Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1998, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
íþróttir
_______«
íþróttir
Bjarni á
leið í ÍA?
- Skagamenn ætla að láta reyna á það
Bjami Guðjónsson, atvinnumað-
ur hjá Newcastle í Englandi, æflr
nú á fullu með Skagamönnum í
sumarfríi sínu. Svo
kann að fara að hann
gangi til liðs við þá og
spili með þeim fram
eftir sumri.
„Við Bjarni höfum
rætt þetta okkar á
milli og við stjórnina
en lengra er málið
ekki komið í bili.
Bjami er tilbúinn og
næsta skref er þá að
ræöa við Newcastle og
fá hann lánaðan eða
leigðan. Ég býst við
því að Bjarni vilji ná undirbúnings-
tímabilinu með Newcastle til að
styrkja stöðu sína þar og þá væri
Helmingur sænska landsliðsins i
handknattleik er þjakaður af
salmonellusýkingu þessa dagana.
Hún hefur stungið sér niður á
versta tíma því úrslitakeppni Evr-
ópumótsins hefst á ítaliu á fóstudag-
inn.
Svíar tóku þátt í móti í Króatíu á
dögunum og talið er að þeir hafi
sýkst af matnum á hótelinu þar sem
þeir gistu. Fæstir þeirra hafa getað
æft síðan og undirbúningur liðsins
fyrir EM hefur verið í molum. Flest-
þetta spuming um að hann spilaði
með okkur eitthvað fram í júli,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skaga-
manna, við DV í gær-
kvöld.
Skagamenn em í vand-
ræðum með sóknarleik-
inn eftir að Mihajlo
Bibercic stóð ekki undir
væntingum og hætti eftir
einn leik. Þeir eru að
kanna málin erlendis og
vom aö sögn Loga með
júgóslavneskan leikmann
í athugun en hann reynd-
ist ekki laus.
Bjami ætti að styrkja þá
vel en hann skoraði 15
mörk í 25 leikjum með ÍA í efstu
deild áður en hann fór til Newcastle
síðasta sumar. -VS
ir hafa lést talsvert og hætt er við að
þrekið verði lítið þegar í slaginn
kemur.
Stefan Lövgren og Martin
Frándesjö era á meðal þeirra sem
illa hafa farið út úr sýkingunni.
Læknir liðsins fylgist vel með gangi
mála og segir að enginn geti spilað
nema hann hafi verið hitalaus í þrjá
daga.
Fyrsti leikur Svía er gegn Þjóð-
verjum á fostudaginn.
-VS
Alen Boksic leikur ekki með Króöt-
um á HM í knattspymu í sumar.
Meiðsli í hné tóku sig upp í gær og
þarf hann að gangast undir aðgerð.
Paul Gascoigne leikur í fyrsta skipti
í langan tima í byrjunarliði enska
landsliösins sem mætir Marokkó i
vináttuleik Marokkó í dag.
Gascoigne heldur upp á 31 árs af-
mæli sitt 1 dag en
hann leikur sinn 56.
landsleik fyrir Eng-
lendinga. Síðasti
leikurinn sem
Gassi byijaði inná
var gegn ítölum í
Róm í október á síð-
asta ári.
Paul Ince verður ekki með i leiknum
gegn Marokkó vegna meiðsla á ökkla.
Menn hafa áhyggjur af því að Ince
veröi ekki búinn aö ná sér af meiðsl-
unum fyrir HM sem hefst eftir 15
daga.
Michael Skippe var i gær ráðinn
þjálfari þýska knattspyrnuliðsins
Dortmund í stað ítalans Nevio Sacala
sem látinn var fara frá félaginu á dög-
unum.
Skippe þjálfaði áhugamannaliö Dort-
mund og kom ráðning hans mjög á
óvart en meðal þeirra þjálfara sem
orðaöir voru við starfiö voru Jupp
Heynckes, þjálfari Real Madrid, og
Ruud Gullit, fyrrum stjóri hjá Chel-
sea.
Lothar Matthaus leikur í dag sinn
123. landsleik fyrir
Þjóðverja sem
mæta Finnum í
Helsinki i undir-
búningi liðsins fyr-
ir HM. Hann hefur
ekki leikið síðan í
desember 1994.
Samkvœmt heimildum frá Italíu hef-
ur Lazio gert tilboð í Angelo Peruzzi,
markvörð Juventus, og hljóðar tilboð-
ið upp á tæpar 700 milljónir króna.
Norömenn, sem ekki hafa tapaö leik
á heimavelli síðan 1991, mæta Sádi
Arabíu í landsleik í knattspymu í
Ósló í kvöld.
Danski knattspyrnumaðurinn Thom-
as Helveg er einn eftirsóttasti knatt-
spymumaðurinn um þessar mundir
ef marka má áhuga marga stórliða.
Udinese, ACMilan, Bayem, Monaco,
Valencia og Fiorentina hafa öll boðið
honum samning.
Che Bunce, Nýsjálendingurinn i liði
Breiöabliks, var í gær úrskurðaður í
tveggja leikja bann af aganefnd KSÍ.
Bunce var rekinn af velli fyrir gróft
brot gegn Víkingi á dögunum. Aðrir
sem fengu rauð spjöld í upphafi Is-
landsmótsins fengu hefðbundið eins
leiks bann. -GH/JKS/VS
Guðjón-ÍA:
Dóms að vænta
í næsta mánuði
í gær fóm fram vitnaleiðslur í
máli Guðjóns Þórðarsonar, lands-
liðsþjálfara í knattspymu, og
Knattspymufélags ÍA. Dóms í mál-
inu er að vænta í næsta mánuði.
ÍAsagði Guðjóni upp störfum í
nóvember 1996. Hann átti þá tvö ár
eftir af samningi sínum við félagið.
Ekki náðust sættir um samnings-
lok en þegar Guðjón var ráðinn
landsliðsþjálfari síðasta sumar
varð samkomulag um að málið
yrði sett í gerðardóm. Báðir máls-
aðilar skipuðu einn fulltrúa í gerð-
ardóminn og KSÍ oddamanninn.
Krafa Guðjóns er að við samn-
inginn verði staðið en Skagamenn
telja sig lausa allra mála.
-VS
íkvöld
Úrvalsdeildin í knattspymu:
KR-Grindavík................20.00
1. deild karla í knattspyrnu:
Þór-FH 20.00
Skallagrímur-HK 20.00
Breiðablik-Fylkir 20.00
Stjaman-KA 20.00
Havlik á ný
til HK-manna
Rudolf Havlik, sá kunni tékk-
neski handknattleiksþjálfari, er á
leið tilHKá nýjan leik. Havlik hef-
ur komið mikið viö sögu hjá Kópa-
vogsfélaginu og starfaði þar síðast
fyrir fimm árum.
Havlik, sem hefúr verið aðal-
þjálfari Dukla Prag undanfarin ár,
verður aðstoðarþjálfari meistara-
flokks HK og þar með Sigurði
Sveinssyni þjálfara innan handar.
Havlik þjálfar einnig 2. og 3. flokk
félagsins og verður yflrþjálfari
yngri flokkanna. -VS
Brassar kynnast aðstæðum
Heimsmeistarar Brasilíu í knattspymu dveljast þessa dagana í æflnga-
búðum í Frakklandi fyrir HM sem hefst 10. júní. Brasilíumenn leika opnun-
arleik keppninnar gegn Skotum í París. Brassamir dvelja í bænum Ozoior
La Ferriere 60 km suður af París. Þeir sjást hér á æfingu í gær. Reuter
Sænska landsliöiö í handbolta:
Sýktist af salmonellu
- nokkrum dögum fyrir EM á Ítalíu
Allir á Stjömuvöllinn!
Baldur
ENGLAND
Stan Collymore reynir nú allt til
þess að verða áfram í herbúðum«y
Aston Villa en þessi óstýriláti fram- T
herji hefur ekki staðið í stykkinu á
Villa Park síðan hann var keyptur
frá Liverpool fyrir 7 milijónir punda.
Collymore segir: „Ég veit að ég hef
ekki staðið undir væntingum en ég
vil fyrir alla muni halda áfram hjá fé-
laginu. Hér likar mér vel og ég ætla
mér að standa mig vel á næsta tíma-
bili.“ Collymore skoraði aðeins 8
mörk á nýliðnu tímabili.
Dion Dublin hjá Coventry er einn
feitasti bitinn í
ensku knatt-
spyrnunni i dag.
Arsenal er sagt'
hafa boðið Cov-
entry 5 milljónir
punda i leik-
manninn og þá
eru Middlesbro-
ugh, Liverpool og
Blackburn öll á
höttunum eftir
Dublin sem á eitt ár eftir af samningi
sínum.
Nicolas Anelka, franska framherj-
anum sem sló í gegn með Arsenal á
tímabilinu, hefur verið boöinn nýr 4
ára samningur við Lundúnaliðið sem
tryggir honum vikulaun upp á 2
milljónir króna.
Jim Smith, knattspyrnustjóri hjá
Derby, vill kaupa þýska varnarmann-
inn Stefan Schnoor en samningur
þessa 27 ára gamla leikmanns viö
Hamburg rennur út í sumar.
Arsenal er sagt hafa boðiö Roberto
Baggio 650 milijónir króna fyrir
þriggja ára
samning við fé-
lagið. Baggio
hefur lýst þvi
yfir aö hann vilji
spila á Englandi
en hann hefur
tvö undanfarin
ár leikiö með
Bologna.
Arsenal er ekki eina félagið sem vill
krækja í Baggio því Inter Milan er að'
undirbúa kauptilboð.
West Ham hefúr sett sig I samband
við umboösmann Claudio Taffarel,
landsliðsmarkvörð Brasilíu. West
Ham vill fá þennan 33 ára gamla
markvörð til að taka stöðu Frakkans
Bernhard Lama sem er farinn til Par-
isSG.
Sol Campbell, varnarmaður Totten-
ham, hefur verið útnefndur besti leik-
maður enska landsliösins fyrir áriö
1997. Campbell átti mjög góða leiki
með Englending-
um í und-
ankeppni HM og
var kjölfesta í
vöminni en samt
er hann ekki ör-
uggur í 22 manna
landsliðshópinn
sem leikur á HM.
Kenny Dalglish knattspymustjóri
hjá Newcastle ætlar að taka upp vesk-
ið í sumar og styrkja lið sitt fyrir bar-
áttuna næsta timabil. Ekki veitir af
kunna menn að segja enda gekk lið-
inu afar illa í vetur.
Dalglish hefur nú boðið Sheffield
United 2 milljónir punda í Wayne
Quinn B-landsliðsmann Englendinga.
Þá er hann mjög spenntur fyrir Mart-
in Laursen, u-21 árs landsliösmanni
Dana, sem leikur meö Silkeborg.
2. umferö í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu:
Þetta var mjög sætt
- Fjölnir vann sinn fyrsta leik og KR-stúlkur rótburstuðu IA á Skaganum
0-1 Harpa Sigurbjömsdóttir
Fjölnir vann sinn fyrsta sigur í
Meistaradeildinni þegar liðið lagði
Hauka að veUi í Hafnarfirði. Harpa
skoraði sigurmarkið snemma í fyiri
hálfleik og þrátt fyrir ágæta sóknartU-
burði Hauka tókst þeim ekki að jafria
leikinn og urðu að játa sig sigraðar.
Leikurinn einkenndist af mikilli bar-
áttu og var fuUgrófur á köflum.
TU að mynda fengu þær Hanna G.
Stefánsdóttir og Eva Bj. Ægisdóttir úr
Haukum að líta rauða spjaldið og eru
Haukarnir því búnir að fá aUs þrjú
rauð spjöld í sumar og mun það vera
met í efstu deUd kvenna að eitt og
sama liðið fái að líta svo mörg rauö
spjöld í aðeins tveimur leikjum.
„Þetta var mjög sætt, það var búið
að spá Ula fyrir okkur og við ætluðum
að sýna það að við verðum ekki auð-
unnar í sumar. Við getum þetta rétt
eins og hin liðin,“ sagði Guðbjörg
Ragnarsdóttir, markvörður Fjölnis,
sem stóð í ströngu á miUi stanganna.
Blikasigur í Kópavogi
1-0 Sigríður Þorláksdóttir
1- 1 Karen Burke
2- 1 Sigrún Óttarsdóttir
„Fyrri hálfleikur var enginn glans
hjá okkur og við áttum í erfiðleikum
með margt í leik okkar, en þetta lagað-
ist í seinni hálfleiknum. Við höfum
verið að breyta dálítið uppstiUingunni
hjá okkur og það tekur tíma að kom-
ast inn í það. Það sem er þó mikUvæg-
ast er að við náðum 1 þrjú stig hér í
dag og þau em dýrmæt," sagði Sigrún
Óttarsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, eft-
ir 2-1 sigur gegn ÍBV í Kópavoginum í
gær.
Leikurinn var jafn framan af en eft-
ir að Blikamir höfðu komist yfir náðu
Eyjamenn smám saman tökum á
leiknum og Karen Burke, enski lands-
liðsmaðurinn sem var að leika sinn
fyrsta leik með ÍBV eins og Laufey Jó-
hannsdóttir sem kom frá KR, jafnaði
leikinn. Blikarnir komu ákveðnari tU
siðari hálfleiks og tryggðu sér sigur-
inn.
Rótburst á Skaganum
KR-ingar sýndu meistaratakta þeg-
ar þeir mættu ÍA á Akranesi. Olga
Færseth skoraði þrennu , ÁsthUdur
Helgadóttir skoraði tvö mörk og þær
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guð-
laug Jónsdóttir sitt markið hvor.
Sannfærandi sigur Vals
Valur vann sannfærandi sigur á
Stjömunni að Hlíðarenda, 4-1. Laufey
Ólafsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir
Val og Erla Sigurbjartsdóttir eitt.
Elva B. Erlingsdóttir skoraði mark
Stjömunnar. -ih
Gianfranco Zola svekktur aö vera ekki valinn í ítalska landsliöshópinn:
Ætlaði mér stóra hluti í Frakklandi
Seattle rak Karl
Þjálfara Seattle SuperSonics,
George Karl, var sagt upp störf-
um í gærkvöld eftir rúmlega sex
ára starf hjá liðinu. -JKS
Newcastle missir einhverja leikmenn
sem léku með liöinu í vetur. Daninn
John Dahl Tomasson er liklega á leið
til PSV í Hollandi, ítalinn Alessandro ,
Pistone er undir smásjá hjá spænska
liðinu Atletico Madrid og West Ham
og Fulham eru að reyna að krækja i
Robert Lee.
-GH
Stjörnustúlkan Elva B. Erlingsdóttir reynir hér skot að marki Vals í viðureign liðanna að Hlíðarenda í gærkvöld.
Margrét Jónsdóttir með gangi mála. Vaisstúlkur unnu öruggan sigur.
(ris Eysteinsdóttir er til varnar en álengdar fylgist
DV-mynd Brynjar Gauti
Gianfranco Zola er vonsvikinn.
Gianfranco Zola, leikmaðurinn
snjalli hjá Chelsea, er aö vonum
mjög svekktur yfir því að hafa dott-
ið út úr ítalska landsliðshópnum í
knattspymu sem leikur á HM í
sumar. Zola var skilinn eftir en Ro-
berto Baggio valinn í hans stað eft-
ir að vera úti í kuldanum um nokk-
urt skeið.
„Þetta vom gífurleg vonbrigði og
ég átti ekki von á öðm en ég yrði í
hópnum," sagði Zola við fréttamenn
í gær en hann var þá í fyrsta sinn
að tjá sig um val Cesare Maldini,
landsliðsþjálfara ítala, á landslið-
inu.
„Maldini getur ekki skýlt sér á
bak viö það að ég hafi átt erfitt
tímabil. Kannski voru janúar og
febrúar svolítið erfiðir fyrir mig en
eftir það kom ég sterkur upp og var
þátttakandi í einu besta tímabili í
sögu Chelsea frá upphafi,“ segir
Zola.
Zola segir að fullt af fólki haldi að
enska úrvalsdeildin sé lakari en 1.
deildin á Ítalíu og þess vegna leggi
leikmenn á Englandi ekki eins hart
að sér og á Ítalíu. „Þetta er ekki rétt
því leikmenn á Englandi æfa mikið
og enska úrvalsdeildin er ekki
lakari en sú ítalska," segir Zola.
„Það siðasta sem ég heyrði frá
Maldini var að hann hringdi í mig
eftir úrslitaleikinn í Evrópukeppn-
inni og óskaði mér til hamingju
með sigurinn. Ég skil ekki hvemig
hann getur haldið því fram að ég sé
ekki klár í slaginn sökum meiðsla
því ég var með í Evrópuleiknum og
skoraði mark. Ég er ekki meiddur
og er í 100% formi. Ég ætlaði mér
stóra hluti í Frakklandi en nú verð-
ur maður bara áhorfandi hvort sem
manni líkar það betur eða verr,“
segir Zola.
Zola hefur oft leikið stórt
hlutverk með ítalska landsliðinu og
mönnum er ofarlega í minni þegar
hann skoraði sigurmark ítala gegn
Englendingum á Wembley í
undankeppni HM. Flestir reiknuðu
með því að Zola myndi klæðast
ífrdska landsliðsbúningum í
Frakklandi en Cesare Maldini
landsliðsþjálfari, var undir miklum
þrýstingi að velja Roberto Baggio og
valdi hann á síðustu stundu á
kostnað Zola.
-GH
f) ÚRVALSD. KV.
KR 2 2 0 0 11-0 6
Valur 2 2 0 0 a-i 6
Breiðablik 2 1 1 0 2-1 4
Stjarnan 2 1 0 1 6-5 3
Fjölnir 2 1 0 1 1-4 3
ÍA 2 0 1 1 0-7 1
ÍBV 2 0 0 2 2-7 0
Haukar 2 0 0 2 0-5 0
Hlé veröur nú gert á deildinni
vegna landsleik við Spánverja I
Evrópukeppninni sem verður háður
ytra á sunnudaginn kemur.
Þriöja umferö hefst 4. júní með
leikjum Fjölnis-ÍA, Stjömun-
ar-Hauka, ÍBV-Vals og umferðinni
lýkur 5. júní með leik KR og Breiða-
bliks.
í Leiftur
Baldur Bragason er genginn til
liðs við Leiftur á ný og leikur vænt-
anlega með Ólafsfirðingum gegn ÍR
í úrvalsdeildinni í knattspymu ann-
að kvöld.
Baldur fór frá Leiftri til gríska 1.
deildar liðsins Panahaiki eftir ára-
mótin og samdi til þriggja
ára, en var þó á leigu frá
Leiftri út þetta tímabil. Lið-
ið féll mjög óvænt á dögun-
um og í kjölfarið á því kom
Baldur heim. Hann lék
flestalla leiki liðsins og
þótti með bestu leikmönn-
um þess.
„Það varð að samkomulagi eftir
að liðið féll að ég færi heim. Ég var
ekki nógu ánægður með gang mála
hjá Panahaiki, liðið var allt of
sterkt til að falla en peningamálin
vom í óreiðu hjá forseta félagsins.
Laun skiluðu sér seint og illa og ég
á enn peninga hjá félaginu," sagði
Baldur við DV í gærkvöld.
„Ég tel mig hins vegar hafa stað-
ið mig það vel með Panahaiki að ég
eigi góða möguleika á að komast að
hjá öðm grísku félagi næsta vetur.
Það kemur jafnvel til greina að fara
aftur til Panahaiki ef skipt verður
um forseta," sagði Baldur.
Hann er samningsbundinn Leiftri
út þetta tímabil og segist standa við
þann samning.
„Það höfðu fleiri félög sam-
band við mig en mér hefur
alltaf liðið vel á Ólafsfirði
og þar hefur alltaf verið
staðið við alla hluti. Það er
skemmtilegt þar á sumrin,
ég er þegar kominn með
fiðringinn og get ekki beðið
eftir því að komast norður.
Það er mikið af nýjum leikmönnum
hjá Leiftri en ég hef heyrt að
liðsandinn sé mjög góður og ég á
von á fjöragu sumri fyrir norðan,"
sagði Baldur Bragason.
Baldur er þrítugur og spilaði með
Leiftri frá því í júlí 1994 og til loka
síðasta tímabils. Hann á að baki 115
leiki í efstu deild með Leiftri og Val
og auk þess 5 A-landsleiki, og mæt-
ir væntanlega í góðu formi norður
eftir Grikklandsdvölina. -VS
Henning Henningsson, þjálfari Skallagríms:
Hvalreki fyrir
Borgnesinga
- Kristinn Friöriksson genginn í liöiö
Úrvalsdeildarlið Skallagríms í
körfuknattleik fékk góðan liðstyrk
í gærkvöld en þá ákvað Kristinn
Friðriksson að ganga í raðir félags-
ins. Kristinn er 26 ára
gamall bakvörður og er af
mörgum talinn besta
skyttan í íslenskum
körfuknattleik í dag.
í vetur hefur hann leik-
ið með BK Odense í
dönsku 1. deildinni en
lengst af sínum ferli hefur
hann leikið með Keflvík-
ingum og einn vetm- lék
hann í búningi Þórsara á
Akureyri.
„Það er mikill styrkur fyrir okk-
ur að fá Kristin og ég myndi segja
að hann væri hvalreki fyrir körfú-
Henning
Henningsson.
boltann í Borgarnesi. Hann lék
mjög vel með Odense í vetur og
gerði stormandi lukku með lið-
inu,“ sagði Henning Henningsson,
þjálfari Skallagi-íms, í sam-
tali við DV I gærkvöld en
hann lék einmitt með
Kristni hjá BK Odense i
vetur.
Henning var á dögunum
ráðinn þjálfari Skallagríms
og mun jafnframt leika
með liðinu næsta vetur,
svo og fráfarandi þjáifari
liðsins, Tómas Holton. Það
má því reikna með Borg-
nesingum sterkum á næsta
keppnistímabili en á nýliðnu tíma-
bili komst Skallagrímur ekki í úr-
slitakeppnina. -GH
Fyrsta deild karla
íkvöldkl. 20
íGaröabæ
Stjaman
KA
Olís er styrktaraóili Stjörnunnar
t