Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1996, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1996
41
tj)
tj)
•rt
U1
=> O
0
Hvernig \r Alltaf það sama.
gengur, y^Annan daginn spila
vinurinn?^ ^g vel og hinn
daginn miður vel!
C NAS/D.«ir BUltS
Hvers vegna spilar þú
ekki annan hvorn dag?
Hinn daginn gætum við
spilað bingo, farið í búðir1
eða eitthvað!
f Þetta er lífið. Maðurinn i sátt við
náttúruna. Kyrrðin er i jafnvægi við
taugarnar. 0, hve þetta er friðsælt. .
f Ég sem hélt að ég væri V
fæddur veiðimaður en ég verð aðl
horfast i augu við það að hægt er
að veiða það sem er of stórtl -y
©PIB
CINIlHO
mt
Heit tómatsúpa
getur valdið
slæn^um bru
Veiðivon
Laxveiöi í Langá á Mýrum hefur gengiö mjög vel í sumar og veiöi veriö
mun betri en í fyrra. Þessi veiöimaöur kastaöi flugu fyrir laxa árinnar
og fórst það vel úr hendi. DV-mynd GJ
Mokveiði í Fljótaá í Fljótum:
Methollið með
527 bleikjur
og 5 laxa
Bleikjuveiöi hefur gengið mjög
vel í Fljótaá í Fljótum í sumar og
á land eru komnar um 6 þúsund
bleikjur af stærðinni 1-3 pund.
Reiknað er með að veiðin fari í um
8 þúsund bleikjur.
„Það hefur gengið mjög vel í
bleikjunni en minna verið um lax-
inn. Það eru komnir um 60-70 lax-
ar á land. Næst síðasta holl hér
veiddi mjög vel, fékk 527 bleikjur
og 5 laxa. Þessir snjöllu veiði-
menn, sem komu frá Borgarnesi,
eru vanir menn hér og sögðu ána
hreinlega krauma af fiski. Það bar
mikið á bleikjunni enda var mikið
af flugu.
Ég held að bleikjugengd sé svip-
uð og i fyrra en hún er mun vænni
bleikjan en síðasta sumar. Fiskur
er enn að ganga í ána og ég á von
á góðum viðbótargöngum í sept-
ember þó nóg sé til,“ sagði Trausti
Sveinsson, bóndi á Bjarnargili í
Fljótum, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Veitt er á íjórar stangir í Fljótaá
í hverju holli og eins stöng að
auki, en veiðisvæðið er 7 kíló-
metra langt. Ódýrasta veiðileyfið
kostar 5-6 þúsund krónur í sumar
en dýrasti tíminn 15 þúsund krón-
ur. Þá eiga veiðimenn eftir að
greiða fyrir gistingu. Boðið er upp
á tvö 150 fermetra veiðihús sem í
eru fimm 2ja manna herbergi og
geta veiðimenn komið degi fyrir
veiðitíma og farið daginn eftir að
veiði lýkur. Gistingin kostar 8
þúsund fyrir sólarhringinn.
„Það finnst mörgum þetta frek-
ar dýrt og þá kannski sérstaklega
vegna þess að minna er af laxi en
bleikju. Ég held samt að allir
veiðimenn hafi farið ánægðir héð-
an og sömu veiðimenn koma hing-
að til veiða ár eftir ár. Það hefur
komið til tals að fjölga stöngum og
lækka verðið á hverri stöng vegna
þess hve laxveiðin hefur verið
dræm. Það gæfi fjölskyldum enn
meiri möguleika á veiði þar sem
börn gætu þá einnig stundað
bleikjuveiðina. Það hefur þó ekk-
ert verið ákveðið í þessum efnum
ennþá," sagði Trausti og bætti við:
„Þrátt fyrir þetta verðlag hefur
sala veiðileyfa gengið mjög vel og
þegar er búið að panta rúmlega
tuttugu holl fyrir næsta sumar.“
Veiði hófst í Fljótaá þann 20.
júní og henni lýkur þann 1. októ-
ber. Uppselt er í ána til 26. septem-
ber. -SK
Laxá í Dölum:
Mun betri veiði
en síðasta sumar
og laxarnir eflaust á annað þúsund
Veiði hefur glæðst mikið síð-
ustu dagana í Laxá í Dölum og
ljóst er að upp úr ánni þetta sum-
arið koma mun fleiri laxar en í
fyrra.
Enn eru eftir um tuttugu dagar
af veiðitímanum í Laxá og veiðin
þegar orðin um 200 löxum meiri
en allt sumarið í fyrra.
„Það er gott hljóð í okkur. Það
er gott vatn í ánni og fiskur er enn
að ganga. Það er skiptar skoðanir
á meðal veiðimanna um hve mik-
ill flskur er í ánni. Þeir sem veiða
vel segja að nóg sé af flski en þeir
sem ekkert fá segja að lítið sem
ekkert sé af fiski í ánni,“ sagði
Gunnar Björnsson, kokkur i veiði-
húsinu að Þrándargili í samtali
við DV í gærkvöldi.
„Veiðimenn fengu rúmlega 700
laxa í fyrra en áin er nú komin í
um 920 laxa. Það er því ljóst að
veiðin verður mun betri en i fyrra
og útlit er fyrir góða veiði hér
næstu daga enda veður og vatn
hagstætt," sagði Gunnar.
Hollið sem nú er við veiðar í
Laxá hafði í gærkvöldi verið í
ánni í tvo daga og fengið 40 laxa.
Stærstu fiskarnir í sumar eru þrír
20 pund fiskar. -SK/-G.Bender