Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Page 5
24 MÁNUDAGUR 1. JÚLl MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 25 Iþróttir íþróttir U £ F A EUT096 3 & rrr Tékkland (0) 1 Þýskaland (0) 2 1-0 Patrik Berger (59.) 1-1 Oliver Bierhoff (73.) 1-2 Bierhoff (95.) Lið Tékka: Kouba - Suchopa- rek, Nedved, Kadlec Nemec - Po- borsky (Smicer 88.), Kuka, Bejbl, Berger - Hornak, Rada. Lið Þjóðverja: Köpke - Sam- mer, Helmer, Babbel, Strunz, Eiltz (Bode 46.) - Ziege, Hassler, Scholl (Bierhoff 69.) - Kuntz, Klinsmann. Dómari: Pierluigi Pairetto frá Ítalíu. Einkunnagjöf Reuters Babbel og Bode fengu 8 hjá Þjóðveijum en Ziege og Bierhoff fengu 9. Hjá Tékkum fengu Nemec, Berger, Kuka og Poborsky 8. Punktar frá EM Leikur Tékklands og Þýska- lands i gær var fyrsti landsleik- urinn í knattspymu sem fram fer á Wembley þar sem enska lið- ið hefur ekki verið þátttakandi síðan árið 1966. Þá sigraði Portúgal i leik um bronsverðlaunin á HM gegn Sov- étríkjunum, 2-1. Átjánda viðureignin Leikurinn í gær á Wembley vai- 18. viðureign Tékklands og Þýskalands eða Tékkóslóvakíu annars vegar og Austur- eða Vestur-Þýskalands hins vegar. Þjóðimar mættust fyrst árið 1934. Lítíð um sigra Líkumar á tékkneskum sigri í gær vora ekki miklar fyrir leik- inn. Tékklendingar höfðu nefnilega ekki unnið Þjóðverja í síðustu tíu viðureigum þjóðanna. Sá stærsti 1934 Stærsti sigur Þjóðverja gegn Tékkum vannst árið 1985 en þá urðu lokatölur 5-1. Tékkar unnu stærsta sigur sinn í fyrsta leiknum, 1934, 3-1. Vítaspyrnukeppni Árið 1976 réðust úrslitin á EM í fyrsta skipti í vítaspyrnu- keppni en þá sigraðu Tékkar Vestur-Þjóðverja, 5-3. Þetta var í fyrsta skipti, en því miður ekki í það síðasta, sem vítaspyrnu- keppni réð úrslitum á stórmóti í knattspyrnu. Fimm „þýskir“ Tékkar Fimm leikmenn Tékklands I gær leika knattspyrnu sem at- vinnumenn með þýskum liðum. Latal og Nemec leika með Schalke 04, Kadlec og Kuka með Kaiserslautern og Berger með Borussia Dortmund. Ókunnugir Tékkar Leikmenn tékkneska liðsins hafa ekki verið tíðir gestir á hin- um glæsilega leikvangi, Wembley, í London. Fyrir leikinn í gær hafði lið Tékklands eða Tékkóslóvakíu ekki leikið þar síðan í april árið 1990. Þá sigraði England lið Tékka, 4-2. Sigursælir Þjóðverjar Þjóðverjar unnu Evrópumeist- aratitilinn í 3. skipti í gær. Eng- in önnur þjóð hefur unnið oftar en einu sinni. Þetta var 11. sigur Þjóðverja á stórmóti i knatt- spymu. -SK Leikmenn þýska landsliðsins í knattspyrnu sýndu enn einu sinni í gær hve snjallir þeir eru og að venju er aldrei gefist upp fyrr en dómarinn flautar leiki af. Á þessari mynd sjást Þjóðverjar fagna sigrinum og fyrirliðinn hampar bikarnum eftirsótta. í baksýn er kanslari Þýskalands, Helmut Kohl. Þjóðverjar unnu glæsilegan sigur, fyrsta sigurinn á stórmóti undir stjórn Berti Vogts. Símamynd Reuter Vonbrigði fyrir Tékka -Þjóðverjar fögnuðu fram á rauðanótt Það var dauðaþögn sem einkenndi gamla torgiö í Prag í gærkvöld þegar annarri síðu var bætt í þúsund ára sögu Tékka. Tékkar töpuðu 2-1 fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik Evrópu- keppninnar en þeir höfðu komið á óvart I keppninni og þorði eng- inn að spá þessu litla liði í úrslitaleikinn fyrir keppnina. 30.000 þúsund Tékkar fylgdust með úrslita- leiknum í gær á torginu gamla og það voru mikil vonbrigði sem skinu úr hverju andliti. „Gullna markið" hans Olivers Bierhoffs var sem köld vatnsgusa framan í fjöldann og vonirnar um Evrópumeistaratitil í annað sinn vora eyði- lagðar, en Tékkar sigr- uðu í keppninni árið 1976 í leik gegn V-Þjóð- veijum. Klukkutíma áður hafði Patrik Berger tryllt mannskapinn meö marki sínu úr víta- spyrnu. Fyrir framan risastóra minnismerkið af þjóöarhetjunni Jan Hus, 15.. aldar mótmæl- anda-umbótamannsins sem barðist gegn kaþ- ólska Habsborgaraveld- inu til þess eins að verða brenndur í Þýska- landi, byrjaði fjöldinn að hrópa: „Tékkar, Tékkar" og „Okkur tókst það, okkur tókst það! 15 mínútum seinna heyrðist mikið von- brigðaóp frá Vaclac Klaus, forsætisráðherra Tékklands, og bæjar- stjóra Prag, Jan Koukal, og félögum þeirra, er Bierhoff jafnaði með skalla. Flestallir gengu heim á leið eftir ósigur- inn þó að varðeldur hafði verið kveiktur með bjórdollum og rusli við fætur styttunnar frægu. Koukal bæjarstjóri bjóst ekki við neinum óeirðum líkt og þeim sem brutust út í London eftir að England tapaði fyrir Þjóðveijum í und- anúrslitunum. „Það hef- ur mikið gerst á þessu torgi í tímans rás og það lifir af einn knatt- spyrnuleik," sagði Koukal. Stuðningsmenn Þjóð- verja voru hins vegar himinlifandi og ríkti mikil gleði í gjörvöllu Þýskalandi i gærkvöldi. Landsmenn sungu og dönsuðu á götunum, klæddir í rautt, gyllt og svart, liti þýska bún- ingsins. Lögreglan sagði að um 4000 manns hefðu safnast saman á aðal- götu Berlínar, Kurfu- rstendamm, til að fagna sínum mönnum. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sem sá leik- inn á Wembley, var mjög ánægður með leik- inn. „Þeir stóðu við sitt, börðust vel, og liðsand- inn var góður,“ sagði hann við blaðamenn. „Mig langar að fagna í alla nótt en ég verð að fara í skólann á morg- un,“ sagði hin 18 ára gamla Caroline Rúgler, sem sýndi montin þýska fánann sem var málaður framan í hana. Allur fjöldinn öskraði: „Þetta er búið!“ I Frankfurt var allt vitlaust. „Þetta er frá- bært og ég er mjög stolt- ur,“ sagði framkvæmda- stjórinn, Martin Kúpp- ers, er hann opnaði ís- kalda kampavínsflösku sem hafði verið geymd sérstaklega fyrir tilefn- ið. „Ég er ekki mikill knattspymuaðdáandi en þetta er líka alveg ein- stakt,“ bætti hann við. -JGG Þjoðverjar meistarar í þriðja sinn -varamaðurinn Bierhoff skoraði bæði mörk þýs Þjóðverjar sigruðu Tékka 2-1 í hörkuspenn- andi úrslitaleik um Evr- ópubikarinn og það var varamaðurinn Oliver Bierhoff sem skoraði bæði mörkin. Þetta er fyrsta stórmótið sem Berti Vogts, þjálfari Þýska- lands, stýrir sínum mönn- um til sigurs. Leikurinn fór rólega af stað en Tékkar komu að- eins grimmari til leiks og héldu þeir áfram að sýna áhorfendum frábæra knattspyrnu en því miður fyrir spútnik-lið keppn- innar þá dugði hún ekki gegn hinu gríðarlega sterka liði Þjóðverja. Matthias Sammer braut á Karel Poborsky þegar fimmtán mínútur voru liðnar af seinni hálfleik fyrir utan teig Þjóðverja en dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu sem Patrik Berger skoraði úr en skot hans fór undir Andreas Köpke. Þjóðverjar eru frægir fyrir að gefast aldrei upp og þeir ætluðu ekki að byrja á því í gær á Wembley og langaði þá ef- laust að hefna fyrir úr- slitaleikinn 1976 en þá spiluðu einmitt V- Þjóð- verjar og Tékkar og þá sigruðu Tékkar. Jöfnunar- markið kom á 73. mínútu og það skoraði Bierhoff sem var nýkominn inn á með glæsilegum skalla fram hjá Petr Kouba sem var búinn að vera mjög góður í leiknum. Bæði lið léku mjög vel og fengu þau nokkur góð færi til að gera út um leik- inn en eftir venjulegan leiktíma var staðan enn 1-1 og þurfti því að fram- lengja. Bierhoff þurfti ekki nema fimm mínútur af framlengingunni til að tryggja sínum mönnum sigur og það geröi hann með góðu vinstrifótar- skoti sem markvörður Tékka, Kouba, sló í stöng- ina og inn og þar með urðu Þjóðverjar fyrsta þjóðin til að vinna Evr- ópukeppnina þrisvar. Út af nýju fyrirkomu- lagi á framlengingu er leikurinn flautaður af um leið og annað liðið nær að skora og hefur þetta verið umdeilt en þetta var fyrsta markið í keppninni sem skorað var i „nýju framlengingunni". Það vakti mikla athygli að fyrirliði Þjóðverja, Júrgen Klinsmann, spil- aði með þrátt fyrir meiðsli en Andreas Möller og Stef- an Reuter voru í leik- banni. Sem betur fer þurfti ekki að gera út um þennan leik með vítum! -JGG U t F A BUTU96 Það var hart barist í leik Tékka og Þjóðverja á Wembley. Þjóðverjar unnu 3. Evróputitil sinn. Símamynd Reuter Patrick Berger, leikmaður Tékka, skorar hér úr vítaspyrnunni sem dæmd var á Matthias Sammer eftir að hann braut á Karel Poborsky en brotið var fyrir utan teig - ef um brot var að ræða. Reuter Fyrirliði Þjóðverja, Júrgen Klinsmann, heilsar hér Elísabetu Englandsdrottningu en Klinsmann kom öllum á óvart með því að spila því hann meiddist illa í leiknum gegn Króötum. Reuter Markaskorari Þjóðverja, Oliver Bierhoff, er fyrsti leikmaðurinn til að skora svokallað „gullmark" eftir að framlengingarreglunum var breytt. Hér er hann að fagna því ásamt Christianr Ziege. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.