Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1997, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
13
dv Fréttir
Teiknimynd um
Snorra:
Athyglisverð
hugmynd
- segir talsmaður
Walt Disney
„Þetta er vissulega athyglisverð
hugmynd frá forseta íslands. Ég get
nú lítið tjáð mig um þessa hugmynd
að svo stöddu. Það getur vel verið að
þetta verði rætt á stjómarfundi fyr-
irtækisins eins og margar góðar hug-
myndir sem okkur berast," sagði
Terry Curton, einn af talsmönnum
Walt Disney, kvikmyndafyrirtæks-
ins í Bandaríkjunum, aðspurður um
hugmynd Ólafs Ragnars Grímssonar
forseta um að gera mynd í Pocahont-
as-stíl um Snorra Þorfinnsson.
Snorri var fyrsta bamið af evróskum
ættum sem fæddist í Vesturheimi.
Talsmaður Walt Disney-kvik-
myndarisans, sem gerði Pocahont-
as, kvaðst ekki hafa heyrt af þessari
hugmynd forseta íslands. Ólafur
Ragnar bar, sem kunnugt er, hug-
mynd sína upp i ræðu sinni í Natio-
nal Press Club í Washington í sið-
ustu viku. -RR
Ríkissáttasemjari:
Sextán kjara-
samningum
ólokið
Þótt ríkissáttasemjari og hans
fólk sé búiö að vera á fullu viö að
stýra kjarasamningagerð í landinu
síðan um áramót er enn ólokið gerð
16 kjarasamninga.
Þar er um að ræða kjarasamninga
við lögregliunenn, þroskaþjálfa,
bókasafhsfræðinga, sjúkraliða, leik-
skólakennara, flugumferðarstjóra,
vélstjóra, sjómenn, bæði undirmenn
og yfirmenn, tollverði, Verkalýðsfé-
lag Ólafsfjarðar vegna einnar áhafn-
ar, verkfræðinga á Keflavíkurflug-
velli, lausir endar hjá Samiðn, verk-
fræðinga hjá Pósti og síma, Þór á
Selfossi vegna Sólheima og ASV
vegna sjómanna. -S.dór
3,7% atvinnu-
leysi í júní
Tæplega 39 þúsund dagar voru
skráðir hjá körlum en rúmlega 72
þúsund dagar hjá konum. Skráðum
atvinnuleysisdögum hefur fækkað
um rúmlega 14 þúsund frá mánuð-
inum á undan en aukist um tæplega
4 þúsund frá júnímánuði 1996.
Atvinuleysisdagarnir í júní síð-
astliönum jafngilda því að 5128
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum.
Mannafli á vinnumarkaöinum i júní
er áætlaöur 140.320 manns. -RR
Skot í Smugunni
DV, Akureyri:
„Viö erum ails ekki orðnir neitt
órólegir og erum rétt að byrja.
Framundan er ágústmánuður sem
er bjartur og góður mánuður og við
vonum bara að það rætist betur úr
þessu,“ segir Sigurður Jónsson,
skipstjóri á Hrafni Sveinbjamar-
syni frá Grindavík, einum þriggja
togara frá íslandi sem eru að veið-
um í Smugunni þessa dagana.
„Við erum búnir að vera hér síð-
an á þriðjudag í síðustu viku og
þetta er líflegra en í fyrra en þá var
reyndar algjör. dauði hér. Um helg-
ina kom ágæíí skot, þá vorum við
að fá 3-4 tonn eftir 6-7 tíma tog, en
annars hefur þetta verið 1-1,5 tonn
á sama togtíma. Það hefúr ekki ver-
ið annað að sjá en að nægjanlegt æti
sé í sjónum og þaö er alls ekki sá
sjávarkuldi sem Norömenn sögðu
að yrði hér.
Auk Hrafns Sveinbjamarsonar
em í Smugunni Orri frá ísafirði og
Stakfeilið frá Þórshöfh og nokkrir
aðrir togarar munu vera á leiðinni.
-gk
Borgapferðir Heimsferða
London
Verðkr. 19.990,-
Flugsæti út á mánudegi, heim á
fimmtudegi, ef bókað er fyrir l.sept.
Verðkr. 24.990,-
M.v. 2 í herbergi, Crofton Hotel,
mánudagur til fimmtudags ef bókað er
fyrir 1 .sept
Verðkr. 29.990,-
F
Verðlrá
19.900
í októben og nóvemben
Heimsferðir bjóða nú bein flug í október og
nóvember til Parísar og London, þar sem þú getur
notið hins besta í þessum vinsælustu borgum
Evrópu fyrir lægra verð en nokkru sinni fyrr.
Hvort sem þú vilt aðeins kaupa flugsæti eða
velur eitthvert af okkar vinsælustu hótelum
þá færð þú spennandi borgarrispu á frábæru
verði og nýtur þjónustu íslenskra fararstjóra „
allan tímann. Bókaðu strax og tryggðu þér SCnd^n
borgarferð.
4.000 kr.
afsláttur
- ef þú bókar strax
Fyrstu 300 farþegarnir geta
tryggt sér 4000.- kr. afslátt
fyrir manninn í borgarrispu ífá
mánudegi til fimmtudags.
Gististaðir Heimsferða eru
sérvaldir og allir vel staðsettir.
París
Verðkr. 19.900,-
Flugsæti út á mánudegi, heim á
fimmtudegi, efbókað er fyrir l.sept.
Verðkr. 24.990,-
M.v. 2 í herbergi, Hotel Paris - Roma,
mánudagur til fimmtudags ef bókað er
fyrir 1. sept
Verðkr.29.890,-
M.v. 2 í herbergi, Hotel París - Roma m.
morgunmat, fimmtudagur til mánudags.
* $ f§ > - ** ■
- -
Austurstræti 17 • 101 Reykjavík • Sími 562 4600 • Fax 562 4601
I
Hótel Heimsferða eru öll í hjarta Parísar.
I