Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
Stuttar fréttir
Utlönd
Saddam Hussein íraksforseti er borubrattur þrátt fyrir loftárásir bandaríska hersins á skotmörk í suöurhluta íraks. Hann hefur m.a. fyrirskipaö orrustuflug-
mönnum sínum aö skjóta niöur bandarískar flugvélar sem eiga aö sjá til þess aö útvíkkað flugbannssvæöi yfir írak veröi virt. Símamynd Reuter
Flugbannssvæðið yfir suðurhluta íraks víkkað út í morgun:
Bandaríkjamenn gera
nýjar flugskeytaárásir
- Saddam Hussein fyrirskipar að skjóta niður bandarískar flugvélar
Barist í Búrúndí
Skæruliðar Hútúa réðust að
vígjum stjórnarhers Tútsa í Búr-
úndí I nótt, í hörðustu bardögum
frá valdaráninu í lok júlí. Stjórnar-
hermenn segjast hafa hrakið
skæruliðana á brott.
gagnrýni
Bob Dole, for-
setaframbjóð-
andi repúblik-
ana, forðaðist að
gagnrýna Bill
Clinton Banda-
ríkjaforseta
vegna árásanna
á írak. Sagðist
styðja hersveitir Bandaríkjamanna
á Persaflóaswæðinu.
Benedetti hættur
Italski fjármálamaðurinn Carlo
De Benedetti hefur sagt af sér sem
stjómarformaður Olivetti-fyrir-
tækjasamsteypunnar sem er í eigu
hans.
Feliibyiur ógnar
Fellibylurinn Fran ógnaði svæð-
inu frá miðju Flórídariki til Norð-
ur-Karólínu.
Unníð að fundi
ísraelskir embættismenn unnu
hörðum höndum að undirbúningi
fundar Benjamins Netanyahus for-
sætisráðherra og Yassers Arafats,
forseta Palestínu. Spáðu þeir að
fundurinn yrði i dag eða á morgun.
í fundaherferð
Alain Juppe, forsætisráðherra
Frakka, fór í fundaherferð til að
bæta ímynd rikisstjórnar sinnar.
Ekki á þing
Fyrrum vændiskona í Nevada-
riki i Bandaríkjunum tapaði í
kosningum meðal demókrata um
laust sæti á Bandaríkjaþingi.
Reuter
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Gránugötu 6,
Siglufirði, mánudaginn 9. sept-
ember 1996 kl. 14, á eftirfar-
_________andi eignum:__________
Aðalgata 22, efri hæð, Siglufirði,
þingl. eig. Bjöm Bjömsson, gerðar-
beiðendur Ferðamálasjóður og sýslu-
maðurirvn á Siglufirði.
Hafnartún 30, Siglufirði, þingl. eig.
Siglufjarðarkaupstaður, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Hafnartún 32, Siglufirði, þingl. eig.
Siglufjarðarkaupstaður, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Hafnartún 36, Siglufirði, þingl. eig.
Siglufjarðarkaupstaður, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Hlíðarvegur 30, Siglufirði, þingl. eig.
Eva Pétursdóttir, gerðarbeiðandi Líf-
eyrissjóður verkalýðsfélaga á Norð-
url. vestra.
Hólavegur 10, neðri hæð, Siglufirði,
þingl. eig. Bjöm Valberg Jónsson,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
verkalýðsfélaga á Norðurl. vestra og
sýslumaðurinn á Siglufirði.
Hvanneyrarbraut 46, neðri hæð,
Siglufirði, þingl. eig. Siglufjarðar-
kaupstaður, gerðarbeiðandi Bygging-
arsjóður verkamanna.
Túngata 25, hl. neðri hæðar, Siglu-
firði, þingl. eig. Jónas Þórðarson,
gerðarbeiðandi Islandsbanki hf.
SÝSLUMAÐURINN Á SIGLUFIRÐI
Bandaríski herinn skaut
stýriflaugum í annað sinn á hernað-
arskotmörk í suðurhluta íraks
snemma í morgun til að gera banda-
rískum flugvélum kleift að fram-
fylgja útvíkkun flugbannssvæðisins
yfir írak.
Stækkun svæðisins þar sem írösk-
um orrustuvélum er bannað að
íljúga átti að ganga í gildi klukkan
átta í morgun að íslenskum tíma en
Saddam Hussein Iraksforseti fyrir-
skipaði flugmönnum sínum að
skjóta niður bandariskar vélar sem
Palestinskur flugræningi gafst
upp fyrir lögreglu á Gardemoenflug-
vellinum við Ósló í gær og fór fram
á að honum yrði veitt pólitiskt hæli.
Maðurinn hafði rænt búlgarskri
leiguflugvél og snúið henni til Nor-
egs. Norskir embættismenn sögðu
ólíklegt að flugræninginn fengi hæli
vegna strangrar stefnu norskra
stjórnvalda þegar flugrán eru ann-
ars vegar.
Maðurinn rændi Tupolev TU-154
flugvélinni þegar hún var á leið frá
Beirút til Varna, nærri Svartahafs-
strönd Búlgaríu, og sleppti öllum
150 farþegunum áður en hann fyrir-
skipaði áhöfninni að fljúga áleiðis
til Óslóar.
Um 45 mínútum eftir að vélin
reyndu að framfylgja flugbanninu.
Bandarískir embættismenn sögðu
að sautján stýriflaugum hefði verið
skotið í morgun frá þremur skipum
og einum kafbáti og að þeim hefði
verið beint að skotmörkum sem
eyðilögðust ekki í flugskeyta-
árásinni í gærmorgun. Þá skutu
Bandaríkjamenn 27 stýriflaugum á
suðurhluta Iraks.
I morgun höfðu ekki borist neinar
fréttir af viöbrögðum iraskra stjórn-
valda við síðustu flugskeyta-
árásinni.
lenti gekk maðurinn út á landgang-
inn, gaf sig á vald lögreglu og var
færður í fangageymslu. Enginn varð
fyrir meiðslum.
„Hann hefur ekki gefið upp neina
pólitíska ástæðu,“ sagði lögreglufor-
inginn Asbjörn Gran við frétta-
menn. „Hann hefur aðeins farið
fram á að fá lögfræðing, sem var
auövelt að verða við, og að fá póli-
tískt hæli. Hann vildi kannski bara
koma hingað. Áhöfninni líður vel.“
I samræmi við norskar reglur
neitaði Gran að nafhgreina flugræn-
ingjann en búlgörsk yfirvöld sögðu
hann heita Nadir Abdulah. „Hann
er palestínskur og milli tvítugs og
þrítugs. Hann talar lélega ensku,“
sagði Gran. Reuter
Vínbændur full-
ir efasemda
Bændur í helstu vínræktar-
héruðum Frakklands segja að
uppskera þessa árs mun ekki
gefa af sér nema meðalgóð vín.
Það sé þó háð því að veðrið
verði gott fram að uppskeru sem
hefst upp úr miðjum mánuðin-
um. Þurrkar og rigningar geti
þó alveg eyðilagt vonir manna
um þokkaleg vín. Reuter
Loftvarnaflautur kváðu við í
Bagdad, höfuðborg íraks, snemma í
morgun á meðan flestir fjögurra
milljóna íbúanna voru enn í fasta-
svefni. Nokkrar hræður voru á göt-
unum en enginn hraðaði sér til að
leita skjóls eða hafði fyrir þvi að
spyrja hvers vegna flautað var.
William Perry, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær-
kvöld að skemmdir af völdum
sprengjuárásarinnar í gær væru
umtalsverðar. Hann sagði hins veg-
ar afskaplega ólíklegt að óbreyttir
borgarar hefðu fallið, eins og írakar
héldu fram, og benti á að skotmörk-
in hefðu verið á afskekktum stöðum.
Clinton Bandaríkjaforseti fyrir-
skipaði loftárásirnar þegar Saddam
Hussein lét það sem vind um eyrun
þjóta þegar bandarisk stjórnvöld
sögðu honum að halda hersveitum
sínum utan svæða Kúrda í norður-
hluta íraks.
Bandarískir embættismenn sögðu
að nágrönnum íraks stafaði hætta af
Saddam og að hann ógnaði öryggi
heimsins. Reuter
Frá Borgarholtsskóla
Innritun í kvöldnám
Þeir nemendur sem hyggjast stunda kvöldnám í málmiðnaði
og hafa ekki enn skráð sig geta gert það í skólanum fimmtudaginn
5. september kl. 17.00 -19.00. Um er að ræða verklega og fagbóklega
áfanga í vélsmíði og rennismíði ásamt félagsfræði 102.
Athugið að þetta er síðasti innritunardagur.
Skólameistari
Tsjernomyrdín með
samningum Lebeds
- en Jeltsín snuprar hann meö orðuveitingu
Viktor Tsjemomyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, lýsti því op-
inberlega yfir í gær að hann
styddi samninga þá sem Alexand-
er Lebed, sendifulltrúi Borís
Jeltsíns forseta í Tsjetsjeníu, hefði
gert í lýðveldinu um vopnahlé og
pólitíska framtíð þess. Sagði hann
samninga Lebeds vekja áhyggjur
en i heild væm þeir réttlætanleg-
ir. „Við ættum að vinna sam-
kvæmt skilmálum samninganna
og halda þá,“ sagði Tsjernomyrdín
á fundi í Kákasus.
Tsjemomyrdín sagði einnig að
ákvæði samninganna um að bíða
með ákvarðanir um pólitíska
framtíð Tsjetsjeníu viðkvæmasta
deiluefnið, væru skynsamleg.
„Það ætti að vera mögulegt að
leysa þá hlið mála á næstu fimm
árum, jafnvel efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu."
Tsjernomyrdín sagði innrás
herliðs Rússa í Tsjetsjeniu hefði
ekki borið tilætlaðan árangur og
haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér. Yrði að „finna lausn á
þeirri smán“.
Borís Jeltsín, sem er í sumar-
leyfi utan Moskvu, hefur enn ekki
gefið Lebed færi á að hitta sig að
máli en Lebed fékk í ágúst óskor-
Alexander Lebed.
að umboð til samningagerðar í
Tsjetsjeníu. Batt hann enda á 20
mánaða ófrið sem kostað hefur
um 80 þúsund manns lífið.
Jeltsín sá hins vegar ástæðu til
að veita Anatoly Kulikov innan-
ríkisráðherra orðu fyrir störf í
þágu föðurlandsins. Kulikov er
svarinn óvinur Lebeds. Var orðu-
veitingin túlkuð sem svo að forset-
inn væri að snupra Lebed en hann
lagði til að Kulikov yrði rekinn
vegna meints klúðurs í málefnum
Tsjetsjeníu. Reuter
Foröast
Flugræningi gafst
upp á Gardemoen