Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1998, Síða 12
26
lyndbönd
MYNDBAMDA
j
1Ö11T1
Batman & Robin
Skrípó ★
QHTMRN
e- pODINl
Þá hefur ijóröa Batman- myndin í nýjustu serí-
unni litið dagsins ljós og á eiginlega ekki mikið sam-
eiginlegt með þeirri fyrstu. Tim Robbins bjó til
myrkan og ógnvekjandi Batman, en í höndum Joel
Schumacher hefur serían færst nær hinni vinalegu
sjónvarpsseríu sem fræg er orðin. Nú er Batman líka búinn að fá hjálp-
arkokkana Robin ög Batgirl, sem eru afar aumingjalegar persónur, illa
leiknar af miðlungsleikurunum Alicia Silverstone og Chris O’Donnel.
Amold Schwarzenegger leikur helsta illmennið en kemst ekki á pall
með fyrri stórleikurum sem hafa tekið að sér hlutverk skúrkanna í þess-
um myndum. Þá er George Clooney nýr Batman og þeir virðast fara
hríðversnandi eftir því sem líður á seríuna. Uma Thurman reddar
myndinni algjörlega með stórkostlegri túlkun sinni á tálkvendinu Poi-
son Ivy, hinum eitursnjalla og umhverfissinnaða skúrki númer tvö.
Hún gerir þessa mynd bærilega áhorfs. Nú þyrftum við bara að fá Tank
Girl eða einhverja til að stúta þessu Batman-skrípi.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Joei Schumacher. Aðalhlutverk:
Arnold Schwarzenegger, George Clooney, Chris O'Donnel, Uma Thurman
og Alicia Silverstone. Bandarísk, 1997. Lengd: 120 mín. Bönnuð innan 12
ára. -PJ
Blossi/810551
íslenskur (ó)raunveruleiki ***
Júlíus Kemp vakti allmikla athygli með fyrstu
mynd sinni, Veggfóðri. Blossi er önnur kvikmynd
hans en hún leitar á allt önnur mið þótt að enn sé
verið að fást við reynsluheim unga fólksins. Ungi
dópistinn Robbi flýr undan reiðum dópsala og tekur
ofurskvísuna Stellu með sér í bíltúr hringinn i kring-
um ísland. Ferðalagið er fullkomlega meiningarlaust
og endar bara í meðferð á Vogi eftir að illmennin eru
búin að drepa hvert annað. Léttruglaður húmor ger-
ir myndina bara ansi skemmtilega áhorfs og þá er
einnig gaman að fylgjast með vel skrifuðum persón-
unum. Páll Banine leikur bara þrælvel og er mjög trúverðugur. Þóra
Dungal sleppur einnig vel frá sínu og Finnur handboltakappi er hörku-
flottur þótt hann hefði mátt hafa hörkulegri málróm. Gísli Rúnar Jóns-
son fer létt með eitt smáhlutverkannna en Vilhjálmur Árnason er alveg
út úr kortinu í hlutverki Stálmúsarinnar. Allt útlit myndarinnar er vel
útfært og tónlistin einnig vel valin.
Úgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Júlíus Kemp. Aðalhlutverk: Páll
Banine, Þóra Dungal og Finnur Jóhannsson. íslensk, 1997. Lengd: 90 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
★★★
City of Industry
Græðgi og hefnd
Kfntifc. oaaff kutoh
-wnra»naiM-
iniOUSIJRY
iwsnnarsun
iMmiuctrðK
Eftir vel heppnað demantarán við fjórða mann
ákveður Skip að hann vilji allan ránsfenginn sjálfur.
Hann drepur Jorge og Lee en Roy, bróðir Lee, kemst
undan á flótta. Roy er ákveðinn í að hefna bróður
síns og leitar að Skip á götum Los Angeles. Skip
beitir fyrir sér glæpaflokkum borgarinnar en Roy
nýtur aðstoðar ekkju Jorge. Að lokum kemur til
uppgjörs í gamalli verksmiðju. Söguþráðurinn er
ófrumlegur og þar að auki fremur fyrirsjáanlegur
þannig að myndin verður i raun aldrei neitt sérlega
spennandi. Hins vegar er handritið nokkuð vel skrif-
að, persónusköpun og samtöl í góðu lagi og myndin
er tiltölulega raunsæ. Hörkuflnir leikarar sjá svo um restina og aldrei
þessu vant er Harvey Keitel á meðal jafningja. Hann og Stephen Dorff
leika erkiíjendurna Roy og Skip, og er Stephen Dorff sérstaklega ógeð-
felldur í sinu hlutverki. Timothy Hutton, Wade Dominguez og Famke
Janssen eru einnig afar traust og í raun er hvergi veikan blett að finna
í leikhópnum. Meiri hugmyndaauðgi í söguþræðinum hefði getað gert
þessa mynd að meistarastykki.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Irvin. Aðalhlutverk: Harvey Keitel og
Stephen Dorff. Bandarísk, 1996. Lengd: 93 mín. Bönnuð innnan 16 ára. PJ
Gridlock'd
Krimmar og kerfiskarlar ****
1 ifARÍt.H' fllPAC SfÍAKUft i
GRIDLOCK d i
Félagamir Spoon og Stretch eru að fagna nýja ár-
inu með vinkonu sinni sem fellur i dá sökum ofneyslu
eiturlyfja. Eftir að hafa komið henni á sjúkrahús fara
þeir að hugsa sinn gang og ákveða að hætta í dópi.
Það reynist hins vegar erfiðara en þeir héldu að kom-
ast í meðferð því þeir þurfa að kljást við skrifræðis-
bákn bandaríska heilbrigðiskerfisins, og veitir ekki af
svolitlu dópi til að komast í gegnum þá þrautagöngu.
Uppdópaðir og hundeltir af morðóðum fikniefhasölum
reyna þeir að rata um rangala skrifræðisins. Vondie
Curtis Hall tekst hér að búa til meinfyndna mynd,
sem tekur á samfélagsvandamálunum á þann veg að ekki er hægt annað
en að glotta rækilega að. Eins og við er að búast er Tim Roth alveg hreint
yndislegur i hlutverki heimska rugludallsins, en meira kemur á óvart
góður og agaður leikur rapparans Tupac Shakur sem leikur víst ekki
fleiri hlutverk þar sem hann var skotinn til bana í fyrra. Leikstjórinn er
sjálfur í hlutverki dópsalans sem gerir þeim lífið leitt, og einnig má þarna
sjá konung óháðu leikstjóranna, sjálfan John Sayles, í hlutverki löggu
sem hefur ekki minnstu hugmynd um hvað er að gerast.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Vondie Curtis Hall. Aðalhlutverk: Tlm
Roth og Tupac Shakur. Bandarísk, 1996. Lengd: 117 mín. Bönnuð innan
16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 T>V
Myndbandalisti vikunnar
s
SÆTI j ] FYRRI VIKA j VIKUR j Á LISTAj j J TITILL J ÚTGEF. j J j TEG.
1 J 4 ! 2 ! Devil's Own ) Skífan ) j j Spenna
2 ! 1 1 j 3 j j i Absolute power J j j Skífan j j j Spenna
3 1 3 j Ný i i 1 j 1 i Batman and Robin ! Warner-myndir 1 Spenna
j 4 i i 3 •j ‘ j 2 ' j ) Horfinn heimur j j ) ClC-myndbönd < j j Spenna
5 ! 2 j 5 ) Con Air j Sam-myndbönd j Spenna
j 6 í i 5 j ) ! 5 i ■ « 1 Fierce Creatures J . J ClC-myndbönd ‘ 1 | Gaman
1 7 i .1 6 0 j 2 i Spawn J J ) Myndform J Spenna
8 i j 7 , J i c J J b i j J One Fine Day J J J „ i j Skifan j j j Gaman
9 ! 8 ! 6 ! Dante's Peak • ClC-myndbönd ■ Spenna
10 i j 9 ! 4 ! j j The 6th Man J J i Sam-myndbönd J J . J Gaman
ii ! 12 i 0 ) J 8 ) Liar Liar ! ClC-myndbönd j Gaman
T .,-J, 12 J . J Ný J ) 1 1 J J J Blossi J ) j Sam-myndbönd J Spenna
13 ] 10 1 fi 1 J 8 J The Fifth Element J J j Skífan j Spenna
• ■ - '■ i Ný j ) : » : < 3 : . i City of Industy J . J J Skífan 1 i Spenna
15 i 11 Lost Highway i l ) Myndform ) Spenna
.. 1 j Ný J 1 ) i 1 j i ) i j Gridlock'd J J ! Háskólabíó J j j Spenna
17 ! Ný ! i ! Commandments J ClC-myndbönd : Drama
18 ! J 15 ! 8 ! j . j Trial and Error J J J Myndform J J j Gaman
19 í 17 ! 12 ! Scream ) .. ) j Skifan j Spenna
20 13 j j ) 5 1 , i Ghosts From the Past J J { Skífan ) Spenna
---- ---- 13. til 19. janúar
Nokkrar nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna og sú
þeirra sem stekkur hæst er fjórða Batman-myndin, Batman and
Robin. Neðar á listanum eru fjórar ólíkar myndir. Ber þar fyrst
að telja íslensku kvikmyndina Blossi sem sýnd var í sumar í
Stjörnubíói. Mynd þessi fjallar um ungt fólk og átti að höfða til
íslenskra unglinga, en gerði það ekki og var aðsókn dræm á
myndina. Gridlock’d var ein af mörgum kvikmyndum sem voru
á kvikmyndahátíð í Reykjavík og er um að ræða gamansama
spennumynd með Tim Roth og hinum látna rappara Tupac
Shakur, sem var myrtur stuttu eftir að hann lék í þessari mynd.
City of Industry er sakamálamynd í háum gæðaflokki með
Harvey Keitel, Stephen Dorff og Timothy Hutton í aðalhlutverk-
um og Commandments er vel leikin drama meö Aidan Quinn,
Courtney Cox og Anthony La Paglia í aðaihlutverkum.
Devil's Own
Harrison Ford og
Brad Pitt
Þegar Frankie var
ungur drengur horfði
hann upp á grímu-
klædda menn myrða
foður sinn. Þessi at-
burður markaði dreng-
inn og í dag, tuttugu
árum síðar, er hann i
fararbroddi IRA-
manna. Frankie er
sendur til New York og
er ætlað að smygla flug-
skeytum yfir hafið heim
til írlands. í gegnum
sambönd sín tekst hon-
um að komast inn í
landið á fólskum for-
sendum og fær húsa-
skjól hjá hinum irskætt-
aða lögreglumanni
O’Meara sem gnmar
fljótlega að Frankie sé
ekki sá sem hann þykist
vera.
Absolute
Power
Clint Eastwood og
Gene Hackman.
Luther Whitney er
meistaraþjófúr sem telur
sig kunna ráð við öllum
vanda. Hann gat samt
ekki séð fyrir að eigin-
kona auðugs kaupsýslu-
manns yrði heima
einmitt það kvöld þegar
hann ákveður að ræna
híbýli hans og hann gat
heldur ekki séð fyrir að
elskhugi hennar kæmi í
heimsókn og því síður að
þau myndu lenda í átök-
um sem enduðu á þann
veg að hún iiggur dauð
uppi í rúmi. Hápunktur-
inn á óheppninni er þó
að elshuginn er sjálfúr
forseti Bandarikjanna.
Skyndilega þarf Luther
að giima við valdamesta
mann i heimi sem vill
hann dauðan.
Batman &
Robin
George Clooney
og Arnold
Schwarzenegger.
Eitthvað ískalt er á
sveimi í Gothamborg.
Nýr glæpamaður er
kominn til sögunnar og
eina von borgarbúa er
Batman, sem fyrr er til-
búinn í bardagann við
manninn sem fæddur
er með kalt blóð, hr.
Frosta. Það ganga fleiri
glæpamenn lausir um
götur Gothamborgar.
Hér er um að ræða
hina mögnuðu Eitruðu-
Ivy sem er jafn hættu-
leg og hún er fógur.
Hún drepur með kossi
sínum. Þegar hún og
hr. Frosti snúa bökum
saman virðist ekkert
geta komið i veg fyrir
þær hörmungar sem
biða i Gothamborg.
Horfinn
heimur
Jeff Goldblum og
Julianne More.
Á nálægri eyju hafa
risaeölur í mikilli leynd
fengið að þrífast og
ganga frjálsar, en nú
steðjar að enn meiri vá,
áætlun er uppi um að
fanga þær og færa upp á
meginlandið. John
Hammond sem hefúr
misst alla stjóm' á
InGen- fyrirtækinu sér
nú tækifæri til að bæta
fyrir fyrri mistök sín og
sendir leiöangur undir
stjóm Ians Malcolm
(Jeff Goldblum) til eyj-
arinnar áður en mála-
liðamir koma þangað
til aö veiða dýrin. Hann
á að freista þess að
koma í veg fyrir jtessar
áætlanir.
Con Air
Nicolas Cage og
John Malkovich.
Cameron Poe er á
leið heim til konu
sinnar og dóttur eftir
fangavist. Ásamt Poe
eru i flugvélinni
nokkrir af illræmd-
ustu og hættulegustu
glæpamönnum Banda-
ríkjanna og það líður
ekki á löngu þar til
komið er upp algjört
neyðarástand I vél-
inni. Sá sem stendur
fyrir uppþotinu, Cyrus
Grissom, hefur brátt
alla vélina á sínu
valdi. Það kemur í
hlut Poes að koma i
veg fyrir áætlanir
Grissoms. Á meðan
berst leyniþjónustu-
maðurinn Larkin af
öllum mætti gegn því á
jörðu niðri að heryfir-
völd skjóti flugvélina
niður.