Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 2
20
21
4- f
FMMTUDAGUR 23. MARS 2000 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
Sport
DV
Sport
Ragnar þjálfar Haukakonur
Haukar hafa ráðið Ragnar Hermannsson sem þjálfara fyrir kvennalið
félagsins í handknattleik fyrir næstu leiktíð en Ragnar stýrði liðinu í
lokaleikjum íslandsmótsins ásamt Rússanum Georgi Larine eftir að
Judit Esztergal og Svava Ýr Baldvinsdóttir ákváðu að segja starfi sínu
lausu.
Haukunum gekk ekki sem skildi í vetur. Liðið hafnaði í 8. sæti í deild-
arkeppninni og var slegið út af Víkingi í 8-liða úrslitunum. Forráðamenn
Hauka stefna á að styrkja liðið fyrir næsta tímabil en hin síðustu ár hef-
ur Hafnarfjarðarliðið verið á meðal sterkustu liða landsins.
-GH
Fyrsti ósigur
Chelsea heima
Chelsea tapaði sínum fyrsta
Evrópuleik á heimavelli síðan
1958 eða í alls 34 leikjum á Stam-
ford Bridge. Þess má geta að
byrjunarlið Chelsea var ein-
göngu skipað erlendum leik-
mönnum.
-JKS
Raul tekur skemmtilega á móti sendingunni inn fyrir vörn Rosenborgar og augnabliki síðar lá knötturinn í netinu.
Þetta reyndist eina mark leiksins og Real Madrid tryggði sér sæti í 8-iiða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
-Reuters
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gærkvöld:
Real Madrid áfram
en Kiev sat eftir
- Lazio sigraði í C-riðli eftir sigur á Chelsea
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spymu lauk í gærkvöldi með leikjum í C- og D-
riðlum keppninnar. Bayem Múnchen og Real
Madrid komust áfram úr C-riðli og upp úr D-riðli
komust Lazio og Chelsea.
ítalska liðið varð að vinna Chelsea á Stamford
Bridge í Lundúnum ef Feyenoord myndi vinna
Marseille á útivelli á sama tíma. Lazio var betri
aðilinn gegn Chelsea en það voru heimamenn
sem komust yfir þegar Gustavo Poyet skoraði
með spyrnu af 30 metra færi á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Lazio mætti mjög ákveðið til leiks í síð-
ari hálfleik og tryggðu sér að lokum sanngjam-
an sigur með tveimur frábærum mörkum frá
Simone Inzaghi og Sinisa Mihajlovic.
„Ég missti aldrei vonina“
„Mínir menn léku þennan leik af yfirvegun og
alveg eins og fyrir þá var lagt. Ég missti ekki
vonina eftir að Chelsea skoraði því ég var viss
um að við myndum komast inn i leikinn að nýju.
Við settum aukinn þunga í sóknina í síðari háif-
leik með tilætluðum árangri. Fyrir okkur skipt-
ir engu máli hvaða mótherja við fáum i 8-liða úr-
slitunum," sagði Svíinn Sven Göran Eriksson,
þjálfari Lazio, eftir leikinn.
„Þrátt fyrir allt er ég stoltur af mínu liði þeg-
ar litið er yfir farinn veg í riðlakeppninni. Við
vorum samt ekki að leika vel og það býr mun
meira í liðinu. Við vissum að þetta yrði erfiður
leikur en það var fyrir öllu að komast áfram,“
sagði Gianluca ViaUi, þjálfari Chelsea, eftir leik-
inn.
Með sigrinum tryggði Lazio sér sigur í riðlin-
um. Feyenoord átti möguleika en varð að láta sér
lynda markalaust jafntefli í MarseUle. Feyenoord
sótti mikið undir lok leiksins, eftir að Richard
Martini var vikið af leikveUi fjórtán mínútum
fyrir leikslok, en aUt kom fyrir ekki.
Bayern Múnchen skUdi eftir níu leikmenn úr
fastaliðinu heima fyrir leikinn gegn Dynamo
Kiev í Kænugarði. Bæjarar voru aldrei líklegir í
leiknum enda búnir að vinna sigur í riðlinum og
fyrir þá var leikurinn aðeins formsatriði. Bæjar-
ar voru nokkuð gagnrýndir fyrir þessa ákvörðun
en fyrir Kænugarðsmenn var leikurinn mjög
mikUvægur. Þeir urðu að vinna og treysta um
leið á að Rosenborg ynni sigur á Real Madrid í
Þrándheimi. Kiev sigraði Bayem örugglega, 2-0,
en Real Madrid sigraði í Noregi og komst áfram
á betri útkomu úr innbyrðisleikjum við Dynamo
Kiev.
Gerðum allt sem í valdi okkar stóð
„Við gerðum aUt sem í valdi okkur stóð en því
miður reyndist það ekki nóg fyrir okkur. Við
höfum leikið vel eftir vetrarfri en lélegt gengi í
byrjun riöUsins verður okkur að faUi,“ sagði Al-
exei MikhaUichenko, aðstoðarþjálfari Kiev.
Árni Gautur stóð fyrir sínu
Árni Gautur Arason var í marki Rosenborgar
og komst ágætlega frá sínu. Hann verður ekki
sakaður um markið sem Raul skoraði í upphafi
leiksins þegar vöm Rosenborgar svaf á verðin-
um. Norska liðinu tókst ekki að færa sér í nyt að
vera einum fleiri stóran hluta síðari hálfleiks en
Guti fékk að sjá sitt annað gula spjald í leiknum
á 53. mínútu.
-JKS
Drottning mótsins frá Blöndósi
Sigurbjörg Ólafsdóttir úr USAH var óumdeUanlega
drottning meistaramóts 12 tU 14 ára í frjálsum, því alls
vann hún fimm verðlaun, þar af fjögur guU og setti auk
þess tvö íslandsmet. Sigurbjörg verður 14 ára í sumar og
var að vonum mjög ánægð með gengi sitt á mótinu.
Sigurbjörg hefur æft frjálsar í 8 ár eða síðan hún var 6
ára og segir Sunnu Gestsdóttur frænku sína og
frjálsíþróttakonu úr ÍR hafi haft mestu áhrif á hana til
að byrja að æfa á sínum tíma þar sem hún stóð sig svo
vel. Sigurbjörg hefur þegar valið frjálsar fram yfir
fótbolta og handbolta, sem hún æfði áður, og ætlar sér að
halda áfram að æfa og reyna að gera betur. Hún var
einmitt að bæta sig í öUum greinum frá því á
meistaramótinu fyrir einu ári.
2 met og 49 stig
Hér til hægri er Sigurbjörg
Ólafsdóttur úr USAH en hún
stóð sig frábærlega á mótinu,
vann 4 gull og eitt siifur, setti
tvö íslandsmet og náði ails í 49
stig fyrir félag sitt sem nægði
því i' þriöja sæti stigakeppni 14
ára telpna.
Fyrir neðan eru þrjár hressar
FH-stúlkur, en þetta eru þær
Harpa Einarsdóttir, Guðrún
West Karlsdóttir og Guðrún
Þórey Sigurbjörnsdóttir.
Fjolmr
Ungmennafélagiö
38
febr
tofnac
Kröftugir og kappsamir krakk-
ar úr Fjölni voru sigursælastir i
aldurshópnum 12 tU 14 ára á
Meistaramóti íslands í frjálsum
sem fram fór á dögunum í Smár-
anum 1 Kópavogi.
Umsjón
Óskar Ó. Jónsson
Á unglingasíðunni í dag leggj-
um við áherslu á gengi stelpn-
anna á mótinu en strákarnir fá
sína umfjöUun á næstu unglinga-
síðu.
Fjölnir vann heildarstiga-
keppnina likt og í fyrra en félagið
átti sérstaklega sterka krakka í
yngri hópunum.
Fjögur Islandsmet voru sett á
mótinu og þar af setti Sigurbjörg
Ólafsdóttir úr USAH tvö þeirra í
flokki 14 ára telpna er hún hljóp
60 metar hlaup á 8,10 sekúndum
og 60 metra grindarhlaup á 9,56
sekúndum.
Auk hennar settu þeir Jón V.
Sigvaldason úr UMSB íslandsmet
í 60 metra hlaupi 12 ára stráka er
hann hljóp á 8,69 sekúndum og
Blikinn Bjarki PáU Eysteinsson
bætti metið í 60 metra grindar-
hlaupi 14 ára pUta er hann hljóp
á 9,73 sekúndum.
Sigurvegarar í heildarstiga-
keppninni í einstökum aidurs-
hópnum urðu þessi:
12 ára stúlkur: ÍR
12 ára strákar: Fjölnir
13 ára telpur: Fjölnir
13 ára pUtar: HSK
14 ára telpur: UFA, Akureyri
14 ára pUtar: HSK.
Mótshaldari var frjálsíþrótta-
deUd Breiðabliks og fá Blikar frá-
bæra dóma fyrir gott mót sem
bæði gekk vel hvað tímaáætlun
og aðstöðu varðar. Svona fjöl-
menn mót eru oft erfið viðureign-
ar en Breiðablik fær A+ fyrir
framkvæmd þessa móts. -ÓÓJ
ÍLA
T
r-ILA
Her að ofan eru 12 ara stelpur ur IR sem tryggðu félagi
sínu stigabikarinn í sínum flokki en þær söfnuðu
saman 45 stigum, 13,5 fleiri en næsta lið.
Hér að ofan eru samankomnar verðlaunahafar hjá 12 ára stúlkum í
langstökki án atrennu. Frá vinstri talið: Hildur Kristín Stefánsdóttir, ÍR
(2. sæti), Rósa B. Þórólfsdóttir, Ármanni (1. sæti) og Margrét Anna
Magnúsdóttir, Breiðabliki (3. sæti). Rósa vann tvö guil á mótinu.
Hér fyrir ofan eru bestu kúluvarparar landsins í flokki 13 ára telpna. Talið frá
vinstri íris Hauksdóttir úr UMSE (2. sæti), Guðrún Bára Sverrisdóttir úr Fjölni
(1. sæti) og Anna Sæunn Ólafsdóttir úr HSÞ (3. sæti).
Þær stóðu sig best í þrístökki án atrennu hjá 13
ára telpum. Frá vinstri talið: Hafdís Sigurðardóttir,
HSÞ (2. sæti), Guðrún West Karlsdóttir, FH
(1. sæti) og Berglind Óskarsdóttir, Fjölni (3. sæti).
Bland í noka
í kvöld ætla stúlkurnar í meistara-
flokki Vals í kvennaknattspyrnu aö
halda kafFihúsakvöld. Þetta er liður í
fjáröflun stúlknanna en i apríl halda
þær til Englands í æfingaferð. Kaffi-
húsakvöldið hefst að Hlíðarenda
klukkan 20 og verður margt til
skemmtunar.
Danski knattspyrnumaðurinn Allan
Nielsen er á leið til Wolves en Totten-
ham hefur samþykkt að lána hann til
Úlfanna út þessa leiktíð. Wolves er í
7. sæti B-deUdarinnar og á möguleika
á að komast í aukakeppni um laust
sæti í A-deUdinni í vor.
George Best fyrrum knattspyrnu-
hetja hjá Manchester United og
fylliraftur verður að dvelja á sjúkra-
húsi í eina viku tU viðbótar. Þar hef-
ur hann veriö i tvær vikur tU að-
hlynningar eftir að í ljós kom að lifr-
in i honum var orðin mjög sködduð.
Þýska handknattleiksliðið Gummers-
bach viU fá Norðmanninn Rune Er-
lend tU að taka við þjálfum liðsins en
Erland lék á árum áður með félaginu
og varð þýskur meistari með þvi. Er-
land er búsettur i Stavanger og þar á
bæ vilja menn fá hann tU að taka við
nýju sameiginlegu liði Vikings og
Stavanger.
Argentínumaðurinn Hernan Crespo
og Frakkinn Lilian Thuram fram-
lengdu í gær samninga sína við
ítalska A-deUdarliöið Parma og gUda
samningarnir tU ársins 2005. Mörg
félög hafa verið á höttunum eftir
þessum leikmönnum enda ekkert
skrýtið því Crespo er talinn einn
besti sóknarmaðurinn í ítölsku deild-
inni í dag og Thuram með sterkari
vamarmönnum heims.
Giovanni Trappatoni, þjálfari
ítalska A-deUdarliðsins Fiorentina,
hefur tUkynnt að hann muni hætta
þjálfun liðsins eftir tímabUið en hann
varð fyrir miklum vonbrigðum þegar
það varð ljóst að liðið komst ekki
áfram i meistaradeUdinni. Trappa-
toni er sigursælasti þjálfarinn á
Ítalíu en lið undir hans stjóm hafa
unnið meistaratitUinn 8 sinnum og
fimm titla á Evrópumótunum.
-GH
MEISTARADEILDIN
Lokastaða: A-riöill:
Barcelona 6 5 1 0 17-5 16
Porto 6 3 1 2 8-8 10
Sparta 6 1 2 3 5-12 5
Hertha 6 0 2 B-riöill: 4 3-8 2
Manch. Utd 6 4 1 1 10-4 13
Valencia 6 3 1 2 9-5 10
Fiorentina 6 2 2 2 7-8 8
Bordeaux 6 0 2 C—riðill: 4 5-14 2
Dynamo Kiev-Bayem .........2-0
1-0 Kladze (34.), 2-0 Demetradze (72.)
Rosenborg-Real Madrid......0-1
0-1 Raul (3.)
Bayern 6411 13-8 13
Real Madrid 6 3 12 11-12 10
Kiev 6 3 1 2 10-8 10
Rosenborg 6 0 1 5 5-11 1
D-riðill:
Chelsea-Lazio ................1-2
1-0 Poyet (45.), 1-1 Inzaghi (54.), 1-2
Mihalovic (76.) Marseille-Feyenoord 0-0
Lazio 6 3 2 1 10-4 11
Chelsea 6 3 1 2 8-5 10
Feyenoord 6 2 2 2 7-7 8
Marseille 6 1 1 4 2-11 4
Dregid veröur í Sviss um hádegisbil-
ið á föstudag um þaö hvaða lið leika
saman í 8-liða úrslitum keppninnar.
Leikiö verður heima og heiman.
Otto Hitzfeld, þjálfari Bayem, varði
ákvörðun sina, á blaðamannafundi í
Kænugarði í gærkvöld, að skilja eftir
heima níu leikmenn úr fastaliðinu.
Hann sagði álagið á liðið gifurlegt og
að leikmenn þyrftu á allri hvíld að
halda þvi liðið ætti eftir að leika
marga leiki áöur en yfir lyki i vor.
Jan Ivar Jakobsen hjá Rosenborg
lék sinn síðasta leik með félaginu
gegn Real Madrid. Hann leggur nú
skóna á hiUuna eftir að hafa leikið
með liðinu í 12 ár en hann á 65
landsleiki að baki fyrir Norðmenn.
-JKS
Urslitin
- hjá stelpunum á MÍ12 til 14 ára
Stelpur 12 ára
Hástökk
1. Rósa B. Þórólfsdóttir, Ármanni 1,35 m
2. Þóra Kristín Pálsdóttir, ÍR .... 1,35 m
3. Júlíana Hálfdánardóttir, UMSB 1,35 m
Kúluvarp
1. Eva Kristín Kristjánsd., HSH . 8,78 m
2. Helena Benediktsdóttir, Fjölni. 8,63 m
3. VUborg Sæmundardóttir, HSH 8,59 m
60 metra hlaup
1. Eva Óttarsdóttir, UÍA...8,73 sek.
2. HUdur Kristin Stefánsdóttir, ÍR 8,75 s.
3. SvanhUdur Ámadóttir, UMSE 9,11 s.
Langstökk
1. SvanhUdur Ámadóttir, UMSE 4,36 m
2. Svanhvít JúUusdóttir, FH ... 4,31 m
3. HUdur Kristin Stefansdóttir, ÍR 4,31 m
Langstökk án atrennu
1. Rósa B. Þórólfsdóttir, Ármanni 2,35 m
2. HUdur Kristín Stefansdóttir, ÍR 2,19 m
3. Margrét Anna Magnúsd., UFA 2,16 m
Stig félaga hjá 12 ára stelpum
ÍR ............................45,0
Fjölnir........................31,5
Ármann ........................31,0
UMSE...........................28,0
FH.............................24,0
Telpur 13 ára
Hástökk
1. Inga Bima Friðjónsd., UMSS.. 1,40 m
2. Hulda Ösp Atladóttir, UDN ... 1,40 m
3. Helga Kr. Haröardóttir, Bjölni . 1,40 m
Kúluvarp
1. Guðrún Bára Sverrisd., Fjölni . 9,10 m
2. íris Hauksdóttir, UMSE.......821 m
3. Anna Sæunn Óiafsdóttir, HSÞ . 8,12 m
60 metra hlaup
1. Inga Birna Friöjónsd., UMSS 8,42 sek.
2. Helga Kr. Harðardóttir, Fjötai . 8,50 s.
3. Björg Hákonardóttir, Fjölni ... 8,66 s.
Langstökk
1. Inga Birna Friðjónsd., UMSS.. 4,68 m
2. Helga Kr. Harðardóttir, Fjölni . 4,53 m
3. TUma Líf Gunnarsdóttir, Bjölni 4,44 m
Langstökk án atrennu
1. Helga Kr. Harðardóttir, Fjöbii. 2,39 m
2. Hafdis Sigurðardóttir, HSÞ ... 225 m
3. Björg Hákonardóttir, Bjöbii ... 2,30 m
Þrlstökk án atrennu
1. Guðrún West Karlsd., FH .... 6,70 m
2. Hafdis Siguröardóttir, HSÞ ... 6,53 m
3. Berglind Óskarsdóttir, Bjöbii.. 6,42 m
Stig félaga hjá 13 ára telpum
Fjölnir..........................126,5
FH................................39,5
HSÞ...............................36,0
HSK ..............................33,0
UMSS..............................30,0
Telpur 14 ára
Hástökk
1. Olga Sigþórsdóttir, UFA .....1,45 m
2. Ösp Jóhannesdóttir, HSK .... 1,40 m
Rut Siguijónsdóttír, FH........l,40m
Kúluvarp
1. Berglind Pámadóttir, HSH .... 929 m
2. HUdur Evlalia Unnard., ÚÍA .. 9,08 m
3. Elfa Bergiind Jónsdóttir, ÚlA . 9,05 m
60 metra hlaup
1. Sigurbjörg Óla&dóttír, USAH 8,10 sek.
2. Vedís Ólaísdóttir, Ármanni ... 8,46 s.
3. Olga Sigþórsdóttir, UFA.......8,50 s.
60 metra grindarhlaup
1. Sigurbjörg Ólafsdóttir, USAH 9,59 s. ÍM
2. Inga Bima Friöjónsd., UMSS .. 9,99 s.
3. Olga Sigþórsdóttir, UFA......10,30 s.
Langstökk
1. Sigurbjörg Ólafsdóttír, USAH . 5,11 m
2. Olga Sigþórsdóttir, UFA ......4,82 m
3. Vedis Ólafsdóttir, Ármanni ... 4,80 m
Langstökk án atrennu
1. Sigurbjörg Ólafsdóttir, USAH . 2,42 m
2. Olga Sigþórsdóttir, UFA ......2,42 m
3. Sigrún Halla Unnarsdóttir, ÚÍA 2,37 m
Þrístökk án atrennu
1. Olga Sigþórsdóttír, UFA ......7,05 m
2. Sigurbjörg Ólafsdóttir, USAH . 6,95 m
3. Dagný Friðriksdóttir, UFA ... 6,90 m
Stig félaga hjá 14 ára telpum
UFA................................113,5
Ármann .............................71,0
USAH................................49,0
ÚÍA.................................36,0
HSK ................................24,5
Heildarstíeakeppni stráka og stelpna
Bjölnir......................... 304,5
HSK ........................... 293,5
Breiðablik.......................170,5
UFA .............................122,5
FH...............................117,0
Ármann...........................109,0
HSH .............................109,0
UMSS ............................105,0
ÚÍA..............................104,5
n