Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Blaðsíða 22
0
26
Islendingaþættir
Umsjön: Kjartan Gunnar Kjartansson
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
I>V
*
J
Stórafmæli
80 ára_________________________________
Pálmi Karlsson,
Lindasíöu 2, Akureyri.
75 ára_________________________________
Ólöf Magnúsdóttir,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Ólafur Bergsson,
Laugalæk 46, Reykjavík.
70 ára_________________________________
Ólafur Sigurgeirsson,
Kleppsvegi 122, Reykjavík.
Reynir Þorkelsson,
Eyrarholti 4, Hafnarfiröi.
Helga Jónsdóttir,
Lækjarhvammi, Húsavík.
Hrefna S. Ólafsdóttir,
Bitru, Árnessýslu.
SO ára_________________________________
Lillý Jónsdóttir,
Fjallalind 12, Kópavogir.
ciginmaður hennar er Erlendur
Guðmundsson. Þau taka á móti gestum
aö heimili sínu föstudaginn 11.1.
Jónína Bjarnadóttir,
Hátúni 12, Reykjavík.
Bettý Benjamínsdóttir,
Fjallalind 81, Kópavogi.
Agnes Jensdóttir
þroskaþjálfi,
Blikastíg 18,
Bessastaöahreppi.
Eiginmaöur hennar er
Kolbeinn Ingi Arason flug-
stjóri.
Mrafnhildur Óskarsdóttir,
Sólvallagötu 25, Reykjavík.
Sunnlaugur Sigurmundsson,
Miklubraut 78, Reykjavík.
Ægir Frímannsson,
Hraunholti 11, Garði.
Helga Ólafsdóttir,
Hamrahlíö 7, Vopnafirði.
50 ara
40 ára________________________
Rikharð Sigurðsson,
Barmahlíö 51, Reykjavík.
Ástríður Hólm Traustadóttir,
Seljabraut 52, Reykjavík.
Gunnar Bjarnason,
Flúðaseli 94, Reykjavík.
Margrét Þóra Þorláksdóttir,
Vættaborgum 142, Reykjavík.
Guðmundur Alfreð Ólafsson,
Melási 5, Garöabæ.
Kristján Guðmundsson,
Stillhoiti 1, Akranesi.
Helena Sólrún Hilmarsdóttir,
Sólvallagötu 5, Hrisey.
Marián Ivan,
Ármóti, Hvolsvelli.
Jónína Jóhannesdóttir,
Hvammi, Kirkjubæjarklaustri.
Smáauglýsingar
550 5000
Sumarrós Snorradóttir, Hríseyjargötu 9,
Akureyri, andaöist sunnud. 6.1.
Þorbjörg Helga Magnúsdóttir frá
Sveinsstöðum, Hnitbjörgum, Blönduósi,
lést á heilbrigöisstofnuninni á Blönduósi
föstud. 4.1.
Vigdís Jónsdóttir, Víöihlíö, Grindavík,
áður Hringbraut 60, Keflavík, lést
föstud. 28.12. sl. Jarðarförin hefur fariö
fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Steinunn Herdís Berndsen andaöist á
hjúkrunarheimilinu Eir laugard. 5.1.
Páll Hannesson verkfræöingur, Grænu-
tungu 3, Kópavogi, andaðist á gjör-
gæsludeild Landspítalans viö Hringbraut
sunnud. 6.1.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Njörvasundi
18, Reykjavik, lést á Landspítala Landa-
koti sunnud. 6.1.
Ásta G. Stefánsdóttir, Krummahólum 4,
Reykjavík, lést föstud. 4.1.
Ingrid K. Baldvinsdóttir, Hátúni 10A,
lést á öldrunardeild Landakotsspítala
fimmtud. 20.12. Aö ósk hinnar látnu
hefur útförin fariö fram i kyrrþey.
Ásdís Margrét Guðjónsdóttir, áður i
Stórholti 45, lést á hjúkrunarheimilinu
Eir laugard. 5.1.
Sigrún Ólafsdóttir, Sléttahrauni 17,
Hafnarfiröi, er látin.
Sigurbjörg Benediktsdóttir frá Breiöa-
bóli á Svalbarðsströnd, Noröurbrún 1,
Reykjavik, lést á Landspítala Fossvogi
aö kveldi fimmtud. 3.1.
Fólk í fréttum
Geir Arnar Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri Hæfis og stjómarformaður Reyðaráls
Geir Arnar Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hæfis, Félags ís-
lenskra fjárfesta um álver við Reyð-
arfjörð, hefur verið í fréttum að
undanförnu vegna sámningafunda
við Norsk Hydro, m.a. um eignar-
hlut Norðmanna í fyrirhuguðu ál-
veri.
Starfsferill
Geir fæddist 30.7. 1943 að Ási við
Hafnarfjörð en ólst upp í Reyðar-
firði. Hann tók stúdentspróf frá MR
1963, fyrrihlutapróf í vélaverkfræði
frá HÍ 1966, M.Sc.-próf i vélaverk-
fræði frá Danmarks Tekniske
Hojskole 1970 og Ph.D.-doktorspróf í
vélaverkfræði frá Brown University
í Providence í Bandaríkjunum 1973.
Geir var dósent í vélaverkfræði
við HÍ 1974-75, prófessor í vélaverk-
fræði 1975-86, framkvæmdastjóri
Kísilmálmvinnslunnar hf. 1983-87,
framkvæmdastjóri Marels hf.
1987-99 og framkvæmdastjóri Hæfis
hf. og stjórnarformaður Reyðaráls
hf. frá 2000.
Geir átti sæti í framkvæmda- og
flokksstjórn Alþýðuflokksins
1978-88, var gjaldkeri Alþýðuflokks-
ins 1983-88, í sáttanefnd í vinnudeil-
um á almennum vinnumarkaði
1981-82, sat í stjóm Samvinnutrygg-
inga, Andvöku og Vátryggingafélags
íslands um skeið, í starfshópi um
stækkun álvers 1987-88, í ráðgjafar-
nefnd um áliðju og samninganefnd
um nýtt álver frá 1988, í stjórn
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneyt-
isins og Landsvirkjunar frá 1988-97,
formaður frá 1989, í stjórn Kögunar
hf. frá 1989 og formaður 1990-93, for-
maður stjórnar Iðnlánasjóðs
1991-95, í stjórn Útflutningsráðs
íslands 1993-98 og varaforseti Ferða-
félags íslands 1992-95, sat í stjórn
íslenskra aðalverktaka .
Fjölskylda
Geir kvæntist 27.12. 1969 Kristinu
R. Ragnarsdóttur, f. 27.12. 1944,
meinatækni. Hún er dóttir Ragnars
Ólafssonar, nú látinn, hrl. í Reykja-
vík, og k.h., Kristinar Ólafsson hús-
móður.
Börn Geirs og Kristínar eru Arn-
ar, f. 9.10. 1971, læknir í
framhaldsnámi í skurðlækningum
við Yale University í
Bandaríkjunum, kvæntur Sigríði
Benediktsdóttur, hag- óg
tölvunarfræðingi í doktorsnámi við
Yale, og er sonur þeirra Benedikt
Jens, f. 19.4. 2000; Ragnhildur, f. 9.10.
1971, verkfræðingur hjá Flugleiðum;
Heiður Ósk, f. 8.8. 1975, nemi við
KHÍ.
Hálfbróðir Geirs, sammæðra, er
Páll Jensson, f. 3.10. 1947, prófessor,
kona hans er Anna Jensdóttir og
eiga þau tvö börn.
Hálfsystkini Geirs, samfeðra, eru
María, f. 30.5. 1946, fulltrúi i
menntamálaráðuneytinu; Guð-
mundur, f. 23.8. 1947, starfsmaður
skipafélagsins Ness.
Geir er sonur Gunnlaugs Guð-
mundssonar, f. 24.7.1914, d. 1.5.1994,
tollvarðar, og Sigurrósar Oddgeirs-
dóttur, f. 24.7. 1917, d. 13.9. 1992,
póstafgreiðslumanns.
Ætt
Gunnlaugur var sonur Guð-
mundar, b. á Melum, Guðmunds-
sonar, b. á Melum, Jónssonar, b. á
bergsættar.
Móðir Sigurrósar var Guðrún,
dóttir Árna, b. í Móum á Kjalarnesi,
Björnssonar. Móðir Árna var Guð-
rún, systir Þorsteins, langafa Kar-
ítasar, móður Jóhönnu Sigurðar-
dóttur alþm. Guðrún var dóttir Þor-
steins, b. í Úthlíð í Biskupstungum,
Þorsteinssonar, b. á Hvoli í Mýrdal,
hálfbróður Bjarna Thorsteinssonar
amtmanns. Þorsteinn var sonur
Þorsteins, b. í Kerlingadal, Stein-
grímssonar, bróður Jóns eldprests.
Móðir Guðrúnar var Sigríður Jóns-
dóttir, b. á Bakka í Landeyjum,
Oddssonar, b. í Þykkvabæ, Jónsson-
ar, b. á Kirkjubæjarklaustri, Magn-
ússonar, fóður Magnúsar, langafa
Helga, föður Jóns, fyrrv. ráðherra.
Melum, Guð-
mundssonar,
b. á Melum,
Magnússon-
ar, hvers ætt
er óviss.
Móðir
Gunnlaugs
var Elísabet
Guðmunds-
dóttir, b. í
Ófeigsfirði,
Péturssonar.
Kona Guð-
mundar var
Sigríður
Ámadóttir
frá Kambi
Árnasonar.
Móðir Guð-
mundar var
Steinunn
Ólafsdóttir
frá Eyri
Andréssonar.
Sigurrós var dóttir Oddgeirs og
Guðrúnar. Oddgeir var sonur Þor-
kels, b. á Þorbjarnarstöðum í Garða-
hverfi, ættföður Þorbjarnarstaða-
ættarinnar, Árnasonar. Móðir Þor-
kels í Lambhaga var Steinunn Þor-
kelsdóttir, b. í Krýsuvík, Valdason-
ar, og Þórunnar Álfsdóttur, b. í
Tungu í Flóa, Arasonar, hreppstjóra
á Eystri-Loftsstöðum, Bergssonar,
ættföður Bergsættar, Sturlaugsson-
ar. Móðir Oddgeirs var Ingveldur,
systir Sigríðar, langömmu Harðar
Sigurgestssonar, fyrrv. forstjóra
Eimskips. Önnur systir Ingveldar
var Sigurbjörg, amma Guðmundar
Björnssonar læknaprófessors. Ing-
veldur var dóttir Jóns, ættföður Set-
Sextugur
Ólafur Jóhann Proppé
rektor Kennaraháskóla íslands
Ólafur Jóhann Proppé, rektor
Kennaraháskóla íslands, Sunnuvegi
12, Hafnarfirði, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp til tólf ára aldurs en eftir
það í Hafnarfirði og í Garðabæ.
Hann lauk landsprófi frá Flensborg-
arskóla 1959, kennaraprófi frá KÍ
1964, stundaði nám við framhalds-
deild KHÍ 1972-73, lauk MS-prófl í
uppeldissálarfræði frá University of
Illinois 1976 og doktorspróf (PhD) í
uppeldis- og menntunarfræði frá
sama skóla 1983. Auk þess hefur
hann sótt fjöldi námskeiða og náms-
stefna í uppeldis-, menntunar- og
kennslufræðum bæði innanlands og
utan.
Ólafur var kennari við Hlíðaskóla
í Reykjavík 1964-65, við Heimavist-
arskólann á Jaðri 1964-65 og
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði 1965-74.
Hann var sérfræðingur hjá mennta-
málaráðuneytinu 1975-83, stunda-
kennari við KHÍ 1975-83 og við HÍ
1977-84, sérfræðingur hjá UNESCO
1983, lektor við KHÍ 1983-90, dósent
þar 1990-92, prófessor frá 1992,
kennslustjóri 1987-89, aðstoðarrekt-
or 1991-99, starfandi rektor nokkra
mánuði 1997 og rektor KHÍ frá árs-
byrjun 2000.
Ólafur var ritstjóri Foringjans
1961-63, sat í stjórn og var formaður
Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði
1967-88, var formaður Landssam-
bands Hjálparsveita skáta 1971-73
og 1989-91, formaður Samtaka is-
lenskra kennaranema 1963-65, sat í
stjórn Samtaka norrænna kennara-
nema 1963-65 og Félags barnakenn-
ara á Reykjanesi 1972-74, var for-
maður Samtaka áhugafólks um upp-
eldis- og menntamál 1982-83, var rit-
stjóri Fjarðarfrétta 1969-73 og
Menntamála 1974-75, sat í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar 1986-90, var
formaður Landsbjargar, landssam-
bands björgunarsveita 1991-99 og
formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar 1999-2000.
Ólafur hefur skrifað tjölda rit-
verka, einkum um menntamál,
björgunarmál og uppeldisfræðileg
efni sem birst hafa hér á landi, í
Bandaríkjunum, á Norðurlöndun-
um, í Ástralíu og á Spáni. Hann hef-
ur hlotið margháttaðar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín i þágu skáta-
hreyfingarinnar, þ. á m. Þórshamar
1973 og Skátakveðjuna 1995. Hann
var sæmdur riddarakrossi íslensku
fálkaorðunnar 1995 fyrir störf að
björgunarmálum.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 16.3. 1963
Pétrúnu Pétursdóttur, f. 26.8. 1942,
forstöðumanni Hafnarborgar í
Hafnarfirði. Foreldrar hennar voru
Pétur Árnason, f. 18.6. 1905, d. 8.6.
1942, skipstjóri, og Maríanna I. Elí-
asdóttir, f. 13.6. 1916, d. 10.8. 1991,
húsmóðir.
Stjúpfaðir Pétrúnu var Jón
Björnsson, f. 6.10. 1909, d. 22.3. 1996,
vélstjóri.
Börn Ólafs og Pétrúnar eru Jón
Sverrir, f. 20.2. 1962, gagnrýnandi;
Óttarr Ólafur, f. 7.11. 1968, deildar-
stjóri; Ragnheiður Hulda, f. 23.1.
1971, mannfræðingur.
Systkin Ólafs; Óttar, f. 25.3. 1944,
d. 11.9. 1993, fjármálastjóri; Frið-
björg, f. 5.2. 1950, verkakona; Hrafn-
hildur, f. 20.6. 1952, flugfreyja.
Foreldrar Ólafs: Óttarr Proppé, f.
19.2. 1916, forstjóri í Reykjavík, og
Guðrún Hulda Gísladóttir Proppé, f.
28.8. 1917, d. 27.12. 1981, húsmóðir.
Ætt
Óttarr Proppé er sonur Ólafs
Proppé, alþm. og forstjóra SÍF, son-
ar Claus Eggerts Dietrich Proppé,
bakarameistara í Hafnarfirði, frá
Neumúnster í Þýskalandi. Móðir
Óttars Proppé var Áslaug Jónasdótt-
ir Hall, verslunarstjóra á Flateyri í
Önundarfirði. Móðir Áslaugar var
Jóna Ingibjörg, af Eyrardalsætt,
systir Valdimars, afa Valdimars
Örnólfssonar leikfimikennara.
Hulda var dóttir Gísla, trésmiðs í
Reykjavík, Jóhannessonar, sjó-
manns á Akranesi, Jónssonar. Móð-
ir Jóhannesar var Valgerður Andr-
ésdóttir, b. á Hellum í Mýrdal,
Árnasonar, og Guðríðar Guðmunds-
dóttur, b. á Giljum í Mýrdal, Lofts-
sonar. Móðir Huldu var Friðbjörg
Friðleifsdóttir, b. á Sýrlæk í Vill-
ingaholtshreppi í Flóa, Jónssonar.
Móðir Friðbjargar var Þorbjörg
Snæbjarnardóttir, b. á Ásgautsstöð-
um, Sigurðssonar.
. Ólafur er í útlöndum í dag.
Merkir Islendingar
Sigurður Júlíus Jóhannesson
Sigurður Júlíus Jóhannesson rithöfund-
ur fæddist að Læk í Ölfusi 9. janúar
1868. Foreldrar hans voru Jóhannes
Jónsson bóndi og Guðlaug Hannesdóttir
húsfreyja. Hann ólst upp í sárri fátækt,
elstur átta systkina en þegar hann var
ellefu ára var æskuheimili hans leyst
upp og fjölskyldan tlutt hreppaflutn-
ingum í Stafholtstungur.
Sigurður lauk stúdentsprófl í
Reykjavík 1897, lagði stund á læknis-
fræði, fyrst hér á landi og síðan í
Chicago í Bandaríkjunum. Þá lauk
hann fyrri hluta-prófi í guðfræði við
lútherskan prestaskóla í Chicago.
Sigurður var lengst af ritstjóri og rithöf-
undur og lengi búsettur í Vesturheimi. Hann
var mikill barnavinur, einn af stofnendum
Æskunnar 1897 og ritstjóri hennar. Auk
þess ritstýrði hann bamablöðunum Sól-
skini, Sólöld og Veröld sem komu út i
Kanada. Þá var hann ritstjóri Lögréttu í
Winnipeg um skeið. Sögur og kvœói eft-
ir Sigurð komu út í Winnipeg í tveim-
ur bindum 1900-1903 og fjórar ljóða-
bækur eftir hann komu út í Reykjavík.
Sigurður var hugsjónamaður sem lét
ekki aðra segja sér fyrir verkum. Hann
hrökklaðist til Kanada undan íslensk-
um yfirvöldum vegna stóryrða í frelsis-
baráttunni, var bindindissinni og svo ein-
lægur friðarsinni að hann lenti í útistöðum
við yfirvöld í Kanada er hann neitaði að
gegna herþjónustu. Hann lést 12. maí 1956.
Útför Ægis Einarssonar, fyrrv. lögreglu-
varðstjóra, Þinghólsbraut 2, Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju föstud.
11.1. kl. 13.30.
Útför Jennyjar Lovísu Einarsdóttur, Aöal-
götu 5, Keflavík, áður á Suðurgötu 16,
fer fram frá Keflavíkurkirkju miövikud.
9.1. kl. 13.30.
Minningarathöfn um Sigrúnu Fanneyju
Sigfinnsdóttur frá Neskaupstað, verður
haldin i Fossvogskapellu miðvikud. 9.1.
kl. 15.00. Fanney verður jarðsungin frá
Norðfjarðarkirkju 12.1. kl. 14.00.
Guðni Kárason, Hátúni lOa, Reykjavík,
verður jarösunginn frá Fossvogskapellu
miövikud. 9.1. kl. 13.30.
Útför Gunnars B. Guömundssonar, fýrrv.
hafnarstjóra, Laugarásvegi 73, fer fram
frá Dómkirkjunni föstud. 11.1. kl.
15.00.