Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Qupperneq 1
15 dvsport@ff.is Þriðjudagur 24. júlí 2001 Orn Arnarson, sundkappi úr SH, er hér í góöum félagsskap á HM í sundi sem fram fer í Fukuoka i Japan. Hann er með öðrum verðlaunahöfum í 100 metra baksundskeppni en sjálfur hlaut Orn silfur. í miðjunni er svo sigurvegarinn, Matthew Welsh frá Astralíu, og honum á vinstri hönd er Þjóðverjinn Steffen Driesen sem hlaut brons. Reuters Gaspar í Grindavík - Sólveig aö öllum líkindum á heimleið Kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik hefur fengið góðan liðstyrk fyrir kom- andi tímabil. Jessica Gaspar, sem lék með KFÍ síðasta tímabil, hefur geng- ið til liðs við félagið og þá bendir allt til þess að Sól- veig Gunnlaugsdóttir muni fylgja Gaspar. Gaspar var í lykilhlut- verki hjá spræku liði KFÍ síðasta tímabil og var með 24,1 stig, 10 fráköst, 5 stoðsendingar og 5,1 stolinn bolta að meðaltali í leik. Gaspar leikur i stöðu bakvarðar og er hittin og einnig sterk að keyra að körfunni. Sólveig lék með Grindavík áður en hún hélt vestur. Það er mikill feng- ur fyrir hið unga og efnilega Grindavíkurlið að fá þessar tvær stúlkur. Að öðru leyti er liðið óbreytt frá því í fyrra. -Ben - Örn Arnarson er fyrstur íslenskra sundmanna til að hljóta verðlaun á heimsmeistaramóti Það er deginum ljósara að Örn Arnarson hefur skipað sér á bekk með allra fremstu baksundsköppum heimsins og staðfesti hann það í gær þegar hann vann til silfurverðlauna á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Fukuoka í Japan þessa dagana. Og það í 100 metra baksundi sem er ekki hans aðalgrein. Örn byrjaði þátttöku sína á þessu móti með íslandsmeti í greininni í undanrásum þegar hann synti á 55,63 sekúndum. Hann bætti enn um betur í undanúrslitum og synti á 55,21 sek og var með annan besta tímann inn í úrslitasundið. Hann náði að halda sætinu sínu en bætti samt sem áður tíma sinn enn og aftur og i þetta sinn synti hann undir 55 sekúndum, 54,75 sek. DV-Sport hafði samband við Öm og þjálfara hans, Brian Marshall og fékk viðbrögð þeirra við árangrinum. Sáttur viö sundiö „Ég var mjög sáttur við sundið og hvað tæknilega hluta þess varðar var góð stígandi i honum frá undanrásunum og í úrslitasundinu var þetta einfaldlega glæsi- legt hjá honum. Ég vissi það fyrir að hann færi ekki hratt fyrri 50 m en við vissum líka að hann er mjög sterk- ur á síðari hlutanum," sagði Brian. - Hann virðist alltaf koma betur og betur undirbúinn til leiks, eru honum einhver takmörk sett? Rosalegt „Síðustu tvö ár hafa gengið mjög vel. Það komu smávandamál vorið og sumarið 1999 en síðan hefur allt gengið eins og í sögu eins og sést í því að hann hefur á þessum tíma sett 27 íslands- met. Það er auðvitað rosalegt." Þegar Örn Amar- son var beðinn um að lýsa sundinu eins og hann upplifði það var lítið um svör. „Ég get nú ósköp litlu lýst, það er nú þannig að þegar manni gengur vel þá man maður lítið eftir sundinu sjálfu.“ „Örn vinnur gullið“ Guðmundur Harðarson tók af skarið í beinni útsendingu Ríkissjón- varpsins í gær og spáði Erni sigri í 200 m baksundskeppninni sem lýkur á föstudagsmorgun. Hann staðfesti þetta í samtali við DV-Sport og segist standa fast við orðin. „Mér sýnist að baráttan verði á milli Arnar, Bandaríkjamannsins Aaron Peirsol og Matthew Welsh frá Ástralíu sem vann í gær.“ Peirsol og Welsh fengu silfur og brons á Ólympíuleikunum í Sydney í fyrra þar sem Örn varð fjórði. En Peirsol virðist ekki vera í sínu besta formi og komst hann t.a.m. ekki í úr- slitasundið í 100 m baksundi. Það sé hins vegar aðalgrein Welsh og telur því Guðmundur að Örn eigi eftir að gera betur en hann í sinni aðalgrein. „En þetta sést allt betur í undan- rásunum og undanúrslitunum á flmmtudag. Ég reikna með að Peirsol verði ná- lægt sínum besta tíma sem er undir 1 mínútu og 57 sekúndum en Örn á best 1:58,99. Það kæmi mér ekkert á óvart ef Öm bætti sinn tíma um góða sekúndu. Því hann er þessi karakter sem eflist við það að synda vel. Ef eitthvað fer ilia hjá honum, gengur allt á afturfótunum. Nú er hann að synda vel og ef menn nota ekki sund eins hann synti í morgun sér til framdráttar þá er eitthvað að. En ég held bara að það sé ekkert að,“ sagði Guðmundur að lok- um. Viðtal við Örn er á næstu blaðsíðu. -esá Brian Marshall, þjálfari Arnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.