Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Page 2
X. 16 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MIÐVIKUDAGUR14. NÓVEMBER 2001 25 Sport Sport Stefán Arnarson spáir í 8-liða úrslit bikarkeppni kvenna í handbolta: Haukar, ÍBV, Stjarnan og Grótta/KR áfram Kristján hættur hjá Stabæk Kristján Halldórsson, sem þjálfað hefiur kvennalið Stabæk í hand- bolta í Noregi með góðum árangri síðustu ár, er hættur störfum hjá fé- laginu. Stabæk hefur átt viö gríðar- lega fjárhagserfiðleika að etja og höfðu bæði leikmenn og þjálfari tek- ið á sig launalækkun. Stjómin ákvað að segja upp öllum leikmannasamningum en leikmönn- um var í staðinn boðið að spila kauplaust. Þessar uppsagnir taka gildi 20. nóvember. Þá átti einnig að segja þjálfaranum upp undir sömu formerkjum og átti sú uppsögn að taka gildi tíu dögum síðar. Kristján ákvað hins vegar að hætta frekar störfum strax og mun því ekki stjóma liðinu þegar það mætir Lunner í kvöld. Hann hefur fengiö laun út þennan mánuð. Kristján sagði í samtali við norska fjölmiðla að töluverðir sam- starfserfiðleikar hefðu verið milli hans og stjómar handknattleiks- deildarinnar. „Stjómin hefur gert mér það ómögulegt að vera lengur hjá félaginu. Ég hef enga hvatningu tÚ að halda áfram með liðiö. Það var augljóst mál frá þeirra bæjardyrum séð að ég ætti að fara. Ég verð bara að viðurkenna að það hefur oft and- að köldu milli mín og stjómarinnar og ég leyni því ekki að ég tel að stjómin hafi ekki staðið sig í stykk- inu,“ sagði Kristján. Þetta var þriðja tímabil Kristjáns með lið Stabæk og hefur liðið náð góðum árangri undir hans stjóm. Krísufundur var hjá liðinu í gær og eftir hann var ákveðið að liðið myndi mæta í leikinn gegn Lunner. Hvað tekur svo við eftir það er óljóst. -HI Guðbjorg aftur til liðs við KR Guðbjörg Norðfjörð körfu- knattleikskona, sem skipti yfir í Hauka fyrir þetta tímabil eftir að hafa leikið með KR-ingum í níu ár, hefur ákveðið að skipta aftur yfir í KR og leika með liðinu á þessari leiktíð. Stefnt er að því að hún verði lögleg með liðinu 13. desember. Þetta er gríðarleg- ur styrkur fyrir KR-liðiö sem hefúr byrjað illa í deildinni á þessari leiktíð og hefur tapaði þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum, enda hafa gríðarlegar breytingar orðið á liðinu frá því í fyrra. Guðbjörg hefur unnið marga titla með KR undanfarin ár en skipti í sumar yfir í Hauka, þar sem hún er uppalin, og nú er að sjá hvort koma hennar er sú vítamínsprauta sem KR þarf í deildinni. -HI NBA-DEILDIN New Jersey-Indiana........91-02 Kidd 20, Van Hom 15, Martin 13 - Rose 21, Harrington 16, Tinsley 11. Portland-New York ........82-89 Davis 17, Anderson 17, Pippen 15 - Houston 23, Anderson 13, Weatherspoon 12. Philadelphia-Miami........82-76 Iverson 25, Coleman 21, Harpring 12 - Jones 20, House 14, Ellis 12. Cleveland-Minnesota ... 107-103 Miller 29, Murray 22, Person 13 - Gamett 28, Szczerbiak 19, Smith 17. Toronto-Sacramentn........86-95 Carter 23, Clark 13, - Bibby 20, Christie 20, Divac 14. Houston-San Antonio.......86-90 Francis 32, Willis 17, Rice 15 - Duncan 19, Parker 14, Smith 13. Chicago-Denver ..........93-101 Miller 25, Mercer 18, Anthony 15 - Van Exel 23, Lafrentz 18, Williams 16. Phoenix-Seattle ..........92-91 Hardaway 26, Marion 25, Marbury 24 - Payton 27, Lewis 18, Mason 12. 8-liða úrslit í bikakeppni kvenna í handknattleik fara fram í kvöld. Þá tekur Grótta/KR á móti Fylki á Sel- tjarnarnesi, KA/Þór fær Stjömuna í heimsókn í KA-heimilið á Akureyri, í Vestmannaeyjum tekur ÍBV á móti Val og síðan verður grannaslagur að Ásvöllum þegar Haukar taka á móti FH. DV-Sport fékk Stefán Amarson, þjálfara Víkings og nýráðinn lands- liðsþjálfara kvenna í handknattleik, til að spá i spilin fyrir þessa leiki. Grótta/KR-Fylkir Ég held að ég verði að spá Gróttu/KR sigri, nema þá að Gunn- ar Magnússon eigi eitthvert ótrúlegt leynivopn sem komi þeim í Gróttu/KR og áhorfendum gjörsam- lega á óvart. KA/Þór—Stjarnan Ég spái Stjörnustúlkum sigri í þessum leik. Þær eru með mun sterkari mannskap auk þess sem mikil meiðsli hrjá lið KA/Þórs þessa dagana. Ég er þó alveg sann- færður um að uppákoma síðustu daga hvað varðar tilboð Stjömunn- ar til KA/Þórs um að gefa leikinn eigi örugglega eftir að hleypa illu blóði í leikmenn KA/Þórs. En styrk- leikamunurinn er bara of mikill á liðunum eins og staða þeirra í deild- inni sýnir. ÍBV-Valur Hér spái ég heimasigri í hörku- leik. Eyjastúlkur hafa reyndar misst Andreu Atladóttur en fengið í stað- inn erlenda stúlku sem er mjög góð- ur leikmaður þannig að liðið hefur ekki veikst neitt að ráði við það. Ég hef reyndar trú á því að Valsstúlkur með þær Hrafnhildi og Drifu Skúla- dætur í broddi fylkingar eigi eftir að láta ÍBV hafa fyrir hlutunum. ÍBV er hins vegar mjög erfitt heim að sækja og ég reikna jafnvel ekki með því að þær tapi fleiri leikjum á heimavelli. Ég held því að þessi sterki heimavöllur muni ráða úr- slitum og að þær komist í undanúr- slitin. Haukar-FH Leikimir milli þessara liða em álltaf jafnir. Haukarnir eru hins vegar með mjög sterkt og reynslu- mikið lið þannig að ég spái þeim sigri. Hlutirnir hafa ekki breyst mikið hjá þeim við þjálfaraskiptin að öðru leyti en því að vörnin er öðruvísi. Þær voru bara með góðan mann og fengu góðan mann þannig að það breytist ekki mikið við það. Þær eru bara í svipuðum sporum. FH-stúlkur hafa reyndar verið að ná góðum úrslitum í deildinni upp á síðkastið en Haukar hafa hreinlega mun reynslumeira lið en nokkurn tímann FH og ég hef trú á að þær vinni á því. Sigurinn verður þó ekki öruggur, kannski 4-5 marka sigur, og það byggi ég hreinlega á þeirri hefð að leikir þessara liða eru alltaf spennandi. -HI ÍA og Kefla- vík áfram í bikarnum 32-liða úrslit bikarkeppni KKÍ og Dorritos héldu áfram í gær- kvöldi og unnust báðir leikimir stórt. Skagamenn mættu Eminum í Austurbergi og unnu öraggan sigur, 39-118. Þá léku Keflvíkingar við Ármann í Laugardalshöll og sigruðu öragglega, 52-115. 32-liða úrslitin halda áfram i kvöld með fimm leikjum. Fjölnir keppir við Grundarfjörð í íþrótta- miðstööinni í Grafarvogi, KFÍ fær Hamar í heimsókn á ísafjörð, Reynir frá Hnífsdal mætir Þór úr Þorlákshöfn í Ólafsvík, Selfoss tek- ur á móti B-liði Keflavíkur á Sel- fossi og grannaslagur verður i Varmahlíð þegar heimaliðið þar, Smári, fær Tindastól frá Sauðár- króki í heimsókn. Allir þessi leikir hefjast kl. 20 að frátöldum leik Fjölnis og Grundarfiarðar sem hefst hálftíma síðar. -HI Frá leik íra og írana um síðustu helgi. Baráttu Evrópuliða um sæti á HM lýkur í dag og á morgun. Reuters 50 leikmenn koma til greina sem handhafi gullboltans: 32 leikmenn frá Ítalíu og Englandi um Það verður hart barist víða um Evrópu, og reyndar einnig í Suður- Ameríku, í dag þegar úrslit ráðast í umspili Evrópu- og Asíuliða um sæti í lokakeppni HM næsta sumar og einnig verður ljóst í dag hvort Brasilía nær að tryggja sér sæti í lokakeppni HM þegar Suður-Amer- íkuriðlinum lýkur í dag. Það verður í nógu að snúast hjá liðunum enda mikið í húfi. Þýskaland-Úkraína (1-1) Rudi Völler, þjálfari þýska lands- liðsins, ætti að vera orðinn vanur því að vera undir pressu þegar þýska landsliðið er að spila en sennilega hefur hún sjaldan verið meiri en fyrir þennan leik gegn Úkraínu. Staðan verður þó að teljast hagstæð því að ná 1-1 jafntefli á úti- velli gegn þjóð á borð við Úkraínu verður að teljast gott veganesti, sér- staklega að hafa skorað mark á úti- velli. Þó að Þjóðverjum nægi marka- laust jafntefli til að komast í loka- keppnina er þó talið að hann ætli sér að spila til sigurs. Búist er við að Carsten Jancker og Oliver Neu- ville verði í byrjunarliðinu en hvor- ugur þeirra var þar í Úkraínu. Neuville var þá í leikbanni en Jancker sat á varamannabekknum vegna meiðsla og kom inn á seint í leiknum. Þá hefur Völler einnig Oli- ver Bierhoff. Þetta eru sóknarmenn sem ættu aldeilis að geta hrellt vamarmenn andstæðinganna. Þá er einnig búist við að Christian Wöras, leikmaður Dortmund, verði í byrjunarliöinu í stað Thomas Lin- ke sem lék í Úkraínu. Úkraínumenn munu hins vegar hér eftir sem hingað til fyrst og fremst treysta á snillinginn Andrei Schevchenko til að koma sér á HM. Hvort honum tekst það einsömlum er svo annað mál. Það er alveg ljóst að ef Þjóðverjar komast ekki áfram verður það mik- ið áfall fyrir þýska knattspymu sem hún gæti orðið lengi að jafna sig á. Tékkland-Belgía (0-1) Tékkar þurfa að vinna upp eins marks forskot Belga frá leiknum í Brussel um síðustu helgi og ef allt er eðlilegt á þeim að takast það. En það er ýmislegt sem getur dregið úr Franska knattspymutímaritið France Football tilkynnti í gær um þá 50 knatt- spymumenn sem koma til greina sem handhafar gullboltans, en tímaritið hef- ur veitt þessa viðurkenningu á hveiju ári síöan árið 1956. Það er dómnefnd skipuð 51 íþróttafréttamanni sem greiðir atkvæði um hver eigi að hreppa hnossið en þessi viðurkenning er veitt þeim knattspymumanni sem þykir hafa skar- að fram úr á síðasta keppnistímabili. Flestir af þeim leikmönnum sem til- nefndir era leika á Ítalíu, eða 17, og 15 koma frá Englandi. Vel yfir helmingur- inn kemur því frá þessum tveimur lönd- um. Af leikmönnum írá Ítalíu koma fimm frá meisturum AS Roma (Totti, Tomassi, Cafu, Candela og Battistuta) og fimm frá Juventus (Trezeguet, Thuram, Nedved, Del Piero og Buffon. Af öðrum má nefha Rui Costa og Schevchenko frá AC Milan og Nesta, Crespo og Mendieta hjá Lazio. Af þeim 15 leikmönnum sem koma frá Englandi eru fimm frá meisturum Manchester United (Barthez, Beckham, Giggs, Scholes og Veron), þrír frá Arsenal (Henry, Pires og Vieira) og Liverpool (Owen, Gerrard og Hyypia) og tveir frá Leeds (Kewell og Ferdinand) og Chelsea (Hasselbaink og Desailly). Sjö eru tilnefndir úr spænsku deild- inni, fimm frá Real Madrid (Zidane, Figo, Helguera, Raul og Roberto Carlos og tveir frá Barcelona (Rivaldo og Klui- vert). Þá eru sex tilnefndir úr þýsku deildinni, þar af fimm frá Bayem Munchen (Effenberg, Elber, Kahn, Kuffo- ur og Lizarazu) en sá sjötti er Daninn Ebbe Sand hjá Schalke. Meðal annarra sem tilnefndir voru voru Henrik Larsson hjá Celtic og Sonny Anderson og Eric Carriere hjá Lyon. -HI vígstöðvum Valur og FH veröa bæöi í eldlínunni í kvöld en verkefni þeirra eru erfiö. Valsmenn þurfa aö fara til Eyja á meöan FH mætir Haukum og spáir Stefán Arnarson því aö bæöi liðin falli út úr bikarkeppninni. möguleikum Tékka á því. Belgar hafa endurheimt fyrirliða sinn, Marc Wilmots, en hann hefur verið meiddur. Ekki er þó ljóst hvort hann byrjar leikinn enda hef- ur hann ekki leikið knattspymu í mánuð og því ekki í leikæfingu. Það hafa hins vegar verið höggv- in skarð í lið Tékka. Þegar er ljóst að Tomas Repka leikur ekki með Tékkum en hann verður í leikbanni eftir brottvísunina um síðustu helgi. Þá er Zdenek Grygera meidd- ur á læri og hafa Tékkar kallað á vamarmanninn Petr Johana í hans stað. Þá hefur flensa verið að herja á tékknesku landsliðsmennina og hafa Pavel Nedved, Karel Poborsky, Tomas Rosicky og Milan Baros allir lagst í rúmiö. Það er þó talið að þeir veröi orðnir góðir fyrir leikinn en varla hefur svona flensa gert líkam- legu ástandi þeirra gott. Rúmenía-Slóvenía (1-2) Rúmenar eru í nokkuð góðri stöðu fyrir seinni leik sinn gegn Sló- veníu þrátt fyrir að hafa tapaði fyrri leiknum þar, 1-2. Rúmenar hefðu reyndar geta nánast gulltryggt sæti sitt á HM í leiknum en þeir misnot- uðu fiöldann allan af góðum færum á sama tíma og Slóvenar skoruðu nánast úr sínu eina færi i leiknum. En markið sem þeir skoraðu á úti- velli gæti reynst þýðingarmikið. Georghe Hagi, landsliðsþjálfari Rúmena, segir að það eina sem hann þurfi i þessum leik sé að frammistað- an verði sú sama hjá hans mönnum í Búkarest í dag eins og hún var í Ljublijana í Slóveníu á laugardag- inn. Það eina sem vantaði væri að skora mörk. Rúmenar hafa verið með í keppninni óslitið síðan 1986 og vilja eflaust ekki breyta því núna. Tyrkland-Austurríki (1-0) Það er óhætt að segja að Tyrkir standi vel að vígi fyrir átökin en þeir unnu fyrri leikinn, sem fram fór i Austurríki, 1-0, og fá lið hafa undanfarin ár farið frá Tyrklandi með sigur i farteskinu. Tyrkir hljóta því að teljast mjög líklegir til aö komast áfram í lokakeppni HM en þangað hafa þeir ekki komist síð- an árið 1954. íran-írland (0-2) Þessi leikur fer reyndar fram annað kvöld. írar unnu fyrri leik liðanna í Dublin nokkuð örugglega, 2-0, en gátu reyndar þakkað mark- verði sínum, Shay Given, að liðið fékk ekki á sig mark sem hefði get- að reynst liðinu dýrkeypt. Leikur þess hefur einkum verið í sviðsljósi Qölmiðla vegna þess að 300 írskum konum sem ferðuðust með liðinu til írans hefur verið bannaður aðgangur að leiknum. Ástæðan fyrir banninu er sú að nærvera þeirra gæti orðið til þess að heittrúaðir klerkar í íran brygð- ust hart við. Ef þetta bann nær fram að ganga yrði það í fyrsta sinn frá byltingunni í landinu 1979 að er- lendar konur gætu ekki horft á íþróttaleik með mönnum sínum. írönskum konum er hins vegar al- mennt bannað að horfa á slíka leiki. írar hafa þegar misst fyrirliða sinn, Roy Keane, vegna meiðsla þó að nú sé útlit fyrir að hann þurfi ekki að fara í uppskurð á hné og verði því ekki eins lengi frá og talið var í fyrstu, eins og kemur fram hér að * neðan. Mick McCéirthy hefur hins vegar lýst því yfir að fyrst Keane geti ekki spilað skipti hann ekki máli í leiknum. Hann muni þess í stað sefia traust sitt á Mark Kinsella en staðfest er að hann muni byrja leikinn. Ekki er reiknað með því að Niall Quinn leiki með írum þrátt fyrir að hann hafi náð sér góðum af bakmeiðslum. Steve Staunton hefúr einnig náð sér eftir sams konar meiðsli. Leikurinn fer fram í Teheran og spumingin er hvemig írum mun ganga að aðlagast loftslaginu en Teheran er i um 120 km hæð yfir sjávarmáli. Fara Brassarnir áfram? I dag fer einnig fram sennilega mik- ilvægasti leikur brasilíska landsliðs- ins í langan tíma. Brasihumenn geta tryggt sér fiórða sætið í riðlinum, og þar með sæti í lokakeppni HM, með sigri á Venesúela í kvöld. Líklegt verður að teljast að þeim takist þetta þrátt fyrir töluverð áfóll í þessari und- ankeppni. Ef þeir misstíga sig munu Úrúgvæjar standa best aö vígi til að ná þessu sæti en þeir eiga erfiðan leik á móti Argentínu sem þegar hefur tryggt sér sæti. Þá getur Kólumbia hugsanlega skotist upp i fimmta sæt- -- ið, og þar með umspilssæti, með sigri á Paragvæ ef Úrúgvæ nær ekki að vinna Argentínu. Liðið sem er í fimmta sæti leikur um laust sæti við Ástralíu í tveimur leikjum heima og heiman. Fyrst verður leikið í Melboume 20. nóv- ember og síðan á heimavelli liðsins frá Suður-Ameríku 25. nóvember. Eftir það verður endanlega ljóst hvaða lið leika á HM í Japan og Suður-Kóreu næsta sumar. -HI Marc Wilmots, til vinstri, sést hér á æfingu meö belgíska landsliðinu í Prag ásamt Sven Vermant. Wilmots er kominn aftur í landsliöiö eftir meiösl. Reuters IOC og WADA ítreka viðvaranir vegna fæðubótarefna: Ráðleggja íþróttamönnum að neyta ekki fæðubótarefna Niðurstöður úr nýlegri rannsókn á 600 fæðubótarefnum, sem unnin var á vegum Alþjóða Ólympíu- nefndarinnar (IOC), sýndu að 15-20% þeirra fæðubótarefna sem rannsökuð voru innihéldu efni sem gætu leitt til jákvæðra sýna við lyfiaeftirlit, án þess að það kæmi fram í innihaldslýsingu. í ljósi þessara niðurstaðna telur Læknaráð IOC óhjákvæmilegt að ráða íþróttamönnum frá því að neyta fæðubótarefna. Alþjóða lyfiaeftirlitsstofnunin (WADA) hefur einnig sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu nýlega: „Notkun fæðubótarefna hefur færst mjög í vöxt meðal íþróttamanna. Neysla slíkra efna felur í sér áhættu fyrir íþróttamenn sem boða má í lyfiaeftirlit, þar eð þau geta innihaldið eða verið menguð af efn- um sem bannað er að nota í íþrótt- um, t.d. samkvæmt lyfiaeftirlits- reglum Ólympíuhreyfingarinnar. Svo lengi sem hvorki er unnt að koma i veg fyrir framleiðslu og sölu slíkra efna né ábyrgjast hreinleika þeirra, eins og lyfseðilsskyldra lyfia, verður sá er þeirra neytir sjálfur að bera áhættuna af þvi að neyslan valdi því að bönnuð efni greinist í sýni hans við lyfiaeftirlit. Þannig getur t.d. neysla forstigs- efna bannaða efnisins nandrólons, sem seld eru sem fæðubótarefni, valdið því að nandrólon greinist við lyflaeftirlit. Þó slík neysla geti skýrt niðurstöður efnagreining'ar- innar, firrir hún neytandann ekki fullri ábyrgð á þeim og er því engin málsvörn." í dag og á morgun ræðst hvaða Evrópulið komast í lokakeppni HM: Hart barist á öll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.