Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1998, Page 32
V I K I N G A
WFli
#
a$vtnnJa
1 æ
^yrtr kt i LÍcjsj
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ1998
Lindarhneykslið:
Fullur trúnað-
arbrestur
jmilli þings og
ráðherra
- segir Ásta Ragnheiður
„Það er augljóslega fullur trúnaðar-
brestur I þessu máli milli ráðherrans
og Alþingis. Hann ber því við að Al-
þingi hefði átt að bregðast við þar sem
það hefði kosið bankaráðið. Hvemig í
ósköpunum átti það að gerast þegar
ráðherrann liggur á upplýsingunum,"
sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
alþingismaður sem spurði Finn Ing-
ólfsson viðskiptaráðherra um málefni
Lindar vorið 1996 eða fyrir tveimur
ámm en fékk endanlegt svar í gær. í
svari ráðherrans kom fram að hann
'•þekkti ekki nægilega vel til mála fyrir-
tækisins sem tapað hafði stórfé á
kostnað Landsbankans. Nú er komið
fram að á þeim tíma haíði hann undir
höndum kolsvarta skýrslu Ríkisendur-
skoðunar sem lýsti vafasömum stjórn-
unaraðferðum framkvæmdastjórans,
Þórðar Yngva Guðmundssonar, og
rekstri sem einkenndist nánast af
rugli. Þá er i skýrslunni, sem dreift
var til fjölmiðla í gær og Finnur haföi
undir höndum þegar spurt var, banka-
ráð Landsbankans hvatt tO að láta
rannsaka feril framkvæmdastjórans
"og bregðast við með viðeigandi hætti.
Ásta Ragnheiður segir að ráðherr-
ann og bankaráðið beri fulla ábyrgð á
því aðgerðaleysi sem átt hafi sér stað
og hvemig þetta mál standi nú.
„Ráðherrann ber fulia ábyrgð í
þessu máli. Það er hans að gæta hags-
muna þjóðarinnar í bankamálum.
Þetta er stærsta tap bankans sem
hann hefur orðið fyrir í aliri sögu
sinni. Menn skulu athuga að þarna er
um að ræða 1000 milljónir króna. Þetta
mál er allt eitt allsherjar hneyksli,"
segir Ásta Ragnheiður. -rt
Þórður Yngvi:
Ráðlagt að tjá
mig ekki
„Mér hefttr verið ráðlagt að tjá mig
ekki um þessi mál að sinni,“ sagði
Þórður Yngvi Guð-
mundsson, fyrrum
framkvæmdastjóri
Lindar, þegar DV
óskaði eftir viðbrögðum
hans í morgun vegna
hinnar svörtu skýrslu
Þórður Ríkisendurskoðunar
Yngvi Guð- þar sem miklar efa-
mundsson. semdir eru settar fram
við starfshætti Þórðar
sem framkvæmdastjóra Lindar fyrir
Qórum árum.
Þórður Yngvi, sem nú starfar hjá
utanríkisráðuneytinu, segist síðar
3%iunu verja hendur sínar en það sé
ekki tímabært nú. -rt
í FÉKK RÁPHERR-
( ANN AÐ KEYRA
V HEIM?
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra prófaði í gær nýja öndunarsýnatækið sem lögreglan hefur tekið í notkun. Tækið á að komast að því á aðeins sjö mín-
útum hvort ökumenn eru undir áhrifum áfengis og hvert áfengismagnið er. Tækjabúnaður þessi var kynntur í gær á 30 ára afmæli hægri umferðar á Islandi.
DV-mynd Hilmar Þór
Markús Örn Antonsson um gagnrýni á fréttastofur RÚV:
Ástæða til að
fara yfir stöðuna
„Þessi mál eru náttúrlega til um-
ræðu hér innan stofnunarinnar. Ég
tel nú ekki mikið unnið með því að
vera með einhveijar fljótfærnislegar
yfirlýsingar. En ég held að það sé full
ástæða til að staldra við og fara ræki-
lega yfir stöðu mála,“ sagði Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri aðspurð-
ur um þá gagnrýni sem fram hefur
komið, sérstaklega hjá forsætisráð-
herra, um meinta hlutdrægni ríkis-
fréttastofanna, sjónvarps og útvarps,
fyrir kosningamar í Reykjavík.
Markús Öm segist ekki telja að
svara beri Helga H. Jónssyni með yf-
irlýsingagleði um skilyrðislegan
stuðning við fréttastofurnar. Varð-
andi ritstjórnarlegt mat sagði útvarps-
stjóri:
„Það er kannski fyrst og fremst
fréttastjóranna að ræða um þá hluti
sem lúta að ritstjómarlegri verkstjórn
þeirra - vali á fréttum og höfnun eins
og gengur og gerist samkvæmt hinu
afstæða fréttamati. En það er vissu-
lega áhugavert ef það fengist nú um-
ræða um fréttamatið og hvaða rök-
stuðningur liggur fyrir þegar því er
beitt,“ sagði Markús Örn.
Útvarpsráð fjallaði um mál frétta-
stofa RÚV í gær. - En í hvaða farvegi
er málið að öðru leyti?
„Forstöðumenn hér fjalla auðvitað
um þetta mál,“ sagði Markús Öm.
„Það er að sjálfsögðu þannig að þegar
kosningabarátta er um garð gengin,
og gagnrýni kemur fram af þessum
toga, þá hlýtur að fara fram nánari
skoðun á því hvernig staðið hefur ver-
ið að málum hér hjá okkur. Það verð-
ur þó ekki gert með yflrlýsingagleði.
Það þarf að leggja í það vinnu og hún
tekur tíma. Þannig verður að málun-
um staðið."
- Hvað áttu við með yfirlýsinga-
gleði?
„Ég á við yfirlýsingu eins og komið
hefur fram hjá Helga H. Jónssyni um
að yfirmenn þessarar stofnunar eigi
að gefa út skilyrðislausar stuðningsyf-
irlýsingar við fréttastofurnar."
Helgi H. Jónsson, fréttastjóri Sjón-
varps, sagði í gær, aðspurður um
hversu hart hann muni ganga fram
um stuðningsyfirlýsingu yfirmanna
RÚV, að hann muni ekki gera það
frekar en fram hefur komið.
„Mér finnst ekki óeðlilegt að yfir-
menn stofnunarinnar láti eitthvað frá
sér heyra. En það er þeirra ákvörð-
un,“ sagði Helgi.
Um harðorða gagnrýni forsætisráð-
herra í garð fréttastofa ríkisfjölmiðl-
anna sagði Markús Örn:
„Ég held að það sé mjög hollt og
gott fyrir íjölmiðla að ritstjómir
þeirra fari mjög vandlega yfir langan
feril eins og verið hefur í kosning-
aundirbúningnum og öllum frétta-
flutningi og öllum málatilbúnaði síð-
asta hálfa árið eða meira," sagði út-
varpsstjóri. -Ótt
Kjartan Gunnarsson:
Misskilningi
verði eytt
„Það hefði verið eðlilegt að birta
samhliða skýrslu Ríkisendurskoð-
unar greinargerð bankaráðsins til
Ríkisendurskoðunar,“ sagði Kjart-
an Gunnarsson, bankaráðsmaður
Landsbankans, í samtali við DV i
morgun.
Kjartan var spurður hvað hefði
breyst frá því að viðskiptaráðherra
og bankaráðið fékk skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um Lindarmálið í
hendur vorið 1996 sem ylli því að
hann ætlaði nú að óska sakamálar-
annsóknar en hefði ekki séð
ástæðu til þess þá. Hann vildi ekki
svara því en sagði: „Hafi verið ein-
hver misskilningur milli ábyrgðar-
aðila málsins þá er rétt að taka
málið upp aftur. Ég hef ekkert ann-
að um það að segja.“
Varðandi fyrmefnda greinargerð
bankaráðsins til Ríkisendurskoð-
unar sagði Kjartan að hann myndi
á bankaráðsfundi á morgun óska
eftir því að hún yrði birt einnig.
Aðspurður hvort hann hefði ein-
hverja kenningu um hvers vegna
viðskiptaráðherra hefði birt
skýrslu Ríkisendurskoðunar nú
sagðist Kjartan enga slíka hafa.
„Ráðherra hafði hana bara í 14
daga árið 1996.“
-SÁ
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
Veðrið á morgun:
sunnan og
austan
Á morgun verður hæg vestlæg
eða breytileg átt. Skýjað verður
að mestu og dálítil súld vestan-
og norðanlands en yfirleitt bjart
veður um sunnan- og austanvert
landið. Hiti verður á bilinu 5 til
20 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Veðrið í dag er á bls. 45.