Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2000, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2000, Blaðsíða 3
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 25 Alþjóúlegt FlS-mót i skíöagöngu fór fram í Hlíðarfjalli á Akureyri um helgina og er það í fyrsta skipti sem mót viðurkennt af Alþjóða skíðasamabandinu er haldiö hér á landi. í flokki kvenna sem gengu 5 km urðu þrjár sænskar skíðakonur fyrstar í mark. Johanna Andersson kom fyrst á 15,15 mín, Karim Kjellmann kom önnur á 15,23 mín og Lisa Eriksson þriðja á 16,20 mín. I fjórða sæti kom svo fyrsta íslenska konan og það var Guóný Ósk Gottliebsdóttir en hún gekk vegalengdina á 18,09 mínútum. Karlarnir gengu 10 km og þar kom Svíinn Markus Göranson fyrstur i mark á 26,18 mín. Jonas Buskenström varð annar á 26,49 mín og Bengt Eveby þriöji á 27,02 mín. Haukur Sigurðsson frá Akureyri varð fjórði á 28 mínútum. I flokki pilta sem gengu 10 km sigraði Akureyringurinn Baldur Helgi Ingvarsson á 29,51 min, Árni Gunnar Gunnarsson frá Ólafsfirði varö annar á 30,15 mín, og Ólafur Th. Árnason, ísafiröi, hafnaöi i þriðja sæti á 30,26 mín. Chelsea hefur gengið frá samningi við Sebastian Kneissl, 17 ára þýskan framherja sem leikur með unglingaliði Eintracht Frankfurt. Mörg stór félög hafa veriö á eftir þessum strák og þar má nefna Ajax, Lazio, Real Madrid og Bayern Múnchen. Chelsea þarf ekki að greiða fyrir Kneissler en hann er laus allra mála hjá Frankfurt eftir 1. júlí. Hugo Sanchez, mexíkanski framherjinn sem á árum áður heillaði marga með frammistöðu sinni fyrir Real Madrid, hóf þjálfaraferilinn með glæsibrag um helgina. Sanchez, sem nýlega var ráðinn þjálfari Unam í Mexíkó, sá sína menn vinna öruggan sigur á Necaxa, 3-0, að viðstöddum 75.000 áhorfendum. -GH Sport Júdó: Þorvaldur sjötti á móti í Róm Þorvaldur Blöndal vann þrjár glímur í -90 kg flokki á A-móti í Róm um síðustu helgi. Vernharð Þorleifsson keppti í -100 kg flokki, vann eina glímu en meiddist síðan á öxl. Bjarni Skúlason, sem keppti í -81 kg flokki og Gísli Jón Magnússon í +100 kg flokki, duttu báðir úr leik í 1. umferð. Næsta A-mót verður i Rotter- dam um næstu helgi en þessi mót gefa stig til að öðlast þátt- tökurétt á Ólympíuleikunum. íslendingarnir eru í 13. sæti en níu efstu eftir stigamótin komast til Sydney. ,JKS NBA-deildin: Sjö lið búin að tryggja sig Línur er farnar að skýrast í riðlunum í NBA-deildinni í körfuknattleik. Sjö lið hafa nú þegar tryggt sér sæti í úrslita- keppninni. Þau eru Utah Jazz, San Antonio Spurs og Minnesota Timberwolves úr miðvesturriðl- inum. Úr Kyrrahafsriðlinum eru Los Angeles Lakers, Portland og Phoenix komin áfram. Indiana er eitt liða úr miðriðli öruggt áfram. -JKS Opna íslenska mótið í snóker: Jóhannes B. vann Jóhannes B. Jóhannesson sigr- aði á opna íslenska mótinu í snóker sem fram fór um helgina en þetta er eitt af mótum á vegum alþjóða atvinnumannasambands- ins þar sem áhugamenn fá tæki- færi til að sanna sig og komast í röð hinna bestu. Rétt til þátttöku á atvinnu- mannamótunum hafa 128 spilarar, þar af 106 bestu atvinnumenn síð- asta tímabilsins, svo á hverju ári er keppt um 22 laus sæti og Icelandic Open mótið var eitt þeirra fjögurra móta sem fram fara í Evrópu. Jóhannes lagði Brynjar Valdi- marsson i úrslitaleik nokkuð ör- ugglega, 6-2, en áður hafði Jó- hannes lagt Amar Richardsson í undanúrslitum, 5-3. Jóhannes fer því á úrtökumót sem fram í Belg- íu í næsta mánuði en efstu menn á því móti öðlast keppnisrétt á móta- röð atvinnumanna á næsta vetri. Þetta er einmitt leiðin sem Krist- ján Helgason fór fyrir tveimur árum og hefur skilað honum í 32- manna úrslit bestu snókermanna heims sem fram í Sheffield á Englandi í næsta mánuði. Ármann/Þróttur varð um helgina 2. deildarmeistari karia í körfu- boita með því aö vinna Fjölni, 70-62, í úrslitaleik en bæöi liðin leika < 1. deild næsta vetur og hafa því fjögur Reykjarvíkurfé- lög færst upp um deildívetur þvf báðir nýliöar í úrvalsdeild- inni næsta vetur koma frá Reykjavík, eöa lið ÍR og Vals. Lið Ármanns/Þróttar er þannig skipað (stig í úrslita- ieiknum innan sviga):Páll V. Jónsson, Halldór Óli Úlriks- son (18), fyririiði, Jón Willi- ams (6), Magnús Grétar Ámason, Einar H. Bjama- son (16), Styrmir Goöason, Kari Guðlaugsson (20), þjálfari, Lúðvik K. Víðis- son, Ásgeir Hlöðversson (9) og Valur Þórsson (1). DV-mynd Óskar Undirbúningur Mörthu Ernstdóttur á fullu: Rmmta í Chicago Martha Ernstdóttir úr ÍR keppti um helgina í fimm mílna götuhlaupi í Chicago í Bandaríkj- unum. Mót- ið sem hér um ræðir er eitt það fjöl- mennasta Martha Ernstdóttir sem haldið hefur verið en þátttakendur voru um fjórtán þúsund. Martha varð i fimmta sæti sem verður að teljast góður árangur en vegalengdina, sem er í kringum átta kílómetrar, hljóp hún á 27,12 mínútum. Margir kunnir hlauparar voru með í þessu hlaupi en sigurvegari varð bandaríska stúlkan Colette Liss en hún hljóp á 25,26 mínút- um. Martha tekur 16. april nk. þátt í Hamborgar-maraþoninu. Þar ætl- ar hún að freista þess að ná ólympíulágmarkinu fyrir leikana í Sydney í haust og verða mögu- leikarnir á því að teljast góðir. -JKS Meistarataktar - hjá ÍR og 31 stigs sigur á Val, 83-52, í oddaleik ÍR-ingar sýndu meistaratakta þeg- ar þeir tryggðu sér 1. deildarmeist- aratitilinn í körfu í Seljaskóla i gær. ÍR-ingar unnu 31 stigs sigur, 83-52, og Valsmenn, sem tryggðu sér odda- leik á laugardag, sáu aldrei til sólar i leiknum. Leikurinn varð ekki eins spennandi og hinir tveir þar sem aðeins annað liðið var mætt af full- um krafti og einbeitingu til leiks. ÍR-ingar voru ósigraðir í Selja- skóla í deild og úrslitakeppni í vet- ur og unnu þeir þar alla þrettán leiki sína og það mátti sjá hves vegna i gær því liöiö lék á als oddi með þá Steinar Arason, Ólaf Sig- urðsson og Kevin Grandberg sem bestu menn og engu síðri frammi- stöðu hinna leikmanna liðsins. lR- ingar hirtu öll fráköst (50 gegn 26, 66%) og hittu úr 48% skota sinna. Eina leið Valsmanna til að stöðva Breiðhyltinga var að brjóta á þeim og alls fengu Valsmenn 28 villur (ÍR- ingar fengu 10) og leikmenn ÍR fóru 39 sinnum á vitalínuna í leiknum. Auk þess að ná engum fráköstum hittu Valsmenn aðeins úr 32% skota sinna og 11 tapaðir boltar í seinni hálfleik þýddu aðeins enn stærri sigur ÍR-inga sem skoruðu 20 stig gegn 5 á sjö mínútna kafla í seinni hálfleik og stungu þá af. Bæði lið munu leika í úrvals- deildinni næsta yetur og er ekki annað að sjá en ÍR-ingar geti gert þar góða hluti haldi þeir áfram á sömu braut. Stlg ÍR: Kevin Grandberg 18 (9 frá- köst), Ólafur Sigurösson 17 (6 fráköst, 4 stoðsendingar), Steinar Arason 14 (hitti úr 4 af 5 3ja stiga, tók 7 fráköst og varöi 5 skot), Kristinn Harðarson 8 (0 skot, allt úr vítum á 12 mínútum, 5 fráköst), Sig- urður Þorvaldsson 8, Guðni Einarsson 7 (4 stolnir), Björgvin Jónsson 6, Þór Har- aldsson 4 (7 stoðsendingar). Stig Vals: Ragnar Steinsson 19 (6 frá- köst, 4 stoðsendingar), Kjartan Orri Sig- urösson 9, Bjarki Gústafsson 8, Guö- mundur Björnsson 6, Bergur Emilsson 5, Steindór Aðalsteinsson 4, Sigurbjörn Björnsson 2. -ÓÓJ DV DV Sport 0-2, 1-3, 3-4, 5-5, 7-6, 7-8, 8-9, (9-9), 9-10, 11-11, 13-11, 14-13, 16-14, 18-16, 19-17, 21-18, 21-20, 23-21, 24-22. ®Sigurður Valur Sveinsson 8/1, Óskar Elvar Óskarsson 7/1, Már Þórarinsson 2, Hjálmar Viihjálmsson 2, Jón Bersi Eilingsen 1, Guðjón Hauksson 1, Atli Þór Samúelsson 1, Samúel Ámason 1, Sverrir Bjömsson 1. Varin skot: Hlynur Jóhannesson 22/1. Brottvisanir: 12 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 2 af 5. Áhorfendur: 400 Gceði leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton Pálsson (5). ám Gintaras Savukynas 9, Bjarki Sigurðsson 6/3, Jón Andri Finnsson 4/1, Gintas Galkauskas 2, Magnús Már Þórðarson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 17/3. Brottvisanir: 6 mínútur. Rauð spjöld: Trúfan á 23. mínútu. Vitanýting: Skorað úr 4 af 6. Hvað sögðu menn eftir leik: Siggeir Magnússon „Þótt ég sæi nú ekki brotið sjálfur fannst mér þó fullharkalega tekið á þessu. I öðrum leikjum höfum við séð venjulega rautt spjald fyrir brot eins og olnbogaskot, en burtséð frá þessu atviki er erfitt að segja hvemig dómarar eiga að bregðast við slíkum aðstæðum eins og þegar um ásetningsbrot er að ræða og hvort refsa eigi heilu liði í eins langan tíma og raun bar vitni í kvöld. Það tók vel á að leika manni færri svona lengi og þurftum við að stóla á baráttu í vörninni og ná inn þessum auðveldu mörkum, eins og hraðaupphlaupum. Leikurinn fór eins og hann fór og nú er næst á döflnni að snúa aftur upp í Mosfellsbæ og þar munum við mæta einbeittir og baráttuglaðir til leiks.“ Óskar E. Óskarsson Þetta var frábært, en um leið erfitt. Við náum að halda leiknum í jafnvægi þar til Troufan var útilokaður og eftir það á sér stað ákveðið spennufall. Þeir tvíeflast í baráttunni og um leið ætlum við okkur að skora tvö mörk í einu og gera út um leikinn. Það sem við löguðum frá fyrri leiknum var fyrst og fremst sóknarleikurinn, í vöminni stoppuðum við Magnús Má, og við vissum að ef okkur tækist að spila góðan leik kæmi oddaleikur í kjölfarið. Vörnin stóð sig vel og Hlynur sömuleiðis í markinu, áhorfendur gáfu okkur aukinn kraft og þó að við næðum aldrei að hrista þá almennilega af okkur vissum við vel að sigur væri aldrei spuming. -esá m HK jafnaði einvígið gegn deildarmeisturum Aftureldingar í gær: - Afturelding lék manni færri eftir „Þetta var harður leikur. Við lent- um í því að leika manni færri siðustu fjörutíu mínútur leiksins og það auð- vitað breytir okkar leik. Við urðum að spila mjög skynsamlega og leika góða vörn. Bergsveinn stóð fyrir sinu í markinu og við þurftum einfaldlega að halda haus,“ sagði Jón Andri Finnsson, homamaður Afturelding- ar, að leik loknum. Þó svo að leik- menn Aftureldingar reyndu sitt besta varð manneklan þeim um megn og þurftu deildarmeistararnir að játa sig sigraða, 24-21. Örlagaríkt olnbogaskot Leikur liðanna var sérstakur fyrir margra hluta sakir en þó kannski helst að Alexei Troufan var útilokað- ur frá leiknum eftir 20 mínútna leik og leikmenn Aftureldingar þurftu að leika manni færri, ekki aðeins í 2 mínútur, heldur það sem eftir lifði baratta að Alexei Troufan var rekinn út af fyrir fólskubrot leiks. Atriði málsins voru þau að Trouf- an og Alexander Arnarson áttu harkaleg samskipti þegar HK-menn sóttu í upphafí leiks. Á 23. mínútu skoraði Sigurður V. Sveinsson mark og þegar HK-menn sneru aftur i vörn gaf Troufan Alexander harkalegt oln- bogaskot. „Ég veit ekki hvort dómurinn var réttlætanlegur. Hann var að ýta mér og ég ýtti á móti. En leikurinn var mikill baráttuleikur og þrátt fyrir þetta atvik spiluðum við fína vöm og vorum aldrei langt undan,“ sagði Al- exei Troufan. Gintaras stórtækur HK-menn komu grimmir til leiks. Þeir höfðu greinilega lært af mistök- um síðasta leiks og fyrsta verk þeirra var að taka Magnús Má, er átti bein- an þátt í tæplega helmingi markanna í fyrsta leik liðanna, úr umferð. Þetta setti gestina nokkuð út af lag- inu, en þó ekki Gintaras sem skoraði 5 af fyrstu 8 mörkum Aftureldingar, sum hver úr nær ómögulegum fær- um. HK-ingar voru aldrei langt und- an og voru þar skyttumar Sigurður og Sverrir duglegir að opna færi fyr- ir Óskar E. Óskarsson, sem skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik. Góö markvarsla bar af Síðari hálfleikur var skrautlegur í það minnsta. Samtals 7 brottvisanir, 3 misnotuð vítaköst og gífurleg harka varð til þess að leikgæði urðu að vikja fyrir ofangreindu. Markmenn liðanna, Hlynur og Bergsveinn, spiluðu stórt hlutverk. Hlynur varði mikilvæg skot, m.a. hraðaupphlaup í stöðunni 21-20 og Bergsveinn hélt sínum mönnum á floti með góðri markvörslu. Hafa verður í huga að að leika manni færri i vörn gerir hlutverk mark- mannsins nær ómögulegt. Umdeilt atvik Undir lok leiksins gerðist umdeilt atvik þegar Sigurður V. og Magnús Már áttust við með þeim afleiöingum að Sigurður skarst á vör. Mönnum bar ekki saman um hvort ásetning var að ræða en Magnús Már var að reyna brjóta sér leið fram hjá Sigurði í hraöaupphlaupi þegar 10 sekúndur voru til leiksloka. Atvikið setti punktinn yfir i-ið í leiknum, sem gaf tóninn fyrir baráttuna sem er í úr- slitakeppninni. Oddaleikur liðanna verður i Mosfellsbæ annað kvöld og þá kemur í ljós hvort liðið tryggir sér sæti í undanúrslitum keppninnar. -esá Jón í leikbann Jón Þórðarson, leikmaður Stjörnunnar, var í gærkvöld dæmdur af aganefnd HSÍ í eins leiks bann vegna brotsins á Ro- bertas Pauzoulis í leiknum gegn Fram í fyrrakvöld. Bannið tekur hann út í kvöld þegar Stjarnan og Fram mætast öðru sinni í Ás- garði kl. 20. ÍBV og FH leika í undanúrslit- um kvenna í Eyjum klukkan 18 og strax á eftir leika ÍBV og Haukar í 8-liða úrslitum i karla- flokki. KI. 20.30 leika FH og KA í Kaplakrika. -JKS Urvalsdeildin í körfubolta: Pétur áfram með Hamri - framlengdi til eins árs Pétur Ingvarsson, leikmaður og þjálfari Hamars í úrvalsdeildinni I körfubolta, hefur íramlengt saming sinn við félagið um eitt ár en á síðustu tveimur árum hefur Pétur komið liðinu upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn annað árið og í úrslitakeppnina í fyrsta sinn hitt árið. Allir meö áfram næsta vetur Pétur vonast eftir að halda öllum sínum leikmönnum ^ ✓ 'W frá því i vetur en liöið lenti í áttunda sæti í deildinni M en datt síðan út, 0-2, fyrir deildarmeisturum jdwll Njarðvíkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Éj Mikil stemning hefur myndast í kringum körfuna í Hveragerði og er vonandi að ráðning Péturs kalli á Pétur Ingvarsson. framhald á því næsta vetur. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.