Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Qupperneq 10
vikuna
22.12-29.12 2000
51. vika
Töffarinn Eminem heldur toppsætinu á íslenska
listanum eftir að hafa skotist á toppinn með
hæfilegu rakki á mömmu sína og fleiri. Hin herfi-
lega leiðinlega hljómsveit Creed fer af einhver-
jum óskiljanlegum ástæðum i annað sætið með
enn einn „smellinn" en strákarnir í Westlife eru
farnir að hrapa niður töfluna. Lagið Trouble hel-
dur ungu mönnunum í Coldplay enn ofarlega, en
þeir eiga vei upp á pallborðið hér eftir að lagið
Yellow var samið til söngkonunnar Elízu M.
Geirsdóttur í Bellatrix.
Topp 20 Vikur
01 Stan Eminem i lista X 2
02 With arms wide open Creed T 3
(03) My Love Westlife 4 6
04 Trouble Coldplay ; H 5
05 Kids Robbie Williams& Kylie Minogue 4, 5
06 Shape of my heart Backstreet Boys T 5
07 Overload Sugarbabes 'í' 6
(08) Independent Women Destiny’s Child | 4» 6
09 Stronger Britney Spears T 3
(10) Every little thing Selma T 3
(11) My Generation Limp Bizkit 4- 6
(12) She Bangs Ricky Martin f 5
(73) Aldrei Buttercup T 4
74) Again Lenny Kravitz |4 9
( 75 Ekki nema von Sálin hans Jóns míns 4 9
16) Notthatkind Anastacia t 3 ;
(77) Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis 4 7
18 Æði Skítamórall T 2
(19) Original Prankster Offspring X 4|
20) Mundu mig Jóhanna Guðrún X 1:
Sætin 21 til 40
(á) lopplag vikunnar Body II Body Samantha Mumba , ■ir 7 i(
J háslökkvari vikunnar Pollýana Bubbi Mortheins t 3 ;
f Sigurjón Digri L&Synir & Sigurjón 4,10
nýtt á iistanum Walking away Craig David X 1 :
K Spanish guitar Toni Braxton X 7 ;
stendurístað Don’t mess with... Lucy Pearl 4, 8
A hækkarsigtrá Give me just one... 98 Degrees | 4,10
T síðustu viku Get along with you Kelis 19
lækkarsigfrá On a night like this Kylie Minogue j 4-10
siðustu viku Why does my heart.. Moby 4-8
? fall vikunnar Who let the dogs out Baha men T 2 ‘ 4> 8
Body Groove Architecs feat. Nana
Yellow Coldplay j 4>15
When I dream... Marc Anthony 4, 4
Hennar leiðir Sóldögg X 1 I
Come on over Cristina Aquilera 4-12
Með þér Skítamórall j «Þ17|
La Fiesta Club Fiesta 4 9 (,
Hollar Spice Girls j 4-11
Let the music play Barry White feat 4-10;
fókus
íslenski listinn er
samstarfsverkefni DV og
FM 957 og birtist vikulega í
Fókus. Listinn er fluttur á
FM i umsjá Einars Ágústs
Víðissonar. I
Islandsvinirnir Masters at Work fagna tíu ára starfsafmæli á
árinu sem er að líða. Af því tilefni hefur breska plötufyrirtækið
BBE gefið út tvo fjögurra diska pakka sem hvor um sig inni-
heldur yfir 5 tíma af tónlist. Trausti Júlíusson kynnti sér feril
þessara miklu áhrifamanna í danstónlist síðustu ára.
Tíu ár af flottri
tónlist og framsækinni
hugsun
Þeir Louis Vega og Kenny
Gonzales eru báðir New York
búar af púertóríkönskum uppruna.
Louis er frá Bronx og Kenny frá
Brooklyn. Louis er fæddur 1965 og
er alinn upp mitt í kraumandi tón-
listarlífi borgarinnar. Eldri systur
hans voru miklar djamm-gellur og
stunduðu staði eins og The Loft,
The Gallery og Paradise Garage af
miklum krafti. Þegar Louis var lít-
ill var hann stundum með í bílnum
þegar þær voru keyrðar á staöinn
og sá allan spenninginn í fólkinu
sem beið eftir því að komast inn.
Hip hop, diskó, house
Louis bjó nálægt Bronx River
Projects en það var þar sem hip
hop-tónlistin komst á legg með
partíum Africa Bambaataa,
Jazzy Jay og Red Alert. Louis,
sem alla tíð var smávaxinn eftir
aldri og hlaut þar af leiðandi viður-
nefnið „Little" Louis Vega, lifði sig
sterkt inn í þessi hip hop-partí.
Hann komst fyrst inn á Paradise
Garage árið 1980 og fylgdist með
Larry Levan trylla lýðinn. Og
gapti af aðdáun. Hann var líka
fastagestur á Funhouse þegar
Madonna var aö skapa sér nafn í
upphafi ferilsins. Á níunda ára-
tugnum byrjaði hann sjálfur að
spila sem plötusnúður og skipu-
leggja partí og klúbbakvöld. Þegar
Studio 54 var endurstofnað árið
1987 varð hann fastaplötusnúður
þar (og fyrirmyndin hans, Larry
Levan, líka). Á þessum árum
kynntist hann öllum helstu plötu-
snúðum New York, (David Mora-
les, Francois Kevorkian o.fl.).
Kynntust í gegnum Todd
Terry
Louis var alinn upp á latin,
salsoul, hip-hop, garage og diskói
en þegar house-tónlistin fór að láta
til sín taka seint á níunda áratugn-
um tók hann henni opnum örmum.
Hann hitti Kenny Gonzales í gegn-
um Todd Terry árið 1989 en þá ætl-
aði Louis að remixa lagið Salsa
House sem Kenny hafði gert og
Todd bauðst til þess að kynna þá
tvo.
Kenny er fæddur í Brooklyn áriö
1970. Hann kynntist hip hop-tón-
listinni í götupartíum í hverfinu
en hlaut tónlistarlegt uppeldi sitt
þegar hann byrjaði að vinna í
plötubúð 1985. Þá kynntist hann
bæði rokkinu (hjá eigandanum
sem var mikill Led Zeppelin mað-
ur) og house-tónlistinni sem þá var
að ryðja sér til rúms með plötum
Mr Fingers, Marshall Jefferson
og öðrum afurðum Trax-útgáfunn-
ar í Chicago sem seldust grimmt í
búðinni.
Hann fór á þessum tíma líka að
vinna sem plötusnúður og fór að
fikta við að búa til tónlist sjálfur
eftir að hann kynntist Todd Terry.
Fyrstu bítin sem hann bjó til voru
gerð á trommuheila sem Todd lán-
aði honum, en það var Frank
Mendez, eigandi Nu Groove plötu-
fyrirtækisins, sem gaf honum
fyrsta tækifærið, keypti handa
honum sampler og kom honum í
útgáfu.
Þegar Atlantic Records fengu
Louis til þess aö safna saman fólki
til þess að gera plötu hóaði hann I
Kenny og síðan þá hafa þeir unnið
saman undir nafninu Masters at
Work. Þeir nota nafnið fyrir þá
tónlist sem þeir eru að búa til en
líka fyrir þau ótalmörgu remix
sem þeir hafa gert saman. Á meðal
þeirra sem þeir hafa remixað er
Madonna, Daft Pxrnk, Soul II
Soul, Neneth Cherry, Janet
Jackson, St. Etienne, Dee-Lite,
Björk, 4 Hero. Roni Size, Gus
Gus...
Nuyorican Soul
Frægastir eru MAW fyrir Nu-
yorican Soul-pródjektið sem þeir
notuðu fyrst fyrir lagið „The Ner-
vous Track“ sem þeir gerðu árið
1993. Það lag var mjög áhrifamikið
fyrir house-tónlistina. Þeir voru
orðnir leiðir á þessum einhæfa
takti sem einkenndi house á þess-
um tíma og þegar þeir voru að
vinna að remixi fyrir Jamiroquai
fundu þeir bít á gamalli jazz
trommu-breik plötu sem þeir
sömpluðu og notuðu sem gnmn.
Remixinu þeirra var hafnað en þá
gerðu þeir nýtt lag úr því og gáfu
út á Nervous Records. Þetta lag
opnaði nýja möguleika fyrir house-
tónlistina, sló í gegn hjá alls konar
plötusnúðum sem fram að því
höfðu ekki veriö að spila house.
Einn þeirra var azid jazz og groove
hausinn Gilles Petersen sem stýr-
ir Talkin’ Loud útgáfunni. Hann
bauð þeim að gefa út heila plötu
með Nyourican Soul-efni. Það varð
úr og platan, sem hlaut nafnið Nu-
yorican Soul og skartar gestum á
borð við Roy Ayers, Jocelyn
Brown, George Benson, Jazzy
Jeff, Vince Montana og Tito
Puente, er ein af flottustu house-
plötum allra tíma og ætti að eiga
vísan stað í öllum plötusöfnum
með snefil af sjálfsvirðingu. Tón-
listin á henni er sambland af diskó,
soul, latin og djassi.
10 ára afmælisútgáfan.
Það er von á nýrri Nuyorican
Soul-plötu á næsta ári en þangað
til ættu MAW-aödáendur (og þeir
ættu að vera allnokkrir á íslandi
eftir að þeir spiluðu á vegum Par-
tyzone í Tunglinu 1995) að kynna
sér afmælispakkana tvo sem ný-
lega komu í verslanir hérlendis.
„BBE Records Present Masters At
Work: The Tenth Anniversary
Collection" pt. 1 og pt. 2 (silfurbox-
ið og gullboxið) innihalda hvor um
sig fjóra diska pakkfulla af lögum
með þeim félögum og remixum af
lögum annarra. Silfurboxið nær
yfir fyrstu fimm árin (1990-1995) en
gullboxið árin 1996-2000. Þessir 10
klukkutímar af tónlist eru auðvit-
að ekki tæmandi fyrir afrek MAW
en flestar af þekktustu perlum
þeirra eru þarna samt. Boxunum
fylgir líka ítarlegur bæklingur þar
sem saga þeirra er rakin í miklum
smáatriðum.
f 6 k u s
22. desember 2000