Þjóðviljinn - 02.03.1986, Page 18
KROSSGÁTA
Nr. 507
! 2 3 4 5 (o 7 rr V 8 4 7 cp 10 2 II
/2 13 V 2 J4 15 11 16 T 17 1? 14 20 18 2
2I I? 1 22 17 /q 23 2 V II 2 l(o II 2
2. V 24 25" 17 Z> 14 7 24 17 17 22 T 17 T
4 I4 1? áP 26 2 18 II /7 26 V 14 14 26 l€
IÝ 1 26 18 2 22 T 2? 18 2 14 18 15 22 V
/I V 1« 7 22 15 3 24 7 22 2 T 18 20 17
I? /4 T 23 26 V5 27 2 21 /4 22 20 20 E2 II
V 1? 23 26 Í7 2 22 Z> 16 18 17 22 T 6 14
7 23 IÍT 18 22 7 7 26 T 26 Z 18 /5 /4
24 IR 22 T 4 17 /4 \% T 27 II 3o 7 22 T
2 fc 22 2 o 27 U z> 1« II 31 18 2 22 v> 20 /4
l€ 20 'Y3 24 2 18 z> 26 T /4/ A £ 7 21 20 17
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
SKÁK
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjar-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 507“. Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshaga.
14 12 3 17 14 21 2
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
504 hlaut Erla Hreiðarsdóttir,
Heiðargerði 19, 640 Húsavík.
Þau voru Ijóðabókin Undir
skilningstrénu eftir Gunnar
Dal, útgefandi Víkurútgáfan.
Lausnarorðið var Reykjavík.
Verðlaunin að þessu
sinni er skáldsagan Ævi
og ástir kvendjöfuls eftir
bresku skáldkonuna Fay
Weldon í þýðingu Elsu
Bjargar Þorsteinsdóttur.
Útgefandi Forlagið.
BRIDGE
Að loknu móti
Þá ertólfta Reykjavíkurskákmótinu
lokið. Úrslitin urðu að mörgu leyti eins
og við mátti búast. Fimmti stigahæsti
keppandinn, Nikolic, hreppti fyrsta
sætið og aðrir stigaháir meistarar
röðuðu sér í næstu sæti.
Einstaka stórmeistari hlaut þó
verri útkomu en við mátti búast,
Seirawan sem er næsthæstur að
stigum lenti í 18.-22. sæti (6 Vi
vinningur), Dlugy áttundi stiga-
hæstur hafnaði í 23.-24. (6 vinn-
ingar), Benjamín sem er sjöundi
að stigum í 35.-45. (5Í/2 vinning-
ur) og Browne, Sævar Bjarnason
og Haukur Angantýsson fengu
líka minna en búast mátti við
samkvæmt stigunum.
Hitt er líka til, að menn nái
hærra sæti en ætla mætti ef stigin
væruhundraðprósentgild. Þann-
ig komst Indónesinn Adianto upp
í 18.-22. sætið en hefði átt að
lenda í því 38. Davíð Ólafsson og
Þröstur Þórhallsson urðu 23.-34.
en voru númer 44 (Davíð) og 60
(Þröstur) að stigum til. Hannes
Hlífar var 70. í stigaröðinni en
hafnaði í 35.-45. sæti. Loks má
nefna að Finninn Yrjölá krækti
sér f 9.-17. sætið en var talinn sá
34. samkvæmt stigum fyrir
mótið.
En þegar rætt er um Yrjölá
kemur annar þáttur til sögunnar.
Hann byrjaði illa, hafði aðeins Vi
vinning eftir þrjár umferðir.
Þannig glímdi hann allt fram að
tveim, þrem síðustu umferðun-
um við stigalága menn. Hann
tefldi því í rauninni í allt öðru
móti en Utut Adianto sem var
lengst af viðloða toppinn en varð
að lokum hálfum vinningi lægri
en Finninn. Það má því ekki ein-
blína á vinningafjöldann þegar
árangur keppenda í svona opnu
móti er metinn.
Árangur íslensku keppend-
anna var að mörgu leyti góður.
Jóhann og Helgi voru frá upphafi
í hópi efstu manna. Jóhann teflir
t.d. við fimm af tíu stigahæstu
mönnunum og fær þrjá vinninga
úr viðureign sinni við þá. Helgi
teflir að vísu ekki við nema einn
úr hópi tíu stigahæstu en á móti
kemur að hann er sjálfur einn af
þeim. Helgi tefldi af miklu öryggi
ct trá er tahn skákin við Jóhann.
Jón L. sýndi mikið harðfylgi.
Hann tapar þrem skákum, vinnur
sex og gerir tvö jafntefli. Annað
við Asgeir bróður sinn, stutt
bræðrabylta enda voru þeir báðir
hvíldar þurfi þá, og svo hélt hann
jafntefli við DeFirmian, aðallega
á hörkunni. Hann lagði líka
Seirawan og telst það feitur biti.
Margeir olli nokkrum vonbrigð-
um eftir glæstan árangur í Hast-
ings nýverið og sömuleiðis hefði
mátt vænta meira af Guðmundi
og Karli Þorsteins.
Davíð Ólafsson var stigahæstur
titillausu íslendinganna á mót-
inu. Hann tefldi á unglinga-
meistaramóti um áramótin og átti
allþungan róður þar. Nú blómstr-
aði hann hins vegar og tefldi mjög
hvasst þótt hann lenti á grjót-
hörðum andstæðingum. Hann
vinnur m.a. Ligterin og Browne.
Svipaða sögu er að segja um
Þröst Þórhallsson sem sigraði
Höi, Reshevsky og Sævar
Bjarnason. Björgvin tókst líka á
við erfiða andstæðinga og sama á
Frá mótinu: yfir skallan á Kogan sést í
hinn hollenska van der Sterren.
Mynd: Sig.
við um Benedikt, Braga, Asgeir
Þór og marga fleiri. Sannast
sagna var enginn keppandinn
auðunninn en kannski má segja
að sumir hafi verið öllu erfiðari
en aðrir.
Þá er ógetið yngstu keppend-
anna, þeirra Þrastar Árnasonar
og Hannesar Hlífars en þeir stóðu
sig báðir vel, og Hannes frábær-
lega vel og hvorugur sýndist láta
titla og stigafjölda skelfa sig. Það
lítur út fyrir að þeir félagar og
fleiri jafnaldrar þeirra verði farn-
ir að ógna stórmeisturunum okk-
ar innan tíðar. Raunar er svo að
sjá að enn yngri menn séu svo
farnir að ógna þrettán ára ár-
ganginum, - eða hvað á maður að
halda þegar ellefu ára gamall
drengur vinnur Larsen í fjöltefli?
Þetta er eitt sterkasta mót sem
fram hefur farið hér á landi. Má
m.a. marka það af því að þótt 20
stigahæstu keppendurnir hefðu
ekki verið með hefðu samt verið
með sex stórmeistarar og sautján
alþjóðlegir meistarar og það ver-
ið allsterkt mót.
Mjög var ánægjulegt að hafa
Tal með þótt gamla snerpan sé að
nokkru horfin. Larsen bregst
aldrei áhorfendum og er sport-
maður af guðs náð. Geller tefldi
heldur dauft en önnur kempa úr
eldri deildinni, Samuel Reshev-
sky, gæti sagt eins og Helgi Harð-
beinsson forðum: „Enn mun
þessi hinn gamli þora að sjá í gegn
vopnum". Að vísu var Helgi þessi
drepinn og Reshevsky rétt marði
fimmtíu prósent vinninga og má
muna sinn fífil fegri.
Rússinn SalofT öðlaðist stór-
meistaratitil fyrir árangur sinn á
mótinu. Hann er mikið skák-
mannsefni og sýnilega ógnun við
heimsfriðinn á skákborðinu í
framtíðinni. Nikolic var lítt kunn-
ur hér á landi áður, en það er
öruggt að menn munu heyra fleiri
sigurfréttir af honum. Margra
fleiri keppenda væri ástæða til að
geta en í lokin verður að minnast
á Burger. Hann er stigahæstur al-
þjóðlegu meistaranna og verður
Ííklega aldrei mjög góður því
hann er kominn á efri ár.
En hann ann skáklistinni og
þegar honum tæmdist arfur fyrir
nokkrum árum hætti hann að
vinna og ferðast nú milli móta og
teflir og teflir og teflir. Segi menn
svo að allir auðkýfingar fari illa
með peningana sína.
Mjög góð þátttaka
íslandsmót Kvenna og Yngri spil-
ara í sveitakeppni, hefst laugardaginn
1. mars rik. Spilað er í Gerðubergi í
Breiðholti. f kvennaflokki spila 12
sveitir og í Yngri flokknum 14 sveitir.
Spiluð eru 10 spil milli sveita, allir
v/alla. 4 efstu sveitirnar úr hvorum
flokki komast síðan í úrslitakeppn-
ina, sem spiluð verður um aðra helgi,
í Drangey v/Síðumúla, einnig þá hefst
spilamennska kl. 13.
Minnt er á umsóknarfrest væntan-
legra keppenda til landsliðs í Opnum
flokki og Kvennaflokki á Norður-
landamótið og Yngri flokki á Evrópu-
mótið. Fresturinn rennur út 20. mars.
Skráð er á skrifstofu Bridgesam-
bandsins.
Einnig er minnt á, að væntanlegir
keppendur á fslandsmótinu í sveita-
keppni þurfa að koma greiðslu vegna
mótsins, kr. 8.000 pr. sveit, til skrif-
stofu Bridgesambandsins fyrir 10.
mars nk., ásamt nöfnum spilara.
Meistarastigaskráin 1986 er tilbú-
in. Dreifing á henni hefst á mánudag,
og verður henni dreift til allra aðildar-
félaga innan sambandsins.
Bridgesambandi fslands hefur bor-
ist heillaóskir víða að, vegna húsa-
kaupanna í samvinnu við Reykjavík-
urborg að Sigtúni 9. Með þessum
kaupum, og stuðningi Guðmundar
Kr. Sigurðssonar, hefur verið brotið
blað í sögu bridge á íslandi. f beinu
framhaldi hyggst nú Bridgesamband-
ið stofna sérstakan sjóð með nafni
Guðmundar, sem byggja mun á
frjálsum framlögum félagsmanna og
velunnara bridgehreyfingarinnar.
Stórvirki sem þetta hefst ekki nema
allir leggi sitt af mörkum, til að stuðla
að bættri félagsaðstöðu hreyfingar-
innar.
Fró Bikarkeppni
Norðurlands:
Úrslit leikja í 8 sveita úrslitum urðu
þessi:
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
Siglufirði sigraði sveit Stefáns
Sveinbjörnssonar. Sveit Péturs Guð-
jónssonar Akureyri sigraði sveit
Hauks Harðarsonar sama stað. Sveit
Sjóvá Akureyri sigraði sveit Zarioh
sama stað og sveit Gunnlaugs Guð-
mundssonar Akureyri sigraði sveit
Gunnars Berg Akureyri. Spilað var í
Iðnskólanum á Akureyri.
Dregið var í beinni útvarpssend-
ingu í svæðaútvarpi, í 4 sveita úrslit-
um. Sveit Gunnlaugs mætir sveit Sjó-
vá og sveit Péturs mætir bræðra-
genginu frá Siglufirði. Trúlega verða
leikirnir spilaðir á sama tíma/sama
stað, að undirlagi Bridgefélags Akur-
eyrar.
Frá Bridgesam-
bandi Vestfjarða:
Um síðustu helgi fór fram úrtöku-
keppni fyrir íslandsmótið í sveita-
keppni á Tálknafirði. 4 sveitir spiluðu
um eitt laust sæti. Sigurvegarar urðu
sveit Steinbergs Ríkharðssonar frá
Tálknafirði. Með honum voru:
Tryggvi Bjarnason, Ævar Jónasson
og Þórður Reimarsson. (Fyrirliði til
fslandsmóts er Ævar Jónasson).
Röð sveitanna varð þessi:
1. sveit Steinbergs Ríkharðssonar
Tálknafirði 62 stig
2. sveit Þorsteins Geirssonar ísafirði
50 stig
3. sveit Þórhalls Gunnlaugssonar
Þingeyri 44 stig
4. sveit Jóns H. Gíslasonar Tálkna-
firði 20 stig
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Frá Bridgefélagi
Tálknafjarðar:
Lokið er sveitakeppni hjá félaginu.
Sigurvegari varð sveit Ævars Jónas-
sonar, en með honum voru: Þórður
Reimarsson, Guðlaug Friðriksdóttir
og Steinberg Ríkharðsson.
Röð efstu sveita:
1. sveit Ævars Jónassonar 75 stig
2. sveit.Jóns H. Gíslasonar 47 stig
3. sveit Björns Sveinssonar 39 stig
AIls tóku 5 sveitir þátt í keppninni.
Frá Bridgedeild
Barðstrendinga
Mánudaginn 24. febrúar lauk aðal-
sveitakeppni félagsins. Sveit Þórarins
Árnasonar sigraði. Auk hans spiluðu
Ragnar Björnsson, Sigurbjörn Ár-
mannsson og Helgi Einarsson. Staða
efstu sveita að lokinni keppni:
1. Þórarinn Árnason 247 stig
2. Sigurður fsaksson 245 stig
3. Gunnlaugur Þorsteinsson 242 stig
4. Viðar Guðmundsson 235 stig
5. Guðmundur Jóhannsson 214 stig
6. Guðjón Bragason 212 stig
7. Agústa Jónsdóttir 186 stig
8. Arnór Ólafsson 174 stig
Mánudaginn 3. mars hefst Baróm-
eterkeppni félagsins og er þegar full-
bókað. Spilað er í Síðumúla 25 og
hefst keppni stundvísiega kl. 19:30.
Keppnisstjóri verður Hermann Lár-
usson.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. mars 1986