Þjóðviljinn - 17.10.1987, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
KoUing á botninum
Andstœbingum Víkinga hefur gengið
illa. Uræddí2. sœtiíNoregi
England
Leikið á
gervigrasi
Enska knattspyrnusambandið
ákvað í gær að leyfa þeim liðum
sem leika á gervigrasi að leika á
heimavelli sínum í bikarkepp-
ninni.
Fjögur lið í Englandi leika á
gervigrasi. Luton og Q.P.R. í 1.
deild, Oldham í 2. deild og Prest-
on í 3. deild.
Luton leikur gegn Coventry í
3. umferð, en leika þá á heima-
velli Leicester. Þeir telja sig ekki í
stakk búna til að taka við öllum
þeim áhorfendum sem mæta á
leikinn.
Handbolti
Þróttarar í
efsta sæti
Þróttarar eru nú efstir í 3. deild
karla í handknattieik. Þeir gerðu
jafntefli gegn ÍS, 20-20.
Konráð Jónsson var marka-
hæstur Þróttara að venju, skoraði
8 mörk.
Nokkrum leikjum er nú lokið í
3. deild karla. Liðin hafa þó
leikið mismarga leiki. Völsungar
hafa enn ekki leikið sinn fyrsta
leik, en Þróttarar hafa lokið fjór-
um leikjum.
Staðan í 3. deild:
Þróttur.........4 2 1 1 90-71 5
lA..............2 2 0 0 60-46 4
(H..............1 1 0 0 20-16 2
IBK.............2 1 0 1 38-38 2
iBl.............2 0 0 2 39-61 0
ögri............1 0 0 1 12-35 0
UFHÖ hætti keppni.
-Ibe
Danska liðinu Kolding, sem
mætir Víking í 2. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða, hefur
gengið mjög illa í dönsku
deildinni það sem af er.
Margir af lykilmönnum liðsins
eru meiddir þ.á m. markvörður-
inn Karsten Holm. í síðasta leik
töpuðu þeir fyrir HIK, sem sigr-
aði Breiðablik í fyrstu umferð,
20-27. Leikurinn var á heimavelli
Kolding, en liðið er þó mjög
sterkt á heimavelli. Liðið er nú í
botnbaráttunni.
Andstæðingum Stjörnunnar,
Urædd, hefur gengið öllu betur.
Þeir eru í 2. sæti í norsku
deildinni með 5 stig eftir 3 leiki.
Margir af leikmönnum liðsins
eru í norska landsliðinu sem lék
gegn Austurríki nú í vikunni og
sigraði stórt, 22-14. -mt
-4be
Handbolti
HK á toppinn
HK tyllti sér á topp 2. deildar 21. I háltleik var staðan 13-12,
með sigri yfir Haukum í gær, 22- Reynismönnum í vil.
16. Leikurinn var nokkuð jafn, en
TTTT , Reynismenn höfðu forystuna all-
HK naði forystunm strax í upp- an tímann.
hafi og hélt 4-5 marka forskoti Einn leikur var í fyrrakvöld.
allan leikinn. Sigur þeirra var ör- Grótta sigraði Njarðvík í hörku-
uggur og byggðist upp á mjög leik. Það varmarkvörðurGróttu,
sterkri vörn. Sigtryggur Albertsson sem
Páll Björgvinsson. Kristján skoraði sigurmarkið yfir þveran
Gunnarsson og Rúnar Einarsson völlinn á síðustu sekúndu
skoruðu flest mörk HK, fimm leiksins.
hver. Eggert ísdal var markhæst- Halldór Ingólfsson skoraði
ur í hði Hauka með 8 mörk og flest mörk Gróttu, 10, en Ólafur
Helgi Harðarson skoraði þrjú Thoroddsen var markahæstur í
^örk. Iiði Njarðvíkur með 11 mörk.
Selfoss skaust í 3. sæti með sigri staöan , 2. deild:
yfir Fylki, 19-18. I hálfleik var HK......3 3 o o 72-52 6
staðan 9-8, Selfyssingum í vil. Grótta..3 2 1 0 94-77 5
Sigurjón Bjarnason skoraði ^==;l ? ° ! ££ 3
flest mork Selfysstnga sjo og |bv.....2 1 1 o 52-46 3
Magnús Sigurðsson var mark- Ármann..2110 44-38 3
hæstur Fylkismanna skoraði UMFA..........3 1 0 2 62-70 2
etnntg sjo mork. umfn....3 003 71-76 0
Reynir Sandgerði sigraði Fyikir.........3 0 0 3 49-72 0
Aftureldingu í jöfnum leik, 22- _ibe
FH-ingar hafa leikið mjög vel í síðustu leikjum og hér skorar Þorgils Óttar Mathiesen eitt af tíu mörkum sínum gegn
Stjörnunni. Það er hinsvegar ekki gott að átta sig á hvað Gylfi Birgisson er að gera. FH-ingar taka á móti Frömurum um
helgina, en Stjarnan leikur gegn Þórsurum á Akureyri. Mynd: E.ÓI.
Um helgina
Halda FH-ingar fullu húsi?
Mœta Fram um helgina. Heil umferð í handbolta og
körfubolta. Islandsmót í karate
Um helgina fer fram heil um-
ferð í 1. deild karla á íslandsmót-
inu. Einnig eru þrír leikir í Úr-
valsdeildinni í körfuknattleik.
f dag eru tveir leikir hjá Akur-
eyrarliðunum. Þórsarar taka á
móti Stjörnunnni kl. 14 og kl.
15.15 hefst leikur Víkings og KA
í Laugardalshöllinni.
A morgun eru svo þrír leikir
sem allir hefjast kl. 20. Efsta lið
deildarinnar, FH, tekur á móti
Lram 1' íþróttahúsinu við Strand-
götu, IR 0g KR leika í Seljaskóla
og Breiðblik og Valur í Digra-
nesi.
Þá er einn leikur í 2. deild
karla. Ármann og ÍBV leika í
Laugardalshöll og hefst leikurinn
kl 14.
Körfubolti
Þrír leikir eru um helgina í Úr-
valsdeildinni í körfuknattleik. í
dag leika Haukar og Þór í íþrótta-
húsinu við Strandgötu og hefst
leikurinn kl. 14.
Á morgun leika Valur og UBK
að Hliðarenda og Grindvíkingar
taka á móti KR-ingum. Báðir
leikirnir hefjast kl. 20.
Karate
íslandsmótið í karate verður
haldið í dag í Laugardalshöll og
hefst kl. 18. Fjörtíu keppendur
frá sjö félögum taka þátt í mót-
inu.
Pílukast
Ölkeldumótið í pílukasti verð-
ur haldið um helgina í Ölkeld-
unni Laugavegi 22. Keppt verður
bæði í dag og á morgun og hefst
keppni kl. 11 báða dagana.
Helgi Rafnsson lék mjög vel í gær og var stigahæstur Njarðvíkinga.
Körfubolti
TitHvömin hafin
•• /
Oruggur sigur Njarðvíkinga gegn IR
Njarðvíkingarnir hófu titil-
vörnina með glæsibrag og unnu
jfirburðasigur yfir nýliðunum,
IR-ingum, 93-65. í hálfieik var
staðan 45-27, Njarðvíkingum í
vil.
Það var ljóst frá fyrstu mínútu í
hvað stefndi. Þrátt fyrir góða bar-
áttu ÍR-inga áttu þeir ekkert svar
við öruggum og fumlausum leik
Njarðvíkinga. Munurinn jókst
smám saman og aldrei spurning
um hvorum megin sigurinn hafn-
aði.
Njarðvíkingar léku hratt og
yfirvegað. Sóknarleikurinn gekk
vel og hittni góð. Vörnin var
sterk og hreyfanleg og þeir náðu
að halda ÍR-ingum vel frá sér.
ÍR-ingar áttu ágæta kafla, en
lengst af var leikur þeirra langt
frá því að vera góður. Vörnin var
opin og hittni slök. ÍR-ingar leika
án Ragnars Torfasonar og munar
um minna.
Njarðvíkingar eru greinilega
ákveðnir í að halda í alla titiana
sína. Þeir sýndu það í þessum leik
að þeir verða ekki auðunnir,
frekar en í fyrra. Liðið er sem fyrr
jafnt og sterkt. Leikur liðsins er
vel skipulagður og vörnin sterk.
Helgi Rafnsson átti stórleik,
gífurlega sterkur undir körfunni
og þeir Jóhannes Kristbjörnsson
og Hreiðar Hreiðarsson áttu góð-
an leik.
Þrátt fyrir að ÍR-ingar hafi á
köflum leikið ágætlega verða þeir
að bæta sig töluvert ætli þeir að
vera í efri hluta deildarinnar. Lið-
ið virkaði á köflum mjög óöruggt
og engu líkara en að leikmenn
liðsins væru ragir við meistarana.
Jón Örn Guðmundsson lék vel og
sama má segja um Karl Guð-
laugsson og Vigni Hilmarsson.
-SOM/Suðurnesjum
Njarðvik 16. október
UMFN-ÍR 93-65 (45-27)
10-4, 29-13, 41-19, 45-27, 59-36,
71-45, 79-49, 87-60, 93-65.
Stig UMFN: Helgi Rafnsson 24, Jó-
hannes Kristbjörnsson 18, Hreiöar
Hreiöarsson 15, Teitur Örlygsson 6,
Valur Inaimundarson 6, Sturla örlygs-
son 6, Arni Lárusson 6, Kristinn Ein-
arsson 4, Ellert Magnússon 4 og Jó-
hann Sigurðsson 2.
Stlg ÍR: Jón örn Guðmundsson 18,
Karl Guðlaugsson 14, Vignir Hilmars-
son 8, Björn Leósson 6, Bragi Reynis-
son 2 og Björn Steffensen 2.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og
Bergur Steingrímsson - þokkalegir.
Maður leiksins: Helgi Rafnsson,
UMFN.
Drengjalandslið
„Leikum til sigurs“
segir Lárus Loftsson þjálfari drengja-
landsliðsins sem mœtir Svíum í dag
„Við verðum að vinna þennan
leik og ætlum okkur að gera það.
Ég heid að við eigum raunhæfa
möguleika á góðum degi,“ sagði
Lárus Loftsson þjálfari íslenska
drengjaiandsliðsins sem leikur
gegn Svíum í dag.
Þetta er síðari leikur þjóðanna,
en þeim fyrri lauk með jafntefli,
3-3. Liðið sem sigrar í þessum
leik fer beint í 16-liða úrslit Evr-
ópukeppninnar á Spáni næsta
vor.
„Við erum nokkuð bjartsýnir.
Við sáum það í leiknum heima að
við eigum möguleika gegn þessu
liði og við munum leika til sigurs.
Það verður þó mjög erfitt. Svíar
eru Norðurlandameistarar og
leika á heimavelli.
Við verðum að sigra í þessum
leik, jafntefli kemur ekki til
greina því við fengum á okkur svo
mörg mörk á heimavelli. Ég held
að strákamir geti sigrað og þeir
gefa sig alla í leikinn. Þetta eru
tvö álíka lið og sigurinn fer eftir
því hvort liðið er í betra formi,“
sagði Lárus.
Það lið sem sigrar í leiknum í
dag lendir í riðli með Sovét-
mönnum, Júgóslövum og Búlg-
örum.
-ibe
Laugardagur 17. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11.