áskor-
uninni og því eru engar ljósmynd-
ir með þessari grein.
Öngþveíti
við apótekin
„Hvers eigum við að gjalda
sem ekki búum við Ægissíðuna?"
sagði miðaldra karlmaður á
Lækjartorgi, en biðröðin í
Ingólfs-apóteki náði þangað.
Apótekin selja nú grútinn í 5 ml
glösum með dropateljara. Mikil
reiði var ríkjandi í biðröðunum.
Víða hafa foreldrar staðið í ströngu við að verja grásleppugrútinn sem börn og unglingar kunna ekki síður að meta en þeir sem eldri eru. Þessi mynd er dregin
upp af ástandinu í einu ótilgreindu húsi í Vesturbænum.
„Þetta er einsog í Rússlandi,
sagði kona um þrítugt, og kvaðst
ekki mundu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn næst vegna þessara bið-
raða.
Blomstrandi
svartamarkaður
Gífurlegur svartamarkaður er
kominn í gang - og í gær fréttist á
ritstjórn að Blazer-jeppi hefði
farið fyrir 12 fimm millilítra glös.
Þá hafði blaðið spurnir af því að
grásleppujörð á Hornströndum
hefði lent í skiptum fyrir for-
stjórastól í einu dótturfyrirtækja
Sambandsins.
Síðustu
fréttir!
Þegar Þjóðviljinn var að fara í
prentun í gærkveldi, fréttist að
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
hefði boðið Geir Hallgrímssyni
aðstoð við að þagga niður í ó-
ánægjuröddum í biðröðunum við
apótekin. Þá var einnig sagt í
utanríkisráðuneytinu að forseti
Bandaríkjanna hefði boðið ríkis-
stjórninni bombur gegn því að fá
fyllta kókflösku með grásleppu-
grút. „You never know when yo-
u’re in need for this wonderful
grut old friend” (Þegi veit maður
hvort einhvern tíma verður þörf
fyrir grút eður eigi, gamli vin). Þá
bárust óljósar fregnir af, að
stjórnmálanefnd miðstjórnar
Kommúnistaflokks Ráðstjórnar-
ríkjanna hefði haft samband við
Jón Baldvin Hannibalsson vegna
þessa máls. Einar Karl Haralds-
son hafði enga yfirlýsingu gefið
inná Reuter fréttaskeyti um þessi
mál, þegar Þjóðviljinn fór í
prentun.
ábógösvhþ 1. aprfl 1985
IAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða skrifstofustjóra SVR. Starfssvið: Fjármála-
stjóri, yfirumsjón með tölvuvæðingu og bókhaldi,
starfsmannastjórn auk almennrar skrifstofustjórnar.
Æskileg menntun og reynsla: Háskóla- eða hliðstæð
menntun og reynsla af hliðstæðum verkefnum.
Uplýsingar gefur forstjóri SVR, Borgartúni 35.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00
þriðjudaginn 16. apríl 1985.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. mars 1985