Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2000, Page 1
15
Nýtt
félags-
met hjá
Þór á
Akureyri
ir í takt
Leikmenn Manchester United, meö fyririiöa sínum Roy
Keane, sjást hér á æfingu í gær en iiöiö mætir franska
liöinu Bordeaux í meistaradeild Evrópu í kvöld. Reuter
Óljóst hver hreppir deildarmeist-
aratitilinn í körfuboltanum:
Þyrlan gat
komið að góð-
um notum
- bifreið bíður átekta á Reykja-
nesbrautinni á fimmtudag
Lokaumferðin í úrvalsdeildinni í körfuknattleik verð-
ur háð á fimmtudagskvöldið. Þrjú lið eiga möguleika á
deildarmeistaratitlinum, Njarðvik, Grindavík og Hauk-
ar. Möguleikar Tindastóls eru úti vegna óhagstæðra úr-
slita í leikjum gegn Njarðvík og Haukum í deildinni.
I síðustu umferðinni leika Haukar gegn KFÍ í Hafnar-
firði, Keflavík og Njarðvík leika í Keflavík og í Grinda-
vík eigast við heimamenn og Tindastóll.
Forsvarsmenn KKÍ verða þvi að bíða átekta á Reykja-
nesbrautinni með bikarinn en það verður ekki ljóst
hvaða stefna verður tekin fyrr en í lok leikjanna.
Um tíma var í umræðunni að notast við þyrlu eins og
gert var í knattspymunni 1991 þegar flogið var meö bik-
arinn í Garðinn þegar Vikingur varð íslandsmeistari.
Þegar málin voru skoðuð niður í kjölinn kom í ljós að
þyrlan gat ekki lent í umræddum bæjarfélögum vegna
þess að skollið er á myrkur og hefur hún ekki leyfi til
lendingar undir þannig kringumstæðum.
-JKS
Þorbjörn Jensson velur
landsliðið fyrir Svíaleikina:
Ragnar,
Guðfinnur
- sex leikmenn frá Þýskalandi
Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, valdi i gær 14
leikmenn sem leika tvo
vináttulandsleiki
gegn Svíum á
fimmtudag og
föstudag. Fjórir
leikmenn, sem
ekki léku með
liðinu á Evrópu-
mótinu í Króatíu
í síðasta mánuði,
fá nú tækifæri tfl
að sýna hvað í
þeim býr.
Leikmennimir sem hér
um ræðir em Amar Pét-
ursson, Stjömunni, Guð-
finnur Kristmannsson,
ÍBV, Gunnar Berg Vikt-
orsson, Fram, og Ragnar
Óskarsson, ÍR. Aðrir í
hópnum eru Guðmundur
Hrafnkelsson, Nordhom,
Sebastian Alexander,
Fram, Guðjón Valur Sig-
urðsson, KA, Valdimar
Grímsson, Wupp-
ertal, Njörður
Árnason, Fram,
Magnús Már Þórð-
arson, Aftureld-
ingu, Róbert Sig-
hvatsson, Dor-
magen, Dagur Sig-
urðsson, Wupper-
tal, Róbert Julian
Arnar Pétursson Duranona, Eisen-
ach, og Ólafur Stefánsson,
Magdeburg.
Fyrri leikur þjóðanna
verður í Stokkhólmi á
fimmtudag og verður hon-
um sjónvarpað beint í
sænska sjónvarpinu. Síð-
ari leikurinn verður háð-
ur í Linköping. -JKS