Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Page 7
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1996
27
Iþróttir
Monica Seles og Boris Becker unnu langþráða titla á opna ástralska meistaramótinu. Becker hafði ekki tekist að vinna stórmót í fimm ár og Seles verið lengi
frá vegna hnífstungu sem hún fékk í bakið fyrir 28 mánuðum. Símamyndir Reuter
Opna ástralska mótiö í tennis:
Becker og Seles
fögnuðu sigri
Boris Becker frá Þýskalandi og
Monica Seles frá Júgóslavíu sigruðu
í karla- og kvennaflokki á opna
ástralska meistaramótinu í tennis
sem lauk um helgina.
Seles, sem ekki hefur verið mikið
í sviðsljósinu frá því hún fékk hníf-
stungu í bakið fyrir 28 mánuðum,
sigraði þýsku stúlkuna Anke Huber
örugglega í tveimur lotum, 6-4 og
6-1, og tók það hana rúman klukku-
tíma að gera út um leikinn.
„Ég þakka þjálfara mínum þenn-
an sigur en án hans hefði ég ekki
verið hér í úrslitum," sagði Seles.
Becker hafði betur gegn Banda-
ríkjamanninum Michael Chang,
6-2, 6-4, 2-6 og 6-2, og fagnaði þar
með fyrsta sigri sínum á stórmóti i
fimm ár eða frá því hann sigraði á
þessu sama móti árið 1991 þegar
hann lagði Ivan Lendl í frábærum
leik.
„Það er þungu fargi af mér létt og
ér er í sæluvímu yfir þessum titli.
Vonandi gefur þessi sigur mér byr
undir báða vængi en ég hef átt frek-
ar erfitt uppdráttar síðustu árin. Ég
verð að þakka eiginkonu minni,
hún hefur lagt sitt af mörkum til að
ég næði þessum titli,“ sagði hinn 28
ára gamli Becker sem segist eiga
nóg eftir í íþróttinni.
„Ég fór í þennan leik til að gera
mitt besta en Becker lék einfaldlega
mun betur og því fór sem fór,“ sagði
Chang eftir leikinn en á leið sinni i
úrslitaleikinn hafði hann leikið
ljómandi vel og ekki tapað lotu.
Fyrir sigurinn hlaut Becker
415.000 dollara eða sem svarvar tæp-
um 30 milljónum króna. -GH
ítalska knattspyrnan í gær:
Parma missti af
dýrmætum stigum
ACMilan styrkti stöðu sína á
toppi ítölsku 1. deildinnar í knatt-
spyrnu í gær. Milan vann góðan úti-
sigur á Udinese en Parma og Fior-
entina misstu af tveimur stigum
með því að gera jafntefli í leikjum
sínum.
Það stefndi þó lengi vel, í að
Parma næði að hirða öll stigin gegn
Inter því Hristo Stoichkov skoraði
snemma og staðan var 0-1 mestall-
an tímann. Inter fékk mörg góð
færi, Parma líka nokkur opin, en
Marco Branca tókst að jafna rétt
fyrir leikslok.
ACMilan vann góðan útisigur
gegn Udinese sem hefur gengið vel í
Hristo Stoichkov skoraði laglegt mark
fyrir Parma gegn Inter og litlu munaði
að það dygði til sigurs.
vetur. Paolo Maldini skoraði fyrst,
og síðan tryggði Zvonimir Boban
sigurinn, en hann fær tækifæri með
liðinu þessa dagana vegna fjarveru
Georges Weah.
Juventus heldur enn í vonina um
að ná efstu liðunum og vann Pi-
acenza, 2-0. Ciro Ferrara skoraði
síðara markið með stórbrotinni
hjólhestaspyrnu.
Pierluigi Casiraghi skoraði
þrennu á aðeins 17 mínútum í fyrri
hálfleik þegar Lazio vann stórsigur
á Cagliari, 4-0.
í gærkvöldi missti svo Fiorentina
af mikilvægum stigum þegar liðið
náði aðeins jafntefli á heimavelli
gegn Vicenza. Argentínumaðurinn
Gabriel Batistuta kom heimamönn-
um yfir strax á 7. mínútu en Di Car-
lo jafnaði metin á upphafsmínútu
síðari hálfleiks.
Spánn
Salamanca-Deportivo ........0-5
Valencia-Mérida.............4-1
Barcelona-Real Zaragoza.....3-1
Real Oviedo-Real Madrid.....1-2
Compostela-Real Valladolid ... 1-3
Albacete-Espanyol...........0-0
Real Betis-Rayo Vallecano .... 0-0
Real Sociedad-Sevilla ......1-0
R.Santander-Sporting Gijon ... 1-1
Tenerife-Celta Vigo.........1-0
Atletico Madrid-Atl.Bilbao ... 4-1
Atl.Madrid 24 17 4 3 45-12 55
Barcelona 24 13 7 4 44-20 46
Espanyol 24 13 7 4 35-18 46
Valencia 24 14 3 7 45-30 45
Compost. 24 13 4 7 31-28 43
Italía
Atalanta-Roma ..............2-1
0-1 Delvecchio (21.), 1-1 Pisani (77.),
2-1 Morfeo (83.)
Bari-Torino.................2-2
0-1 Rizzitelli (7.), 1—1 Andersson (8.),
2- 1 Protti (25.), 2-2 Karic (70.)
Fiorentina-Vicenza .........1-1
14) Batistuta (7.), 1-1 Carlo (46.)
Inter Milano-Parma..........1-1
0-1 Stoichkov (6.), 1-1 Branca (83.)
Juventus-Piacenza...........2-0
1-0 Conte (34.), 2-0 Ferrara (62.)
Lazio-Cagliari .............4-0
1-0 Signori (26.), 2-0 Casiraghi (28.),
3- 0 Casiraghi (32.), 4-0 Casiraghi (45.)
.Padova-Napoli..............4-2
1- 0 Vlaovic (5.), 2-0 Amoruso (48.),
2- 1 Pizzi (53.), 3-1 Vlaovic (66.), 4-1
Fiore (84.), 4-2 Di Napoli (87.)
Sampdoria-Cremonese.........2-0
1-0 Balieri (11.), 2-0 Chiesa (59.)
Udinese-AC Milan............0-2
0-1 Maldini (43.), 0-2 Boban (59.)
AC Milan 19 11 7 1 29-12 40
Fiorentina 19 11 4 4 34-20 37
Parma 19 9 8 2 30-17 35
Juventus 19 9 5 5 29-19 32
Lazio 19 8 5 6 36-21 29
Roma 19 7 7 5 24-18 28
Inter 19 6 8 5 24-17 26
Napoli 19 6 8 5 20-21 26
Vicenza 19 6 8 5 18-17 26
Sampdoria 19 6 7 6 29-29 25
Udinese 19 7 4 8 22-26 25
Atalanta 19 7 4 8 23-30 25
Cagliari 19 7 2 10 17-29 23
Piacenza 19 5 4 10 20-36 19
Padova 19 5 3 11 22-31 18
Torino 19 3 9 7 19-31 18
Bari 19 4 5 10 27-40 17
Cremonese 19 2 6 11 21-30 12
Heimsmet í
stangarstökki
Enn eitt heimsmetið í stangar-
stökki kvenna var slegið í gær
þegar Emma George frá Ástralíu
stökk 4,41 metra á Grand Prix
móti í Perth i gær. George tví-
bætti eigið heimsmet sem var
4,28 metrar, fyrst stökk hún 4,30
metra og svo 4,41 metra.
Gullið til
N-Sjálands
Nýsjálendingar hlutu sín önn-
ur gullverðlaun frá upphafi í
heimsbikarkeppninni á skíðum
þegar Claudia Riegler sigraði í
svigi á móti í Frakklandi í gær.
Karin Roten frá Sviss varð í
öðru sæti og Pernilla Wiberg frá
Svíþjóð náði þriðja sætinu eftir
að hafa verið í 12. sæti eftir fyrri
ferðina.
Bonaly í
öðru sæti
Rússneska stúlkan Irina Slut-
skaya varð Evrópumeistari i list-
hlaupi kvenna en Evrópumótið
fór fram í Búlgaríu um helgina.
íslandsvinurinn og Evrópu-
meistari frá fyrra ári, Surya
Bonaly frá Frakklandi, varð í
öðru sæti og Maria Butyrskaya
frá Rússlandi lenti í þriðja sæti.
Mickelson vann
I bráðabana
Phil Mickelson frá Bandaríkj-
unum sigraði á golfmóti atvinnu-
manna sem lauk í Arizona í gær.
Mickelson og landi hans Justin
Leonard luku báðir keppni á 269
höggum en Mickelson haföi bet-
ur í þriðju holu 1 bráðabana.
Tom Scherrer frá Bandaríkjun-
um kom svo næstur á 270 högg-
um.
Goldberger
vann
Austurríkismaðurinn Andre-
as Goldberger sigraöi á heims-
bikarmóti í skíðastökki í Pól-
Charlton með
enska liðið?
Jack Charlton lýsti því yfir í
gær að hann væri tilbúinn að
taka við sem landsliðsþjálfari
Englendinga í knattspyrnu þeg-
ar Terry Venables hættir störf-
um í sumar.
Charlton hefur þjálfað íra í
níu ár með mjög góðum árangri.
„Ef mér verður boðið starfið get
ég, sem Englendingur, ekki skor-
ast undan," sagði hinn sextugi
Charlton sem er nánast í dýr-
lingatölu á írlandi en hann varð
heimsmeistari með Englandi
árið 1966 og lék 35 landsleiki.
Þess má geta að Charlton sótti
um þetta starf áður en hann tók
við írska liöinu en þá var um-
sókn hans ekki einu sinni svar-
að.
Yeboah skoraði
Tony Yeboah tryggði í gær
Ghana sæti í undanúrslitunum í
Afríkukeppni landsliða sem nú
stendur yfir í Suður-Afríku.
Átta liða úrslitin voru leikin um
helgina:
Suður-Afrika-Aisír .....2-1
Zambía-Egyptaiand.......3-1
Ghana-Zaire .............14)
Túnis-Gabon.............4-1
(Eftir vítaspyrnukeppni)