Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Qupperneq 4
1
« utn helgina
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 DV
Hallgrímskirkja:
Kammertónleikar
Schola cantomm
Kammerkórinn Schola cantorum,
sem starfar við Hallgrímskirkju, mun
halda tónleika í kirkjunni á sunnu-
daginn kl. 17.
Á efnisskránni eru gregorískir
kirkjusöngvar og mótettur frá bar-
okktímabilinu og samtímanum.
Fluttar verða mótettur eftir Schein,
Bach, Pepping, Hjálmar H. Ragnars-
son og Jón Hlöðver Áskelsson.
Umfangsmesta kórverkið á tónleik-
unum er tveggja kóra mótettan
„Komm, Jesu, komm“ eftir J.S. Bach
en yngsta verkið heitir „Tignið Drott-
in“. Höfundur þess er Jón Hlöðver Ás-
kelsson.
Daviðssálmar og Biblíulofsöngvar
mynda síðan ramma um kórverkin.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Hera Björk Þórhallsdóttir sópran-
söngkona og Einar Clausen tenór-
söngvari.
í Schola cantorum starfa átján kór-
söngvarar sem margir hverjir hafa
áralanga reynslu af kórsöng og ann-
arri tónlistariðkun.
Stjórnandi Schola cantorum er
Hörður Áskelsson.
Þorri í Neskirkju
Á morgun kl. 16. verður haldin
Þorrahátíð í Neskirkju. Fram
verður borinn hefðbundinn þon-a-
matur á hlaðborði, síldarréttir og
heitt saltkjöt.
Hjónin Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi og Páll Pétursson
félagsmálaráðhen-a flytja minni
karla og kvcnna, Miriam Óskars-
dóttir syngur einsöng og Reynir
Jónasson leikur á harmonikku.
Þátttaka tilkynnist til kirkju-
varðar fyrir kl. 18 í dag.
Höröur Áskelsson er stjórnandi Schola cantorum.
Islandsmeistara-
keppni barþjóna:
Vín op
drykkir
Um helgina veröur haldin
sýning og íslandsmeistara-
keppni barþjóna í Perlunni.
Dagskráin hefst á morgun
kl. 15 með kynningu á áfengi.
Þar kynna þrettán innlendir
umboðsaðilar og um 20 er-
lendir framleiðendur vörur
sínar. Einnig verða haldnir
fyrirlestrar í fundarsal
Perlunnar og vínsmökkunar-
námskeið. Sýningin stendur
til kl. 20 á morgun. Á sunnu-
daginn verður sýningin opin
milli kl. 14 og 18. Þann dag
ber hæst íslandsmeistara-
keppnin í blöndun sætra
kokkteila sem hefst kl. 15.
Við sýningarslit verður
haldinn kvöldverður á 5. hæö
Perlunnar sem hefst með for-
drykk kl. 19.30.
Þá verður nýr íslands-
meistari krýndur og dans-
leikur haldinn.
Sýningin er opin öllum 20
ára og eldri. Aðgangseyrir er
900 krónur.
Vínáhugamenn ættu aö kíkja í Perluna um helgina.
DV-mynd:E.ÓI
CfSaíe-
Tvær sýningar eftir:
Augun þín blá
Nú eru aðeins tvær sýningar eftir
af skemmtidagskránni Augun þín blá.
Þar rifjar Leikfélag Reykjavíkur upp
kynnin við bræðuma Jón Múla og
Jónas Ámasyni.
Dagskráin er byggð á lögum og
textum þeirra bræðra.
Þar má nefna Deleríum búbonis,
Allra meina bót, Járnhausinn og
Rjúkandi ráö.
Auk þess em flutt nokkur ný lög og
textar, þ.á m. Barbí-lagiö sem notið
hefúr mikilla vinsælda hér á landi.
Söngvunum tengjast leik- og
dansatriði sem einnig era ættuð úr
leikverkum þeirra bræðra.
Flytjendur verksins eru: Andrea
Gylfadóttir, Bergþór Pálsson, Jó-
hanna Jónas, Kjaijtan Guðjónsson,
Selma Bjömsdóttir,/ Theódór Júlíus-
son og Víðir Stefánsson.
Hljóðfæraleikarar em: Kjartan
Valdemarsson, píanó- og harmon-
ikkuleikari, Gunnlaugur Briem
trommuleikari, Sigurður Flosason
blásturshljóðfæraleikari og Þórður
Högnason kontrabassaleikari.
Næsta sýning verður annað kvöld
kl. 20.30 en síðasta sýning verður
fimmtudaginn 12. febrúar.
Augun þín blá er létt og skemmtileg söngdagskrá.