Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1996, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
9
I>V
Spænska leyniþjónustan sökuð um óþokkabrögð:
Betlari let lifið
eftir lyfjatilraun
Spænska varnarmálaráðuneytið
hefur verið beðið um að rannsaka
ásakanir þess efnis að leyniþjónusta
hersins hafi rænt umrenningum og
notað þá sem tilraunadýr til að
prófa lyf í baráttunni gegn skæru-
liðum.
Dagblaðið E1 Mundo hafði úr
skjölum leyniþjónustunnar og eftir
starfsmönnum hennar að tilraun-
imar, sem kostuðu betlara lifið,
hefðu verið kenndar við dauðabúða-
lækninn Josef Mengele.
Tilraunadýrunum var gefið deyfi-
lyf en það átti að gera öryggissveit-
unum auðveldara fyrir um að ræna
skæruliðum ETA, samtaka aðskiln-
aðarsinna Baska, og flytja frá felu-
stöðum þeirra í Suður-Frakklandi
yfir landamærin til Spánar.
Talskona vamarmálaráðuneytis-
ins sagði: „Okkur hefur verið gert
að segja að ráðuneytið viti ekkert
um þetta.“
E1 Mundo sagði í frétt sinni að
betlarinn sem lést hefði verið num-
inn á brott, ásamt tveimur heimilis-
lausum flkniefnaneytendum, i júlí
1988 og að þar hefðu 53 leyniþjón-
ustumenn á stolnum bilum verið að
verki. Betlarinn lést af völdum til-
rarmanna. Blaðið vitnaði í skjöl þar
sem fram kemur að þekktur hjarta-
læknir og náinn vinur Emilios
Alonsos Manglanos, fyrrum yfir-
manns leyniþjónustunnar CESID,
hafi útvegað lyfið.
Manglano, sem stjómaði CESID í
fjórtán ár þar til í júní í fyrra, neit-
aði að svara spurningum frétta-
manna þegar hann kom fyrir rétt i
gær vegna ákáera um að leyniþjón-
ustan hefði hlerað farsíma þekktra
Spánverja, þeirra á meðal Jóhanns
Karls konungs. Hneykslið kostaði
Manglano starfið.
Manglano er einnig ákærður fyr-
ir rán, pyntingar og morð á tveimur
meintum skæruliðum Baska árið
1983.
„Þetta hljómar eins og hryllings-
saga og það er hún,“ sagði í rit-
stjómargrein E1 Mundo.
Reuter
Teiknimyndahetjan Súperman mun loksins giftast blaðamanninum Lois Lane eftir að hafa velkst í vafa og farið eins
og köttur í kringum heitan graut í 58 ár. Þessi mynd af brúðkaupi Lois Lane og hins prúða starfsfélaga þeirra, Clark
Kent, mun birtast í teiknimyndahefti um hina dáðu ofurhetju sem kemur út 9. október. Símamynd Reuter
Gíslar skæruliða í Kólumbíu:
Lausir eftir
224 daga
í frumskógi
- 200 milljóna lausnargjald greitt
DV, Kaupmannahö&i:
Eiginmaður
Stefaníu vill
rannsókn á
framhjáhaldi
Daniel
Ducruet, eig-
inmaður Stef-
aníu
prinsessu í
Mónakó, ætl-
ar ekki að
berjast gegn
skilnaði eftir
að hann var
gripinn með buxurnar á hælun-
um í fangi belgískrar fatafellu á
sundlaugarbarmi í Frakklandi.
Hann vill hins vegar að dómstóll
rannsaki framhjáhaldið, ef ske
kynni að hann hafi verið blekkt-
ur til leiksins. Myndir af faðm-
lögunum birtust í ítölskum
tímaritum.
„Markmið okkar er að vemda
börnin," sagði lögfræðingur
Daniels um ástæðuna fyrir því
að fallist yrði á skilnaðarbeiðni
prinsessunnar. Daniel vonast
hins vegar til að fá að umgang-
ast böm þeirra hjóna. Reuter
Eftir 224 daga er martröðin loks á
enda fyrir verkfræðingana Ulrik
Scultz frá Danmörku, Englending-
inn Philip Halden og Þjóðverjann
Karl Heinz en þeir vora í haldi
skæruliða í Kólumbíu í sjö mánuði.
Lausnargjaldið var nærri 200 millj-
ónir króna sem voru greiddar til
skæruliðasamtaka sem tóku þá til
fanga í febrúar.
Verkfræðingarnir unnu fyrir
verkfræðifyrirtækið F.L. Smidth
sem var að byggja stóra sements-
verksmiðju í frumskógi Kólumbíu.
Samkvæmt tilkynningu frá fyrir-
tækinu í gærkvöld líður mönnunum
vel eftir atvikum. Það var þó ekki
fyrirtækið sjálft sem sá um samn-
ingaviðræðurnar við skæruliðana
heldur breska fyrirtækið Control
Risk. Verkfræðingarnir vom látnir
dúsa í frumstæðum tjöldum á frum-
skógarsvæðum undir stjóm skæru-
liða.
Það var landstjórinn í rikinu
Antioquia, Alvaro Uribe Velez, sem
tilkynnti að mennirnir væm lausir
fyrir ríflega 180 milljóna króna
lausnargjald.
„Það er hrein skömm að erlend
fyrirtæki skuli vinna með skæru-
liðasamtökum án þess að hafa sam-
ráð við heimamenn," sgði landstjór-
inn á blaðamannafundi í gær. -pj
Útlönd
Sandra Locke. Clint Eastwood.
Clint í málaferlum við fyrrum eiginkonu:
Sakar hann um að
eyðileggja feril sinn
Sandra Locke, fyrrum sambýlis-
kona leikarans og leikstjórans
Clints Eastwoods, hefur höfðað mál
gegn honum fyrir að hafa gert
framavonir hennar sem leikstjóra í
Hollywood að engu. Fer hún fram á
um 130 milljónir króna í skaðabæt-
ur.
Clint kvartaði í gær hástöfum yfir
því að gjörðir sínar og góður vilji
væri mistúlkað af fyrrum sambýlis-
konu sinni. Kallaði hann málsókn
hennar á hendur sér fjárkúgun.
„Ég hjálpaði Söndra Locke þau ár
sem við bjuggum saman en nú er
verið að reyna að gera úr þessu eitt-
hvert samsæri sem líkist helst léleg-
um reyfara. Þakkirnar eru ekki
miklar enda er manni alltaf refsað
fyrir að gera gott,“ sagði leikarinn
góðkunni fyrir utan réttarsalinn í
Burbank í Kaliforníu í gær.
Sandra höfðaði mál gegn Clint
1989 þar sem hún krafðist hluta í
eignum sem þau höfðu komist yfír á
sambýlisárunum. En hún féll frá
þeirri málsókn þegar Clint féllst á
að tryggja henni um 110 milljóna
króna leikstjórasamning hjá Warn-
er Brothers kvikmyndafyrirtækinu.
Sandra fullyrðir að samningurinn
við fyrirtækið hafi verið ódýr brella
þar sem Clint hafi lofað að bæta fyr-
irtækinu þann skaða sem hlytist af
að framleiða myndir undir hennar
stjórn. Þannig hafi hún aldrei feng-
ið nein alvöru verkefni.
Clint fullyrðir að hann hafi ein-
ungis haft hagsmuni fyrram sam-
býliskonu sinnar að leiðarljósi. „Ég
ætlaði ekki að svíkja neinn og hef
aldrei reynt að halda neinum frá
vinnu. Það er ekkert vit í þessu pen-
ingalega þar sem ég samþykkti að
bæta Warner fyrirtækinu hugsan-
legt fjárhagstjón.
Myndir sem Sandra hefur leik-
stýrt hafa ekki verið vinsælar og
engin af yfir 30 hugmyndum hennar
hjá Warner-kvikmyndafyrirtækinu
varð nokkurn tíma að veruleika
sem kvikmynd. Reuter
Krárnar verði
írska verslunarráðið þrýstir nú á
lagabreytingu svo 30 þúsund krár
landsins megi hafa opið lengur og
loka þegar eigendum þóknast.
Venjulega hafa krár á Irlandi opið í
opnar lengur
12 klukkustundir á dag og loka á
miðnætti. En færst hefur í vöxt að
kráreigendur leyfi viðskiptavinum
að sitja áfram en dragi fyrir svo líti
út fyrir að þeir hafi lokað. Reuter
OSCH
Rafstöðvan
• 2,0 kW.52.900,-
- 3,2 kW.89.500,-
• 3,8 kW.148.000,-
Þjónustumiðstöð í hjarta borganinnar
BRÆÐURNIR
Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
ÐOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
- l'/Z/x
ifGrær
Grænt númer
Símfal í grœnt númer er
ókeypis fyrir þann sem hringir*
*Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PÓSTUR OG SÍMI