Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Síða 5
24
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1996
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1996
25
íþróttir
Björg Hafsteinsdóttir og Anna María Sveinsdóttir hafa sjö sinnum orðið
bikarmeistarar með Keflavík og kunna því vel að lyfta þessum
verðlaunagrip. DV-mynd ÆMK
Njarðvík réð
ekki við Ber-
línarmúrinn
- Keflavík bikarmeistari í 7. skipti
DV Suðurnesjum:
Keflavíkurstúlkur urðu bikar-
meistarar í körfuknattleik fjórða
árið í röð og í sjöunda skiptið alls
þegar þær sigruðu nágranna sína úr
Njarðvík, 69-40, í úrslitaleik sem
háður var í troðfullu íþróttahúsinu
í Garði á laugardaginn.
Keflvíkingar áttu stórkostlegan
leik. Varnarleikur liðsins var frá-
bær, eins og Berlínarmúrinn væri
reistur á ný, og fá lið hefðu staðist
því snúning i þessum ham.
Njarðvík byrjaði vel og komst í
6-2 með mikilli baráttu. Þá breyttu
Keflvíkingar i svæðisvöm, og á eft-
ir henni fylgdi hraður og skemmti-
legur sóknarleikur. Keflavík gerði
út um leikinn á næstu 11 mínútum,
og eftirleikurinn var auðveldur. í
síðari hálfleik fengu síðan vara-
Haukar-Aftureld. (9-11) 24-21
1-0, 1-2, 4-2, 5-5, 6-9, (9-11), 12-12,
14-14,18-17,20-18,21-19,22-21, 24-21.
Mörk Hauka: Aron Kristjánsosn 7,
Petr Baumruk 3, Gústaf Bjamason 3, Jón
Freyr Egilsson 3, Gunnar Gunnarsson
3/3, Þorkell Magnússon 2, Haildór Ing-
ólfsson 2, Einar Gunnarsson L
Varin skot Bjami Frostason 15.
Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfsson
7 Ingimundur Helgason 5/5, Bjarki Sig-
urösson 4, Þorkell Guðbrandsson 2, Ró-
bert Sighvatsson 2, Alexei Trufan 1.
Varin skot Bergsveinn Bergsveins-
son 16/2
Brottvísanir Haukar 6 mín.., Aftur-
elding 8 mín.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og
Stefan Amaldsson, góð tök á leiknum.
Áhorfendun Um 550.
Maður leiksins: Bjami Frostason,
Haukum.
menn liðsins óspart að spreyta sig.
Erla Reynisdóttir átti stór-
skemmtilegan leik með Keflavík og
var hrein unun að horfa á snilli
hennar á köflum. Anna María
Sveinsdóttir, Veronica Cook og Erla
Þorsteinsdóttir, sem hefur tekið
miklum framfomm, áttu frábæran
varnarleik. Björg Hafsteinsdóttir
stjómaði liðinu vel og Margrét Stur-
laugsdóttir og Guðlaug Sveinsdóttir
áttu góðan leik þegar þær fengu
tækifærið.
Njarðvíkurstúlkumar þurfa ekki
að vera svekktar með þessi úrslit.
Þær stóðu sig eins og hetjur, em
ungar og eiga framtíðina fyrir sér.
Suzette Sargeant var í strangri
gæslu allan leikinn, eins og Harpa
Magnúsdóttir, en þær eru reyndast-
ar í liðinu.
-ÆMK
„Þetta var fyrsti sigur okkar á
árinu og það þurfti mikla baráttu til
að ná honum í höfn. Bæöi lið eru að
berjast um sem best sæti í deildinni
og því var mikið lagt í leikinn,"
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
og leikmaður Hauka, eftir að lið
hans hafði sigrað Aftureldingu,
24-21, í spennandi leik í Hafnarfirði
í gærkvöldi.
Mikil barátta, góður vamarleikur
og markvarsla einkenndi leikinn
frá upphafi til enda. Mosfellingar
höfðu undirtökin í fyrri hálfleik en
Haukar voru sterkari í síðari hálf-
Með of sterkt liö
„Það tók okkur nokkrar mín-
útur að komast inn í leikinn en
eftir það var þetta tryggt hjá
okkur. Það verður að segjast
eins og er að við erum með of
sterkt lið fyrir þær í svona bik-
arúrslitaleik," sagöi Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Kefla-
víkurstúlkna, við DV.
Einfaldiega betri
„Þær komu á óvart í byrjun,
og börðust á fullu, en þegar við
náðum 10-15 stiga forystu gáfust
þær upp. Við spiluðum okkar
leik, og þar með áttu þær ekkert
í okkur. Við erum einfaldlega
með betra hð,“ sagði Anna María
Sveinsdóttir, fyrirhði Keflavíkur.
Varsmeykí byrjun
„Ég var dálítið smeyk í byrjun
þegar við vorum undir. En þegar
við fórum að hitta vel og spila
góða vörn gekk þetta mjög vel.
Munurinn í hálfleik var of mik-
ill fyrir þær, en þær stóðu sig
vel,“ sagði Erla Reynisdóttir,
besti leikmaður vallarins.
Breyttu í svæðisvörn
„Keflavíkurstúlkumar eru
með geysilega öflugt og gott lið.
Þær breyttu yfir í svæðisvöm í
fyrri hálfleik og það fór með okk-
ur, eins og oft hefúr gerst í vet-
ur. Þegar munurinn var orðinn
15-20 stig gáfust þær upp,“ sagði
Jón Einarsson, þjálfari Njarðvikur.
Þetta gekk ekki upp
„Þær em mjög góðar. Þetta
gekk einfaldlega ekki upp hjá
okkur. Við vorum að svekkja
okkur og þá hittum við mjög illa.
Þær voru einfaldlega betri,“
sagði Harpa Magnúsdóttir, fyrir-
liði Njarðvíkinga. -ÆMK
Keflavík-Njarðvík
(35-18) 69-40
2-2, 2-6, 9-6, 14-12, 28-12, 33-14,
(35-18), 46-28, 54-28, 59-30, 64-36,
69-40.
Stig Keflavikur: Erla Reynisdótt-
ir 18, Veronica Cook 13, Anna María
Sveinsdóttir 10, Erla Þorsteinsdóttir
9, Margrét Sturlaugsdóttir 7, Björg
Hafsteinsdóttir 6, Guðlaug Sveins-
dóttir 5, Kristín Þórarinsdóttir 1.
Stig Njarðvlkur: Suzette Sargeant
13, Rannveig Randversdóttir 9, Harpa
Magnúsdóttir 8, Eva Stefánsdóttir 5,
Hólmfríður Karlsdóttir 2, Pálína
Gunnarsdóttir 2, Berglind Kristjáns-
dóttir 1.
Fráköst: Keflavík 36, Njarðvík 34.
3ja stiga körfur: Keflavík 3,
Njarðvík 1.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Einar Einarsson, góðir.
Áhorfendur: 600, fullt hús.
Maður leiksins: Erla Reynis-
dóttir, Keflavík.
leik og sigur þeirra var sanngjam.
Markverðimir Bjami Frostason,
hjá Haukum, og Bergsveinn Berg-
sveinsson, hjá Aftureldingu, vom
bestu menn vallarins. Þessir snjöllu
markverðir hafa báðir átt erfitt upp-
dráttar að undanfomu en sýndu í
gærkvöldi sitt rétta form og stóðu
sig mjög vel. Aron Kristjánsson, hjá
Haukum, var einnig mjög öflugur
og kórónaði góða frammistöðu sína
með því að skora síðasta mark
leiksins beint úr aukakasti. Hjá Aft-
ureldingu lék Páll Þórólfsson einnig
mjög vel. -RR
„Það þurfti
mikla baráttu"
- Haukar lögðu Aftureldingu, 24r-21
hafnarr
Iþróttir
Þriöji bikarmeistaratitill Hauka í körfuknattleik:
fyrsti í 10 ár
- Haukar unnu öruggan sigur á Skagamönnum í Höllinni, 85-58
Haukar unnu sinn þriðja bikarmeistaratitil
í körfuknattleik karla þegar liðið lagði
Akranes, 85-58, í úrslitaleik i Laugar-
dalshöllinni í gær.
Það var í síðari hálfleik sem Hauk-
arnir hristu Skagamennina af sér
og þá kom greinilega í ljós sá styrk-
leikamunur sem er á liðunum. Hafn-
firðingamir komu í seinni háfleikinn
nánst eins og nýtt lið og þá var ekki að sök-
um aö spyrja.
Fyrri hálfleikurinn var hreint út sagt mjög slak-
ur og er mér til efs að Haukamir hafi farið á eins
lágt plan í vetur. Skagamennirnir léku nánast
göngukörfubolta og Haukarnir sem hafa verið
þekktir fyrir mikinn hraða í leikjum sínum vom
á svipuðu róli og Skagamenn. Stigaskorið í-hálf-
leiknum var í lágmarki og það var ekki svo að
varnir liðanna hafi verið það sterkar heldur gerðu
leikmenn beggja liða sig seka um mörg mistök.
Haukarnir vora ekki sáttir við leik sinn í fyrri
hálfleik en þeir brettu heldur betur upp ermarnar
í þeim síðari. Þeir keyrðu upp hraðann og léku á
köflum eins og þeir hafa gert í mestallan vetur,
það er að spila sterkan varnarleik og beita skæð-
um hraðaupphlaupum. Haukamir náðu fljótlega
10 stiga mun og eftir það var eftirleikurinn auð-
veldur.
Haukarnir vet að sigrinum komnir
Jón Arnar Ingvarsson lék best í liði Haukanna
og var ósjaldan maðurinn á bak við körfur sinna
manna. Jason Williford átti góða kafla og þeir ívar
Ásgrímsson og Sigfús Gissurarson voru traustir.
Haukarnir eru vel að sigrinum komnir. Lið þeirra
er gríðarlega öflugt og það kæmi undirrituðum
verulega á óvart ef þeir lékju ekki til úrslita um
sjálfan íslandsmeistaratitilinn.
Skagamennirnir vora í hlutverki Davíð gegn
Golíat í þessum leik. Þeir náðu sér aldrei á strik,
hvorki í vörn né sókn og sérstaklega voru þeim
mislagðar hendur í opnum færum. Milton Befl var
bestur í liði Skagamanna og þeir Bjami Magnús-
son og Elvar Þórólfsson komust þokkalega frá
hlutverki sínu. Með þessum úrslitaleik eru Skaga-
menn reynslunni ríkari og sú reynsla ætti að geta
nýst þeim í botnbaráttu úrvalsdeildarinnar.
-GH
Umgjörðin
ekki góð
Það verður að segjast eins og
er að umgjörð bikarúrslita-
leiksins var ekki nógu góð.
Rúmlega hálftima seinkun
varð á leiknum vegna bilun-
ar I ljósabúnaði og kom
þessi töf óneytanlega niður á
leikmönnum liðanna.
Áhorfendur, sem voru með
minnstamóti, voru orðnir
pinaðir á biðinni enda
fengu þeir ekki að heyra
neinar skýringar á töfinni
eða voru beðnir afsökun-
ar.
Þá vakti mikla fúrðu sú
tónlist sem boðið var uppá
fyrir leikinn og í hléum en
hún var bæði hávær og leiðin-
leg. Margir muna úrslitaleik
Grindavikur og Njarðvíkur í
fýrra. Þá var umgjörðin glæsileg
og stemningin í höllinni hreint frá-
bær og þannig á það að vera.
-GH
Sagt eftir leikinn:
Tofin reif niður stemninguna
- sagði Hreinn Þorkelsson, þjálfari ÍA, sem var óhress með framkvæmd leiksins
„Það var eitthvert slen yfir okkur í
fyrri hálfleik en við tókum okkur saman
í þeim síðari og lékum miklu betur. Eft-
ir að við voram komnir 10 stigum yfir
vissi ég að sigurinn væri höfn. Við höf-
um ekki sagt okkar síðasta orð. Stefnan
er að taka íslandsmeistaratitilinn og sú
barátta sem fram undan er í deildinni
verður hörð. Við ætlum að fagna þess-
um titli vel í kvöld (í gærkvöldi) en síð-
an byrjar alvaran strax á mándaginn,“
sagði Reynir Kristjánsson, þjálfari
Haukanna, sem hefur náð frábæram ár-
angri með liðið í vetur, á sínu fyrsta ári
sem þjálfari.
Mætum bara aftur
„Auðvitað spilaði inn í reynsluleysi
hjá okkur en við vorum að spila mjög
iUa. Við náðum að halda hraðanum
niðri í fyrri hálfleik en í þeim síðari
misstum við Haukana á skrið og þá var
ekki að sökum að spyrja. En eigum við
ekki bara að segja að við komum hing-
að aftur að ári og geram þá betur," sagði
Elvar Þórólfsson, fyrirliði ÍA.
Var hundfúll
„Það er ekki von að við fyndum takt-
inn þar sem þetta helv... klúður gerðist
fyrir leikinn. Þessi töf reif niður stemn-
inguna hjá okkur sem átti að vera okk-
ar helsta vopn. Ég lít á þetta sem algjört
hneyksli og var hundfúll allan leikinn.
Annars vora Haukarnir betri og við átt-
um ekki svar við þeirra leik. Ég spáöi
því í haust að Haukar ynnu tvöfalt og ég
er enn þeirrar skoðunar," sagöi Hreinn
Þorkelsson, þjálfari ÍA.
Erum ekki mettir
„Fyrri hálfleikurinn var mjög slakur
og þá aðallega af því að við voram að
spila mjög illa. Við töluðum um það í
hálfleik að hleypa hraða í leikinn og það
ásamt því að Jón Amar kom sterkur
upp hjálpaði okkur að ná góðum tökum
á leiknum. Við eram ekki mettir og ætl-
um okkur að vinna fleiri titla á tímabil-
inu,“ sagði ívar Ásgrimsson.
ívar var í sigurliði Hauka í bikar-
keppninni fyrir 10 árum eins og Reynir
Kristjánsson þjálfari sem skoraði sigur-
körfuna í þeim leik.
„Það er alltaf jafn sætt að vinna titla
en ef ég á að bera þá saman get ég sagt
að núna er maður bæði eldri og reynd-
ari og spila meira og stærra hlutverk
með liðinu en þá,“ sagði ívar.
-GH
Jón Arnar Ingvarsson, fyrirliði Haukanna, tók við bikarnum glæsi-
lega, sem'DV gaf á sínum tíma. DV-mynd Brynjar Gauti
„Eins og eitt
lið í seinni
hálfleik"
- sagöi Jason Williford
„Fyrri hálfleikurinn var jafti. Við náðum ekki að sýna okkar bestur
hliðar og þá sérstaklega í sókninni og menn voru að reyna að gera þetta
upp á eigin spýtur. í seinni hálfleik lékum við eins og eitt liö og sýndum
þá á köflum mjög góðan körfúbolta. Eftir góða
byrjun í seinni hálfleiknum var ég þess fúllviss
um að við myndum hafa þetta. Staða okkar í
deildinni er góð en það er mikið eftir og ég býst
við spennandi úrslitakeppni,“ sagði hinn
viðkunnanlegi Bandailkjamaður Jason Williford
við DV eftir leikinn.
„Ég get ekki sagt til mn það á þessari stundu
hvað ég geri á næsta tímabiii. Ég á eftir að ræða
við umboðsmann minn um þessi mál en hjá
Haukum hef ég átt mjög góðan tíma, /utan sem
innar vallar," sagði Williford. -GH
Haukar-Akranes
(31-26) 85-58
0-2, 7-4, 11-7, 17-11, 22-18, (31-26), 31-28, 46-37, 57-41, 6445, 70-50,
85-56.
Stig Hauka: Jason Williford 20, Sigfús Gissurarson 16, fvar Ásgríms-
son 14, Jón Amar Ingvarsson 11, Björgvin Jónsson 10, Pétur Ingvarsson
8, Þór Haraldsson 2, Vignir Þorsteinsson 2, Sigurður Jónsson 2.
Stig ÍA: Milton Bell 19, Elvar Þórólfsson 1, Bjarni Magnússon 9, Har-
aldur Leifsson 8, Jón Þór Þórðarson 4, Dagur Þórisson 3, Brynjar Sig-
urðsson 2, Guðjón Jónasson 2.
3ja stiga körfur: Haukar 4, ÍA 3.
Vítanýting: Haukar 24/21, ÍA 11/7
Dómarar: Helgi Bragason og Kristján Möller, dæmdu mjög vel og
voru með betri mönnum á vellinum.
Áhorfendur: 1165.
Maður leiksins: Jón Arnar Ingvarsson, Haukum.
Haukar voru að vonum kátir í búningsklefanum eftir leikinn, enda voru flestir þeirra að
fagna sínum fyrsta stóra titii í körfuboltanum. DV-mynd Brynjar Gauti
Nú kunnum við
að vinna titla
„Við vorum ekki að spila vel í fyrri hálfleik
en tókum okkur saman og komum sem nýtt lið
inn til síðari hálfleiksins. Við unnum þetta á
vörninni og hraðanum sem við náðum á þá í
seinni hálfleik. Nú kunnum við að vinna titla
og ég er sannfærður um að þeir verða fleiri
áður en þetta tímabil er úti,“ sagöi Pétur Imgv-
arsson, nýkominn úr fjölmiðlabanni sem hann
var settur í fyrir leikinn.
„Það var taugaspenna í okkur í fyrri hálfleik
og spilamennskan ekki nógu góð. í síðari hálf-
leik byrjaði þetta að rúlla. Við spiluðum góða
vörn allan tímann og um leið og sóknin fór að
ganga upp fóru hlutimir að gerast, “ sagði Jón
Arnar Ingvarsson.
Segja má að Ingvar Jónsson, faðir þeirra
Jóns og Péturs, eigi nokkur prósent í þessum
titli en hann hefur þjálfað alla leikmenn liðsins
að Jason Williford undanskildum og verið
nefndur guðfaðir körfunnar í Hafnarfirði.
-GH
Jason Williford, Bandaríkjamaðurínn snjalii f
Haukaliðinu. DV-mynd Brynjar Gauti
Hóp
leikir
02,4“*)
nældu
þérí
bækling
ánæsta
sölustað
getrauna!
Hópleikur er þegar tippari, einn
eða fleiri hafa sérstakt
hópnúmer. Getraunir skrá
árangur hópa í viku hverri og
veita þeim hópum sem standa
sig best vegleg verðlaun.